
Fjallað er um fjárframlög Íslands til ESB og hvað fæst í staðinn, gangi Ísland í sambandið, í nýju nefndaráliti utanríkismálanefndar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið aðildarviðræðna:
– Yfirráð auðlinda áréttuð í sérbókun
– Sérlausn í fiski: Sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnkerfi
– Heimskautalandbúnaður og styrkir frá Brussel
– Miklir fjármunir frá ESB til landsbyggðar
– Undanþágur um íslenska refinn, hvalinn og flugsamgöngur
– Þátttaka í gengissamstarfi og stefnt að upptöku evru
– Ísland áfram herlaust og fullráða í varnarmálum

Utanríkismálanefnd hefur afgreitt ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar úr nefnd. Í ítarlegu nefndaráliti meiri hluta nefndarinnar er fjallað almennt um tillöguna, stöðu Íslands á Evrópska efnahagssvæðinu, aðkomu íslensku þjóðarinnar, stjórnskipuleg álitamál, efnahagsleg álitamál, ferlið fram undan og tillögu nefndarinnar um breytingu á spurningunni sem bera á upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni.
En þungamiðja nefndarálitsins er hins vegar kafli um meginhagsmuni Íslands verði samþykkt að hefja viðræður á ný og samningsmarkmið sem meiri hlutinn mælist til að höfð verði til hliðsjónar við útfærslu markmiða Íslands í aðdraganda samningaviðræðna.
Fjallað er um þessi markmið í nokkrum liðum undir fjórða kafla nefndarálitsins og er þar vikið bæði að þeim samningsmarkmiðum sem lögð var áhersla á í fyrri aðildarviðræðum og markmiðum sem núverandi meiri hluti nefndarinnar leggur áherslu á.
Í upphafi umfjöllunar nefndarinnar um hagsmuni og markmið Íslands er vikið að áhrifum EES-samningsins. Ísland hefur nú þegar tekið upp mikið af reglum ESB í gegnum EES-samstarfið. Á síðustu þremur áratugumn hefur verið samið um aðlaganir á ýmsum sviðum vegna sérstakra aðstæðna á Íslandi, flestar á sviði matvæla- og dýraheilbrigðismála, orkumála og umhverfis- og loftslagsmála. Einnig er nefnd í álitinu aðlögun ríkisstyrkts innanlandsflugs og ákvæði um sumartíma.
Meiri hluti nefndarinnar leggur áherslu á að þær aðlaganir sem hafa verið tryggðar innan EES-samstarfsins vegna sérstöðu Íslands eða sérstakra hagsmuna haldi gildi sínu og verði hluti ESB-réttar komi til aðildar Íslands. Þetta komi þó til skoðunar við mótun samningsafstöðu í hverjum þeim kafla sem varðar EES-málefni.
Ríkisstjórnin tilgreinir auðlindamál sem grundvallarhagsmunamál Íslands. Sérstaklega er vísað til orku- og vatnsauðlinda en einnig til fiskveiðiauðlindarinnar. Meirihluti utanríkismálanefndar segir engum vafa undirorpið að það sé í höndum hvers og eins aðildarríkis að mæla fyrir um eignarhald og nýtingu á vatns- og orkuauðlindum, innan þess regluverks sem gildi um umhverfismál.
Svo segir í álitinu: „Skýrt er af hálfu meiri hlutans að Ísland geti aldrei fallist á að sáttmálar ESB mæli fyrir um fyrirkomulag eignarhalds eða stýringu á beinni nýtingu náttúruauðlinda. Í því efni leggur meiri hlutinn áherslu á að haldið verði á lofti sérstöðu Íslands, einkum og sér í lagi þegar kemur að nýtingu á endurnýjanlegri orku, þ.e. vatnsafli og jarðhita.“
Meirihlutinn mælist til þess að ríkisstjórnin árétti afstöðu Íslands um yfirráð yfir auðlindum, til dæmis með sérstakri bókun við aðildarsamning. Fyrir slíkum yfirlýsingum séu fordæmi, segir meirihlutinn og vísar til aðildarsamnings Noregs frá 1994.
Meirihlutinn ítrekar að í sáttmálum ESB sé ekki rætt um yfirþjóðlega eign á auðlindum aðildarríkjanna og því sé ekki ástæða til að ætla að aðild að ESB hefði áhrif á íslenska hagsmuni á sviði orkumála. Meirihlutinn ítrekar hins vegar að haldið verði til haga þeirri sérstöðu Íslands sem viðurkennd hefur verið með aðlögunum á vettvangi EES-samningsins, þar sem hagsmunir Íslands kalli enn á slíkt.
