Iðn­að­ar­krat­ar ráða ríkj­um í Sam­fylk­ing­unni

Lestími: 13 mínútur

Sam­­fylk­ing­in er á mik­illi sigl­ingu eft­­ir langa eyð­i­­merk­­ur­­göng­u. Flokks­fólk lýs­ir gleði með góð­an ár­ang­ur en finn­ur fyr­ir vaxta­verkj­um og hef­ur áhyggj­ur af mál­efn­um sem kom­ast ekki leng­ur að hjá flokkn­um. Flokks­starf er út­rým­ing­ar­hættu seg­ir pró­fess­or.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hefur tekið flokkinn í nýjar hæðir eftir langa eyðimerkurgöngu.
  • Kyn­slóða­skipti hafa orð­ið í for­ystu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar sem er á mik­illi sigl­ingu eft­ir langa eyði­merk­ur­göng­u.
  • Gímald­ið tekur púls­inn á sál­ar­lífi Samfylkingarfólks og ræðir við Ei­rík Berg­mann pró­fess­or í stjórn­mála­fræð­i.
  • Þessi grein er stytt útgáfa af ítarlegri stjórnmálagreiningu Gímaldsins um kaflaskil í sögu stærstu flokka landsins og breytt landslag í stjórnmálum.

Sam­fylk­ing­in hef­ur far­ið í gegn­um níu al­þing­is­kosn­ing­ar frá stofn­un flokks­ins ár­ið 1999. All­an fyrsta ára­tug­inn var hún í nokk­uð stöð­ugu fylgi í kring­um 30 pró­sent, en svo hrundi fylg­ið og við tók heill ára­tug­ur eyði­merk­ur­göng­u. Að því leyti má segja að Sam­fylk­ing­in hafi far­ið verst út úr upp­broti fjór­flokks­ins sem var skor­að­ur á hólm af nýj­um stjórn­mála­hreyf­ing­um sem spruttu upp í kjöl­far hruns­ins.

Nú er Sam­fylk­ing­in hins veg­ar á mik­illi sigl­ingu eft­ir að ný kyn­slóð tók við ár­ið 2022. Er Sam­fylk­ing­in aft­ur orð­inn sá turn vinstra meg­in við miðju sem henni var ætl­að að vera við stofn­un?

Ei­rík­ur Berg­mann svar­ar því neit­and­i: „Nei nei, auðitað ekki, segir Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði. „Það er mik­ill með­byr með Sam­fylk­ing­unni nún­a. Þetta eru bara pendúl­hreyf­ing­ar og oft er það nú meira svona rás tím­ans sem ræð­ur þessu frek­ar en ein­hverj­ir leik­end­ur á svið­in­u,“ seg­ir hann.

„Sam­fylk­ing­in var bú­in að ganga í gegn­um al­veg of­boðs­lega djúp­an öldu­dal og var eig­in­lega bú­in að týna sér al­veg og vissi ekki al­veg hver hún var en rís núna upp sem þessi svona miðju­sækni flokk­ur. „Iðn­að­ar­krat­ar“ eins og það var kall­að hér áð­ur fyrr. Það er sú vídd sem hef­ur náð yf­ir­hönd­inni í flokkn­um.

Kristrún Frosta­dótt­ir for­sæt­is­ráð­herra þyk­ir halda þétt um stjórn­ar­tauma í Sam­fylk­ing­unn­i. Mynd/Jón Að­al­steinn.

Þessi hóp­ur hef­ur auð­vit­að bara leitt Sam­fylk­ing­una í al­veg nýj­ar hæð­ir. En tákn tím­ans er líka að slík staða helst ekki. Síð­an bara blása vind­arn­ir í aðr­ar átt­ir og þá fær eng­inn við neitt ráð­ið. Það er dá­lít­ið mik­ið þannig sem sam­tím­inn er,“ segir Eiríkur.

