
Sagan af því hvernig dr. Carl Baudenbacher, ráðgjafi, fyrrverandi prófessor í Evrópurétti og dómari við EFTA-dómstólinn, varð að fréttaefni hér á landi vegna fyrirlestrar sem var færður úr einum sal í annan er með nokkrum ólíkindum, þótt forsvarsmenn fundarins hafi reynt að gera lítið úr málinu. Deildum innan Háskóla Íslands var blandað í fundinn þótt þær kæmu ekki að honum. Minna þekkt eru tengsl Áfram Ísland við tvö setur og eina miðstöð sem kenna sig við rannsóknir.

Sérstakar reglur gilda um útleigu á hátíðarsal Háskóla Íslands. Þar geta hagsmunasamtök, stjórnmálaflokkar og einkafyrirtæki ekki haldið sína viðburði, heldur er hann aðeins fyrir viðburði sem tengjast háskólanum og fræðastarfi. Þegar í ljós kom að fyrirlestur dr. Carl Baudenbachers, sem haldinn var 10. ágúst sl., var á vegum nei-hreyfingarinnar Áfram Ísland lá fyrir að hann uppfyllti ekki reglur um Hátíðarsalinn. Háskóli Íslands bauð því strax annan sal. Bókun Hátíðarsalarins hafði verið gerð í nafni Lagadeildar og Hagfræðideildar Háskóla Íslands og viðburður auglýstur með nafni Félagsvísindastofnunar HÍ. Engin þeirra tengdist þó fyrirlestrinum eða kom að skipulagningu hans.
Sagan af því hvernig dr. Carl Baudenbacher, ráðgjafi, fyrrverandi prófessor í Evrópurétti og dómari við EFTA-dómstólinn, varð að fréttaefni hér á landi vegna fyrirlestrar sem var færður úr einum sal í annan er með nokkrum ólíkindum, þótt forsvarsmenn fundarins hafi reynt að gera lítið úr málinu.
Þrátt fyrir að fyrirlesturinn tengist Háskóla Íslands ekki beint blandast þrjár stjórnsýslueiningar skólans inn í söguna, einnig óvirkt rannsóknarsetur sem hefur ekki haft starfsemi við skólann í minnst fjögur ár, einkarekin rannsóknarmiðstöð sem er undir stjórn þeirra sömu og leiða nei-hreyfinguna Áfram Ísland og þriðja stofnunin kennd við rannsóknir sem er skráð sem félagasamtök en tengist Almenna bókafélaginu.

Byrjum á sjálfum fundinum. Greint var frá því á vef lögmannsstofunnar Baudenbacher Law AG þann 24. júlí að Carl Baudenbacher, einn eigenda stofunnar (e. senior partner), hafi „þegið boð samtakanna Áfram Ísland um að halda opinberan fyrirlestur um þá spurningu hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, mun stýra umræðunum. Viðburðurinn fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands (University of Iceland’s ceremonial hall) klukkan 16:30 mánudaginn 10. ágúst 2026.“
Hlekkur með frétt lögmannsstofunnar, sem sérhæfir sig í Evrópurétti og alþjóðarétti, vísaði á frétt mbl.is frá 21. júlí um málið. Sú frétt var í raun samhljóða þeirri sem lögmannsstofan birti með þeirri undantekningu að ekki var getið um það á vefmiðlinum hver héldi fundinn.

Á vef Baudenbachers kemur skýrt fram að það er Áfram Ísland sem býður honum að koma til Íslands. Enginn annar aðstandandi fundarins er nefndur til sögunnar.
Dr. Carl Baudenbacher er svissneskur lögfræðingur sem sat sem dómari við EFTA-dómstólinn frá 1995 til 2018 og var forseti dómstólsins frá 2003 til 2017; hann var jafnframt prófessor við háskólann í St. Gallen og hefur síðar starfað sem ráðgjafi, höfundur og fyrirlesari, meðal annars um lagaleg álitaefni tengd Brexit. Hann hefur gefið út yfir 40 bækur og 280 fræðigreinar.
„Ágæti umsjónarmaður hátíðarsals
Ég ásamt samstarfsfólki í hagfræðideild og lagadeild hef hug á að fá hátíðarsal HÍ til leigu mánudaginn 10.08 nk. Kl. 16-18:00.
Tilefnið er að Carl Baudenbacher fyrrverandi forseti EFTA dómstólsins hefur fallist á að halda opinberan fyrirlestur hér á landi um málefni ESB.
Vafalaust er að þessi fyrirlestur hefur sterka skýrskotun [sic] til lögfræði, hagfræði og stjórnmálafræði.“
Svona voru upphafsorð bókunar Ragnars Árnasonar prófessors emeritus við HÍ þegar salurinn var bókaður. Ekkert getið um Áfram Ísland. Ragnar hefur sjálfur greint frá því að pósturinn hafi verið sendur 15. júlí, en eins og fram kemur á vef lögmannsstofu Baudenbachers var það Áfram Ísland sem bauð honum að halda fyrirlesturinn.