Lagning sæstrengs yrði alltaf íslensk ákvörðun.
Um mögulega lagningu sæstrengs segir í áliti meirihlutans að það yrði ávallt íslensk ákvörðun, eins og lög kveða á um, „enda svo samtvinnuð ákvörðunum um nýtingu orkuauðlindanna sjálfra.“
Sjávarútvegsmálin eru stærsta hagsmunamál Íslands þegar kemur að mögulegri aðild að ESB,“ segir í áliti meirihlutans. Um sé að ræða eina af meginstoðum íslensks efnahagslífs og grundvöll að búsetu hringinn í kringum landið. Einnig er vísað til fæðuöryggis sem þjóðaröryggismáls.
Meiri hlutinn telur lykilkröfur Íslendinga um sjávarútvegsmál snúa að forræði yfir auðlindinni og „rétti Íslendinga til að stýra sókn í veiðistofna er byggist á sjálfbærri nýtingu, ráðgjöf sérfræðinga og veiðireynslu.“
EES-samningurinn hefur tryggt Íslandi undanþágu frá meginreglu ESB-réttar um fjárfestingarfrelsi í tilviki erlendra fjárfestinga í sjávarútvegi. Telur meirihluti nefndarinnar mikilvægt að árétta þetta.
Þá telur meirihlutinn raunhæfa leið til að tryggja forræði Íslands yfir sjávarauðlindinni að fiskveiðilögsagan verði skilgreind sem sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnarsvæði. „Þannig verði réttindi ekki til staðar fyrir erlend fiskveiðiskip til veiða innan íslenskrar fiskveiðilögsögu úr staðbundnum íslenskum stofnum,“ segir í áliti nefndarinnar.
Í álitinu segir að meginregla ESB um hlutfallslegan stöðugleika feli þetta í sér nú þegar, en nefndin vill engu að síður festa þetta enn frekar í sessi í aðildarsamningi enda njóti sá samningur frumréttar í ESB-rétti. Nefndin er í rauninni að leggja til sérlausn fyrir Ísland sem fæli í sér þróun á frumrétti ESB en einnig á sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni þar sem sérstakar reglur myndu gilda um þetta tiltekna hafsvæði, þar á meðal um ákvarðanir um fyrirkomulag nýtingar veiðistofna.
Meiri hluti nefndarinnar telur ekki æskilegt að reglur ESB um brottkast gildi innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. Í áliti nefndarinnar segir að þótt reglur ESB um brottkast hafi þróast til betri vegar sé það mat meirihlutans að þær samræmist ekki lykilkröfum og áherslum Íslands sem nefndar voru hér að framan.
Meirihlutinn leggur áherslu á að tryggja þurfi að sú hlutdeild í deilistofnum sem þegar hefur verið samið um haldist og þrýst verði á að samningar klárist um aðra stofna. Þetta sé í raun sjálfstætt markmið óháð mögulegum aðildarviðræðum.
Nefndin vekur athygli á því að meginreglan um deilistofna innan ESB er sú að aðildarríkin geta veitt hlutdeild sína úr deilistofnum í lögsögum annarra aðildarríkja. Í þessu gætu falist tækifæri fyrir íslensk útgerðarfyrirtæki.
Ákvörðunarvald um fiskeldi er alfarið hjá aðildarríkjunum sjálfum, segir í áliti nefndarinnar. Þrátt fyrir það eru markmið Íslands á þessu sviði þau sömu og gilda um fiskveiðar innan sameiginlegu sjávarútvegsstefnunnar, meðal annars um sjálfbærni, matvælaframleiðslu og samkeppnishæfni.
Þá bendir meirihlutinn á að til hagsbóta væri fyrir greinina að „samhliða aðild myndu tollar til ESB og Bretlands á eldisfisk falla niður, eins og raunar með allar sjávarafurðir, sem m.a. býður upp á aukna möguleika í vinnslu á Íslandi.“
Samningsmarkmið meirihlutans á sviði landbúnaðar er að á Íslandi verði hægt að stunda öflugan landbúnað í þágu fæðuöryggis, matvælaöryggis og byggðasjónarmiða.
Stærstu álitamálin um landbúnað varða annars vegar áhrif þess að verndartollar á landbúnaðarvörur myndu falla niður við aðild Íslands að tollabandalagi ESB og hins vegar ólíkar aðstæður íslenskra bænda í samanburði við kollega þeirra í öðrum.