Hirð Kristrún­ar haldi fast um stjórn­ar­tauma

Eft­ir þrjú ár á for­manns­stóli Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og tæpt ár í emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra telja flest­ir við­mæl­end­ur Gímalds­ins Kristrúnu njóta trausts með­al flokks­fé­laga og eru al­mennt ánægð­ir með störf henn­ar út á við og gott gengi flokks­ins.

Öll­um ber þó sam­an um að for­mað­ur­inn og hirð henn­ar haldi fast um stjórn­ar­taumana. Til dæm­is hafi orð­ið tölu­vert upp­nám á lands­fundi vegna „yf­ir­töku“ á mál­efna­starf­inu með þeim af­leið­ing­um að mál sem hafi ver­ið hluti af grunn­gild­um flokks­ins frá stofn­un hafi ekki kom­ist að, mál á borð við að­skiln­að rík­is og kirkju, Evr­ópu­mál og um­hverf­is­mál. Þá er mörg­um sárt um út­lend­inga­mál­in.

Til að halda stjórn á flokks­starf­inu beiti hirð­in í kring um for­mann­inn ung­liða­hreyf­ingu flokks­ins. Þannig hafi Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­ið i Reykja­vík orð­ið fyr­ir mikl­um búsifj­um ný­lega þeg­ar flest­ir full­trú­ar fé­lags­ins voru felld­ir í kjöri í full­trúa­ráð flokks­ins í Reykja­vík, en það er sú stofn­un flokks­ins sem ákveð­ur með hvaða hætti er val­ið á lista fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Ljóst sé að for­yst­an hygg­ist hafa þar hönd í bagga en bæði ráðherra í ríkisstjórn og að­stoð­ar­mað­ur for­sæt­is­ráð­herra hafi mætt á að­al­fund full­trúa­ráðs­ins með stór­an hóp ung­liða og tek­ið með því alla stjórn á fund­in­um.

Alþingi 2025 Guðmundur Ari Sigurjónsson Samfylking 3
Guð­mund­ur Ari Sig­ur­jóns­son, for­mað­ur þing­flokks Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, þyk­ir óreynd­ur en það er vanda­samt að fara fyr­ir þing­liði stjórn­ar­flokka. Mynd/Jón Að­al­steinn

Þá erfa marg­ir „með­ferð­ina“ á Degi B Egg­erts­syn­i, bæði í að­drag­anda kosn­inga en ekki síð­ur eft­ir að ljóst varð að Sam­fylk­ing­in myndi leiða rík­is­stjórn. Stuðn­ings­fólk hans í flokkn­um tel­ur hann van­nýtta auð­lind. Far­sælla hefði til dæm­is ver­ið að nýta krafta hans og reynslu til for­mennsku í þing­flokkn­um. Þar hafi hins veg­ar orð­ið fyr­ir val­inu ný­liði í stjórn­mál­um og mögu­lega hafi reynslu­leysi hans átt þátt í hve erf­ið­lega gekk að semja um þing­lok í sum­ar.

Þess­ar miklu svipt­ing­ar inn­an flokks­ins hafa vak­ið spurn­ing­ar um gildi flokks­starfs­ins. Fólk sem er virkt í gras­rót­inni furð­ar sig á að það þyki full­kom­lega eðli­legt í dag og jafn­vel bein­lín­is kost­ur að nýtt fólk geti kom­ið „inn af göt­unn­i“ og tek­ið stjórn­mála­flokka bók­staf­lega yf­ir. Það sé lit­ið horn­auga að fólk „a­list upp“ inni í flokk­un­um, taki þátt í starf­inu og bjóði krafta sína fram fyr­ir hönd flokks­ins.

Flokk­sstarfið í út­rým­ing­ar­hættu

Ei­rík­ur bend­ir á að flokk­arn­ir séu ekki leng­ur sömu fjölda­hreyf­ing­ar sem þeir eitt sinn vor­u. „Þannig að öfl­ug­ir yf­ir­töku­hóp­ar geta bara náð yf­ir­töku­valdi á flokk­un­um,“ seg­ir hann.

