Áhrif ESB aðildar á budduna og bókhaldið

Lestími: 13 mínútur

Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar. 

A coin sitting on top of a pile of money

Gímaldið heldur áfram að ræða samningsmarkmið Íslands í mögulegum viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Í nýjum hlaðvarpsþætti ræða Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir áfram um nefndarálit utanríkismálanefndar og hugmyndir meirihlutans um samningsmarkmið. Þær rýna einnig í sérfræðiálit Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um efnahagsleg áhrif aðildar að ESB og upptöku evru.

Þetta er síðari hluti umfjöllunar um samningsmarkmiðin en í síðasta þætti ræddu Eyrún og Aðalheiður um ýmislegt óvenjulegt í vinnulagi utanríkismálanefndar í málinu, áhugaverða forsögu málsins og dramatík í umsögnum til nefndarinnar. Þá fóru þær yfir helstu samningsmarkmið í auðlindamálum, umhverfis- og orkumálum, sjávarútvegi og landbúnaði og í öryggis- og varnarmálum.

Í þessum þætti er röðin komin að fjármálunum. Hvaða markmið á að setja á oddinn og hvaða áhrif gæti ESB-aðild og upptaka evru haft fyrir heimilisbókhaldið, fyrir fyrirtækin og ríkissjóð.

Lægra matvöruverð

Meðal þess sem utanríkismálanefnd óskaði svara við frá Hagfræðistofnun er hvort aðild að ESB sé líkleg til að hafa áhrif á verðlag á Íslandi umfram þau áhrif sem EES-samningurinn hefur haft.

Hagfræðistofnun segir svo vera, aðallega vegna aðildar að tollabandalaginu en upptaka evru geti líka haft áhrif.

Að mati stofnunarinnar mun verð líklega lækka mest í vöruflokkum þar sem tollar, innflutningshindranir eða veik samkeppni halda verðlagi uppi. Vísað er sérstaklega til landbúnaðarvara, en þar yrðu mestu breytingarnar vegna þess hve verndaður íslenskur landbúnaður er gagnvart innflutningi.

Áhrif á vöruverð geti hins vegar verið misjöfn. „Þar sem innlend framleiðsla stendur vel að vígi gæti verðlækkun orðið minni, en þar sem verndin er mest gætu áhrifin orðið meiri,“ segir í álitinu.

Hlutfallslegt verð á matvörum í Finnlandi og Svíþjóð lækkaði um 25-30% [á áratugnum milli 1990 og 2000], en á Íslandi og í Noregi hækkaði það ýmist eða lækkaði um nokkur prósent. Freistandi er að tengja muninn því að Finnar og Svíar gengu í Evrópusambandið 1995, en Norðmenn og Íslendingar ekki. Matur er tæp 14% neysluvöruvísitölunnar um þessar mundir. Ef gert er ráð fyrir að matvöruverð lækki að jafnaði um 25% við Evrópusambandsaðild leiðir það strax til 3^% lækkunar neysluverðs. Vel er hugsanlegt að íslenskir neytendur greiði mismuninn að miklu leyti á annan hátt, til dæmis með skattgreiðslum, sem standa mundu undir sérstökum stuðningi við íslenskan landbúnað, umfram það sem ríkið veitir bændum núna. (Úr áliti Hagfræðistofnunnar)

Sam­keppni á mat­vöru­mark­að­i, eink­um með kjöt og aðr­ar land­bún­að­ar­vör­ur stór­eykst vænt­an­lega, gangii Ís­land í ESB. MYND/RU­V/Ragn­ar Visa­ge.

Evran getur einnig haft áhrif á vöruverð með breyttri neytendahegðun. Við upptöku evru yrði neytendum og fyrirtækjum gert auðveldara að bera saman verð sem gæti aukið samkeppni í hefðbundinni verslun, netverslun og innflutningi.

Hagfræðistofnun segir til dæmis að sameiginlegur gjaldmiðill geri verðsamanburð einfaldari og það geti styrkt netverslun og þannig elft aðhald með innlendu verðlagi.

Þótt ekki sé hægt að segja nákvæmlega til um áhrif sameiginlegs gjaldmiðils á vöruverð almennt, segir Hagfræðistofnun að áhrif ESB aðildar á búvöruverð sé mun skýrara.

Við aðild að ESB verði heimilt að flytja búvörur frá öllum löndum sambandsins til annarra aðildarlanda, án tolla og annarra takmarkana.

