Sænskt snus og sum­ar­hús hefðu stað­ið að­ild fyr­ir þrif­um

Lestími: 18 mínútur

Ást á munn­tó­baki og ótti við yf­ir­töku Þjóð­verja á sum­ar­hús­um eru með­al til­finn­inga sem drif­ið hafa í gegn und­an­þág­ur í að­ild­ar­samn­ing­um við Evr­ópu­sam­band­ið. Ís­land á að leggja áherslu á sér­stöðu sína sem harð­býls lands því ESB hef­ur áð­ur sýnt því skiln­ing seg­ir pró­fess­or í Evr­ópu­rétt­i.

Ýms­ar teg­und­ir und­an­þága og sér­lausna geta kom­ið til greina í að­ild­ar­við­ræð­um Ís­lands við Evr­ópu­sam­band­ið, verði þeim hald­ið áfram að lok­inni þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu í haust. Aðildarríki hafa samið um undanþágur frá breytingum sem gerðar hafa verið á stofnsáttmálum og umsóknarríki samið um tíma­bundn­ar að­lag­an­ir, var­an­leg­ar sér­tæk­ar lausn­ir og sér­stak­ar vernd­ar­ráð­staf­an­ir.

Þetta kom fram í máli Dr. Gunn­ars Þórs Pét­urs­son­ar, pró­fess­ors í Evr­ópu­rétti við laga­deild Há­skól­ans í Reykja­vík, á lög­fræði­torgi í Há­skól­an­um á Ak­ur­eyri fyrr í vik­unn­i.

Gunn­ar tel­ur heilla­væn­leg­ast að samn­ings­mark­mið Ís­lands varði sér­lausn­ir vegna harð­býl­is lands­ins, frem­ur en und­an­þág­ur frá al­menn­um stefn­um sem öll að­ild­ar­ríki þurfi að fylgja.

Und­an­þág­ur frá Evru og Schengen

Í erindi sínu sagði Gunn­ar mjög mik­il­vægt að hafa í huga að að­ild­ar­samn­ing­ur hvers rík­is njóti stöðu frum­rétt­ar inn­an ESB, sem þýð­ir að hann hef­ur stöðu æðstu rétt­ar­heim­ild­ar og hon­um verð­ur ekki hagg­að með af­leidd­um rétt­i.

Gunn­ar vék að sér­lausn­um sem að­ild­ar­ríki ESB hafa feng­ið við upp­færslu stofnsátt­mála sam­bands­ins. En slíkar uppfærslur hafa nokkrum sinnum verið gerðar í 70 ára sögu ESB. Sem dæmi má nefna Maastricht sátt­mál­ann, og uppfærslur sem kenndar eru við Nice og Lisa­bon. Dæmi eru um að andstaða ein­staka að­ild­ar­ríkja við tiltekin ákvæði eða stefnur í uppfærslunum hafi leitt til sérsamninga við þau.

Dan­ir hafa ver­ið „erf­ið­ast­ir í þess­um efn­um að sögn Gunn­ar­s en þeir felldu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu hinn svo­kall­aða Maastricht samn­ing. Til að halda Dön­um inni í þess­um upp­færsl­um var tek­in ákvörð­un um að gera sér­stak­an samn­ing Dan­mörku sem kveð­ur á um und­an­þág­ur frá nokkrum at­rið­um í Maastricht sáttmálanum. Sam­kvæmt samn­ingn­um fengu Dan­ir und­an­þágu frá Evru­sam­starf­in­u, ákvæð­um um ESB rík­is­borg­ara­rétt­inn og frá að­ild að sam­eig­in­legri stefnu ESB í ör­ygg­is­ og varn­ar­mál­u­m.

Að sögn Gunn­ars var það sér­stak­lega stefn­an í ör­ygg­is-­ og varn­ar­mál­u­m, sem Dan­ir voru ósátt­ir við. Það átti hins veg­ar eft­ir að breyt­ast og ár­ið 2022, nýttu Dan­ir sér svo­kall­að Opt-­in ákvæði og þar með varð und­an­þág­an frá ör­ygg­is-­ og varn­ar­stefnu ESB úr sög­unn­i.