„Í eina tíð var lit­ið á stjórn­mála­flokka, sem ekki bara sam­keppn­is­að­ila um að fá kosna fram­bjóð­end­ur inn í þing og sveit­ar­stjórn­ir held­ur líka sem lýð­ræð­is­leg­an vett­vang í sjálfu sér. Lýð­ræði væri ekki bara iðk­að í kosn­ing­um á fjög­urra ára fresti held­ur í alls­kon­ar sam­tali og fé­laga­sam­tök­um,“ seg­ir Ei­rík­ur. Stjórn­mála­flokk­arn­ir hafi ver­ið í lyk­il­hlut­verki sem lýð­ræð­is­leg­ur vett­vang­ur þar sem fólk kom sam­an, tókst á um hug­mynd­ir sín­ar, ræddi sig til nið­ur­stöð­u, mynd­aði banda­lög og þjálfað­ist til lýð­ræð­is­starfa.

„Þetta var gríð­ar­lega mik­il­vægt og í raun grunn­ur­inn að hinu frjáls­lynda lýð­ræð­is­kerfi Vest­ur­landa. Þetta er mik­ið breytt nún­a,“ seg­ir Ei­rík­ur.

Upp hafi runn­ið tíma­bil þar sem gert var lít­ið úr starfi inn­an stjórn­mála­flokka. „Það var upp­nefnt þannig að fólk væri bara að raða stól­um til þess að fá þing­sæti að laun­um seinna. Þetta væru bara klík­ur og að sumu leyti hleg­ið út af borð­inu sem al­var­leg­ur vett­vang­ur. Af­leið­ing­in af því nið­ur­rifi í um­ræð­unni blas­ir núna við okk­ur. Að stjórn­mála­flokk­arn­ir eru ekki sá lýð­ræð­is­legi vett­vang­ur sem þeir áð­ur voru held­ur meira svona eins og sam­tök fram­bjóð­enda og að því leyti meira eins og skelj­ar ut­an um inn­tak­ið sem einu sinni var inn­an þeirra.“

Eiríkur Bergmann, prófessor í Stjórnmálafræði (Mynd/Bára Huld Beck)
„Iðnaðarkratar“ er hugtakið sem Eiríkur Bergmann, prófessor, notar til að lýsa Samfylkingu Kristrúnar Frostadóttur. Mynd/Bára Huld Beck

Ei­rík­ur seg­ir að þetta kerfi stjórn­mála­starfs í land­inu hafi byrj­að að brotna upp á eft­ir­hrunsár­un­um. „Það voru lengi vel á Ís­landi þess­ir fjór­ir flokk­ar, hinn svo­kall­aði fjór­flokk­ur, sem bauð upp á starf­semi af þess­um toga og síð­an er þessi fjór­flokk­ur skor­að­ur á hólm af nýj­um sam­tök­um fram­bjóð­enda,“ seg­ir hann og held­ur áfram:

„Í kjöl­far­ið brotn­ar smám sam­an upp þetta kerfi og þá er eins og virð­ið í því að vera fjölda­hreyf­ing og al­vöru stjórn­mála­flokk­ur gufi bara upp og við svið­inu taki ný sam­tök fram­bjóð­enda, sam­tök sem eru allt eins bara smíð­uð rétt fyr­ir kosn­ing­ar, yf­ir­leitt und­ir for­ystu ein­hvers öfl­ugs leið­toga.“

Í stað þess að halda sínu striki með sitt flokks­starf hafi gömlu flokk­arn­ir í raun leit­að í sama far­veg og ný­smíð­arn­ar, hætt að vera fjölda­hreyf­ing­ar sem buðu fram sitt for­ystu­fólk sem stóð fremst með­al jafn­ingja, urðu í raun fylk­ing­ar ut­an um leið­toga.

