
Nú er hægt að hlusta á umfjöllun Gímaldsins um móralinn í Framsókn í tilefni af formannskjöri í flokknum um helgina. Framsóknarfólk segir kjósendur hafa fengið nóg af flokknum og forystu hans. Nú þurfi bara að bíða eftir réttu tækifæri til innkomu á ný. Það gæti skapast með nýrri forystu.

*Þessi grein birtist nóvember 2025 en var lesin inn 12. febrúar 2026. Engar breytingar hafa verið gerðar á efni greinarinnar, en í lestrinum verður getið um breytingar sem orðið hafa síðan hún birtist. Þar er helst að nefna nöfn þeirra sem bjóða sig fram til formanns og þeirra sem ákváðu að gera það ekki.
Framsóknarflokkurinn galt versta afhroð í rúmlega hundrað ára sögu flokksins í síðustu alþingiskosningum. Niðurstaðan var 7,8 prósent atkvæða á landsvísu og fimm kjörnir fulltrúar. Flokkurinn er nú utan stjórnar, hlutskipti sem flokkurinn á ekki að venjast og eftir eitt ár í stjórnarandstöðu hefur fylgið ekkert glæðst heldur þvert á móti.
Gímaldið heldur áfram umfjöllun um stjórnmálaflokkana og tekur nú hús á áhrifafólki og almennum flokksfélögum í Framsóknarflokknum og ræðir stöðu hans við Ólaf Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði.
„Fólk var bara orðið svo þreytt á okkur,“ segir framsóknarmaður sem Gímaldið ræddi við um niðurstöðu síðustu alþingiskosninga. Að undanskildum nokkrum mánuðum árið 2017, hafði Framsóknarflokkurinn verið í ríkisstjórn í 12 ár og lengst af með sama forystufólk í brúnni.
Viðmælendur Gímaldsins eru sammála um að kjósendur hafi viljað breytingar. Þeim flokkum sem buðu upp á mesta endurnýjun á listum hafi gengið best í kosningunum.
Þessi þreyta gagnvart þaulsetnu stjórnmálafólki eigi ekki bara við um Framsóknarflokkinn. Vinstri græn og Píratar hafi líka að mestu boðið upp á sama fólkið í forystusætum. Þessum flokkum var öllum hafnað.
Katrín Jakobsdóttir sé þó ef til vill besta dæmið um þreytuna, þrátt fyrir að vera einn ástsælasti stjórnmálamaður landsins um langt skeið hafi henni ekki tekist að sigra í kjöri til embættis forseta Íslands.
Viðmælendur Gímaldsins rökstyðja framangreinda ályktun um framsóknarþreytu, líka með vísan til stefnu flokkanna. Málefnalega hafi Framsóknarflokkurinn ekki boðið upp á lakari stefnu fyrir síðustu kosningar. Stefna Framsóknar hafi verið mjög áþekk áherslum sigursælu flokkanna, þótt einhver áherslumunur hafi verið í skattamálum og ólík sjónarmið um Evrópumál.
„Fólk var bara orðið svo þreytt á okkur“
„Stjórnmál eru samkeppni í hugmyndum og hugmyndafræði. Kosningarnar 2021 og 2022 gengu svakalega vel hjá okkur og í kjölfarið fóru allir inn á miðju. Flokkarnir sem eru í sókn gátu bara tekið miðjuna af okkur og urðu fyrir valinu af því að fólk var orðið svo þreytt á frambjóðendunum okkar.“
Samfylkingin hafi lesið hárrétt í stöðuna. Flokkurinn hafi fært sig mjög inn að miðju og sagt skilið við mörg af sínum helstu stefnumálum eins og aðild að Evrópusambandinu, til að ganga betur í augu kjósenda. Með fjölda nýrra andlita á listum flokksins hafi það plan gengið upp.
Fólk nefnir einnig að það hafi komið flokknum mjög illa að síðasta ríkisstjórn hafi ekki getað þraukað út kjörtímabilið og boðað hafi verið til skyndikosninga. Það hafi enda komið á daginn að plan Bjarna Benediktssonar klikkaði og Sjálfstæðisflokkurinn tapaði líka í kosningunum. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafi verið betur undirbúnir fyrir kosningar.