Um hið fyrrnefnda segir nefndin að formið á stuðningi við bændur muni þurfa að breytast frá því sem nú er, enda myndu gildandi verndartollar á landbúnaðarvörur frá öðrum ríkjum að öllum líkindum falla niður við aðild.
Tekið er fram að sveigjanleiki í landbúnaðarstefnu ESB hafi aukist, hann muni þó ekki duga til að mæta samningsmarkmiðum Íslands og meira þurfi að koma til.
Utanríkismálanefnd leggur til fjölbreytt markmið til að koma til móts við þessi álitaefni í mögulegum samningaviðræðum. Lykilatriði sé að tryggja bændum nægilegan stuðning til að vega upp á móti erfiðum aðstæðum hér á landi.

Í álitinu er lagt til að Ísland semji um að fá sérlausn sem fæli í sér að á Íslandi væri stundaður heimskautalandbúnaður, í ljósi erfiðra framleiðsluskilyrða hér á landi. Á þeim grundvelli væri sérstakur ríkisstuðningur heimill. Fordæmi fyrir þessari leið eru í aðildarsamningum Svíþjóðar og Finnlands sem heimila sérstakan stuðning við landbúnað á norðlægum slóðum.
Þá segir að leggja verði áherslu á að „tryggja að fjárframlög og heimildir um stuðning til landbúnaðarins verði fullnægjandi til að viðhalda sambærilegum heildarstuðningi eins og nú er, að meðtalinni tollvernd.“ Þetta eigi við um jarðrækt, búfjárrækt og garðyrkju.
Þá er rætt um svigrúm greinarinnar til aðlögunar í ljósi þeirrar markaðsverndar sem greinin hefur notið og þeirra breytinga sem verða á stuðningskerfinu.
Þá víkur nefndin að tækifærum sem falist gætu í stuðningskerfi ESB fyrir dreifbýlisþróun. Það geti bæði rennt styrkari stoðum undir búsetu og skapað sveigjanleika í framleiðslu, mætt kostnaði við fjárfestingar í greininni og innleiðingu reglna.
Að lokum vill meirihlutinn viðhalda varanlegu banni við innflutningi lifandi dýra, sem tryggt hafi verið í EES-samningnum, í þeim tilgangi að vernda innlenda dýrastofna og sjúkdómastöðu.
Áhersla ESB á stuðning við byggðaþróun og uppbyggingu á ólíkum svæðum innan sambandsins og aðildarríkjanna fellur vel að byggðastefnu Íslands, að því er fram kemur í álitinu. Líkt og við á um sjávarútvegsmál og landbúnaðarmál leggur meirihlutinn sérstaka áherslu á sérstöðu Íslands og áskoranir fyrir byggðaþróun. Þessum sérstöku aðstæðum hér á landi þurfi að halda á lofti.
Meirihlutinn telur hins vegar mikil tækifæri felast í aðild að ESB fyrir landsbyggðina. Þessi tækifæri þurfi að greina vel og „tryggja greiðan aðgang að því fjármagni sem yrði í boði innan byggðaáætlana ESB og annarra áætlana sem nýst gætu til að efla byggð um landið.“ Nefndar eru til dæmis áætlanir og fjármagn til að efla brothættar byggðir og til nýsköpunar sem aukið gætu tækifæri til atvinnusköpunar á landsbyggðinni.
Svo segir í álitinu: „Um er að ræða eitt þeirra sviða þar sem má gera ráð fyrir að verulegir fjármunir renni til baka til Íslands úr sjóðum ESB.“
Meiri hlutinn leggur áherslu á að séreinkenni Íslands með tilliti til náttúruverndar þurfi að endurspeglast í löggjöf ESB komi til aðildar. Í álitinu segir að reglur um náttúruvernd á Íslandi og innan ESB byggist að miklu leyti á sameiginlegum alþjóðlegum skuldbindingum. Útfærsla þessara reglna hafi þó ekki verið sú sama á öllum sviðum, einkum varðandi nýtingu og veiðar á villtum dýrum og vegna lífríkis hafsins.

Meirihlutinn víkur sérstaklega að veiðum og nýtingu nokkurra dýrategunda, íslenska refnum, nokkrum hvaltegundum og tilteknum fuglategundum. Hefð hafi verið fyrir veiðum þessara tegunda og þær réttlættar með sjónarmiðum um sögulegar nytjar og sjálfbæra nýtingu auðlinda.