„Það var upp­nefnt þannig að fólk væri bara að raða stól­um til þess að fá þing­sæti að laun­um seinna. Þetta væru bara klík­ur og að sumu leyti hleg­ið út af borð­inu sem al­var­leg­ur vett­vang­ur“

„Þetta er auð­vit­að bara mjög mik­il breyt­ing og auð­vit­að hef­ur ein­hverj­um þeim þroska lýð­ræð­is sem tók ára­tugi að koma á, því hef­ur á ein­hvern hátt bara ver­ið kastað út og kannski barn­inu ver­ið fleygt út með bað­vatn­in­u,“ seg­ir Ei­rík­ur.

Sjálf­stæð­is­menn áhuga­sam­ir um Kristrúnu

Gímaldið hefur annars staðar fjallað um sálarlíf Sjálfstæðismanna en þeir virðast taka nýkjörnum formanni sínum með nokkrum fyrirvara. Þeir liggja hins vegar ekki á skoð­un­um sín­um um for­mann Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, þeg­ar nafn­leynd er lof­að. Flest­ir við­ur­kenna að hún sé öfl­ug­ur stjórn­mála­mað­ur, sum­ir eru bein­lín­is full­ir að­dá­un­ar. Hún sé rögg­söm og henni hafi tek­ist að hreinsa til í flokkn­um sín­um, bæði hvað varð­ar mann­skap og mál­efni án þess að missa flug­ið. Haldi hún vel á spöð­un­um verði hún í að­al­hlut­verki í ís­lensk­um stjórn­mál­um næstu tíu til fimmt­án ár.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hefur tekið flokkinn í nýjar hæðir eftir langa eyðimerkurgöngu.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar hefur tekið flokkinn í nýjar hæðir eftir langa eyðimerkurgöngu. Mynd/Jón Aðalsteinn

Aðr­ir telja Kristrúnu þó hafa ver­ið heppna með tíma­setn­ing­u. Hún hafi geng­ið inn í ákveð­ið gat í póli­tík­inni og slæm staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafi hjálp­að henn­i.

Hún njóti þess hins veg­ar á yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili að mæta lít­illi and­stöðu frá vinstri í þing­inu og því sé í raun óreynt hvern­ig hún tekst á við mót­læt­i. Einn við­mæl­andi orð­aði það þannig að mik­il­væg­asta verk­efni flokks­ins núna sé að halda Vinstri græn­um í skefj­u­m. Það þýði hins veg­ar að leyfa þurfi rót­tæk­um sjón­ar­mið­um og um­hverf­is­vernd­ar­sinn­um að blómstra inn­an flokks­ins í sam­keppni við iðn­að­ar­kratana.

Þær standa ef til vill frammi fyr­ir sama verk­efn­in­u, for­menn­irn­ir tveir, en Guð­rún hef­ur tal­að fyr­ir því að sam­eina fjöl­breytta flóru hægr­is­ins aft­ur und­ir kjör­orð­inu stétt með stétt.

Ei­rík­ur lýs­ir hins veg­ar efa­semd­um um þau mark­mið enda slík­ar breið­fylk­ing­ar lið­in tíð.

„Hug­mynd­ir um hina víð­feðmu kirkju, að stjórn­mála­flokk­ur­inn hafi breið­an faðm og þar séu marg­ar ólík­ar vist­ar­ver­ur þar sem fólk með ólík sjón­ar­mið nær sam­an um ákveð­in grund­vall­ar­gild­i, þetta er að mörgu leyti bara lið­in tíð í ís­lensk­um stjórn­mál­u­m, nán­ast hvar sem þú stíg­ur nið­ur í flóru stjórna­mála­flokk­anna og eru auð­vit­að bara ein­hvers­kon­ar tákn sam­tím­ans. Ekki bara á Ís­landi held­ur mun víð­ar. Við hugs­um ekki leng­ur um stjórn­mála­flokka sem stórt mengi hug­mynda þar sem marg­ar radd­ir fá að hljóma í einu held­ur eru þeir orðn­ir miklu þrengri hug­mynda­leg­ur vett­vang­ur og miklu meiri krafa um eins­leitn­i. Þess vegna er flokka­kerf­ið að brotna upp­.“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 08:06

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link