Ára­tug­ir erf­ið­leika í for­ystu­mál­um Fram­sókn­ar

Lestími: 12 mínútur

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hef­ur tvisvar kjör­ið sér for­mann sem ekki sat á þing­i. Þá líkt og nú glímdi flokk­­­ur­inn við fylg­is­hrun og óá­­­nægju í gras­rót­inn­i.

* Þessi grein birtist nóvember 2025 en var lesin inn 12. febrúar 2026. Engar breytingar hafa verið gerðar á efni greinarinnar, en í lestrinum verður getið um breytingar sem orðið hafa síðan hún birtist. Þar er helst að nefna nöfn þeirra sem bjóða sig fram til formanns og þeirra sem ákváðu að gera það ekki. 

Mik­ið starf bíð­ur nýs for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins sem kjör­inn verð­ur á nýju ári. Flokk­ur­inn er í sögu­legri lægð, hlaut verstu kosn­ingu frá stofn­un flokks­ins í síð­ustu al­þing­is­kosn­ing­um og fylg­ið ver­ið með versta móti í könn­un­um.

Í fyrri hluta umfjöllunar um Framsóknarflokkinn fjallaði Gímald­ið um við­horf fram­sókn­ar­fólks til stöðu flokks­ins og ræddi ástand og horf­ur við Ólaf Þ. Harð­ar­son pró­fess­or í stjórn­mála­fræð­i.

Í þess­um síð­ari hluta víkj­um við að for­ystu flokks­ins. Það hefur ekki verið létt verk að vera formaður Framsóknarflokksins undanfarna tvo áratugi.

For­mað­ur­inn treg­ur til upp­gjaf­ar

Sig­urð­ur Ingi Jó­hanns­son mun láta af emb­ætti for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins á næsta flokks­þingi sem boð­að verð­ur til 14. febr­ú­ar næst­kom­and­i. Hann til­kynnti þetta á mið­stjórn­ar­fundi flokks­ins í október.

Það var ef­laust ekki létt verk að vera for­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins ár­in 2016 og 2017. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Um við­snún­ing er að ræða hjá for­mann­in­um, sem lét ít­rek­að hafa eft­ir sér fyrr á ár­inu að hann hygð­ist leiða flokk­inn áfram. Eft­ir að Bjarni Bene­dikts­son til­kynnti brott­hvarf sitt af stjórn­mála­svið­inu í upp­hafi ár­s, boð­aði Sig­urð­ur Ingi hring­ferð um land­ið. Nú yrði blás­ið til sókn­ar. Að hring­ferð lok­inni sagð­ist Sig­urð­ur Ingi enn vilja leiða flokk­inn. Hann hefði fund­ið fyr­ir stuðn­ingi til þess. Skoð­ana­kann­an­ir sögðu þó aðra sög­u.

Könn­un sem gerð var af Mask­ínu fyr­ir hlað­varp­ið Kom­ið gott í maí og fjallað var um á mbl.is sýndi svo ekki var um villst veika stöðu for­manns­ins. Hann mæld­ist með 18,7 pró­senta fylgi sem for­mað­ur flokks­ins með­al Fram­sókn­ar­manna sem tóku þátt í könn­un­inn­i. Tvö for­manns­efni mæld­ust næst­um helm­ingi sterk­ari en for­mað­ur­inn. Will­um Þór Þórs­son með 33 pró­sent og Lilja D. Al­freðs­dótt­ir með 29,3 pró­sent.

Ekki er ólík­legt að þetta hafi ýtt við for­mann­in­um, auk arfa­slaks fylg­is flokks­ins í könn­un­um á kjör­tíma­bil­in­u.

Lilja og Willum fá áskoranir

Lilja og Will­um hafa bæði feng­ið áskor­an­ir um for­manns­fram­boð. Fram­sókn­ar­fé­lag Reykja­vík­ur hef­ur skor­að á Lilju og Fram­sókn­ar­fé­lög í Krag­an­um og Skaga­firði hafa skor­að á Will­um Þór.

Þau tvö voru einnig helst nefnd í sam­töl­um Gímalds­ins við Fram­sókn­ar­fólk. Þó hef­ur einnig ver­ið nefnt að nið­ur­stöð­ur síð­ustu kosn­inga hafi ver­ið ákall um breyt­ing­ar. Bæði Lilja og Will­um voru odd­vit­ar í sín­um kjör­dæm­um og hvor­ugt þeirra náði kjöri á þing.

