
1. Tímamótaræða forsætisráðherra Kanada
2. Evrópa hverfur frá varfærni og brýnir raustina
3. Viðskiptasamningur ESB og Bandaríkjanna settur á ís
4. Utanríkisráðherra Íslands velur Kanadaleiðina
5. Friðarráð Trumps til höfuðs Sameinuðu þjóðunum

Staðreyndin um breytta heimskipan er að renna upp fyrir leiðtogum vestrænna ríkja. Efasemdir um Bandaríkin sem trúverðugan þátttakanda í vestrænni samvinnu eru orðnar háværar og undanfarna sólarhringa hefur kveðið við nýjan tón í yfirlýsingum leiðtoga bandalagsríkja Íslands. Þennan nýja tón mátti líka heyra í ræðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands, í umræðu um stöðu alþjóðamála á fimmtudag.
Atburðarás síðustu sólarhringa er samofin þróun í alþjóðamálum á undanförnum vikum og mánuðum. Á þessum tíma hefur spenna í samskiptum aðildarríkja NATO aukist jafnt og þétt, meðal annars vegna friðarumleitana Bandaríkjaforseta milli Rússlands og Úkraínu, útkomu nýrrar þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjastjórnar og ekki síst endurvakins áhuga og kröfu Bandaríkjaforseta um yfirráð yfir Grænlandi.
Segja má að spennan hafi náð hámarki efnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss, þar sem nokkrir þjóðarleiðtogar fluttu erindi, þeirra á meðal Donald Trump.
Til að varpa ljósi á þær krossgötur sem vestræn samvinna stendur á dregur Gímaldið saman atburði síðustu sólarhringa saman í fimm atriði.
Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, hélt tímamótaræðu á efnahagsráðstefnunni í Davos í vikunni. Í ræðunni, sem farið hefur sigurför um Evrópu og víðar, hvatti Carney ríki og þjóðarleiðtoga til að tala skýrt og af heiðarleika um hættuna sem minni ríkjum getur stafað af stórveldum. Ræða hans var bæði ákall um heiðarlegt samtal og viðbrögð við breyttum áherslum Bandaríkjastjórnar og framtíðarsýn fyrir Kanada og bandalagsríki þess.
„Vald hinna valdaminni hefst á því að vera heiðarlegur,” sagði Garney. Horfast þurfi í augu við þann veruleika að breytingin sé varanleg. „Gamla heimsskipanin kemur ekki aftur. Við ættum ekki að syrgja það. Fortíðarþrá er ekki stefna. En úr brotunum getum við byggt eitthvað betra, sterkara og réttlátara,“ sagði Carney.
Í ræðu sinni lagði Carney áherslu á að lítil og meðalstór ríki standi alltaf höllum fæti í tvíhliða samskiptum við stórveldi. Samningsstaða þeirra sé allaf veik. „Þegar við semjum aðeins tvíhliða við yfirráðaríki semjum við af veikleika. Við tökum því sem er boðið. Við keppum okkar á milli um að vera sem eftirgefanlegust. Þetta er ekki fullveldi. Þetta er sýndarmennska fullveldis á meðan við sættum okkur við undirgefni.“
Carney talaði um mikilvægi hins alþjóðlega kerfis sem byggt var upp eftir seinni heimstyrjöld en ráðist sé á í dag af stórveldunum sem hjálpuðu til við að byggja þau upp. Hann sagði Kanada ekki ætla að beygja sig fyrir ríkjum sem vilji brjóta niður þessi mikilvægu kerfi og fagni samvinnu með þeim ríkjum sem eru á sama máli. „Við erum miklu sterkari í sameiningu gegn löndum sem vilja brjóta niður alþjóðlega kerfið.“
Í ljósi þessa hvatti Carney meðalstór ríki til að starfa saman. „Því ef við sitjum ekki við borðið erum við á matseðlinum.“ Þótt stórveldin hafi efni á að standa ein, með sinni markaðsstærð, hernaðargetu og aflið til að ráða skilmálunum, hafi meðalstór ríki ekki efni á því.
Carney dvaldi við breyttar áherslur kanadískra stjórnvalda í ljósi þessarar nýju skipan mála á alþjóðavettvangi.
Útgjöld til varnarmála hefðu verið tvöfölduð og fjöldi nýrra viðskipta og varnarsamvinnusamningar hafi verið undirritaðir við ríki frá fjórum heimsálfum. Þá væri Kanada að efla samstarf sitt við Evrópusambandið.
Carney hefur fengið mikið lof fyrir ræðuna og hafa stjórnmálaskýrendur spáð því að hún kunni að marka kaflaskila í vestrænni samvinnu.
Fréttamiðillinn FF7 birti íslenska þýðingu ræðu Carneys á vefsíðu sinni en hægt er að horfa á ræðuna hér.
Það kveður einnig við mjög breyttan tón hjá leiðtogum í Evrópu, sem hingað til hafa flestir talað af mikilli varfærni um breytta stefnu Bandaríkjastjórnar. Flestir hafa mótmælt einstaka aðgerðum eins og nálgun forsetans í friðarviðræðum milli Rússlands og Úkraínu, nýrri tollastefnu og nýrri þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna. Jafnvel fyrstu viðbrögð við ásælni Trumps í Grænland, voru varfærin.
