Refurinn, sauðkindin og digrir sjóðir fyrir brothættar byggðir

Lestími: 30 mínútur

Fjallað er um fjárframlög Íslands til ESB og hvað fæst í staðinn, gangi Ísland í sambandið, í nýju nefndaráliti utanríkismálanefndar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið aðildarviðræðna:
– Yfirráð auðlinda áréttuð í sérbókun
– Sérlausn í fiski: Sérstakt íslenskt fiskveiðistjórnkerfi
– Heimskautalandbúnaður og styrkir frá Brussel
– Miklir fjármunir frá ESB til landsbyggðar
– Undanþágur um íslenska refinn, hvalinn og flugsamgöngur
– Þátttaka í gengissamstarfi og stefnt að upptöku evru
– Ísland áfram herlaust og fullráða í varnarmálum

blue and yellow flag on pole

Ut­an­rík­is­mála­nefnd hef­ur af­greitt ESB-­­til­lögu rík­is­stjórn­ar­inn­ar úr nefnd. Í ít­ar­legu nefnd­ar­á­liti meiri hluta nefnd­ar­inn­ar er fjall­að al­mennt um til­lög­una, stöðu Ís­lands á Evr­ópska efna­hags­svæð­in­u, að­komu ís­lensku þjóð­ar­inn­ar, stjórn­skipu­leg álita­mál, efna­hags­leg álita­mál, ferl­ið fram und­an og til­lögu nefnd­ar­inn­ar um breyt­ingu á spurn­ing­unni sem bera á upp í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unn­i.

En þunga­miðja nefnd­ar­á­lits­ins er hins veg­ar kafli um meg­in­hags­muni Ís­lands verði sam­þykkt að hefja við­ræð­ur á ný og samn­ings­mark­mið sem meiri hlut­inn mælist til að höfð verði til hlið­sjón­ar við út­færslu mark­miða Ís­lands í að­drag­anda samn­inga­við­ræðn­a.

Fjall­að er um þessi mark­mið í nokkrum lið­um und­ir fjórða kafla nefnd­ar­á­lits­ins og er þar vik­ið bæði að þeim samn­ings­mark­mið­um sem lögð var áhersla á í fyrri að­ild­ar­við­ræð­um og mark­mið­um sem nú­ver­andi meiri hluti nefnd­ar­inn­ar legg­ur áherslu á.

EES aðlaganir haldi gildi sínu

Í upphafi umfjöllunar nefndarinnar um hagsmuni og markmið Íslands er vikið að áhrifum EES-samningsins. Ísland hefur nú þegar tekið upp mikið af reglum ESB í gegnum EES-samstarfið. Á síðustu þremur áratugumn hefur verið samið um aðlaganir á ýmsum sviðum vegna sérstakra aðstæðna á Íslandi, flestar á sviði matvæla- og dýraheilbrigðismála, orkumála og umhverfis- og loftslagsmála. Einnig er nefnd í álitinu aðlögun ríkisstyrkts innanlandsflugs og ákvæði um sumartíma.

Meiri hluti nefnd­ar­inn­ar legg­ur áherslu á að þær að­lag­an­ir sem hafa ver­ið tryggð­ar inn­an EES-­­sam­starfs­ins vegna sér­stöðu Ís­lands eða sér­stakra hags­muna haldi gildi sínu og verði hluti ESB-­rétt­ar komi til að­ild­ar Ís­lands. Þetta komi þó til skoð­un­ar við mót­un samn­ings­af­stöðu í hverj­um þeim kafla sem varð­ar EES-­­mál­efn­i.

Yfirráð yfir auðlindum áréttuð í sérbókun

Rík­is­stjórn­in til­grein­ir auð­linda­mál sem grund­vall­ar­hags­muna­mál Ís­lands. Sér­stak­lega er vís­að til orku­- og vatns­auð­linda en einnig til fisk­veiði­auð­lind­ar­inn­ar. Meiri­hluti ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar seg­ir eng­um vafa und­ir­orp­ið að það sé í hönd­um hvers og eins að­ild­ar­rík­is að mæla fyr­ir um eign­ar­hald og nýt­ingu á vatns-­ og orku­auð­lind­um, inn­an þess reglu­verks sem gildi um um­hverf­is­mál.

