Lilja lík­legri en Ingi­björg til alls vís

Lestími: 9 mínútur

Átaka­lín­urn­ar eru víða í Fram­sókn í við upp­haf flokks­þings. Sig­urð­ur Ingi styð­ur einn fram­bjóð­anda en Will­um Þór styð­ur aðra. Önn­ur er að norð­an en hin úr Reykja­vík. Mál­efn­in eru hins veg­ar það sem sam­ein­ar þær Lilju og Ingi­björgu eins og heyra má í þessum við­töl­um við þær við upp­haf kosn­inga­bar­áttu þeirra.

Ingi­björg Isak­sen og Lilja Al­freðs­dótt­ir komu báð­ar til við­tals við Gímald­ið eft­ir að þær til­kynntu fram­boð sín til for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokkn­um. Nú er kom­ið að úr­slita­stund­u. Þær hafa dag­inn í dag til að berj­ast fyr­ir emb­ætt­inu á sjálfu flokks­þing­inu sem hefst í dag og lýkur á morgun. 860 eru á kjör­skrá en 350 at­kvæði gætu dug­að til sig­ur­s, allt eft­ir því hversu vel full­trú­ar mæta til þings­ins.

Við­töl­in eru í spil­ur­un­um hér að of­an og á helstu hlaðvarpsveitum.

Með sömu áhersl­ur en ólík­an bak­grunn

For­manns­kjör­ið um helg­ina er ekki bara bar­átta milli lands­byggð­ar og suð­vest­ur­horns­ins. Líkt og oft áð­ur berj­ast tvær fylk­ing­ar nú um for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þær Ingi­björg Isak­sen og Lilja Al­freðs­dótt­ir lýstu svip­aðri Fram­tíð­ar­sýn fyr­ir Fram­sókn­ar­flokk­inn. Hann eigi að vera flokk­ur venju­legra Ís­lend­inga, sem þurfi hús­næð­i, lífs­við­ur­væri, at­vinnu og ör­ygg­i. Þær eru því á svip­uð­um slóð­um í efna­hags­mál­u­m, vel­ferð­ar­mál­um og ut­an­rík­is­mál­u­m.

Það eru aðr­ir hlut­ir sem greina þær tvær að. Lilja Al­freðs­dótt­ir hef­ur óneit­an­lega sterk­ari fer­il­skrá. Hún er með hag­fræði­próf frá Col­umbia Há­skóla í Banda­ríkj­un­um, starf­aði um tíma hjá Al­þjóða­gjald­eyr­is­sjóðn­um og síð­ar í Seðla­banka Ís­lands. Hún hef­ur ver­ið vara­for­mað­ur flokks­ins í ára­tug og hef­ur ver­ið ráð­herra í þrem­ur ráðu­neyt­u­m, ut­an­rík­is­ráð­herra, mennta-­ og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og menn­ing­ar­- og ferða­mála­ráð­herra.

Ingi­björg Isak­sen er íþrótta­kenn­ari að mennt og hef­ur starf­að sem grunn­skóla­kenn­ari, for­stöðu­mað­ur Íþrótta­mið­stöðv­ar Eyja­fjarð­ar­sveit­ar og fram­kvæmda­stjóri Lækna­stofa Ak­ur­eyr­ar. Hún hef­ur ver­ið í sveit­ar­stjórn í Eyja­fjarð­ar­sveit og í bæj­ar­stjórn Ak­ur­eyr­ar. Hún sett­ist á þing ár­ið 2021 og hef­ur gegnt starfi þing­flokks­for­manns þau ár sem hún hef­ur set­ið á þing­i. Hún hef­ur ekki gegnt ráð­herra­emb­ætti.

Reynsla eða ákall um breytingar

Þótt Lilja hafi vissu­lega meiri reynslu, gæti það unn­ið gegn henni að hafa ver­ið lengi í fram­varð­ar­sveit Fram­sókn­ar­flokks­ins og átt sæti rík­is­stjórn­um sem voru óvin­sæl­ar und­ir það síð­asta.

Lilja var odd­viti í Reykja­vík suður fyr­ir síð­ustu kosn­ing­ar en hlaut ekki kosn­ingu og datt út af þing­i. Í þeirri kosn­ingu hlaut Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verstu kosn­ingu í sögu sinn­i. Nið­ur­stað­an varð 7,8 pró­sent og fimm þing­menn.

Sjálf­ir vísa Fram­sókn­ar­menn til Fram­sókn­ar­þreyt­u hjá landsmönnum, til að skýra ósig­ur­inn. Fólk hafi ver­ið orð­ið þreytt á flokkn­um og for­ystu­fólki hans og vilj­að breyt­ing­ar. Þessi krafa er erf­ið fyr­ir Lilju. Við það bæt­ist að verði hún kjör­in for­mað­ur mun hún gegna því emb­ætti ut­an þings til næstu kosn­inga, en tæp þrjú ár eru eft­ir af kjör­tíma­bil­in­u.