Stefna Íslands og ESB á sviði loftslagsmála byggist á sömu forsendum. Frá síðustu aðildarviðræðum hefur töluverð þróun verið á sviði loftslagsmála. Ísland hefur þegar tekið megnið af þeirri löggjöf upp. Annars vegar er um að ræða ETSkerfið sem er hluti EESsamningsins og hins vegar er um að ræða löggjöf sem lýtur að samfélagslosun og losun frá landnotkun, breyttri landnotkun og skógrækt. Ísland og Noregur hafa tekið þessa löggjöf upp í bókun 31 við EESsamninginn.
Nefndin bendir á að Ísland hafi sérstaka hagmuni af þróun ETSkerfisins, einkum vegna millilandaflugs. Við samningagerðina á þessu sviði þurfi að halda á lofti þeirri sérstöðu Íslands að hluti orkunotkunar hér á landi byggist á endurnýjanlegum orkugjöfum. Ísland myndi þannig leggja mikið af mörkum til sambandsins vegna sameiginlegs markmiðs ESB gagnvart Parísarsamningnum. Með vísan til þessa þurfi að taka tillit til hagsmuna Íslands af góðum flugsamgöngum til og frá Íslandi við þróun ETSkerfisins.
Í þessum kafla nefndarálitsins er vísað til þess að kaflar frjálsa för vinnuafls og um staðfesturétt og þjónustustarfsemi falli að öllu leyti undir EES-samninginn.
Stór hluti regluverks ESB á sviði almannaþjónustu og félagsmála fellur líka þegar undir EES-samninginn en það snýr einkum að lágmarksreglum á vinnumarkaði og samræmingu almannatrygginga.
Aðildarríkin hafa sjálf forræði á skipulagi vinnumarkaðarins, þar á meðal í tengslum við kjarasamningagerð. Meirihluti utanríkismálanefndar leggur áherslu á að áfram verði tryggt að Ísland hafi forræði á kjarasamningamálum og að samningsfrelsi aðila vinnumarkaðarins verði áfram virt.
Í álitinu kemur einnig fram það mat meirihlutans að aðild að ESB geti stutt við umbætur á vinnumarkaðsmódelinu í tenglum við hugsanlega upptöku Evrópu.
Það er skýrt markmið meirihluta utanríkismálanefndar að stefna að upptöku evru enda gæti það dregið úr hagsveiflum og aukið stöðugleika í opinberum fjármálum.
Í samningaviðræðunum þurfi að leggja áherslu á sérstöðu Íslands sem lítils, opins og sveiflukennds hagkerfis. Markmið viðræðna eigi að vera að tryggja stöðugt og hagkvæmt efnahagsumhverfi sem styður velferð, hagvöxt, utanríkisviðskipti og aukinn viðnámsþrótt gagnvart ytri áföllum.
Samningsmarkmiðin ættu að miðast við að skapa forsendur fyrir meiri stöðugleika, þar á meðal með þátttöku í gengissamstarfi Evrópu (ERM II) um leið og aðstæður leyfa og síðar upptöku evru, þegar efnahagsleg skilyrði verða uppfyllt. Gæta þurfi að því að aðlögunin taki mið af íslenskum aðstæðum og hagsmunum.
Skilyrði fyrir upptöku evru: Til að Ísland geti tekið upp evru þarf landið að uppfylla Maastricht-skilyrðin um gengisstöðugleika, afkomu og skuldir hins opinbera, verðbólgu og langtímavexti. Þá þarf landið að hafa verið þátttakandi í gengissamstarfi Evrópu í tvö ár.

Í álitinu kemur fram að Ísland hafi ekki (í apríl 2026) staðist skilyrði Maastricht um verðbólgu og langtímavexti. Verðbólga var of há og ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa yfir viðmiðum.
Í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Diljar Mistar Einarsdóttur, kemur hins vegar fram að Ísland uppfylli nú þegar það skilyrði að halli á rekstri hins opinbera sé innan við 3% af vergri landsframleiðslu (VLF) og að horfur séu á því að hann verði það áfram.
Samkvæmt svarinu uppfyllir Ísland einnig það skilyrði að skuldir hins opinbera á hinn svokallaða Maastricht-mælikvarða séu lægri en 60% af landsframleiðslu og að horfur séu á að þær verði það áfram. Maastricht-skuldir hins opinbera námu 56,1% af landsframleiðslu í árslok 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Samkvæmt tillögu að fjármálaáætlun er áætlað að skuldahlutfallið lækki á næstu árum.