Þegar Ragnar fékk svör frá umsjónarmanni Hátíðarsalar þar sem óskað var eftir svokölluðu viðfangsnúmeri, sem er nauðsynlegt til að hægt sé að skrá salarleiguna á tiltekið verkefni, stofnun eða deild innan HÍ, gaf hann upp númer sem heyrir undir Hagfræðideild.
Nafn Birgis Þórs Runólfssonar dósents og deildarforseta Hagfræðideildar var þar með komið á bókunina. Tegund verkefnis var sagt „erlendur styrkur“ og viðburðurinn því skráður á Hagfræðideild, nánar tiltekið á sérstakt rannsóknarverkefni með styrk frá NOS-HS, norrænum styrktarsjóði í hug- og félagsvísindum.
Verkefnið, sem skráð var fyrir fundinum, var unnið undir forystu Ragnars Árnasonar og Birgis Þórs Runólfssonar á árunum 2020-2024. Markmið verkefnisins var að skoða kosti og galla ólíks fyrirkomulags í fiskveiðistjórnun.
Þegar viðburðurinn var svo auglýstur með heilsíðuumfjöllun í Morgunblaðinu 6. ágúst var hvorki getið um Hagfræðideild eða Lagadeild og heldur ekki minnst á að fundurinn væri hluti af norrænu rannsóknarverkefni. Hann var þó auglýstur undir merkjum Rannsóknaseturs í stjórnmálum og efnaghagsmálum „við Félagsvísindastofnun“.

Þar með var búið að blanda tveimur deildum og einni stofnun, alls þremur stjórnsýslueiningum innan Háskóla Íslands, inn í bókun og auglýsingu fundarins. Auk þess sem rannsóknarverkefni sem virðist ótengt fundinum var skráð fyrir sjálfri bókuninni í kerfi háskólans.
Lagadeild ekki með og Félagsvísindastofnun ekki heldur
Gímaldið sendi fyrirspurnir vegna málsins á Lagadeild og Hagfræðideild Háskóla Íslands og spurði um tengsl deildanna við fyrirlestur Baudenbacers.
„Áður en þessi bókun var gerð hafði Ragnar Árnason samband við mig til að kanna hvort Lagadeild hefði áhuga á að deildin ásamt Hagfræðideild stæði að viðburði með Carl Baudenbacher. Ekki var nefnt að aðrir myndu koma að viðburðinum. Ég var í sumarfríi og ekki reiðubúin til að svara á því stigi en sagðist myndi skoða þetta nánar síðar með mínu fólki. Lagadeild var ekki með í ráðum þegar bókunin var gerð. Stuttu síðar tilkynnti ég Ragnari að Lagadeild myndi ekki koma að þessum viðburði,“ segir Hrefna Friðriksdóttir prófessor og deildarforseti Lagadeildar í svari við fyrirspurn Gímaldsins.
Líkt og Gímaldið hefur þegar greint frá kom Félagsvísindastofnun heldur ekki að viðburðinum, þrátt fyrir að hennar sé getið í minnst tveimur heilsíðuauglýsingum í Morgunblaðinu. Þar er sagt að Rannsóknasetur í stjórnmálum og efnahagsmálum sé „við Félagsvísindastofnun“ en samkvæmt upplýsingum frá forstöðumanni er það rangt. Engin starfsemi hefur verið hjá setrinu frá árinu 2019, ef marka má Árbók Háskóla Íslands fyrir það ár og svokölluðu viðfangsnúmeri setursins hjá Félagsvísindastofnun hefur verið lokað.
„Hannes hafði samband og spurði hvort það væri í lagi að nota lógó Háskóla Íslands vegna viðburðar á vegum Rannsóknarseturs í stjórnmálum og efnahagsmálum. Ég svaraði honum að ég teldi að það ætti að vera í lagi, þar sem það væri nú þegar á heimasíðu setursins við HÍ. En ég upplýsti hann einnig um að viðfangsnúmeri setursins við Félagsvísindastofnun hefði verið lokað í ágúst 2022,“ segir Guðberg Konráð Jónsson, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands í samtali við Gímaldið.
„Félagsvísindastofnun kemur ekkert nálægt þessum viðburði og ekkert samstarf er um þessa ráðstefnu eða skipulagningu hennar. Við heyrðum bara af þessu þegar auglýsingin var birt í fjölmiðlum,“ segir Guðberg Konráð.
Hagfræðideild hefur ekki svarað fyrirspurn Gímaldsins um aðkomu deildarinnar að fundinum, þrátt fyrir ítrekun, en forseti deildarinnar er Birgir Þór Runólfsson dósent.
Til að draga þetta saman, áður en lengra er haldið. Áfram Ísland bauð dr. Carl Baudenbacher til Íslands, samkvæmt upplýsingum á vef lögmannsstofu hans. Bókun salar gerði Ragnar Árnason prófessor emritus, undir nafni Birgis Þórs Runólfssonar dósents, en í færslu á Facebook sagðist Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor emeritus hafa átt í samskiptum við dr. Baudenbacher og að rannsóknarsetur hans haldi fundinn. Áfram Ísland og Almenna bókafélagið styðji framtakið.