Svo seg­ir í álit­in­u: „Skýrt er af hálfu meiri hlut­ans að Ís­land geti aldrei fall­ist á að sátt­mál­ar ESB mæli fyr­ir um fyr­ir­komu­lag eign­ar­halds eða stýr­ingu á beinni nýt­ingu nátt­úru­auð­linda. Í því efni legg­ur meiri hlut­inn áherslu á að hald­ið verði á lofti sér­stöðu Ís­lands, eink­um og sér í lagi þeg­ar kem­ur að nýt­ingu á end­ur­nýj­an­legri orku, þ.e. vatns­afli og jarð­hita.“

Meiri­hlut­inn mælist til þess að rík­is­stjórn­in árétti af­stöðu Ís­lands um yf­ir­ráð yf­ir auð­lind­um, til dæm­is með sér­stakri bók­un við að­ild­ar­samn­ing. Fyr­ir slík­um yf­ir­lýs­ing­um séu for­dæmi, seg­ir meiri­hlut­inn og vís­ar til að­ild­ar­samn­ings Nor­egs frá 1994.

Meiri­hlut­inn ít­rek­ar að í sátt­mál­um ESB sé ekki rætt um yf­ir­þjóð­lega eign á auð­lind­um að­ild­ar­ríkj­anna og því sé ekki ástæða til að ætla að að­ild að ESB hefði áhrif á ís­lenska hags­muni á sviði orku­mála. Meiri­hlut­inn ít­rek­ar hins veg­ar að hald­ið verði til haga þeirri sér­stöðu Ís­lands sem við­ur­kennd hef­ur ver­ið með að­lög­un­um á vett­vangi EES-­­samn­ings­ins, þar sem hags­mun­ir Ís­lands kalli enn á slíkt.

Lagning sæstrengs yrði alltaf íslensk ákvörðun.

Um mögu­lega lagn­ingu sæ­strengs seg­ir í áliti meiri­hlut­ans að það yrði ávallt ís­lensk ákvörð­un, eins og lög kveða á um, „enda svo sam­tvinn­uð ákvörð­un­um um nýt­ingu orku­auð­lind­anna sjálfra.“

Sér­lausn um sér­stakt ís­lenskt fisk­veiði­stjórn­ar­svæði

Sjáv­ar­út­vegs­mál­in eru stærsta hags­muna­mál Ís­lands þeg­ar kem­ur að mögu­legri að­ild að ESB,“ seg­ir í áliti meiri­hlut­ans. Um sé að ræða eina af meg­in­stoð­um ís­lensks efna­hags­lífs og grund­völl að bú­setu hring­inn í kring­um land­ið. Einnig er vís­að til fæðu­ör­ygg­is sem þjóðar­ör­ygg­is­máls.

Meiri hlut­inn tel­ur lyk­il­kröf­ur Ís­lend­inga um sjáv­ar­út­vegs­mál snúa að for­ræði yf­ir auð­lind­inni og „rétti Ís­lend­inga til að stýra sókn í veiði­stofna er bygg­ist á sjálf­bærri nýt­ing­u, ráð­gjöf sér­fræð­inga og veiði­reynslu.“

EES-­­samn­ing­ur­inn hef­ur tryggt Ís­landi und­an­þágu frá meg­in­reglu ESB-­rétt­ar um fjár­fest­ing­ar­frelsi í til­viki er­lendra fjár­fest­inga í sjáv­ar­út­veg­i. Tel­ur meiri­hluti nefnd­ar­inn­ar mik­il­vægt að árétta þetta.

Þá tel­ur meiri­hlut­inn raun­hæfa leið til að tryggja for­ræði Ís­lands yf­ir sjáv­ar­auð­lind­inni að fisk­veiði­lög­sag­an verði skil­greind sem sér­stakt ís­lenskt fisk­veiði­stjórn­ar­svæð­i. „Þannig verði rétt­indi ekki til stað­ar fyr­ir er­lend fisk­veiði­skip til veiða inn­an ís­lenskr­ar fisk­veiði­lög­sögu úr stað­bundn­um ís­lensk­um stofn­um,“ seg­ir í áliti nefnd­ar­inn­ar.

Í álit­inu seg­ir að meg­in­regla ESB um hlut­falls­leg­an stöð­ug­leika feli þetta í sér nú þeg­ar, en nefnd­in vill engu að síð­ur festa þetta enn frek­ar í sessi í að­ild­ar­samn­ingi enda njóti sá samn­ing­ur frum­rétt­ar í ESB-rétt­i. Nefnd­in er í raun­inni að leggja til sér­lausn fyr­ir Ís­land sem fæli í sér þró­un á frum­rétti ESB en einnig á sam­eig­in­legu sjáv­ar­út­vegs­stefn­unni þar sem sér­stak­ar regl­ur myndu gilda um þetta til­tekna haf­svæð­i, þar á með­al um ákvarð­an­ir um fyr­ir­komu­lag nýt­ing­ar veiði­stofna.