Þátttaka í gengissamstarfi Evrópu ( (ERM II): Með þátttöku Íslands í gengissamstarfi Evrópu yrði skiptigengi krónunnar gagnvart evru ákveðið. Í álitinu segir að á aðlögunartíma hafi gengi þjóðargjaldmiðilsins svigrúm til að sveiflast um allt að 15 prósent yfir eða undir hinu umsamda skiptigengi, en Seðlabanki Evrópu sé skuldbundinn til að aðstoða við að verja vikmörkin. Samkvæmt minnisblaði frá utanríkisráðuneytinu er nokkuð misjafnt hve langur tími líður frá aðild að ESB til formlegrar þátttöku í gengissamstarfinu. Þó sé talið að staðbundnar aðstæður, þátttaka í EES-samstarfinu og pólitískir þættir gætu stuðlað að skjótri þátttöku Íslands í ERM II-samstarfinu.
Í áliti meirihluta utanríkismálanefndar er áréttað að aðild að Evrópusambandinu breyti því ekki að Ísland móti sína eigin stefnu í öryggis- og varnarmálum. Ákvarðanir ESB á þessu sviði krefjist einróma samþykkis og aðildarríki verði ekki þvinguð til þátttöku í hernaðaraðgerðum eða öðrum varnar- og öryggistengdum verkefnum. Þvert á móti hafi hvert aðildarríki sem fullvalda þjóð forræði yfir eigin öryggis- og varnarmálum.
Lögð er áhersla á að aðild hrófli ekki við stöðu Íslands sem herlauss ríkis né krefjist aðild breytinga á grundvallarstefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum.
Gangi Ísland í ESB yrði því hvorki gert að stofna eigin her né taka upp herskyldu. Þá yrðu meginstoðir íslenskrar varnarstefnu áfram aðildin að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin.

Þá telur meirihlutinn að aðild myndi hvorki takmarka sjálfstæði Íslands og málflutning innan NATO né takmarka möguleika á nánu samstarfi á sviði varnarmála við ríki utan ESB, svo sem Bandaríkin, Bretland og Kanada. Þá myndi aðild heldur ekki takmarka samstarf Íslands við hin Norðurlöndin.
Nefndin bendir á að samstarf ESB á sviði öryggis- og varnarmála byggist á hefðbundnu milliríkjasamstarfi þar sem ákvarðanir krefjast einróma samþykkis aðildarríkjanna. Ríkin verði því ekki þvinguð til þátttöku í hernaðaraðgerðum. Svigrúm Íslands til sjálfstæðrar stefnumótunar á þessu sviði verði því áfram mikið.
Þá lætur meirihlutinn þess getið að eðlilegt sé í ljósi breyttrar stöðu alþjóðamála, einkum vegna stríðsins í Úkraínu, að Ísland efli samstarf sitt við ESB.
Að þessu sögðu eigi markmið Íslands að vera staðfesting í aðildarsamningi á sérstöðu landsins sem herlauss lands og viðurkenning á því að aðildin hrófli ekki við forræði Íslands í öryggis- og varnarmálum, og virðing fyrir aðild Íslands að NATO og varnarsamningnum við Bandaríkin.
EES-samningurinn tekur ekki til skattamála með beinum hætti og ESB hefur ekki sameiginlega stefnu um skatta á borð við eignaskatt eða tekjuskatt á einstaklinga og lögaðila. Af því leiðir að Ísland hefði forræði til að móta slíka skattlagningu sjálft.
Ísland þyrfti hins vegar að laga sig að tilskipun ESB um virðisaukaskatt. Samkvæmt henni ber aðildarríkjum að innheimta almennan virðisaukaskatt sem hvert aðildarríki ákveður sem hlutfall af skattstofni. Það skal ekki vera lægra en 15% og vera eins fyrir sölu á vöru og þjónustu. Aðildarríkin hafi hins vegar ríkt svigrúm til álagningar lægri virðisaukaskatts á afmarkaðar vörur og þjónustu.
Fram kemur í álitinu að Ísland gæti áfram ráðið fyrirkomulagi áfengissölu, þar með talið einkasölu ríkisins, en reglur um vörugjöld á áfengi, tóbak og aðrar nikótínvörur takmarki ekki með öllu svigrúm ríkja að þessu leyti.