„Sumir óttast að kaupmenn hækki álagningu sína við umskiptin, en þegar tollar féllu niður á gúrkum, tómötum og paprikum árið 2002 hafnaði öll gjaldalækkunin í vasa neytenda, að því er best verður séð,“ segir í álitinu.

En svo þarf auðvitað að hafa í huga að það eru ekki aðeins gjaldmiðill og tollar sem hafa áhrif á verðlag heldur líka flutningskostnaður, launakostnaður, skattar, smæð markaðarins og samkeppnisaðstæður.

Enn eitt sem skiptir máli er að sumar vörur gætu hækkað í verði, til dæmis vegna fríverslunarsamninga til dæmis við Kína og fleiri þjóðir, sem falla niður við inngöngu Íslands í tollabandalag ESB. Hér er bæði um að ræða tvíhliða samninga sem Ísland hefur gert við önnur ríki og samninga sem Ísland á aðild að í gegnum EFTA. Þessir samningar myndu falla niður við aðild en í stað þeirra kæmu tollar ESB hafi sambandið ekki gert samning við viðkomandi land.

Annað sem Hagfræðistofnun varar við eru umskiptin sjálf. Þótt upptaka evru auðveldi okkur verðsamanburð milli landa, getur samanburður á verði fyrir og eftir myntbreytingu virst snúnari. Þótt upptaka evru breyti almennt ekki meðaltalsverði mikið segir í álitinu að vísbendingar séu um að verð á einstaka vörum eigi til að hækka þegar skipt er um gjaldmiðil. Og þá séu ódýrari vörur líklegri til að hækka í verði en dýrar vörur. Því þarf að fylgjast vel með verðlaginu þegar umskiptin fara fram.

Vextir og lánakjör

Hagfræðistofnun segir að vextir sem í boði eru á húsnæðislánum á evrusvæðinu gefi vísbendingu um hvaða vaxtakjör gætu verið í boði hér á landi ef Íslendingar tækju upp evru en nafnvextir óverðtryggðra húsnæðislána á Íslandi hafa verið mun hærri undanfarin ár miðað við þau kjör sem bjóðast á evrusvæðinu.

Hagfræðistofnun gerði samanburð á vöxtum á Íslandi og í nokkrum evruríkjum og miðaði við byrjun árs 2026. Þá voru vextir á óverðtryggðum lánum til húsnæðiskaupa á evrusvæðinu að jafnaði 2,8–3,8% í þeim löndum sem Hagfræðistofnun skoðaði en á Íslandi voru vextir á samsvarandi lánum um 8,6–9,8%.

Hér setur Hagfræðistofnun þó fyrirvara vegna þess að verðbólga á Íslandi samkvæmt samræmdri vísitölu var að jafnaði um hálfu prósentustigi hærri á Íslandi en á evrusvæðinu á árunum 2010–2020 og tæpu einu prósentustigi hærri síðustu fimm ár.

Nafn­vext­ir óverð­tryggðra hús­næð­is­lána á Ís­landi hafa ver­ið mun hærri und­an­far­in ár mið­að við þau kjör sem bjóð­ast á evru­svæð­in­u. MYND/Reykja­vík­ur­borg/Elfa Björk Ell­erts­dótt­ir

Hagfræðistofnun víkur líka að lánakjörum fyrirtækja en lánakostnaður fyrirtækja í Evrópulöndum hafi á framangreindu tímabili verið á bilinu 3,0–4,7% en útlánsvextir íslenskra viðskiptabanka voru að meðaltali 9,9% á sama tíma.

Stofnunin tekur fram að hafa þurfi svipaða fyrirvara á samanburðinum og áður. Tölurnar séu úr tveim áttum og óvíst sé að lánakostnaður sé reiknaður á sama hátt. Í samanburðinum sé horft á nafnvexti en ekki raunvexti, en verðbólga er að jafnaði meiri hér á landi en á evrusvæðinu.

Annað sem þarf að hafa í huga varðandi húsnæðislánin er að ef vextir á húsnæðislánum lækka með nýjum gjaldmiðli má gera ráð fyrir því að húsnæðisverð hækki, allavega svona fyrst í kjölfarið. Markaðurinn muni hins vegar væntanlega jafna sig og þegar frá líði muni húsnæðisverð á Íslandi fyrst og fremst ráðast af byggingarkostnaði og verði á lóðum.