Stuðn­ings­menn Lilju halda því hins veg­ar fram að ákall um breyt­ing­ar lúti fyrst og fremst að for­manni flokks­ins og að Ingi­björg sé fram­bjóð­andi sitj­andi for­manns. Sig­urð­ur Ingi Jó­hanns­son styðji Ingi­björgu og stuðn­ingi hans fylgi mörg at­kvæði úr Suð­ur­kjör­dæmi. Þá hef­ur Lilja bent á að Ingi­björg sé einn helsti tals­mað­ur flokks­ins á þingi í dag og á yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili hafi fylg­ið ekk­ert bragg­ast.

Allt nema Lilju

Lilja Al­freðs­dótt­ir er ekki allra og Sig­urð­ur Ing­i, fráfarandi formaður, er tal­inn í hópi þeirra Fram­sókn­ar­manna sem myndi styðja flesta fram­bjóð­end­ur sem færu gegn Lilju. Þannig hefði Sig­urð­ur Ingi án efa stutt Will­um Þór, hefði hann far­ið fram. Í hug­um sumra snýst bar­átt­an þannig ekki síst um að Lilja fái ekki að verða for­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Hvað það er í fari Lilju sem þess­um hópi Fram­sókn­ar­manna lík­ar ekki við í, hef­ur ekki far­ið hátt. Fram­sókn­ar­menn gagn­rýna yfirleitt ekki leið­toga sína eða framvarðarsveit op­in­ber­lega. Lilja er tal­in fylg­in sér í póli­tík og fór oft ekki í fel­ur með skoð­an­ir sín­ar þeg­ar hún var ósam­mála ráð­herr­um í rík­is­stjórn­um sem hún sjálf átti sæti í. Hún hef­ur ein­fald­lega karakt­er­ein­kenni til þess að vera um­deild. Þá kann að vera að það hræði ein­hverja hve ná­ið sam­band var milli Lilju og Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar en hún var efna­hags­ráð­gjafi hans þegar hann var for­sæt­is­ráð­herra­.

Mölin eða sveitin

Önn­ur nokk­uð skýr átaka­lína í for­manns­kjör­inu er milli lands­byggð­ar og höf­uð­borg­ar­svæð­is. Ingi­björg Isak­sen er að norð­an en Lilja úr höf­uð­borg­inn­i. Lilja nýt­ur mik­ils stuðn­ings á öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu en Ingi­björg er sterk á lands­byggð­inn­i, sér­stak­lega í sínu kjör­dæmi fyr­ir norð­an og í kjör­dæmi sitj­andi for­manns, á Suð­ur­land­i.

Kosn­inga­bar­átta Lilju og Ingi­bjarg­ar er hins veg­ar fæst­um mjög sýni­leg nema þeim sem gætu átt þátt­töku­rétt á flokks­þing­inu um helg­ina. For­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins er ekki kos­inn af öll­um fram­sókn­ar­mönn­um á land­in­u, held­ur að­eins af þeim sem mæta á flokks­þing. Um 860 full­trú­ar eiga þátt­töku­rétt. Ann­ars veg­ar eru hátt á þriðja hund­rað í mið­stjórn flokks­ins með þátt­töku­rétt og svo fá 600 manns kjör­bréf gegn­um að­ild­ar­fé­lög víða um land. Um þessa full­trúa hafa Lilja og Ingi­björg barist um.

Barist um atkvæði og kjörbréf

Þær Ingibjörg og Lilja hafa hins vegar ekki aðeins notað sannfæringarkraftinn til að afla sér atkvæða meðal þeirra sem mæta á flokks­þing­ið, heldur hefur baráttan einnig snúist um að koma réttu fólki á kjörskrá með því að tryggja þeim kjör­bréf sem í boði eru hjá að­ild­ar­fé­lög­um lands­ins. Vegna þess hve lokað formannskjörið er geta frambjóðendur, með því manna kjörbréfin, ekki aðeins tryggt sér fleiri atkvæði, heldur komið í veg fyrir að stuðningsmenn andstæðingsins hafi atkvæðisrétt. Í frétt RÚV seg­ir að Lilja hafi geng­ið hart fram í að tryggja sín­um stuðn­ings­mönn­um kjör­bréf, þó ekki nema til ann­ars en að koma í veg fyr­ir að stuðn­ings­menn Ingi­bjarg­ar kom­ist á þing­ið. Dæmi séu um að rót­grón­ir Fram­sókn­ar­menn sem alla jafna eigi rétt til að sækja þing­ið, hafi misst kjör­bréf sitt til fólks með lít­il sem eng­in tengsl við flokk­inn.

Flokks­þing­ið hefst í dag en formannskjör hefst klukk­an eitt á morg­un. Bú­ist er við nið­ur­stöðu síð­deg­is á morg­un eða ann­að kvöld.

Þótt Lilja sé tal­in sig­ur­strang­legri hefur Ingi­björg ver­ið að sækja í sig veðr­ið og ef það er meiri vind­ur í henn­ar segl­um nú þeg­ar kjör­ið er að bresta á er aldrei að vita hvað get­ur gerst.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:34

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link