Þá hafi líka laskað þáverandi stjórnarflokka og forystufólk þeirra hve ágreiningur í ríkisstjórninni varð opinber undir það síðasta. „Fólk var ekki að nenna því leikriti,“ segja framsóknarmenn.
Eftir því sem líður frá kosningum hefur gremjan yfir stjórnarslitunum smám saman vikið fyrir raunveruleika sem horfast þurfi í augu við. Fólk var orðið þreytt á Framsókn og forystunni og vildi ný andlit og aðra flokka. Þetta hafi ekki bara verið að gerast á Íslandi. Ríkisstjórnir víða um heim lifi sjaldnast kosningar af.
Nú er heilt ár liðið frá kosningum og Framsóknarflokkurinn virðist ekki hafa náð að fóta sig þannig í stjórnarandstöðu að eftir sé tekið. Flokkurinn mældist með 5,5 prósenta fylgi í síðasta Þjóðarpúlsi (fyrir október) sem var þó örlítil framför, því í ágúst fékk Framsókn verstu mælingu í rúmlega 30 ára sögu Þjóðarpúlsins, 4,5 prósent sem dygði ekki til að ná manni á þing.
„Við þurfum bara að bíða aðeins. Það nennir enginn að hlusta á okkur núna,“ segir áhrifamaður í flokknum. Það taki tíma að vinda ofan af þreytu landsmanna á ráðamönnum sem höfðu verið lengi á sviðinu. „Við þurfum örugglega að bíða í heilt ár í viðbót, jafnvel lengur.“
En hvernig á flokkurinn þá að sinna hlutverki sínu í stjórnarandstöðu? Það er vandrataður vegur að mati viðmælenda Gímaldsins. Það sé vandmeðfarið að vera í stjórnarandstöðu og veita ríkisstjórninni aðhald en vera ekki „ömurlega leiðinlegur“ alla daga eins og hinir flokkarnir í stjórnarandstöðu. Þetta sé ekki góður félagskapur fyrir Framsókn.
„Við þurfum bara að bíða aðeins. Það nennir enginn að hlusta á okkur núna“
Framsóknarmenn tala einum rómi gegn því að flokkurinn fari á taugum gagnvart þeim flokkum sem eru „í kapphlaupi út á hægri vænginn í útlendingamálum eða einhverri óttapólitík sem gagnast engum og skemmir bara fyrir okkur sem samfélagi.“ Það sé einhver óskiljanleg örvænting í þessu kapphlaupi Sjálfstæðisflokks og Miðflokksins, eins og það séu kosningar á morgun.
En eru allir jafn þolinmóðir? Hvað segja almennir flokksfélagar úti um land, sætta þeir sig við að flokkurinn bíði bara rólegur eftir rétta tækifærinu til að komast aftur í tísku, eftir því að framsóknarþreytan líði úr landsmönnum?
Nei auðvitað hafa verið átök og þetta hefur reynt mjög á, að sögn viðmælenda Gímaldsins. Forystan hafi gengið svipugöngin á fundum víða um land eftir kosningar og hlustað á óánægju flokksmanna. Auðvitað hafi einhverjir verið með hjartað í buxunum á fundum að segja, „Við verðum að vera meira svona og meira hinsegin,“ en einhvern veginn virðast flokksmenn samt ná að anda í kviðinn og sýna stillingu; já þolinmæði. Þótt þeir vilji breytingar.
Tómarúm í forystu flokksins hjálpar ekki. Nú liggur fyrir að formannsskipti verða í flokknum í febrúar næstkomandi og á meðan sitjandi formaður er á útleið og ekki er vitað hver tekur við, er engin forysta í flokknum sem getur tekið af skarið um hvert skuli halda.
„Framsóknarmaðurinn þrífst ekkert mjög vel í mikilli óvissu en hann er til í breytingar en veit ekki alveg hvaða breytingar af því forystufólkið er ekki búið að segja hvað það ætlar að gera,“ segir einn viðmælenda. Nú bíði fólk þess að ný forysta verið kjörin.