Meiri hluti nefnd­ar­inn­ar tel­ur ekki æski­legt að regl­ur ESB um brott­kast gildi inn­an ís­lenskr­ar fisk­veiði­lög­sög­u. Í áliti nefnd­ar­inn­ar seg­ir að þótt regl­ur ESB um brott­kast hafi þró­ast til betri veg­ar sé það mat meiri­hlut­ans að þær sam­ræm­ist ekki lyk­il­kröf­um og áhersl­um Ís­lands sem nefnd­ar voru hér að fram­an.

Deilistofn­ar og tæki­færi fyr­ir ís­lensk­ar út­gerð­ir

Meiri­hlut­inn legg­ur áherslu á að tryggja þurfi að sú hlut­deild í deilistofn­um sem þeg­ar hef­ur ver­ið samið um hald­ist og þrýst verði á að samn­ing­ar klárist um aðra stofna. Þetta sé í raun sjálf­stætt mark­mið óháð mögu­leg­um að­ild­ar­við­ræð­u­m.

Nefnd­in vek­ur at­hygli á því að meg­in­regl­an um deilistofna inn­an ESB er sú að að­ild­ar­rík­in geta veitt hlut­deild sína úr deilistofn­um í lög­sög­um ann­arra að­ild­ar­ríkja. Í þessu gætu falist tæki­færi fyr­ir ís­lensk út­gerð­ar­fyr­ir­tæki.

Tollar á eldisfiski myndu falla niður

Ákvörð­un­ar­vald um fisk­eldi er al­far­ið hjá að­ild­ar­ríkj­un­um sjálf­um, seg­ir í áliti nefnd­ar­inn­ar. Þrátt fyr­ir það eru mark­mið Ís­lands á þessu sviði þau sömu og gilda um fisk­veið­ar inn­an sam­eig­in­legu sjáv­ar­út­vegs­stefn­unn­ar, með­al ann­ars um sjálf­bærn­i, mat­væla­fram­leiðslu og sam­keppn­is­hæfn­i.

Þá bend­ir meiri­hlut­inn á að til hags­bóta væri fyr­ir grein­ina að „sam­hliða að­ild myndu toll­ar til ESB og Bret­lands á eld­is­fisk falla nið­ur, eins og raun­ar með all­ar sjáv­ar­af­urð­ir, sem m.a. býð­ur upp á aukna mögu­leika í vinnslu á Ís­land­i.“

Heimskautalandbúnaður og fjárframlög frá Brussel

Samn­ings­mark­mið meiri­hlut­ans á sviði land­bún­að­ar er að á Ís­landi verði hægt að stunda öfl­ug­an land­bún­að í þágu fæðu­ör­ygg­is, mat­væla­ör­ygg­is og byggða­sjón­ar­miða.

Stærstu álita­mál­in um land­bún­að varða ann­ars veg­ar áhrif þess að vernd­ar­toll­ar á land­bún­að­ar­vör­ur myndu falla nið­ur við að­ild Ís­lands að tolla­banda­lagi ESB og hins veg­ar ólík­ar að­stæð­ur ís­lenskra bænda í sam­an­burði við kollega þeirra í öðr­um.

Um hið fyrr­nefnda seg­ir nefnd­in að form­ið á stuðn­ingi við bænd­ur muni þurfa að breyt­ast frá því sem nú er, enda myndu gild­andi vernd­ar­toll­ar á land­bún­að­ar­vör­ur frá öðr­um ríkj­um að öll­um lík­ind­um falla nið­ur við að­ild.

Tek­ið er fram að sveigj­an­leiki í land­bún­að­ar­stefnu ESB hafi aukist, hann muni þó ekki duga til að mæta samn­ings­mark­mið­um Ís­lands og meira þurfi að koma til.

Ut­an­rík­is­mála­nefnd legg­ur til fjöl­breytt mark­mið til að koma til móts við þessi álita­efni í mögu­leg­um samn­inga­við­ræð­u­m. Lyk­il­at­riði sé að tryggja bænd­um nægi­leg­an stuðn­ing til að vega upp á móti erf­ið­um að­stæð­um hér á land­i.

Sauðkindin er eitt helsta hagsmunamál Íslendinga, að mati meiri hluta utanríkismálanefndar og margra annarra. Mynd/Thomas Quine, CC BY-SA 2.0, https://commons.wikimedia.org/w/index.php?curid=6868588

Í álit­inu er lagt til að Ís­land semji um að fá sér­lausn sem fæli í sér að á Ís­landi væri stund­að­ur heim­skauta­land­bún­að­ur, í ljósi erf­iðra fram­leiðslu­skil­yrða hér á land­i. Á þeim grund­velli væri sér­stak­ur rík­is­stuðn­ing­ur heim­ill. For­dæmi fyr­ir þess­ari leið eru í að­ild­ar­samn­ing­um Sví­þjóð­ar og Finn­lands sem heim­ila sér­stak­an stuðn­ing við land­bún­að á norð­læg­um slóð­u­m.