Þegar heilsíðuauglýsing birtist í Morgunblaðinu að morgni 6. ágúst með yfirbragði og í sama útliti og fyrri viðburðir Áfram Ísland var ljóst að fyrirlestur Baudenbachers í fundarstjórn Ólafs Ragnars Grímssonar var í raun viðburður á vegum nei-hreyfingarinnar, þrátt fyrir að hafa verið kynntur innan háskólans með skírskotun til stjórnmálafræði, hagfræði og lögfræði og tengdur við einingar innan skólans.
Neðst í auglýsingunni eru merki Áfram Ísland og Almenna bókafélagsins.
Þá stóð orðrétt:
Í samstarfi við Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun.
Þeim texta var breytt í annarri heilsíðuauglýsingu sem kom nokkrum dögum síðar og þá stóð:
Fundurinn er á vegum Rannsóknarseturs í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun.

Í samtali við RÚV, daginn eftir fyrri heilsíðuauglýsinguna, sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, stjórnarformaður Áfram Ísland, viðburðinn ekki á þeirra vegum heldur sé merki þeirra á auglýsingunni því samtökin séu að vekja athygli á ráðstefnunni. Þá sagðist hann vona að málið leysist farsællega „og við fáum hátíðarsalinn.“
„Hátíðasalur í Aðalbyggingu er aðeins leigður út fyrir viðburði sem eru á vegum Háskóla Íslands eða tengjast starfsemi hans beint. Háskóli Íslands hefur enga aðkomu að þeim viðburði sem hér um ræðir. Í umsókn um leigu á salnum fyrir viðburðinn kom ekki fram að hann væri á vegum hreyfingarinnar „Áfram Ísland“ og hefði slík umsókn ekki verið samþykkt á grundvelli þeirra almennu sjónarmiða sem um salarleiguna gilda. Unnið er að því að finna annan vettvang fyrir viðburðinn,“ sagði Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands í samtali við DV vegna málsins þann 6. ágúst.
Í umsókn um leigu á salnum fyrir viðburðinn kom ekki fram að hann væri á vegum hreyfingarinnar Áfram Ísland. Þegar starfsfólk varð þess áskynja að viðburðurinn væri í reynd á vegum Áfram Ísland en ekki akademískur fyrirlestur á vegum starfsfólk eða eininga innan Háskóla Íslands, var boðinn nýr salur undir fundinn í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Aðstandendum fundar var einnig gert ljóst að fleiri salir væru í boði en stungið var upp á þessum þar sem hann rúmar álíka marga og Hátíðarsalur, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu rektors.
Fundur með dr. Baudenbacher mátti því fara fram í Háskóla Íslands, honum var ekki úthýst, þvert á það sem forsvarsmenn fundarins hafa haldið fram í fjölmiðlum, en bara ekki í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Um hann gilda einfaldlega ákveðnar reglur og ljóst var að fyrirlesturinn uppfyllti ekki skilyrði þeirra reglna.
Það hafði ekkert með fyrirlesarann að gera eða fyrrverandi og núverandi starfsmenn skólans sem sóttu um salinn heldur sneri að aðkomu Áfram Ísland samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands.
Víkur þá sögunni að tveimur rannsóknasetrum og einni rannsóknamiðstöð.
Rannsóknasetur í stjórnmálum og efnahagsmálum er ekki eina rannsóknartengda stofnunin sem hefur tengsl við Áfram Ísland. Minnst tvær aðrar tengjast viðburðum og baráttu hreyfingarinnar sem vill að þjóðin segi nei.
Rannsóknasetur í stjórnmálum og efnahagsmálum var stofnað árið 2007 en hét áður Rannsóknasetur í skatta- og velferðarmálum. Setrið hefur frá upphafi verið undir stjórn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og hefur þann tilgang að stunda rannsóknir á sviði stjórnmála og efnahagsmála og miðla upplýsingum um þær.
Vefsíða setursins, rse.hi.is, er hýst á vef Háskóla Íslands, enda var starfsemi setursins innan skólans og innan Félagsvísindastofnunar á meðan það starfaði. Þar má finna rannsóknarskýrslu forstöðumanns fyrir árin 2008 til 2019 en ekkert hefur verið birt á vefnum frá árinu 2020. Setrið er því óvirkt en dúkkaði upp að nýju í tengslum við téðan fund Áfram Ísland þar sem viðburðurinn var ýmist sagður í samstarfi við eða á vegum setursins.

Þegar Áfram Ísland ýtti baráttu sinni fyrir nei-i í þjóðaratkvæðagreiðslu úr vör í byrjun júlí með fjölmennum fundi í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll, kom samhliða út greining undir heitinu Staðreyndir um ESB og Ísland. Skýrslan vakti töluverða athygli og margir hafa orðið til þess að gera athugasemdir við staðhæfingar í henni og frjálslega tölfræðitúlkun.
Í formála skýrslunnar stendur að hún sé unnin fyrir Áfram Ísland og Rannsóknarmiðstöð samfélags- og efnahagsmála, skammstafað RSE, sem er sama skammstöfun og setur Hannesar sem getið er um að ofan.
Rannsóknarstjóri RSE er Ragnar Árnason, sá sem pantaði hátíðarsal HÍ vegna fyrirlesturs dr. Baudenbacher, en hann og Birgir Þór Runólfsson eru meðal stofnenda RSE.
RSE er sjálfseignarstofnun sem hefur engin tengsl við HÍ eða aðra háskóla, heldur er hún hugveita stofnuð árið 2004 með það yfirlýsta markmið að efla skilning fólks á mikilvægi eignarréttar og frjálsra viðskipta fyrir lýðræðislegt samfélag. RSE var virk í útgáfu og viðburðahaldi á árunum 2004 til 2011 en lítil starfsemi var þar til hún var endurvakin árið 2022.