„Það hefur alltaf verið einkenni Framsóknarflokksins að hann hefur verið ákaflega stjórnsækinn, það er að segja hann vill sitja í ríkisstjórn,“ segir Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði. Ef frá eru taldir nokkrir mánuðir árið 2017 hefur flokkurinn aðeins átt tvö stjórnarandstöðuskeið frá árinu 1971, en annars alltaf verið í ríkisstjórn.
Flokkurinn hefur alltaf skilgreint sig á miðjunni en færist oft örlítið eftir því hvernig vindar blása og eftir áherslum forystu flokksins hverju sinni. Ólafur minnist þess þegar báðir voru í forystu flokksins, Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson. þá hafi verið talað um að Hermann brosti meira til vinstri en Eysteinn til hægri.

Ólafur vísar til íslensku kosningarannsóknarinnar. Samkvæmt henni skilgreini kjósendur Framsóknarflokkinn rétt hægra megin við miðju og viðhorf kjósenda flokksins séu þar einnig.
Í gegnum tíðina hafi flokkurinn ýmist setið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum eða vinstri flokkunum. „Það voru kallaðar vinstri stjórnir ef Sjálfstæðisflokkurinn var ekki í þeim,“ svarar Ólafur.
Samkvæmt þeirri skilgreiningu hafi flokkurinn hallast mun meira til hægri á undanförnum áratugum og ekki verið í eiginlegri vinstri stjórn síðan Steingrímur Hermannsson leiddi slíka stjórn á árunum 1988 til 1991.
„Ég þóttist nú sjá það fyrir síðustu kosningar að Framsóknarflokkurinn væri að brosa ofurlítið til vinstri,“ segir Ólafur. Það hafi verið mál margra að hefðu Samfylkingin, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn náð þingmeirihluta hefðu þessir þrír flokkar myndað ríkisstjórn. Svo varð hins vegar ekki.
Í stjórnarandstöðunni hafi Framsóknarflokkurinn stillt sér upp með Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum í meiri mæli en Ólafur átti von á, ekki síst í veiðigjaldsumræðunni. „Það hefur ekki hjálpað honum í skoðanakönnunum,“ segir hann.
„Það er ekki mjög líklegt til árangurs fyrir Framsóknarflokkinn að reyna að höfða í sama kjósendahóp og Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn er að höfða í,“ segir Ólafur. Ólíkt Sjálfstæðisflokknum þurfi Framsókn ekki að hafa sérstakar áhyggjur af Miðflokknum því kjósendahópur þess flokks eigi miklu meira sameiginlegt með kjósendahópi Sjálfstæðisflokksins heldur en núverandi og hefðbundnum kjósendahópi Framsóknarflokksins.“

Ólafur segir að Framsóknarflokkurinn þurfi að muna að hans kjósendur séu nær miðjunni og hann verði að höfða meira inn á miðjuna og jafnvel aðeins til vinstri. „Ef Framsóknarflokkurinn vill vera hófsamur miðjuflokkur sem getur unnið með öðrum miðjuflokkum og vinstri flokkum og jafnvel einhverjum hægri flokkum þá náttúrulega getur hann ekki boðið bara upp á hægri pólitík,“ segir hann.
Þess vegna sé líklegt að flokkurinn muni færa sig skýrar inn á miðjuna á yfirstandandi kjörtímabili og reyna að marka sér sérstöðu. „Þeir munu náttúrulega gagnrýna ríkisstjórnina eins og allir flokkar í stjórnarandstöðu gera en ég held að þeir muni í vaxandi mæli reyna að skapa sér sérstöðu gagnvart Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum og láta bara Sjálfstæðisflokkinn og Miðflokkinn um að slást um þetta hægra fylgi,“ segir Ólafur.
Framsóknarflokkurinn er elsti flokkur landsins, stofnaður 1916. Hann er hokinn af reynslu og hefur verið samferða þjóðinni gegnum bæði harðinda og framfaraskeið, oft í fararbroddi.

Það finnst stundum fyrir þessu í samræðum við framsóknarfólk. Þessum háa aldri. Eins og allir muni tímana tvenna. Þrátt fyrir gremju og vonbrigði reyna framsóknarmenn að halda kúlinu og bíða færis.