Þá seg­ir að leggja verði áherslu á að „tryggja að fjár­fram­lög og heim­ild­ir um stuðn­ing til land­bún­að­ar­ins verði full­nægj­andi til að við­halda sam­bæri­leg­um heild­ar­stuðn­ingi eins og nú er, að með­tal­inni toll­vernd.“ Þetta eigi við um jarð­rækt, bú­fjár­rækt og garð­yrkju.

Þá er rætt um svig­rúm grein­ar­inn­ar til að­lög­un­ar í ljósi þeirr­ar mark­aðs­vernd­ar sem grein­in hef­ur not­ið og þeirra breyt­inga sem verða á stuðn­ings­kerf­in­u.

Þá vík­ur nefnd­in að tæki­fær­um sem falist gætu í stuðn­ings­kerfi ESB fyr­ir dreif­býl­is­þró­un. Það geti bæði rennt styrk­ari stoð­um und­ir bú­setu og skap­að sveigj­an­leika í fram­leiðslu, mætt kostn­aði við fjár­fest­ing­ar í grein­inni og inn­leið­ingu reglna.

Að lok­um vill meiri­hlut­inn við­halda var­an­legu banni við inn­flutn­ingi lif­andi dýra, sem tryggt hafi ver­ið í EES-­­samn­ingn­um, í þeim til­gangi að vernda inn­lenda dýra­stofna og sjúk­dóma­stöð­u.

Verulegir fjármunir til brothættra byggða

Áhersla ESB á stuðn­ing við byggða­þró­un og upp­bygg­ingu á ólík­um svæð­um inn­an sam­bands­ins og að­ild­ar­ríkj­anna fell­ur vel að byggða­stefnu Ís­lands, að því er fram kem­ur í álit­in­u. Líkt og við á um sjáv­ar­út­vegs­mál og land­bún­að­ar­mál legg­ur meiri­hlut­inn sér­staka áherslu á sér­stöðu Ís­lands og áskor­an­ir fyr­ir byggða­þró­un. Þess­um sér­stöku að­stæð­um hér á landi þurfi að halda á loft­i.

Meiri­hlut­inn tel­ur hins veg­ar mik­il tæki­færi fel­ast í að­ild að ESB fyr­ir lands­byggð­ina. Þessi tæki­færi þurfi að greina vel og „tryggja greið­an að­gang að því fjár­magni sem yrði í boði inn­an byggða­á­ætl­ana ESB og ann­arra áætl­ana sem nýst gætu til að efla byggð um land­ið.“ Nefnd­ar eru til dæm­is áætl­an­ir og fjár­magn til að efla brot­hætt­ar byggð­ir og til ný­sköp­un­ar sem auk­ið gætu tæki­færi til at­vinnu­sköp­un­ar á lands­byggð­inn­i.

Svo seg­ir í álit­in­u: „Um er að ræða eitt þeirra sviða þar sem má gera ráð fyr­ir að veru­leg­ir fjár­mun­ir renni til baka til Ís­lands úr sjóð­um ESB.“

Refaveiðar, hvalveiðar og nauðsyn flugsamgangna

Meiri hlut­inn legg­ur áherslu á að sér­ein­kenni Ís­lands með til­liti til nátt­úru­vernd­ar þurfi að end­ur­spegl­ast í lög­gjöf ESB komi til að­ild­ar. Í álit­inu seg­ir að regl­ur um nátt­úru­vernd á Ís­landi og inn­an ESB bygg­ist að miklu leyti á sam­eig­in­leg­um al­þjóð­leg­um skuld­bind­ing­um. Út­færsla þess­ara reglna hafi þó ekki ver­ið sú sama á öll­um svið­u­m, eink­um varð­andi nýt­ingu og veið­ar á villt­um dýr­um og vegna líf­rík­is hafs­ins.

Lögð hefur verið áhersla á að íslendingar geti áfram skotið íslenska refinn. Mynd/Vísindavefurinn.

Meiri­hlut­inn vík­ur sér­stak­lega að veið­um og nýt­ingu nokk­urra dýra­teg­unda, ís­lenska refn­um, nokkrum hval­teg­und­um og til­tekn­um fugla­teg­und­um. Hefð hafi ver­ið fyr­ir veið­um þess­ara teg­unda og þær rétt­lætt­ar með sjón­ar­mið­um um sögu­leg­ar nytj­ar og sjálf­bæra nýt­ingu auð­linda.