Nú á allra síðustu dögum hefur Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og oddviti í Norðausturkjördæmi, verið nefnd til sögunnar og segist hún ekki útiloka framboð.

Ákveði þau Willum og Lilja hins vegar ein að gefa kost á sér er ljóst að næsti for­mað­ur flokks­ins verð­ur ut­an þings út þetta kjör­tíma­bil.

Lilja og Will­um gegndu bæði ráð­herra­stöð­um í rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur. Þau féllu af þingi í síð­ustu kosn­ing­um. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Al­mennt þyk­ir far­sæl­ast að for­mað­ur flokks eigi sæti á Al­þing­i. Hitt þyk­ir auka hættu á að for­ysta flokks­ins og kjörn­ir full­trú­ar tali ekki ein­um rómi og skila­boð flokks­ins verði óljós. Flokks­menn hafa hins veg­ar bent á að for­manns­ins bíði mik­ið upp­bygg­ing­ar­starf. Það þurfi að vinna í sam­tali við flokks­fólk út um allt land. Þess vegna gætu líka falist tæki­færi í því að velja for­mann sem hef­ur tíma til að sinna starf­in­u.

Sú staða hef­ur tví­veg­is kom­ið upp á síðustu tveimur áratugum að Fram­sókn­ar­flokkurinn kjósi sér formann sem ekki á sæti á þingi. Þá líkt og nú glímdi flokk­ur­inn við fylg­is­hrun og óá­nægju í gras­rót­inn­i.

For­mað­ur­inn náði ekki kjöri á þing

Ár­ið 2006 ákvað Hall­dór Ás­gríms­son að láta gott heita í stjórn­mál­u­m. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var þá í rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokkn­um og við af­sögn Hall­dórs flutt­ist for­sæt­is­ráðu­neyt­ið til Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Geir H. Haar­de varð for­sæt­is­ráð­herra.

Jón Sig­urðs­son, þá seðla­banka­stjóri, tók við for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokkn­um og sett­ist í rík­is­stjórn þótt hann ætti ekki sæti á Al­þing­i. Þeg­ar hér var kom­ið sögu hafði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ver­ið tólf ár í rík­is­stjórn. Líkt og nú voru kjós­end­ur bún­ir að fá nóg af Fram­sókn í bil­i. Í kosn­ing­um 2007 tap­aði flokk­ur­inn illa og missti næst­um helm­ing þing­styrk síns, fór úr 12 þing­sæt­um í sjö. Nýji for­mað­ur­inn fór fram í Reykja­vík en náði ekki kjöri. Því var sjálf­hætt fyr­ir Jón á for­mann­stóli eft­ir að­eins ár í emb­ætt­i.

Guðni gafst upp vegna óein­ing­ar

Vara­for­mað­ur flokks­ins, Guðni Ágústs­son tók við kefl­inu strax að lokn­um kosn­ing­um. Hann hafði mikla löng­un til upp­bygg­ing­ar flokks­ins á ný en gras­rót­in var ekki sam­mála og flokk­ur­inn log­aði í ill­deil­um eins og Guðni lýsti í bréfi til þing­manna í nóv­em­ber 2008 eft­ir eitt og hálft ár í emb­ætt­i.

Því mið­ur hef­ur von­in um nauð­syn­leg­an starfs­frið og ein­ingu breyst í and­hverfu sína. Mér er það ljóst að sú sátt inn­an Fram­sókn­ar­flokks­ins sem nauð­syn­leg er fyr­ir end­ur­reisn hans mun ekki skap­ast án breyt­inga í for­ystu flokks­ins. Sú sátt þol­ir enga bið. Með af­sögn minni legg ég mitt af mörk­um til að hraða því breyt­inga­ferli sem óhjá­kvæmi­legt er til þess að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nái að safna kröft­um sín­um á nýj­an leik.
(Úr bréfi Guðna Ágústssonar til þingmanna flokksins, nóvember 2008)

Af Guðna tók við for­ystu í flokkn­um fyrsta og eina kon­an sem gegnt hef­ur því emb­ætt­i, Val­gerð­ur Sverr­is­dótt­ir. Hún hafði gegnt emb­ætti vara­for­manns í for­mann­s­tíð Guðna en gaf ekki kost á sér í for­manns­kjöri sem boð­að var til eft­ir skyndi­lega af­sögn hans. Henn­ar for­mann­s­tíð varði því að­eins í tvo mán­uð­i.

Um þess­ar mund­ir ríkti upp­lausn bæði í þjóð­fé­lag­inu og í Fram­sókn sem átti í vænd­um fjórðu for­manns­skipt­in á jafn­mörg­um ár­um.