Í grein í Fréttablaðinu 25. september 2004 sagði Birgir Tjörvi Pétursson þáverandi framkvæmdastjóri RSE að fyrirmyndir væru sóttar til Hoover Institute í Bandaríkjunum, Fraser Institute í Kanada, Institute of Economic Affairs (IEA) í Bretlandi og Timbro í Svíþjóð. Allt eru þetta frjálshyggjuhugveitur eða rannsóknarstofnanir sem boða frjálsa markaði, einkaeignarrétt og takmörkuð ríkisafskipti.
Hann sagði að RSE tengdist engum stjórnmálaflokki og myndi ekki taka þátt í pólitík. „Það eina sem við munum gera er að leggja til og taka þátt í umræðu um þau mál sem eru efst á baugi, en nálgast þau á faglegum forsendum. Við ætlum að taka þátt í rökræðunni en ekki kappræðunni. Við viljum ekki festast í einhverjum flokkspólitískum skilgreiningum og ætlum ekki að nálgast hlutina út frá þeim.“ Þá hefur ávallt verið skýrt að RSE myndi ekki þiggja opinbert fé heldur yrði alfarið fjármagnað af einstaklingum og fyrirtækjum.
Þegar nýr framkvæmdastjóri tók við keflinu fyrir fjórum árum kom fram að tími væri kominn á að endurvekja miðstöðina því það vantaði róttækan málsvara einstaklingsfrelsis og viðskiptafrelsis.
Ólíkt rannsóknasetri Hannesar, þess sem getið er í heilsíðuauglýsingu vegna fundar Baudenbachers, er RSE með sérstaka stjórn, sem er nefnd fulltrúaráð, og rannsóknarráð. Birgir Þór Runólfsson og Ragnar Árnason fara fyrir rannsóknarráðinu.
Formaður fulltrúaráðs og þar með stjórnarformaður sjálfseignarstofnunarinnar er Halldór Benjamín Þorbergsson, sem einnig gegnir formennsku stjórnar Áfram Ísland. Önnur í stjórn eru Halla Sigrún Mathiesen, fyrrverandi formaður SUS og Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélagsins.
RSE hefur staðið fyrir útgáfu af ýmsu tagi, viðburðum og ráðstefnum auk þess að gefa út skýrslur og greinar. Meðal nýlegrar útgáfu er skýrsla sem ber heitið Utanríkisverslun Íslands: Raunveruleg mynd, sem kom út á dögunum. Undir skýrsluna skrifar formaður rannsóknarráðs RSE, Ragnar Árnason, en höfundar hennar eru Arnar Arinbjarnarson og Róbert Bragason hjá Samtökum skattgreiðenda.
Áður hefur verið nefnd skýrslan sem Konráð Guðjónsson vann fyrir RSE og Áfram Ísland. Þá hefur RSE stutt fjárhagslega við útgáfu skýrslna á vegum hóps sem kallast Samgöngur fyrir alla, skammstafað SFA. Skýrslur á vegum SFA með stuðningi RSE hafa meðal annars skoðað kostnað við Borgarlínu og kostnað við umferðartafir.
Er þá nefnd til sögunnar þriðja stofnunin kennd við rannsóknir: Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt.
Þeir fræðimenn sem hér hafa komið við sögu í báðum þeim rannsóknarstofnunum sem eru skammstafaðar RSE: Ragnar Árnason, Birgir Þór Runólfsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson, eru sameinaðir í þeirri þriðju sem hér verður vikið að, en hún heitir Rannsóknasetur um nýsköpun og hagvöxt, skammstafað RNH. Sú stofnun starfar ekki innan neins háskóla heldur er skráð sem félagasamtök.