Stefna Ís­lands og ESB á sviði lofts­lags­mála bygg­ist á sömu for­send­um. Frá síð­ustu að­ild­ar­við­ræð­um hef­ur tölu­verð þró­un ver­ið á sviði lofts­lags­mála. Ís­land hef­ur þeg­ar tek­ið megn­ið af þeirri lög­gjöf upp. Ann­ars veg­ar er um að ræða ETS­­kerf­ið sem er hluti EES­­samn­ings­ins og hins veg­ar er um að ræða lög­gjöf sem lýt­ur að sam­fé­lags­los­un og los­un frá land­notk­un, breyttri land­notk­un og skóg­rækt. Ís­land og Nor­eg­ur hafa tek­ið þessa lög­gjöf upp í bók­un 31 við EES­­samn­ing­inn.

Nefnd­in bend­ir á að Ís­land hafi sér­staka hag­muni af þró­un ETS­­kerf­is­ins, eink­um vegna milli­landa­flugs. Við samn­inga­gerð­ina á þessu sviði þurfi að halda á lofti þeirri sér­stöðu Ís­lands að hluti orku­notk­un­ar hér á landi bygg­ist á end­ur­nýj­an­leg­um orku­gjöf­um. Ís­land myndi þannig leggja mik­ið af mörk­um til sam­bands­ins vegna sam­eig­in­legs mark­miðs ESB gagn­vart Par­ís­ar­samn­ingn­um. Með vís­an til þessa þurfi að taka til­lit til hags­muna Ís­lands af góð­um flug­sam­göng­um til og frá Ís­landi við þró­un ETS­­kerf­is­ins.

Áhersla á forræði á kjarasamningagerð

Í þess­um kafla nefnd­ar­á­lits­ins er vís­að til þess að kafl­ar frjálsa för vinnu­afls og um stað­festu­rétt og þjón­ustu­starf­semi falli að öllu leyti und­ir EES-­­samn­ing­inn.

Stór hluti reglu­verks ESB á sviði al­manna­þjón­ustu og fé­lags­mála fell­ur líka þeg­ar und­ir EES­­-samn­ing­inn en það snýr eink­um að lág­marks­regl­um á vinnu­mark­aði og sam­ræm­ingu al­manna­trygg­inga.

Að­ild­ar­rík­in hafa sjálf for­ræði á skipu­lagi vinnu­mark­að­ar­ins, þar á með­al í tengsl­um við kjara­samn­inga­gerð. Meiri­hluti ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar legg­ur áherslu á að áfram verði tryggt að Ís­land hafi for­ræði á kjara­samn­inga­mál­um og að samn­ings­frelsi að­ila vinnu­mark­að­ar­ins verði áfram virt.

Í álit­inu kem­ur einnig fram það mat meiri­hlut­ans að að­ild að ESB geti stutt við um­bæt­ur á vinnu­mark­aðs­mód­el­inu í tengl­um við hugs­an­lega upp­töku Evr­ópu.

Stefnt í gengissamstarf og síðar upptöku evru

Það er skýrt markmið meirihluta utanríkismálanefndar að stefna að upptöku evru enda gæti það dregið úr hagsveiflum og aukið stöðugleika í opinberum fjármálum.

Í samningaviðræðunum þurfi að leggja áherslu á sérstöðu Íslands sem lítils, opins og sveiflukennds hagkerfis. Markmið viðræðna eigi að vera að tryggja stöðugt og hagkvæmt efnahagsumhverfi sem styður velferð, hagvöxt, utanríkisviðskipti og aukinn viðnámsþrótt gagnvart ytri áföllum.

Samningsmarkmiðin ættu að miðast við að skapa forsendur fyrir meiri stöðugleika, þar á meðal með þátttöku í gengissamstarfi Evrópu (ERM II) um leið og aðstæður leyfa og síðar upptöku evru, þegar efnahagsleg skilyrði verða uppfyllt. Gæta þurfi að því að aðlögunin taki mið af íslenskum aðstæðum og hagsmunum.

Skilyrði fyrir upptöku evru: Til að Ísland geti tekið upp evru þarf landið að uppfylla Maastricht-skilyrðin um gengisstöðugleika, afkomu og skuldir hins opinbera, verðbólgu og langtímavexti. Þá þarf landið að hafa verið þátttakandi í gengissamstarfi Evrópu í tvö ár.

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur ísland nú þegar uppfylla tvö af fjórum skilyrðum fyrir upptöku evru. MYND/RÚV/Ragnar Visage.

