Vill að ESB flýti inngöngu Íslands

Lestími: 9 mínútur

Ís­land var til um­ræðu í hinu geysi­vin­sæla hlað­varpi The Rest is Polit­ics á dögunum. Eins og fjöl­marg­ir aðr­ir veltu þátta­stjórn­end­urn­ir Alasta­ir Camp­bell og Rory Stewart fyr­ir sér ástæð­um þess að Ís­land hef­ur ítrek­að og óvart ratað á var­ir for­seta Banda­ríkj­anna. Stewart tel­ur Evr­ópu­sam­band­ið þurfa að bregð­ast við þessu um­svifa­laust.

Skipt­ar skoð­an­ir hafa ver­ið um þýð­ingu þess að Ís­land var ít­rek­að nefnt í ræðu Don­alds Trump for­seta Banda­ríkj­anna, í Dav­os. Þótt flest­ir hafi sam­mælst um að for­seti Banda­ríkj­anna hafi mis­mælt sig og rugl­að sam­an Græn­landi og Ís­land­i, sæt­ir furðu að hann hafi mis­mælt sig með slík­um hætti ít­rek­að í sömu ræð­u, eða fjór­um sinn­um.

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sagðist í sam­tali við RÚV hafa feng­ið stað­fest að for­set­inn hafi ekki ætl­að að kenna Ís­landi um dýfu á hluta­bréfa­mörk­uð­um í Banda­ríkj­un­um á þriðju­dag, um mis­mæli hafi ver­ið að ræða. Þá sem grun­ar að ann­að og meira liggi á bak við mis­mæli Trumps, verð­ur ekki hug­ar­hægra við þá stað­fest­ing­u, enda er það frek­ar spurn­ing um hvað ligg­ur að baki mis­mæl­anna sem veld­ur áhyggj­u­m.

Þessu tengt:

Með­al þeirra sem hafa lýst áhyggj­um af mis­mæl­un­um er Rory Stewart, fyrr­ver­andi þing­mað­ur og ráð­herra breska Íhalds­flokks­ins. Stewart stýr­ir hinu geysi­vin­sæla hlað­varpi The Rest is Polit­ics ásamt rit­höf­und­in­um og stjórn­mála­skýrand­an­um Alasta­ir Camp­bell. Þeir fé­lag­ar voru í sal ráð­stefnu­hall­ar­inn­ar í Dav­os þeg­ar Don­ald Trump flutti ræðu sína í vikunni.

„Nú vil ég ekki kafa of djúpt of­an í hið furðu­lega sál­ar­líf Don­alds Trump, en þetta veld­ur mér áhyggj­u­m, hvað­an koma all­ar þess­ar til­vís­an­ir til Ís­lands­?“

Í þætti sem birt­ur í kjöl­far ræð­unn­ar, vakti Rory Stewart máls á ít­rek­uð­um um­mæl­um Trumps um Ís­land. „Nú vil ég ekki kafa of djúpt of­an í hið furðu­lega sál­ar­líf Don­alds Trump, en þetta veld­ur mér áhyggj­u­m, hvað­an koma all­ar þess­ar til­vís­an­ir til Ís­lands­?“ spurði Stewart.

Hann orð­aði svo sína eig­in kenn­ingu og sagði að það hvarfl­aði að sér að Don­ald Trump hefði bara lit­ið á landa­kort og hugs­að með sér: „Ef við get­um tek­ið Græn­land, af hverju tök­um við þá ekki bara Ís­land lík­a?“ Þetta sagði Stewart með vís­an til þeirra við­horfa sem Trump hef­ur til leið­toga Evr­ópu, að þeir séu meira og minna aum­ingj­ar sem eigi eng­in svör við kröf­um hans, held­ur legg­ist bara flat­ir um leið og hann orði ósk­ir sín­ar.

Alasta­ir Camp­bell reyndi fyrst að draga úr þess­um hug­renn­ing­um en þá minnti Stewart á ný­legt „grín“ sendi­herra­efn­is Banda­ríkj­anna fyr­ir Ís­land um að hann yrði brátt rík­is­stjóri 52. rík­is Banda­ríkj­anna á Ís­land­i. Ljóst væri að Ís­land hafi ver­ið að skjóta reglu­lega upp koll­in­um í höfð­um þeirra.

Rory Stewart er ekki einn um þess­ar hug­leið­ing­ar. Þær hafa víða skot­ið upp koll­in­um bæði í höfð­um Ís­lend­inga og ann­arra. Er­ling­ur Er­lings­son orð­aði svip­að­ar hugs­an­ir í samtali við mbl.is og sagð­ist telja Ís­land hafa ver­ið til um­ræðu í Hvíta hús­inu þótt hann gæti ekki rök­stutt þá til­finn­ingu sína.