Þessi þriðja rannsóknarstofnun tengist fundi Baudenbachers og baráttu Áfram Ísland hópsins í gegnum Almenna bókafélagið, en merki þess var á heilsíðuauglýsingu með fundi dr. Baudenbachers og gaf út bók hans. RNH hefur staðið fyrir heilmikilli útgáfu á undanförnum árum. Rannsóknarstjóri RNH er Hannes Hólmsteinn Gissurarson og auk hans eru Birgir Þór Runólfsson og Ragnar Árnason í rannsóknarráði.
Framkvæmdastjóri og stjórnarmaður bæði BF-útgáfu, sem Almenna bókafélagið er hluti af, og RNH, er Jónas Sigurgeirsson og stjórnarformaður RNH er Gísli Hauksson. Í þessari stjórn situr einnig Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélagsins. Hannes Hólmsteinn, rannsóknarstjóri RNH er bókmenntaráðunautur Almenna Bókafélagsins. Það voru aðstandendur RNH sem endurvöktu vörumerkið Almenna bókafélagið árið 2011 og hófu útgáfu undir merkjum þess.
Þá má geta þess að RNH, Almenna bókafélagið og Samtök skattgreiðenda, sem unnu skýrslu um utanríkismál fyrir RSE, eru öll skráð með heimilisfang á sama stað.
Stofnanirnar þrjár með forskeytið rannsóknar- tengjast þéttum böndum. Sömu tilkynningar og myndir eru birtar á miðlum þeirra allra og þau hafa skýra tengingu við Áfram Ísland og Almenna bókafélagið, sem sér um útgáfu á hugmyndafræðinni sem að baki liggur.
Undanfarið hafa komið út bækurnar Jáhætta Jáhætta, hættan og áhættan við aðild að ESB eftir Hjört J. Guðmundsson, Afsal eftir Ernu Bjarnadóttur hagfræðing, fyrrverandi þingkonu og stjórnarkonu í Heimssýn, sem fjallar um ESB og bókina Iceland Before The EU Referendum of August 29 2026 eftir Carl og Lauru Baudenbacher um ESB og þjóðaratkvæðagreiðslu, þar sem varað er við því að Ísland gangi inn í sambandið.
Rannsóknarsetur og rannsóknarmiðstöðvar eru starfræktar við alla háskóla og stundum eru þær sjálfstæðar. Það ljáir slíkum stofnunum lögmæti að vera kenndar og þar með tengdar við rannsóknir, slíkt ber yfirbragð fagmennsku og fræðilegheita. Þegar sótt var um að halda fund í Hátíðarsal Háskóla Íslands var það gert undir því yfirskini að um akademískar stofnanir væri að ræða. Bókunin var tengd við rannsóknarsetur, rannsóknarverkefni og deildir og stofnun innan skólans.