Stærsta breytingin í tollamálum yrði aðild að tollabandalagi ESB. Með henni myndu tollar á viðskipti við aðildarríki falla niður og Ísland tæki upp sameiginlega tollskrá sambandsins gagnvart ríkjum utan þess.
Ísland myndi segja sig frá fríverslunarsamningum á grundvelli EFTA og tvíhliða samningum og taka í staðinn upp fríverslunarsamninga ESB.
Samningsmarkmið: Að mati meirihlutans þarf að tryggja að aðlögun að skattareglum og tollabandalagi verði hagkvæm og samrýmist íslenskum hagsmunum. Bregðast þurfi við því að tollvernd á landbúnaðarvörum frá ESB falli niður með nægilegum stuðningi við landbúnað.
Megintekjustofnar ESB eru framlög aðildarríkja sem byggja á hlutfalli af vergum þjóðartekjum, hlutfalli af stofni til VSK, hlutfalli af innheimtum tollum og framlög sem byggjast á álagningu vegna óendurunnins plastumbúðaúrgangs. Tekjustofnar sambandsins skiptast þannig:
Ekki er til einhlít aðferð til að meta hve há árleg fjárframlög Íslands til ESB yrðu við aðild. Samkvæmt minnisblaði frá utanríkisráðuneyti væri nærtækt að miða við framlög Finnlands en nettógreiðslur þess til ESB nema um 0,2–0,3% af vergri landsframleiðslu. Á síðasta ári nam verg landsframleiðsla Íslands um 5.000 milljörðum og miðað við framangreint gætu nettóframlög Íslands numið um 10–15 milljörðum króna.
Hins vegar myndi ýmis kostnaður vegna EES-samningsins falla niður við aðild að ESB, þar á meðal vegna rekstrar stofnana EFTA og þýðingamiðstöðvar utanríkisráðuneytisins. Áætlað er að um 8 milljarða króna sé að ræða. Með tilliti til þess megi ætla að aukning útgjalda við aðild að ESB gæti orðið á bilinu 2–7 milljarðar kr. á ári. Þá kom einnig fram í minnisblaði ráðuneytisins að hlutfall tekna ESB af tolltekjum og hlutdeild í virðisaukaskattsgreiðslum væri óverulegt á tekjuhlið aðildarríkja samanborið við bein aðildargjöld þeirra.
Meiri hlutinn leggur áherslu á að komi til aðildar taki framlög Íslands mið af stærð og sérstöðu hagkerfisins.

Samkvæmt nefndarálitinu ættu samningsmarkmið Íslands að beinast að því að tryggja aðild á hagkvæmum forsendum og hámarka þann ávinning sem Ísland getur haft af útgjaldahliðum fjárlaga ESB, sérstaklega á sviðum sem tengjast byggðaþróun, nýsköpun, innviðum, loftslagsmálum, landbúnaði og sjávarútvegi.
Útgjaldaliðirnir hér að neðan eru miðaðir við langtímafjárhagsáætlun ESB fyrir árin 2021–2027.
Innri markaður, nýsköpun og stafræn tækni 12,35%. Fé nýtt til að efla samkeppni, styðja við lítil og meðalstór fyrirtæki, hvetja til stafrænna umbreytinga og fjármagna rannsóknir.
Samheldni, viðnámsþróttur og gildi 35,24%. Fé er varið til að styrkja samheldni milli aðildarríkja ESB. Þannig er dregið úr misvægi milli landsvæða ESB, bæði innan einstakra ríkja og milli þeirra, ásamt því að stuðla að sjálfbærri byggðaþróun.
Náttúruauðlindir og umhverfismál 33,12%. Fjárfestingar í sjálfbærum landbúnaði og sjávarútvegi, loftslagsaðgerðir, náttúruvernd, fæðuöryggi og efling dreifbýlis.
Fólksflutningar og landamærastjórnun 2,12%. Til að mæta áskorunum sem tengjast fólksflutningum og stjórnun landamæra.
Öryggis- og varnarmál 1,23%. Til að styrkja öryggi evrópskra borgara, efla varnarviðbúnað álfunnar og viðbrögð við hættuástandi.
Nágrannasvæði og heimurinn 9,13% Fjárfestingar í utanríkisstarfi ESB gagnvart nágrannaríkjum, þróunarlöndum og annars staðar í heiminum. Undir þennan útgjaldaflokk fellur einnig aðstoð við ríki sem undirbúa aðild að ESB.
Stjórnsýsla ESB 6,81%.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.