„Í mín­um huga, haf­andi séð báð­ar ræð­urn­ar, þá held ég að hann sé klár­lega að mis­mæla sig en hins veg­ar, án þess að ég sé ein­hvers kon­ar hegð­un­ar­sál­fræð­ing­ur eða eitt­hvað svo­leið­is, að þá nefn­ir mað­ur sjald­an hluti sem mað­ur hef­ur alls ekki ver­ið að hugsa um eða tala um­,“ sagði Er­ling­ur í sam­tali við mbl.­is.

Stækka þurfi Evr­ópu­sam­band­ið með hraði

Í síð­ari hluta fyrr­nefnds hlað­varps­þátt­ar ræddu Stewart og Camp­bell um nán­ari sam­vinnu Evr­ópu­ríkja og hvort Bret­land ætti þar ein­hverja inn­komu. Þessi um­ræða spannst út frá ræðu Marks Car­n­ey for­sæt­is­ráð­herra Kanada og ákalli hans um nán­ari sam­vinnu minni og með­al­stórra ríkja.

Stewart sagði mik­il­vægt nú að slík ríki standi sam­an enda geti þau mynd­að sterka og valda­mikla blokk þeg­ar þau komi sam­an. Þá veltu þeir fyr­ir sér næstu skref­um Keir Star­mer for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og hvort hann geti byggt brýr á ný til Evr­ópu. „Því það sem Trump ger­ir er að að reyna að skapa sundr­ung­u, þess vegna legg­ur hann mis­háa tolla á rík­in,“ sagði Stewart og bætti við: „Það sem við þurf­um nú eru sam­eig­in­leg­ar yf­ir­lýs­ing­ar frá leið­tog­un­um. Evr­ópu­sam­band­ið þarf að sýna hug­rekki.“

„Er núna runn­in upp sú stund að Evr­ópu­sam­band­ið þurfi að flýta inn­göngu Ís­lands­?“

Svo snéri Stewart sér aft­ur að Ís­land­i: „Núna þarf Evr­ópu­sam­band­ið að hugsa um hvað það ger­ir fyr­ir Ís­land: „Er núna runn­in upp sú stund að Evr­ópu­sam­band­ið þurfi að flýta inn­göngu Ís­lands­?“ spurði Stewart og velti fyr­ir sér hvort þetta kunni að verða áhrif þess sem Trump hef­ur gert á tólf mán­uð­u­m.

„Kannski í stað þess að bíða í ára­tug eft­ir að öll Balkan-rík­in vest­an­meg­in upp­fylli öll skil­yrði inn­göng­u, væri rétt að snúa ferl­inu við og veita þeim inn­göngu strax og gera þau að með­lim­um Evr­ópu­sam­bands­ins en svo fái þau rétt­indi að­ild­ar smám sam­an á næstu tíu ár­um eft­ir því hvern­ig þeim geng­ur að upp­fylla inn­göngu­skil­yrð­in,“ sagði Stewart og lauk svo þess­um hug­leið­ing­um á ósk um að Keir Star­mer láti reyna á eitt­hvað í þessa átt.

Þessi hugmynd hef­ur ekki ver­ið viðruð op­in­ber­lega af Evr­ópu­sam­band­inu eða stjórn­mála­leið­tog­um á Ís­land­i, í ljósi at­burða und­an­far­inna sól­ar­hringa. En þetta er hins vegar í takt við það sem forseti Finn­lands, Al­ex­and­er Stubb, hef­ur spáð fyr­ir um, það er að segja að ESB fari að horfa með öðr­um hætti á stækk­un­ar­mál og í raun­inni snúa ferl­inu við. Í stað þess að um­sókn­ar­ríki semji um alla 35 kafla um­sókn­ar­inn­ar, verði um­sókn­ar­rík­inu veitt að­ild strax og svo öðlist það rétt­indi hvers og eins kafla eft­ir því sem samn­ing­um um þá er náð. Svona verði lík­lega far­ið með um­sókn Úkra­ín­u, nefn­ir Stubb sem dæmi og þrátt fyr­ir að Úkra­ína verði risa­biti fyr­ir Evr­ópu­sam­band­ið, þá fylg­ir með 800 þús­und manna her, og með því mun hern­að­ar­vald sam­bands­ins tvö­fald­ast.

En í um­ræð­um um stöðu al­þjóða­mála á Al­þingi, var spurn­ing­in um að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu vissu­lega með­al um­ræðu­efna.

„Á ör­laga­tím­um eins og eru núna ber okk­ur skylda til þess, for­dæma­laust, að end­ur­hugsa stöðu Ís­lands í þess­um hverf­ula heim­i,“ sagði Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir, ut­an­rík­is­ráð­herra í munn­legri skýrslu sinni við upp­haf um­ræð­unn­ar. „Við eig­um ekki að hlaup­ast und­an þeim merkj­um að skoða alla mögu­leika, þar með talið, já, að huga að að­ild­ar­við­ræð­um við Evr­ópu­sam­band­ið,“ sagði ráð­herra. Horfa má á ræðu ráðherra hér að neðan.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:44

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link