Hlutur húsnæðis í útgjöldum fjölskyldna

Hagfræðistofnun var beðin álits um áhrif á leiguverð og leigumarkað. Í svari sínu vísar Hagfræðistofnun til talna frá OECD. Samkvæmt þeim er leigukostnaður á Íslandi sem hlutfall af ráðstöfunartekjum sá fimmti hæsti í Evrópu eða 27,5%. Þetta er lægra hlutfall en annars staðar á Norðurlöndum en nokkuð yfir meðaltali ESB-ríkja sem er 20,4%.

Þá kemur fram í álitinu að eignarhaldskostnaður, það er að segja kostnaður eiganda húsnæðis með láni á Íslandi, sé 17,2% af ráðstöfunartekjum. Þar eru tekin nokkur dæmi um ESB-lönd til samanburðar: Lúxemborg (31,8%), Portúgal (23,4%), Grikkland (20%) og Frakkland (18,1%). Meðaltal ESB á þennan mælikvarða er 15,2%. Hagfræðistofnun gerir þó ákveðinn fyrirvara varðandi forsendur samanburðarins.

Í álitinu er líka vísað í tölur OECD varðandi heildarkostnað búsetu að meðtöldu rafmagni og hita, viðhaldi og öðru með tilliti til einkaneyslu. Þar kemur fram að heildarkostnaður búsetu sem hlutfall af einkaneyslu hjá dæmigerðri íslenskri fjölskyldu sé 24,6%, en til samanburðar er hlutfallið að meðaltali 22,9% hjá ESB-ríkjum á sama mælikvarða.

Þarna er nefnt sérstaklega að lægri orkukostnaður á Íslandi skipti talsverðu máli í samanburðinum. Auk þess er bent á að í ESB-ríkjum búi að meðaltali 68% fjölskyldna í eigin húsnæði en hlutfallið er 78% á Íslandi.

Áhrif á vinnumarkaðinn

„Gangi Ísland í Evrópusambandið og taki upp evru mun gengi íslensku krónunnar ekki lengur hafa nein áhrif á eftirspurn eftir íslensku vinnuafli,“ segir í áliti Hagfræðistofnunar. Þar sem viðskiptakostnaður lækkar með upptöku evru og óvissa vegna gengisflökts eða spákaupmennsku minnkar, aukast viðskipti við útlönd. Samhliða því eykst eftirspurn eftir vinnuafli í útflutningshluta hagkerfisins. Lækki vextir og fjármagnskostnaður megi líka gera ráð fyrir að fjárfestingar aukist sem geti aftur ýtt undir eftirspurn eftir vinnuafli.

En stofnunin nefnir bæði jákvæð og neikvæð áhrif fyrir vinnumarkaðinn.

Jákvæðu áhrifin gætu komið fram í aukinni fjárfestingu, meiri útflutningi og fjölgun starfa í greinum sem njóta góðs af lægri viðskiptakostnaði og stöðugri gjaldmiðli.

Sérstaklega gætu nýjar eða vaxandi útflutningsgreinar notið góðs af minni gengisóvissu og fyrirtæki sem selja vörur eða þjónustu á evrumarkaði myndu ekki þurfa að bera sömu áhættu af sveiflum krónunnar. Í slíkum rekstri gæti því skapast svigrúm til að ráða fleira fólk.

Ferða­þjón­usta hef­ur ver­ið í mikl­um vexti síð­an Ís­land átti í að­ild­ar­við­ræm­um við Evr­ópu­sam­band­ið. Þá voru helst bundn­ar von­ir við vöxt og ný­sköp­un í grein­inni og hef­ur það geng­ið eft­ir. MYND/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Á móti gæti inngangan falið í sér áskoranir fyrir fyrirtæki í rekstri sem nýtur tollverndar eða lítillar erlendrar samkeppni í dag.

Þannig að áhrifin á vinnumarkaðinn verða líklega misjöfn eftir því til hvaða geira er horft og hvort þeir eru uppgangsmegin eða þeim megin þar sem samkeppni kemur í staðinn fyrir einokunar- eða fákeppnisstöðu fyrir inngöngu.

Áhrif aðildar á hagvaxtargetu

Að mati Hagfræðistofnunar hefði aðild að Evrópusambandinu og upptaka evru jákvæð áhrif á hagvaxtargetu með minni viðskiptakostnaði, aukinni samkeppni, minni gengisáhættu og betri skilyrðum fyrir fjárfestingu og útflutning.