Í álit­inu kem­ur fram að Ís­land hafi ekki (í apr­íl 2026) stað­ist skil­yrði Maastricht um verð­bólgu og lang­tíma­vext­i. Verð­bólga var of há og ávöxt­un­ar­krafa rík­is­skulda­bréfa yf­ir við­mið­u­m.

Í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Dilj­ar Mis­t­ar Ein­ars­dótt­ur, kem­ur hins veg­ar fram að Ís­land upp­fylli nú þeg­ar það skil­yrði að halli á rekstri hins op­in­bera sé inn­an við 3% af vergri lands­fram­leiðslu (VLF) og að horf­ur séu á því að hann verði það áfram.

Sam­kvæmt svar­inu upp­fyll­ir Ís­land einnig það skil­yrði að skuld­ir hins op­in­bera á hinn svo­kall­aða Maastricht­­-mæli­kvarða séu lægri en 60% af lands­fram­leiðslu og að horf­ur séu á að þær verði það áfram. Maastricht­-skuld­ir hins op­in­bera námu 56,1% af lands­fram­leiðslu í árs­lok 2025 sam­kvæmt bráða­birgða­töl­um Hag­stofu Ís­lands. Sam­kvæmt til­lögu að fjár­mála­á­ætl­un er áætl­að að skulda­hlut­fall­ið lækki á næstu ár­um.

Þátt­taka í geng­is­sam­starfi Evr­ópu ( (ERM II): Með þátt­töku Ís­lands í geng­is­sam­starfi Evr­ópu yrði skiptigengi krón­unn­ar gagn­vart evru ákveð­ið. Í álit­inu seg­ir að á að­lög­un­ar­tíma hafi gengi þjóð­ar­gjald­mið­ils­ins svig­rúm til að sveifl­ast um allt að 15 pró­sent yf­ir eða und­ir hinu um­samda skiptigeng­i, en Seðla­banki Evr­ópu sé skuld­bund­inn til að að­stoða við að verja vik­mörk­in. Sam­kvæmt minn­is­blaði frá ut­an­rík­is­ráðu­neyt­inu er nokk­uð mis­jafnt hve lang­ur tími líð­ur frá að­ild að ESB til form­legr­ar þátt­töku í geng­is­sam­starf­in­u. Þó sé talið að stað­bundn­ar að­stæð­ur, þátt­taka í EES­­-sam­starf­inu og póli­tísk­ir þætt­ir gætu stuðl­að að skjótri þátt­töku Ís­lands í ERM II­­-sam­starf­in­u.

Ís­land áfram her­laust og sjálf­ráða í varn­ar­mál­um

Í áliti meiri­hluta ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar er árétt­að að að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu breyti því ekki að Ís­land móti sína eig­in stefnu í ör­ygg­is­- og varn­ar­mál­u­m. Ákvarð­an­ir ESB á þessu sviði krefj­ist ein­róma sam­þykk­is og að­ild­ar­ríki verði ekki þvinguð til þátt­töku í hern­að­ar­að­gerð­um eða öðr­um varn­ar­- og ör­yggis­tengd­um verk­efn­um. Þvert á móti hafi hvert að­ild­ar­ríki sem full­valda þjóð for­ræði yf­ir eig­in ör­ygg­is-­ og varn­ar­mál­u­m.

Lögð er áhersla á að að­ild hrófli ekki við stöðu Ís­lands sem her­lauss rík­is né krefj­ist að­ild breyt­inga á grund­vall­ar­stefnu Ís­lands í ör­ygg­is­- og varn­ar­mál­u­m.

Gangi Ís­land í ESB yrði því hvorki gert að stofna eig­in her né taka upp her­skyld­u. Þá yrðu meg­in­stoð­ir ís­lenskr­ar varn­ar­stefnu áfram að­ild­in að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu og varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­rík­in.

Ísland yrði áfram herlaust kæmi til aðildar að Evrópusambandinu. MYND/RÚV/Ragnar Visage

Þá tel­ur meiri­hlut­inn að að­ild myndi hvorki tak­marka sjálf­stæði Ís­lands og mál­flutn­ing inn­an NATO né tak­marka mögu­leika á nánu sam­starfi á sviði varn­ar­mála við ríki ut­an ESB, svo sem Banda­rík­in, Bret­land og Kanada. Þá myndi að­ild held­ur ekki tak­marka sam­starf Ís­lands við hin Norð­ur­lönd­in.