Nú kveður hins vegar við nýjan tón. Það eru eins og samantekin ráð leiðtoga að leggja áherslu á fullveldi, samstarf og mikilvægi alþjóðakerfis Sameinuðu þjóðanna og virðingu fyrir alþjóðalögum. En leiðtogar eru líka, líkt og Carney að tala með umbúðarlausari hætti en áður.
„Við stöndum á krossgötum“ sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í ræðu í Evrópuþinginu fyrr í vikunni. Hún sagði að skipan alþjóðamála væri ekki aðeins gjörbreytt heldur væri breytingin varanleg og hefði orðið á skemmri tíma en við höfum áður séð. „Og þótt mörgum okkar geðjist ekki að þessum breytingum, þurfum við að takast á við heiminn eins og hann er núna.”
„Þótt mörgum okkar geðjist ekki að þessum breytingum, þurfum við að takast á við heiminn eins og hann er núna.” – Ursula von der Leyen.
Vegna þessa þurfi Evrópa að herða upp hugann. „Við þurfum að hverfa frá okkar hefðbundnu Evrópsku varfærni,“ sagði von der Leyen. Evrópusambandsríkin þurfi nú að efla efnahag sinn og varnir. Álfan þurfi að herða sig upp og hafa sjálf áhrif á þróun mála í sínum eigin heimshluta.
Ræða Emmanuels Macron, Frakklandsforseta, á efnahagsráðstefnunni í Davos var í svipuðum tón. Hann talaði fyrir virðingu í stað yfirgangs og sagði Frakkland og Evrópu aðhyllast fullveldi og sjálfstæði ríkja á grundvelli stofnsáttmála Sameinuðu málanna.
Ljóst var að Macron beindi orðum sínum að forseta Bandaríkjanna. Hann sagði samkeppni frá Bandaríkjunum grafa undan útflutningshagsmunum Evrópu og sakaði Bandaríkin um að beita sér opinskátt til að veikja og undiroka Evrópu. Vísaði Macron meðal annars til ítrekaðra hótana um tolla á þau ríki sem ekki eru auðsveip. Líkt og von der Leyen, hvatti Macron til þess Evrópa efli sig. „Við munum gera okkar besta í þágu sterkari og sjálfstæði Evrópu.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, flutti harðorða ræðu í Davos og gagnrýndi leiðtoga Evrópu fyrir að bregðast ekki með meira afgerandi hætti við þeim öryggisáskorunum sem álfan stendur frammi fyrir. Hann vísaði ekki aðeins til Úkraínu í þessu sambandi heldur einnig til Grænlands og gagnrýndi hann leiðtoga fyrir að hafa beðið of lengi í ráðaleysi eftir því að Bandaríkjamenn róist og snúi sér að öðru.
Leiðtogar aðildarríkja ESB hittust á aukafundi í Brussel á fimmtudagskvöld og ræddu sviptingar í vestrænni samvinnu.
Evrópuþingið samþykkti að setja samþykkt viðskiptasamnings milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna á ís. Tilkynning þessa efnis var birt, stuttu eftir að Donald Trump lauk máli sínu í Davos. „Viðskiptasamningurinn hefur verið settur á bið þar til hótunum um Grænland linnir,“ sagði í tilkynningunni.
Samningurinn sem um ræðir var gerður í kjölfar kynningar á tollastefnu Bandaríkjaforseta í fyrra. Samningurinn var undirritaður síðastliðið sumar en tekur ekki formlega gildi fyrr en Evrópuþingið hefur greitt um hann atkvæði og ráðherraráð Evrópusambandsins veitt samþykki sitt.
Stuttu eftir tilkynningu Evrópuþingsins, féll Dónald Trump frá hótunum sínum um tíu prósenta refsitolla á Evrópuríki og sagði samningaviðræður hafnar um Grænland. Ekki liggur fyrir hvaða hagsmunir eru til umfjöllunar í þeim viðræðum en í ljósi þess að helsti viðsemjandi Trumps er framkvæmdastjóri NATO, er talið að þær tengist frekar öryggis og varnarmálum. Alger samstaða ríkir meðal samstarfsþjóða í Evrópu gegn því að Bandaríkin eignist Grænland og þótt Trump lýsi yfir fullnaðarsigri í fyrrnefndum samningaviðræðum er nánast útilokað að í þeim felist eftirgjöf varðandi eignarhald.
Það kvað við nýjan tón í ræðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra á Alþingi á fimmtudagsmorgun. Í munnlegri skýrslu ráðherra um stöðu alþjóðamála, mátti heyra bergmál af ræðum framkvæmdarstjóra Evrópusambandsins, forseta Frakklands og forsætisráðherra Kanada.
„Núna stöndum við frammi fyrir nýrri heimsmynd sem er verið að reyna að teikna, verið að reyna að breyta og það er verið að hleypa mjög fáum að penslinum.“ – Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.