Rannsóknir á öðrum aðildarríkjum benda til þess að viðskipti og landsframleiðsla á mann aukist allverulega með upptöku evru, einkum vegna aukinna utanríkisviðskipta. Hagfræðistofnun bendir þó á að Ísland sé ekki alveg samanburðarhæft við önnur ríki sem gengið hafa í Evrópusambandið vegna þess að Ísland er nú þegar þátttakandi í EES-samstarfinu og aðili að innri markaði ESB. Það þýðir að breytingin hér á landi yrði ekki eins róttæk og í ríkjum sem koma fyrst inn á fjórfrelsismarkaðinn við inngöngu í ESB. Hins vegar sýna rannsóknir að lítil aðildarlönd hafi hagnast meira en stór.

Upptaka evru er talin geta haft einhver áhrif á hagvaxtarmöguleika en rannsóknum ber þó ekki alveg saman á þessu sviði. Þá er ljóst að með upptöku evru yrði peningastefnan ekki sérsniðin að íslenskum aðstæðum og því ekki hægt að beita ýmsum stýringartækjum þegar áföll dynja yfir. Stofnunin bendir til dæmis á að fjármálakreppan sem hófst árið 2007 hafi komið illa niður á mörgum evrulöndum, sérstaklega Grikklandi, Ítalíu, Spáni, Portúgal, Írlandi og Kýpur. Framleiðsla hafi dregist saman um tíma, atvinnuleysi aukist og stjórnvöld þurftu að beita miklum niðurskurði til að endurreisa traust á ríkissjóðum. „Þær raddir heyrðust að slæmt væri að geta ekki lengur leyst vandann á snöggan hátt með gengisfellingu,“ segir í álitinu.

Önnur áhrif á hagstjórn

Hagfræðistofnun ræðir í áliti sínu áhrif upptöku evru á áhrifavald ríkisvaldsins til að mæta hagsveiflum og áföllum í samfélaginu eftir að við tækjum upp evru.

Áhrifa­vald Ás­geirs Jóns­son­ar, myndi óneit­an­lega drag­ast sam­an við inn­göngu Ís­lands i mynt­banda­lag Evr­ópu. MYND/RÚ­V/Ragn­ar VIsa­ge

Við inngöngu í myntbandalagið myndi peningastefna Seðlabankans falla niður og Ísland yrði hluti af peningastefnu Seðlabanka Evrópu. Það myndi þýða að vextir yrðu ákveðnir miðað við aðstæður á evrusvæðinu í heild, ekki sérstaklega miðað við íslenskar aðstæður.

Þótt þetta væri hið besta mál í venjulegu árferði gæti Ísland orðið fyrir áföllum sem snerta Íslendinga sérstaklega en ekki aðrar Evrópuþjóðir, svo sem aflabresti, hruni í ferðaþjónustu af einhverjum ástæðum, náttúruhamförum og fleira. Í slíkum tilvikum gæti sameiginleg peningastefna reynst óheppileg.

Hagfræðistofnun segir að til að evra virki vel þyrfti Ísland því að hafa mikinn aga í fjármálum hins opinbera og geta safnað í sjóði í góðæri til að nota í niðursveiflu.

Áhrif á stöðu lífeyrissjóða

Hagfræðistofnun bendir bæði á jákvæðar og neikvæðar hliðar á aðild fyrir lífeyrissjóðina. Upptaka evru gæti auðveldað lífeyrissjóðum að fjárfesta í evrulöndum án sömu gengisáhættu og nú er gagnvart krónunni.

Þetta er talið geta styrkt stöðu lífeyrissjóða til lengri tíma.

Hins vegar er bent á að lífeyrissjóðir fjárfesta talsvert í íslenskum ríkisbréfum, sem bera hærri vexti en ríkisbréf á evrusvæðinu. Þannig mætti ætla að von um raunávöxtun krónubréfa sé meiri en í evrubréfum.

Hægt er að hlusta á hlaðvarpsþátt um þetta efni í spilaranum hér að neðanog á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Hér er hægt að lesa álit Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.

Hér er hægt að lesa álit meiri hluta utanríkismálanefndar.

Þessi þáttur er sjálfstætt framhald fyrri þáttar um samningsmarkmið eins og þau birtast í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar. Hægt er að hlusta á fyrri þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:13

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link