Nefnd­in bend­ir á að sam­starf ESB á sviði ör­ygg­is-­ og varn­ar­mála bygg­ist á hefð­bundnu milli­ríkja­sam­starfi þar sem ákvarð­an­ir krefj­ast ein­róma sam­þykk­is að­ild­ar­ríkj­anna. Rík­in verði því ekki þvinguð til þátt­töku í hern­að­ar­að­gerð­u­m. Svig­rúm Ís­lands til sjálf­stæðr­ar stefnu­mót­un­ar á þessu sviði verði því áfram mik­ið.

Þá læt­ur meiri­hlut­inn þess get­ið að eðli­legt sé í ljósi breyttr­ar stöðu al­þjóða­mála, eink­um vegna stríðs­ins í Úkra­ín­u, að Ís­land efli sam­starf sitt við ESB.

Að þessu sögðu eigi mark­mið Ís­lands að vera stað­fest­ing í að­ild­ar­samn­ingi á sér­stöðu lands­ins sem her­lauss lands og við­ur­kenn­ing á því að að­ild­in hrófli ekki við for­ræði Ís­lands í ör­ygg­is-­ og varn­ar­mál­u­m, og virð­ing fyr­ir að­ild Ís­lands að NATO og varn­ar­samn­ingn­um við Banda­rík­in.

Skatt­ar og toll­ar: Frí­versl­un­ar­samn­ing­um skipt út

EES-­­samn­ing­ur­inn tek­ur ekki til skatta­mála með bein­um hætti og ESB hef­ur ekki sam­eig­in­lega stefnu um skatta á borð við eigna­skatt eða tekju­skatt á ein­stak­linga og lög­að­ila. Af því leið­ir að Ís­land hefði for­ræði til að móta slíka skatt­lagn­ingu sjálft.

Ís­land þyrfti hins veg­ar að laga sig að til­skip­un ESB um virð­is­auka­skatt. Sam­kvæmt henni ber að­ild­ar­ríkj­um að inn­heimta al­menn­an virð­is­auka­skatt sem hvert að­ild­ar­ríki ákveð­ur sem hlut­fall af skatt­stofn­i. Það skal ekki vera lægra en 15% og vera eins fyr­ir sölu á vöru og þjón­ust­u. Að­ild­ar­rík­in hafi hins veg­ar ríkt svig­rúm til álagn­ing­ar lægri virð­is­auka­skatts á af­mark­að­ar vör­ur og þjón­ust­u.

Fram kem­ur í álit­inu að Ís­land gæti áfram ráð­ið fyr­ir­komu­lagi áfeng­is­sölu, þar með talið einka­sölu rík­is­ins, en regl­ur um vöru­gjöld á áfeng­i, tó­bak og aðr­ar nikótín­vör­ur tak­marki ekki með öllu svig­rúm ríkja að þessu leyt­i.

Stærsta breyt­ing­in í tolla­mál­um yrði að­ild að tolla­banda­lagi ESB. Með henni myndu toll­ar á við­skipti við að­ild­ar­ríki falla nið­ur og Ís­land tæki upp sam­eig­in­lega toll­skrá sam­bands­ins gagn­vart ríkj­um ut­an þess.

Ís­land myndi segja sig frá frí­versl­un­ar­samn­ing­um á grund­velli EFTA og tví­hliða samn­ing­um og taka í stað­inn upp frí­versl­un­ar­samn­inga ESB.

Samn­ings­mark­mið: Að mati meiri­hlut­ans þarf að tryggja að að­lög­un að skatta­regl­um og tolla­banda­lagi verði hag­kvæm og sam­rým­ist ís­lensk­um hags­mun­um. Bregð­ast þurfi við því að toll­vernd á land­bún­að­ar­vör­um frá ESB falli nið­ur með nægi­leg­um stuðn­ingi við land­bún­að.

Fjárframlög Íslands til ESB

Meg­in­tekju­stofn­ar ESB eru fram­lög að­ild­ar­ríkja sem byggja á hlut­falli af verg­um þjóð­ar­tekj­u­m, hlut­falli af stofni til VSK, hlut­falli af inn­heimt­um toll­um og fram­lög sem byggj­ast á álagn­ingu vegna óend­urunn­ins plast­um­búða­úr­gangs. Tekju­stofn­ar sam­bands­ins skipt­ast þannig:

  • Hlut­fall af verg­um þjóð­ar­tekj­u­m, 65% af tekj­um ESB.
  • Hlut­fall af stofni til virð­is­auka­skatts, 16% af tekj­um ESB.
  • Hlut­fall af inn­heimt­um toll­u­m, 14% af tekj­um ESB.
  • Fram­lög byggð á álagn­ingu vegna óend­urunn­ins plast­um­búða­úr­gangs, 4,8% af tekj­um ESB

Ekki er til ein­hlít að­ferð til að meta hve há ár­leg fjár­fram­lög Ís­lands til ESB yrðu við að­ild. Sam­kvæmt minn­is­blaði frá ut­an­rík­is­ráðu­neyti væri nær­tækt að miða við fram­lög Finn­lands en nettógreiðsl­ur þess til ESB nema um 0,2–0,3% af vergri lands­fram­leiðslu. Á síð­asta ári nam verg lands­fram­leiðsla Ís­lands um 5.000 millj­örð­um og mið­að við fram­an­greint gætu nettófram­lög Ís­lands numið um 10–15 millj­örð­um króna.