Þorgerður sagði nauðsynlegt að endurhugsa stöðu Íslands í hverfulum heimi. Þau ríki sem ekki teljist til stórvelda standi fyrir skýru vali. Hún vísaði sérstaklega til ræðu Carneys og sagði hann lýsa stöðunni frábærlega. „Við Íslendingar og þessi ríkisstjórn hefur í rauninni verið að vinna nákvæmlega eftir því plani. Við vitum að við erum með tvær grunnstoðir í varnarmálum en við höfum einmitt verið að auka samstarfið, gera tvíhliða yfirlýsingar, eiga í samstarfi og samtali bæði við Evrópusambandið og Kanada og fleiri þjóðir til þess einmitt að tryggja og treysta stöðu Íslands í hverfulum heimi.“ Sagði Þorgerður að haldið yrði áfram á þessari braut.

„Það væri óþolandi fyrir okkur Íslendinga og ekki boðleg staða ef við, smáríkin eða meðalstóru ríkin, ætluðum að keppa um hylli hinna sterku og síðan bíða þæg og róleg eftir því að molar af nægtaborði þeirra féllu af og til til litlu og meðalstóru ríkjanna.“
Líkt og von der Leyen sagði Þorgerður þær að breytingar sem eru að teiknast upp í alþjóðaöryggismálum eigi sér fáar hliðstæður í lýðveldissögunni. Því miður séu ekki mjög mörg jákvæð teikn á lofti. „Ég verð þó að segja að síðustu daga hefur verið sterkt að sjá hvernig Evrópuríkin hafa staðið saman og talað einni röddu, til að mynda með því að ýta undir fullveldi og sjálfsákvörðunarrétt Grænlands og treysta stuðninginn við Danmörku. Síendurteknar yfirlýsingar Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi er fordæmalaus framganga gegn nánu bandalagsríki.”
Þorgerður tók þó fram að enn væri unnið að því að treysta sambandið við Bandaríkin en á jafnréttisgrundvelli fremur en einstefnu stórveldis gagnvart Íslandi. Lesa má ræðu Þorgerðar hér og horfa á hana hér að neðan
Á sama tíma og forseti Bandaríkjanna keppist við að efna til ágreinings og illdeilna við ríki sem hafa hingað til verið nánustu bandalagsríki Bandaríkjanna, styrkir hann tengsl við ríki sem aðhyllast önnur gildi. Stofnfundur svokallaðs Friðarráðs fór fram í Davos á föstudag. Hugmyndin að ráðinu var upphaflega kynnt í tengslum við friðarumleitanir á Gaza en í boðsbréfi til þjóðarleiðtoga fyrir helgi er ráðið kynnt sem einskonar arftaki Sameinuðu þjóðanna og því ætlað að vinna að lausn deilumála á alþjóðavettvangi, jafnvel í samkeppni við Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Donald Trump verður sjálfur forseti ráðsins en gert er ráð fyrir að ríki önnur fái sæti í ráðinu í þrjú ár í senn. Ríkjum stendur einnig til boða að kaupa varanlegt sæti í ráðinu en gegn greiðslu milljarðs Bandaríkjadala.
Það þykir eflaust táknrænt að stofnfundurinn fari fram á þessum tímapunkti enda sýnir hann svo ekki verður um villst hvaða bandalög eru að teiknast upp og hver eru að rofna.
Meðal ríkja sem þegið hafa sæti í ráðinu eru ríki fyrir botni Miðjarðarhafs á borð við Ísrael, Sádi Arabíu, Sameinuðu Arabísku furstadæmin, Jórdaníu, Katar og Egyptaland, þau Evrópuríki sem hafa átt hvað best samskipti við forseta Bandaríkjanna; Tyrkland, Ungverjaland og Belarús. Þá hafa Indónesía, Pakistan, Víetnam, Kasakstan og Úsbekistan einnig samþykkt þátttöku. Rússland og Kína hafa ekki tekið opinberlega afstöðu til boðs um þátttöku. Bent hefur verið á að bæði þessi lönd fara með neitunarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og óvíst að þau vilji styrkja nýtt alþjóðlegt bandalag sem ætlað er að veikja það sem fyrir er, án tryggingar um sambærilegt vald og þess sem forsæti Bandaríkjanna ætlar sjálfum sér.
Þau Evrópuríki sem fengið hafa boð um sæti í ráðinu hafa ýmist afþakkað sæti eða lýst efasemdum á þeim grundvelli að hugmyndin grafi undan starfi Sameinuðu þjóðanna. Krafa Donalds Trump um að Bandaríkin þurfi að eignast Grænland og ólgan sem henni fylgir hefur eflaust mikil áhrif, auk þeirra viðhorfa til Evrópuríkja sem Bandaríkjastjórn hefur lýst, bæði í ræðum forsetans og í þjóðaröryggisstefnu landsins. Þá hefur boð til Vladimir Pútins um setu í ráðinu hefur ekki síður latt ríki Evrópu til þátttöku.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.