„Þetta er náttúrulega gamall flokkur og seigur flokkur þannig að það kæmi mér ekki á óvart að þau taki þessu bara frekar rólega og reyni að ná vopnum sínum,“ segir Ólafur og bætir við: „Og ég held honum takist það, þó maður sé að vísu varkárari eftir að Vinstri græn duttu út af þingi. Manni datt nú eiginlega ekki í hug að það gæti gerst að neinn af gömlu fjórflokkunum dytti út af þingi. En þegar einn er búinn að gera það þá geta náttúrulega fleiri komið á eftir. Mér þætti samt ólíklegt að Framsókn dytti út af þingi.“
Ólafur telur að flokkurinn muni fara í gegnum ákveðið tímabil og reyna að ná áttum, en muni svo, eftir næstu eða þarnæstu kosningar byrja að velta fyrir sér, með hvaða flokkum hugsanlegt sé að hann geti myndað meirihluta með.

Þetta er einmitt það sem Framsóknarmenn segjast ætla að gera. Fara inn á við, í ræturnar og finna sjálfa sig á ný. „Vissirðu að Framsóknarflokkurinn var stofnaður sem róttækur umbótaflokkur?” spyr einn viðmælenda og hlær. „Það eru örugglega fáir sem hugsa um Framsókn sem róttæka í dag en við vorum það einu sinni.“
Annar viðmælandi leggur út af kapphlaupi sumra flokka út á hægri vænginn. Alger samstaða virðist vera í Framsókn að eltast ekki við það en eftir situr að það er sterk þjóðernis- og sjálfstæðistaug í flokknum.
„Hún er miklu meira sú að við erum stolt af því að hafa verið samvinnufólk í gamla daga, þegar við vorum að berjast úr því að vera ekki lengur fátækasta þjóð í Evrópu. Þá var það samvinnuhreyfingin sem byggði hafnir, stóra skóla, innviði, kaupfélög og allt sem þurfti í sveitum landsins. Þetta var gert með samvinnuhugsjón,“ segir hann og heldur áfram: „Svo fór sambandið á hausinn og þetta samvinnu element verður bara eitthvað hallærislegt og tengt spillingu sem það var sannarlega undir lokin. En það er þessi samvinnuhugsun sem er íhaldið í okkur. Virðið í því að láta gott af sér leiða og búa til gott samfélag.“
„Tímasetning er allt“ sagði hver einasti Framsóknarmaður sem Gímaldið ræddi við, eins og um möntru væri að ræða. En hver er þessi tímasetning?
Það eru blikur á lofti í efnahagsmálum og nái stjórnin ekki tökum á verðbólgunni, þá opnist tækifæri fyrir Framsókn. Evrópumálin munu gera forsætisráðherra erfitt fyrir og svo er bókstaflega enginn vinstra megin við miðju. “Af hverju stígur Framsókn ekki inn í það gat?” spyr aldraður Framsóknarmaður að norðan. „Við áttum að fara þangað strax í upphafi.“ Framsóknarfólk sér fyrir sér ótal tækifæri til innkomu. En sá kann allt sem bíða kann.
Allt kann sá sem bíða kann
Svo muni forsætisráðherra óhjákvæmilega gera mistök. Þau sem Gímaldið ræddu við veðja helst á innkomu þar. Staða Kristrúnar Frostadóttur geti bæði veikst út á við en mögulega líka innan Samfylkingarinnar. Samfylkingin sé ólík Framsóknarflokknum þegar kemur að trúnaðartrausti til forystunnar.
„Um leið og Kristrún misstígur sig eru þau komin í bakið á henni. Við hins vegar höldum í okkur út í hið óendanlega,“ segir einn viðmælenda Gímaldsins. Við það bætist að þótt það þurfi reglulega að hreinsa til, skilji sótthreinsun eins og forysta Samfylkingarinnar hafi farið í, óhjákvæmilega eftir margar tær sem búið er að stíga á innan flokksins.
Hveitibrauðsdagar forsætisráðherra muni því taka enda, bæði inn á við og út á við. Færi muni gefast fyrir Framsókn.
Hér er linkur á seinni hluta umfjöllunarinnar, sem fjallar um forystuvandamál flokksins.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.