Hins veg­ar myndi ým­is kostn­að­ur vegna EES-­­samn­ings­ins falla nið­ur við að­ild að ESB, þar á með­al vegna rekstr­ar stofn­ana EFTA og þýð­inga­mið­stöðv­ar ut­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins. Áætl­að er að um 8 millj­arða króna sé að ræða. Með til­liti til þess megi ætla að aukn­ing út­gjalda við að­ild að ESB gæti orð­ið á bil­inu 2–7 millj­arð­ar kr. á ári. Þá kom einnig fram í minn­is­blaði ráðu­neyt­is­ins að hlut­fall tekna ESB af toll­tekj­um og hlut­deild í virð­is­auka­skatts­greiðsl­um væri óveru­legt á tekju­hlið að­ild­ar­ríkja sam­an­bor­ið við bein að­ild­ar­gjöld þeirra.

Meiri hlut­inn legg­ur áherslu á að komi til að­ild­ar taki fram­lög Ís­lands mið af stærð og sér­stöðu hag­kerf­is­ins.

Ís­land fengi fé til ný­sköp­un­ar og byggða­þró­un­ar

Raufarhöfn er ein þeim brotthættu byggðum sem gætu fengið stuðning úr sjóðum ESB. By Emstrur, CC BY-SA 4.0, https://en.wikipedia.org/w/index.php?curid=52355242

Sam­kvæmt nefnd­ar­á­lit­inu ættu samn­ings­mark­mið Ís­lands að bein­ast að því að tryggja að­ild á hag­kvæm­um for­send­um og há­marka þann ávinn­ing sem Ís­land get­ur haft af út­gjalda­hlið­um fjár­laga ESB, sér­stak­lega á svið­um sem tengj­ast byggða­þró­un, ný­sköp­un, innvið­u­m, lofts­lags­mál­u­m, land­bún­aði og sjáv­ar­út­veg­i.

Út­gjalda­lið­irn­ir hér að neð­an eru mið­að­ir við lang­tíma­fjár­hags­á­ætl­un ESB fyr­ir ár­in 2021–2027.

Innri mark­að­ur, ný­sköp­un og staf­ræn tækni 12,35%. Fé nýtt til að efla sam­keppn­i, styðja við lít­il og með­al­stór fyr­ir­tæki, hvetja til staf­rænna um­breyt­inga og fjár­magna rann­sókn­ir.

Sam­heldn­i, við­náms­þrótt­ur og gildi 35,24%. Fé er var­ið til að styrkja sam­heldni milli að­ild­ar­ríkja ESB. Þannig er dreg­ið úr misvægi milli land­svæða ESB, bæði inn­an ein­stakra ríkja og milli þeirra, ásamt því að stuðla að sjálf­bærri byggða­þró­un.

Nátt­úru­auð­lind­ir og um­hverf­is­mál 33,12%. Fjár­fest­ing­ar í sjálf­bær­um land­bún­aði og sjáv­ar­út­veg­i, lofts­lags­að­gerð­ir, nátt­úru­vernd, fæðu­ör­yggi og efl­ing dreif­býl­is.

Fólks­flutn­ing­ar og landamæra­stjórn­un 2,12%. Til að mæta áskor­un­um sem tengj­ast fólks­flutn­ing­um og stjórn­un landamæra.

Ör­ygg­is-­ og varn­ar­mál 1,23%. Til að styrkja ör­yggi evr­ópskra borg­ara, efla varn­ar­við­bún­að álf­unn­ar og við­brögð við hættu­á­stand­i.

Ná­granna­svæði og heim­ur­inn 9,13% Fjár­fest­ing­ar í ut­an­rík­is­starfi ESB gagn­vart ná­granna­ríkj­u­m, þró­un­ar­lönd­um og ann­ars stað­ar í heim­in­um. Und­ir þenn­an út­gjalda­flokk fell­ur einnig að­stoð við ríki sem und­ir­búa að­ild að ESB.

Stjórn­sýsla ESB 6,81%.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 10. júní, 2026, 16:04

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link