„Við inn­rás­ina í Úkra­ínu kom þetta mjög fljótt til um­ræðu aft­ur í Dan­mörku og það var blás­ið til nýrr­ar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þar sem var sam­þykkt að Dan­mörk skyldi biðja um að verða að­ili að þess­ari stefnu ESB,“ sagði Gunn­ar.

Gunn­ar nefn­ir einnig Schengen. Þeg­ar það kerfi var fellt inn í ESB rétt­inn, báðu bæði Bret­ar og Ír­ar um að verða und­an­þegn­ir Schen­gen, en líkt og Dan­ir höfðu Bret­ar líka ákveð­ið að taka ekki þátt í Evru­sam­starf­in­u.

Yf­ir­lýs­ing­ar og raun­veru­leg dæmi sanni mögu­leika á sér­lausn­um

„Það kem­ur sjálf­sagt eng­um á óvart að meg­in skila­boð­in frá ESB eru þessi: Þið eruð vel­kom­in en þið þurf­ið að spila eft­ir sömu regl­um og taka á ykk­ur sömu rétt­indi og skyld­ur og við sem erum hér fyr­ir­,“ sagði Gunn­ar í er­indi sín­u.

En þótt mark­mið að­ild­ar­við­ræðna sé að um­sókn­ar­ríki verði full­gild­ur að­ili að Evr­ópu­sam­band­inu og taki upp alla lög­gjöf ESB, sagði Gunn­ar að stofn­an­ir sam­bands­ins; ráð­herra­ráð­ið og fram­kvæmd­ar­stjórn­in, hafi ít­rek­að lýst því yf­ir að um samn­inga­ferli sé að ræða; að við­ræð­ur um að­ild séu op­ið ferli þar sem ekki sé hægt að tryggja ákveðna nið­ur­stöðu fyr­ir fram.

Gunn­ar vís­aði til skjals sem birt var að lok­inni ríkja­ráð­stefnu ár­ið 2010 og var kall­að rammi að­ild­ar­við­ræðn­a. „Ég veit ekki hvort það ýt­ir al­ger­lega út af borð­inu þeirri hug­mynd að þetta séu ein­göngu að­lög­un­ar­við­ræð­ur, en þarna er að minnsta kosti ver­ið að tala um samn­inga­við­ræð­ur um að­ild,“ sagði Gunn­ar.

Í skjal­inu seg­ir að í að­ild­ar­við­ræð­um megi taka til skoð­un­ar löng að­lög­un­ar­tíma­bil, und­an­þág­ur, sér­tæk­ar lausnir og var­an­leg­ar vernd­ar­ráð­staf­an­ir.

Gunn­ar seg­ir alla að­ild­ar­samn­inga hafa inni­hald­ið tölu­vert að tíma­bundn­um að­lög­un­um, sem geti skipt ríki miklu máli. Einnig séu ákvæði um var­an­leg­ar vernd­ar­ráð­staf­an­ir al­geng. Þar sé um að ræða op­ið ákvæði sem seg­i að ef í ljós kom­i, eft­ir að ríki er orð­ið að­ili að ESB, að ein­hverj­ar efna­hags­leg­ar að­stæð­ur eða örð­ug­leik­ar séu fyr­ir hendi eða ríki eigi erfitt að takast á hend­ur til­tekn­ar skuld­bind­ing­ar, þá geti ríki feng­ið und­an­þágu frá því. Sum ríki hafi til dæm­is ótt­ast að fara í fulla sam­keppni á land­bún­að­ar­svið­inu og hafi þess vegna far­ið fram á ákvæði í samn­ing sinn um vernd­ar­ráð­staf­an­ir á því svið­i.

Var­an­leg­ar und­an­þág­ur

Til eru mörg dæmi um að­lag­an­ir og vernd­ar­ráð­staf­an­ir en dæmi um var­an­leg­ar und­an­þág­ur eru ekki mörg í að­ild­ar­samn­ing­um að sögn Gunnars. Hann varaði þó við því, í erindi sínu, að dregnar yrðu álykt­an­ir um að fá­ar var­an­leg­ar und­an­þág­ur þýði að ómögu­legt sé að fá slík­ar und­an­þág­ur. Stað­reynd­in sé að flest um­sókn­ar­ríki séu ólm í að kom­ast inn í Evr­ópu­sam­band­ið og því ekk­ert mjög al­gengt að ósk­að sé eft­ir var­an­leg­um und­an­þág­um og sér­lausn­um.