Skráði sig í flokkinn og varð formaður

Í des­em­ber 2008 fór Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son að fá áskor­an­ir um að gefa kost á sér til for­mennsku í Fram­sókn­ar­flokkn­um en hann hafði vak­ið at­hygli vik­urn­ar á und­an vegna þátt­töku í In­defence hópn­um. Sig­mund­ur hafði aldrei tek­ið þátt í stjórn­mál­um og var ekki skráð­ur í Fram­sókn­ar­flokk­inn. Nokkrum vik­um síð­ar var hann hins veg­ar orð­inn for­mað­ur, eft­ir naum­an sig­ur á þing­mann­in­um Hös­k­uldi Þór Þór­halls­syn­i.

Sig­mund­ur Dav­íð naut mik­ils stuðn­ings í Fram­sókn­ar­flokkn­um og þeg­ar hann stofn­aði Mið­flokk­inn tók hann helm­ing fylg­is­ins með sér. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge.

Það var ef til vill kjark­að af Fram­sókn­ar­mönn­um að veðja á for­manns­efni ut­an þings í ljósi þess hver ör­lög Jóns urðu að­eins einu og hálfu ári fyrr, en plan­ið gekk upp og Sig­mund­ur var kjör­inn á þing, þótt flokk­ur­inn sett­ist í stjórn­ar­and­stöðu á ný. Það gaf Sig­mundi og Fram­sókn hins veg­ar tæki­færi til að liggja und­ir feldi og und­ir­búa end­ur­komu og ár­ið 2013 vannst stærsti kosn­inga­sig­ur flokks­ins í rúm þrjá­tíu ár.

Sig­mund­ur var for­sæt­is­ráð­herra í þrjú ár en hrakt­ist þá úr emb­ætti í kjöl­far hneyksl­is­mála.

Klofn­ing­ur

Það er til marks um þann mikla stuðn­ing sem Sig­mund­ur Dav­íð naut inn­an Fram­sókn­ar­flokks­ins eft­ir hrak­far­ir sín­ar vor­ið 2016 að hann tap­aði mjög naum­lega í for­manns­kjöri fyr­ir Sig­urði Inga sem þá var tek­inn við sem for­sæt­is­ráð­herra, tryggði sér odd­vita­sæti í Norð­aust­ur­kjör­dæmi og náði kjöri á þing í kosn­ing­um haust­ið 2016, að­eins nokkrum nokkrum mán­uð­um eft­ir að hann hrakt­ist úr emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra.

Síð­ast enn ekki síst sýndi Sig­mund­ur styrk sinn með­al flokks­manna þeg­ar hóp­ur fólks með Sig­mund í far­ar­broddi sagði skil­ið við Fram­sókn­ar­flokk­inn og stofn­aði Mið­flokk­inn. Í kosn­ing­un­um 2017 hlutu flokk­arn­ir hnífjafna kosn­ing­u. Mið­flokk­ur­inn 10,9 pró­sent en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 10,7 pró­sent, sömu hlut­föll og Sig­urð­ur og Sig­mund­ur fengu hvor í sinn hlut í for­manns­kjör­inu 2016.

Það var í skugga þess­ara at­burða sem Sig­urð­ur Ingi steig sín fyrstu skref sem for­mað­ur Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann átti á bratt­ann að sækja fyrstu ár­in, en vann líka góða sigra og var í rík­is­stjórn bróð­ur­part for­mann­s­tíð­ar sinn­ar.

Tíma­setn­ing er allt

Þótt klofn­ing­ur­inn hafi ver­ið mik­ið áfall fyr­ir flokk­inn og minnk­að hann um helm­ing, tala marg­ir Fram­sókn­ar­menn um hreins­un nú átta ár­um eft­ir stofn­un Mið­flokks­ins. Vinstri sinn­að­ir Fram­sókn­ar­menn kalla Mið­flokk­inn hægri­s­inn­að­asta flokk lands­ins og sjá tæki­færi fyr­ir sinn flokk vinstra meg­in við miðju.

Hvort hin nýja Fram­sókn þétt­ir miðj­una, ræðst á vinstri væng­inn eða pakk­ar í vörn verð­ur lík­lega ákvörð­un næsta formanns, en sag­an kenn­ir að skynd­i­sókn­ir eru beittasta vopn Fram­sókn­ar­flokks­ins: „Tíma­setn­ing er allt“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 08:00

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link