Þegar tenging kom fram við Áfram Ísland, félag sem hefur enga fræðimennsku að markmiði heldur er aðeins stofnað í kringum baráttu fyrir nei-i í þjóðaratkvæðagreiðslu, var ljóst að önnur sjónarmið réðu för. Skrifstofa rektors Háskóla Íslands gerði bæði fræðimanninum dr. Baudenbacher og aðstandendum fundarins grein fyrir því um leið og aðkoma Áfram Ísland var kunn að allir aðrir salir stæðu til boða, bara ekki Hátíðarsalur vegna sérstakra reglna sem um hann gilda. Dr. Baudenbacher væri velkominn en fundur undir þessum formerkjum gæti ekki farið fram í Hátíðarsalnum. Þrátt fyrir það hafa aðstandendur og fyrirlesarinn sjálfur stigið ítrekað fram og lýst því að fundinum hafi verið úthýst úr Háskóla Íslands.
Eftir að Íslandsför dr. Carls Baudenbacher lauk þakkaði hann gestgjöfum sínum fyrir sig með færslu á samfélagsmiðlinum Linkedin. Hannes Hólmsteinn Gissurarson birti skjáskot af Linkedin-færslu Baudenbachers við það tilefni og birti á sinni síðu á Facebook.
Í færslunni þakkar dr. Baudenbacher velgjörðafólki sínu, þeim Hannesi, Ragnari Árnasyni, Ernu Bjarnadóttur, Halldóri Benjamín Þorbergssyni og Ólafi Ragnari Grímssyni en sendir á Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytinu og RÚV tóninn í sömu færslu:

Á íslensku:
„En auðvitað voru líka beiskir tónar. Háskóli Íslands, þar sem ég var áður gestaprófessor, meinaði mér að tala innan veggja skólans. Það hryggir mig að hann hafi þar með skotið sig í fótinn. Ég var nokkuð hissa á því að Ríkisútvarpið skyldi aðeins segja lauslega frá fyrirlestri mínum. Áður fyrr voru þeir áfjáðir í að taka við mig viðtöl. Svo virðist sem maður veki aðeins athygli á meðan maður stendur með þeim valdamiklu. Utanríkisráðuneytið, þar sem ég var ráðgjafi eftir tíma minn sem forseti EFTA-dómstólsins, hunsaði mig algjörlega. Svo virðist sem jafnvel í þessu frjálslynda landi sé maður aðeins metinn að verðleikum á meðan maður fer eftir línunni,“ sagði í færslu dr. Baudenbachers á Linkedin.
Þegar Linkedin-síða dr. Baudenbachers er skoðuð nú má sjá að hann hefur tekið þennan hluta færslunnar út. Þakkir til velgjörðafólks hans og aðstandenda fundarins standa eftir ásamt kveðjum til Íslendinga. Pillurnar sem hann sendi í upphaflegri færslu til utanríkisráðuneytis, RÚV og Háskóla Íslands eru horfnar.

Þessi grein er opin en Gímaldið lifir á áskriftum og stuðningi almennings
Ef þú ert ekki áskrifandi nú þegar þá geturðu keypt áskrift eða lagt fram frjálst framlag og hjálpað okkur að lýsa upp samfélagið
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.