Ástæða þess að lít­ið er um var­an­leg­ar und­an­þág­ur, komi því ekki endi­lega til af því að ESB sé alltaf að hafna beiðn­um um slík­ar lausnir, held­ur einnig af því að sjald­an sé ósk­að eft­ir þeim.

„Ég veit ekki hvort það er eitt­hvað í þjóð­arsál­inni eða þjóð­ar­gerð­inni sem ger­ir það að verk­um að við virð­umst hafa meiri áhuga á því sem við get­um kom­ist hjá,“ gant­að­ist Gunn­ar með í er­indi sín­u. Ís­land njóti sér­stöðu að þessu leyt­i, því flest um­sókn­ar­ríki sæki um að­ild af því þau vilji vera með í banda­lag­in­u. Var­an­leg­ar und­an­þág­ur hafi þó ver­ið veitt­ar og tók Gunn­ar nokk­ur dæmi í er­indi sín­u.

Dönsku sum­ar­hús­in

„D­an­ir ótt­uð­ust mjög að ef þeir gengju í Evr­ópu­sam­band­ið kæmu Þjóð­verj­ar yf­ir landa­mær­in og keyptu öll sum­ar­hús­in, og að þessi gæði sem þeir sáu í sum­ar­hús­um, sér­stak­lega við strend­urn­ar, myndu á ein­hvern hátt fara úr land­i. Þannig að þeir vildu hafa ein­hverj­ar hindr­an­ir,“ sagði Gunn­ar. Úr varð að Dan­ir fengu við að­ild sína, svo­kall­aða sum­ar­húsaund­an­þág­u.

„Þetta er í raun­inni und­an­þága frá einni af mik­il­væg­ustu reglu ESB um frjálst flæði fjár­magns.“ (Gunn­ar Þór Pét­urs­son­)

Um er að ræða und­an­þágu frá grund­vall­ar­regl­um ESB um frjálst flæði fjár­magns, sem heim­il­ar Dön­um að setja skil­yrði um fimm ára bú­setu í Dan­mörku, fyr­ir kaup­um á sum­ar­hús­i.

Þessi und­an­þága sem Dan­ir sömdu um opn­uðu sömu leið fyr­ir Möltu sem óskaði eft­ir, og fékk sam­bæri­lega und­an­þágu í sín­um að­ild­ar­samn­ingi ár­ið 2003.

„Þetta er í raun­inni und­an­þága frá einni af mik­il­væg­ustu reglu ESB um frjálst flæði fjár­magns,“ sagði Gunn­ar.

Vernd gegn ákvæð­um um þung­un­ar­rof

Gunn­ar tók ann­að dæmi um und­an­þágu sem Malta fékk, einnig með til­vís­un í eldri að­ild­ar­samn­ing. Þessi und­an­þága virk­ar eins og al­menn­ur fyr­ir­vari um að ekk­ert í ESB rétt­in­um muni hafa áhrif á það bann sem er í gildi á Möltu við þung­un­ar­rofi.

Sam­bæri­legt ákvæði er í að­ild­ar­samn­ingi Ír­lands en við inn­göngu þeirra í ESB var ákvæði um bann við þung­un­ar­rofi í stjórn­ar­skrá landsins. Þessi vernd­ar­ráð­stöf­un í samn­ingi Ír­lands er enn í gildi þrátt fyr­ir að um­rætt bann­á­kvæði hafi ver­ið fellt úr stjórn­ar­skrá þeirra. Þeir hafa því enn svig­rúm til að setja slíkt bann á að nýju.

Sví­ar og rétt­ur­inn til að taka í vör­ina

Gunn­ar sagði stund­um skrít­ið að sjá á hvaða mál­um að­ild­ar­við­ræð­ur geti strand­að. „Þótt við Ís­lend­ing­ar sé­um meira að horfa á stóru mál­in var rétt­ur­inn til að taka í vör­ina að­al­at­rið­ið fyr­ir Sví­a,“ sagði Gunn­ar, sem lýsti áhuga Svía á munn­tó­baki sem þjóð­ar­sport­i.

