
Lilja Alfreðsdóttir stefnir á formennsku í Framsóknarflokknum Hún segir miðjuflokka, sem vilja byggja á samvinnu og ná málamiðlunum, víða eiga í vök að verjast nú þegar margir flokkar séu að færa sig yst á jaðrana.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, telur að Framsókn þurfi að endurnýja erindi flokksins. Flokkurinn þurfi skýrari lausnir fyrir heimilin og atvinnulífið.
„Það tekur tíma að endurvinna traust og það er sú vinna sem ég er að bjóða mig fram í,“ segir Lilja, sem gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins. Lilja ræðir stöðu flokksins, framboðið og hugmyndir sínar um uppbyggingu Framsóknar í viðtali við Gímaldið. Hún fer yfir stöðu efnahagsmála og alþjóðamála og hvernig stefnan þurfi að þjóna bæði landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu.
Lilja segir að með því að vera lausnamiðuð geti Framsókn markað sér sérstöðu í stjórnarandstöðu á yfirstandandi kjörtímabili. Miðjuflokkar sem vilji byggja á samvinnu og ná málamiðlunum eigi víða í vök að verjast nú þegar margir flokkar séu að færa sig yst á jaðrana.
„Framsóknarflokkurinn á að mínu að mati að sækja fram og koma með lausnir.“ Lilja nefnir til dæmis lausnir sem Framsókn geti talað fyrir á vettvangi efnahagsmála. „Ég viðurkenni að efnahagsstefna Kristrúnar kemur mér á óvart,“ segir Lilja sem telur viðbrögð ríkisstjórnarinnar, til að ná niður verðbólgu, ekki trúverðug. Mikilvægt sé við núverandi aðstæður að aðgerðir hins opinbera séu samræmdar. Halda þurfi aftur af öllum hækkunum og gæta þess að laun hjá hinu opinbera fari ekki fram úr því sem almenni vinnumarkaðurinn ráði við.
Um alþjóðamálin segir Lilja mikilvægast að standa með grunngildum Íslands og vera samferða þeim þjóðum sem aðhyllast sömu gildi, trúa á hið frjálslynda lýðræði og virða alþjóðalög.
„Að mínu mati ættum við ekki taka stórar og afdrifaríkar ákvarðanir um öryggis- og varnarmál fyrr en við sjáum aðeins betur hvort við erum að horfa á grundvallar stefnubreytingu í Washington til lengri tíma eða hvort það verða breytingar með næsta forseta. En þetta er mjög vandasöm staða engu að síður og það þýðir ekki að gera lítið úr henni og það er ekki hægt að líta fram hjá henni,“ segir Lilja.
Aðspurð um framtíðarsýn fyrir flokkinn leggur Lilja áherslu á fjárfestingu og framfarir í menntakerfinu auk þeirra tækifæra sem liggja í tækniframförum. „Framsókn til framtíðar vill að sjálfsögðu sjá öflugar fjárfestingar í tækniuppbyggingu og svo auðvitað passa upp á að sé það öflug verðmætasköpun svo við getum haldið áfram að láta velferðarkerfið þjóna fólkinu.“
Þrátt fyrir vonbrigði eftir síðustu alþingiskosningar segist Lilja bjartsýn fyrir hönd Framsóknarflokksins. „Ég tel að við getum aftur náð eyrum kjósenda með því að vera lausnamiðuð og endurnýja þetta erindi,“ segir Lilja og bætir við: „Við þurfum bara að bretta upp ermar, kynna betur fyrir hvað við stöndum og ná aftur inn á eldhúsborð þjóðarinnar.“
Formannskjör í Framsóknarflokknum fer fram 14. febrúar næstkomandi. Auk Lilju gefur Ingibjörg Ísaksen, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, kost á sér í embættið.
Hægt er að hlusta á viðtalið við Lilju í spilaranum hér fyrir ofan og í öllum helstu hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.