
Ingibjörg Isaksen vill verða næsti formaður Framsóknarflokkins. Hún segir flokkinn ekki hafa verið nógu skýran í málflutningi sínum og sér tækifæri fyrir Framsókn á vinstri vængnum.

Framsóknarflokkurinn hefur ekki verið nógu skýr í sínum málflutningi, jafnvel þótt flokkurinn sé að fylgja stefnu sinni, að mati Ingibjargar Isaksen sem ein hefur lýst því yfir að hún vilji verða næsti formaður framsóknarflokksins.
Í viðtali við Gímaldið fer Ingibjörg yfir stöðu Framsóknarflokksins, framtíðarsýn sína fyrir flokkinn og pólitíkina í þinginu. Hún segir tækifæri felast í tómarúminu á vinstri væng stjórnmálanna:
„Ef við horfum á þetta pólitíska litróf sjáum við að flokkar sem eru hægra megin eru komnir töluvert langt til hægri eins og Miðflokkurinn sem er stofnaður í rauninni út frá Framsókn. Hann er kominn jafnvel hægra megin við Sjálfstæðisflokkinn í einhverjum málum,“ segir Ingibjörg og bætir við: „Við erum ekki alltaf þar. Við erum frekar að leita til vinstri. Við sjáum það bara í rauninni í alls konar málum þegar kemur að til dæmis innflytjendamálum.“
Undanfarnar vikur hefur verið beðið eftir yfirlýsingum frá Willum Þór Þórssyni og Lilju Alfreðsdóttur um formannsframboð en Ingibjörg hefur nú brotið ísinn og er fyrst til að tilkynna framboð til formanns.
„Ég myndi fagna því ef það kæmu fleiri framboð. Ég held að sé bara gott fyrir fólkið okkar í flokknum sem mætir á flokksþingi að það hafi val á milli frambjóðenda,“ segir Ingibjörg. Það væri jákvætt fyrir bæði grasrótina og ásýnd flokksins út á við að fleiri bítist um embættið.
„Við erum á tímamótum í Framsókn. það eru spennandi tímar fram undan og gríðarleg tækifæri.“
Viðtalið við Ingibjörgu má hlýða á í heild sinni í spilara hér að ofan og það er einnig aðgengilegt á helstu hlaðvarpsveitum.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.