„Full­veld­ið var ekki að trufla þá en þeir gátu ekki hugs­að sér að mega ekki halda áfram að taka í vör­ina. Þeir náðu fram und­an­þágu og marg­ir segja að ef það hefði ekki náð­st, hefði samn­ing­ur­inn aldrei ver­ið sam­þykkt­ur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu,“ sagði Gunn­ar og bætti því við að í skoð­ana­könn­un­um al­veg fram á síð­ustu stundu hafi fleiri ver­ið á móti samn­ingn­um en með hon­um. Mögu­lega hafi þessi und­an­þága gert gæfumun­inn og komið aðildarsinnum yfir línuna.

Und­an­þága Svía þýð­ir að þrátt fyr­ir bann við fram­leiðslu og sölu á munn­tó­baki inn­an ESB, mega Sví­ar halda áfram fram­leiðslu þess fyr­ir inn­an­lands­mark­að.

Gunn­ar sagði margt benda til að þessi und­an­þága Svía sé ekki tíma­bund­in að­lög­un held­ur var­an­leg und­an­þága. Vís­aði hann til af­leiddr­ar lög­gjaf­ar ESB sem sam­þykkt var 20 ár­um eft­ir að Sví­þjóð gekk í ESB, en í henni sé vís­að sér­stak­lega til um­ræddr­ar und­an­þágu Sví­a, sem sýni að hún sé enn í fullu gild­i.

Hér benti Gunn­ar einnig á af­leið­ing­ar þess hve samn­ing­ar eru oft mið­að­ir við að­stæð­ur á þeim tíma sem þeir eru gerð­ir. Fólk sé svo oft bund­ið við að­stæð­ur hér og nú, þrátt fyr­ir að unn­ið sé að samn­ing­um sem ætl­að er að gilda til mjög langs tíma. Þessi mál séu enda mjög póli­tísk og háð skoð­un­um al­menn­ings.

Gunn­ar nefndi þetta í sam­hengi við munn­tó­baks­stefnu ESB og und­an­þágu Sví­a. Á þess­um tíma hafi munn­tó­bak­ið ver­ið mjög mik­il­vægt fyr­ir Svía en í dag hafi nikótín­púð­ar að miklu leyti leyst munn­tó­bak­ið af hólmi. Þeir séu í sölu um alla Evr­ópu þrátt fyr­ir tó­baks­bann­ið, enda ekk­ert tó­bak í þeim.

Svæð­is­bundn­ar sér­lausn­ir

Í er­indi sínu lagði Gunn­ar að það sem skipti mestu máli fyr­ir Ís­land, og sé lík­leg­ast til ár­ang­ur­s, sé að leggja áherslu á sér­lausn­ir sem teng­ist íslenskum að­stæð­um sem eigi sér­stak­lega við um Ís­land um­fram önn­ur rík­i.

Fisk­veið­ar Malt­verja

Í um­fjöll­un um sér­stak­ar svæð­is­bundn­ar sér­lausn­ir nefndi Gunn­ar enn og aft­ur dæmi um Möltu sem náði samn­ingi um sér­stak­ar vernd­ar­ráð­staf­an­ir inn­an 25 sjó­mílna.

Alla jafna falla fiski­mið ut­an 12 sjó­mílna und­ir sam­eig­in­lega sjáv­ar­út­vegs­stefnu ESB. Malt­verj­ar fóru hins veg­ar fram á inn­an 25 sjómílna frá strönd­um Möltu yrðu veið­ar tak­mark­að­ar við skip und­ir tólf metr­um að lengd.

Uppi­staða fiski­skipa­flota Malt­verja er und­ir þeim lengd­ar­mörk­um og ljóst að fyr­ir­komu­lag­ið trygg­ir malt­nesk­um sjó­mönn­um einka­að­gang að heima­mið­um sín­um þar sem óraun­hæft er að sækja á þau mið frá höfn­um ná­granna­ríkj­anna á bát­um af þeirri stærð.

Gunn­ar seg­ir mik­il áhöld um hvort þetta ákvæði í samn­ingi Möltu feli í sér var­an­lega und­an­þág­u. Margt bendi reynd­ar til að svo sé ekki.

Heim­skauta­land­bún­að­ur

Önn­ur títt­nefnd sér­lausn varð­ar svo­nefnd­an heim­skauta­land­bún­að. Bæði Sví­þjóð og Finn­land eru und­an­þeg­in þeim kvöð­um sem sett­ar eru við rík­is­styrkj­u­m, að því leyti að þeim er heim­ilt að veita sér­staka rík­is­styrki, um­fram þá styrki sem veitt­ir eru gegn­um ESB kerf­ið, fyr­ir svæði sem eru norð­an við 62 breidd­argráðu. Ástæð­an er hve harð­býl þau eru.

Gunn­ar sagð­ist telja þessa sér­lausn var­an­lega og benti á að ekk­ert ríki í Evr­ópu­sam­band­inu sé í heild sinni norð­an við 63 breidd­argráðu. „Ís­land er hins veg­ar þar,“ bætti hann við. Þetta dæmi um sér­lausn sýni að ESB hafi sýnt skiln­ing á sér­stök­um að­stæð­u­m, sam­bæri­leg­um þeim sem Ís­land býr við.

Besta sókn­ar­færið fyr­ir Ís­land

Gunn­ar sagði ekki væn­legt til ár­ang­urs að leita eft­ir und­an­þág­um frá stóru stefn­um sam­bands­ins eða þeim kerf­um í heild, sem öll önn­ur að­ild­ar­ríki þurfi að fylgja. Hins veg­ar megi færa rök fyr­ir sér­stök­um lausn­um vegna land­fræði­legr­ar stöð­u, harð­býl­is, strjál­býl­is og ein­angr­un­ar lands­ins; að­stæðna sem eru fyr­ir hendi á Ís­landi í meiri mæli en ann­ars stað­ar.

Gunn­ar benti á ákvæði í stofn­samn­ingi ESB, að­al­lega 349. gr. en einnig 174. gr. Í þess­um ákvæð­um sé fjall­að um svæði sem eru ein­angr­uð, lít­il og bæði land­fræði­lega og loft­lags­lega að fást við aðr­ar áskor­an­ir en flest önn­ur svæð­i innan ESB.

Þótt ákvæð­in taki til svæða sem til­heyri að­ild­ar­ríkj­um en séu ekki sjálf full­valda að­ild­ar­rík­i, eigi margt í ákvæð­un­um sér sam­svör­un við ís­lensk­ar að­stæð­ur. Þau sýni að ESB hafi skiln­ing á áskor­un­um sem felist i því að búa á af­skekkt­u­m, ein­angr­uð­um og harð­býl­um svæð­um og hafi við­ur­kennt að slík svæði geti not­ið sér­stöðu í reglu­verk­i ESB. Þar liggja bestu mögu­leik­ar Ís­lands á sér­lausn­um að mati Gunnars.

Ákvæði 349. gr. er svohljóð­and­i: Með hlið­sjón af fé­lags­leg­um og efna­hags­leg­um að­stæð­um Gvadelúpeyj­ar, Frönsku Gvæj­ana, Mart­iník, Mayotte, Réunion, Sain­t­-Mart­in, Asóreyj­a, Madeira og Kanarí­eyj­a, sem ein­kenn­ast af af­skekktri leg­u, ein­angr­un, smæð, erf­ið­um lands­lags­að­stæð­um og veð­ur­fari, auk þess að vera efna­hags­lega háð fram­leiðslu fárra vöru­teg­unda, og þar sem sam­verk­andi áhrif þess­ara þátta tak­marka mjög þró­un­ar­mögu­leika um­ræddra svæða, skal ráð­ið, að til­lögu fram­kvæmda­stjórn­ar­inn­ar og að höfðu sam­ráði við Evr­ópu­þing­ið, sam­þykkja sér­tæk­ar ráð­staf­an­ir sem lúta eink­um að skil­yrð­um fyr­ir beit­ingu sátt­mál­anna á þess­um svæð­u­m, þar með talið sam­eig­in­leg­um stefn­um.

Með­al ráð­staf­ana sem gerð­ar hafa ver­ið fyr­ir svæðin á grund­velli þessa ákvæð­is eru heim­ild­ir til að tak­marka veið­ar ann­arra að­ild­ar­ríkja ESB inn­an 100 sjó­mílna frá strönd­um um­ræddra svæða. Um­rædd ráð­stöf­un er ekki var­an­leg en hef­ur ver­ið fram­lengd, nú síð­ast út ár­ið 2032.

Hér má horfa á erindi Gunnars Þórs á Lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:23

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link