Hvað verður um blessuð börnin?

Lestími: 12 mínútur

Margir hafa áhyggjur af minnkandi frjósemi hér á landi og víða annars staðar, enda birtast reglulega fréttir um að of fá börn fæðist. Í fyrsta þætti Sirkabát ræddu þáttastjórnendur um hvernig hún er mæld og báru saman kosti og galla ólíkra mælikvarða notaðir eru til skilja fyrirbærið.

four children standing on dirt during daytime


Frjósemi hefur verið mikið til umræðu hér á landi undanfarið. Hagstofa Íslands tilkynnti í mars á þessu ári að frjósemi allra kvenna búsettra á Íslandi væri komin niður í 1,56. Hefur frjósemi ekki mælst lægri síðan mælingar hófust árið 1853.

Tilkynningin vakti mikla athygli enda er sú tala vel fyrir neðan það viðmið sem gjarnan er þurfi til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma, það er 2,1. Þar að auki virðist sem að frjósemi hefur verið að dragast hratt saman á síðastliðnum þremur árum samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Árið 2021 stóð frjósemi í 1,90.

Þykir mörgum samdrátturinn í frjósemi á Íslandi vera til marks um ískyggilega þróun sem virðist vera eiga sér stað víða um heim. Sérstaklega í ríkjum í Vestur Evrópu, Japan og Suður Kóreu svo eitthvað sé nefnt. Stjórnmálamenn, hér og víða annars staðar, hafa lýst áhyggjum af ýmsum alvarlegum samfélagslegum og efnahagslegum afleiðingum sem gætu raungerst í náinni framtíð haldi frjósemi áfram að dragast saman. Þá hafa mis róttækar hugmyndir einnig verið viðraðar í þessari umræðu til þess bregðast við minnkandi frjósemi eða jafnvel snúa þróuninni við.

En hvað þýða þessar tölur í raun og veru? Hversu mikið getum við ályktað út frá þessum mælikvarða á frjósemi? Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson settust niður og ræddu þessi mál í fyrsta þætti Sirkabát, en það er nýtt hlaðvarp þar sem ætlunin er að rýna í ýmiss konar tölfræði sem varpað er fram í fréttum og skoða hvað felst í þeim.

Fyrsta þáttinn má hlusta á með því að smella hér að neðan en hann er einnig aðgengilegur á helstu hlaðvarspveitum. Fyrir þau sem vilja rýna meira í tölurnar þá fer nánari skýring hér að neðan.

Hvað er árleg frjósemi?

Mælikvarðinn sem er oftast vísað í þegar rætt um frjósemi hér og erlendis telur fjölda fæðinga sem eiga sér stað á einu tilteknu ári. Á ensku nefnist mælikvarðinn Total Fertility Rate (TFR). Á vef Hagstofu Íslands er mælikvarðinn sagður mæla fjölda „lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu.“ Sú lýsing gerir mælikvarðanum þó ekki góð skil þar sem þessi tala byggir á fæðingartíðni mismunandi aldurshópa á einu tilteknu ári, ekki ólíkum árum á ævi kvenna.

Til að reikna frjósemi samkvæmt þessari skilgreiningu gerir Hagstofa íslands eftirfarandi:

  1. Gögnum er safnað fyrir eitt tiltekið ár, til dæmis 2024.
  2. Konum er skipt upp í aldurshópa, gjarnan fimm ára bilum milli hvers hóps. Þannig við höfum 15 til 19 ára hóp, 20 til 24 ára hóp, 25 til 29 ára hóp, og svo framvegis.
  3. Innan hvers aldurshóps er talinn fjöldi kvenna og fjöldi lifandi fæddra barna til þeirra.
  4. Árleg frjósemi er svo reiknuð sem vegið meðaltal frjósemis innan allra þessara aldurshópa.

Það er algengur misskilningur að líta á árlega frjósemi sem nákvæma spá um hversu mörg börn konur munu raunverulega eignast á lífsleiðinni, en sú túlkun stenst þó ekki skoðun. Það getur nefnilega gerst að árlega mæld frjósemi lækki milli tveggja tiltekinna ára þótt heildarfjöldi barna sem konur eignast á ævinni haldist stöðugur – eða jafnvel hækki.

Hvernig getur það verið?

Skýringin liggur í því hvernig mælikvarðinn er reiknaður. Árleg frjósemi byggir á þverskurðargögnum; hún er eins konar ljósmynd af einu ári sem fangar barneignir kvenna á mismunandi aldri á nákvæmlega sama tímapunkti. Hún segir því meira um tímabundið mynstur en um ævilanga frjósemi einstakra kynslóða.

Af hverju þarf 2,1 barn?

Sumir kynnu að velta fyrir sér hvers vegna Hagstofan og fleiri miða ávallt við að foreldrar þurfi eignast 2,1 börn til þess að viðhalda núverandi fólksfjölda, hvaðan kemur þessi tala og hvað þýðir hún?

Ef hver kona eignaðist nákvæmlega tvö börn, eitt í stað hvors foreldris, væri fólksfjöldinn stöðugur að því gefnu að allar konur lifðu út barneignaaldurinn (oft frá 15 ára til 49 ára aldurs). Svo er þó ekki. Lítið hlutfall einstaklinga deyr fyrir þann aldur, jafnvel í löndum með mjög lága dánartíðni.

Sögulega séð var staðan önnur. Fyrir um 100 árum, þegar dánartíðni var talsvert hærri -og þá sérstaklega meðal ungra barna-, þurfti frjósemi að vera talsvert hærri til að viðhalda mannfjöldanum, einfaldlega vegna þess að fleiri dóu ung en nú. Þetta gerir samanburð á frjósemistölum yfir langan tíma varhugaverðan.

Sveiflukenndur mælikvarði

Árleg frjósemi er nytsamlegur mælikvarði til að fylgjast með stöðu mála frá ári til árs, en hann hefur þann ókost að vera sveiflukenndur. Mælingin getur hækkað eða lækkað töluvert milli ára, jafnvel þótt undirliggjandi langtímahegðun – heildarfjöldi barna sem konur eignast yfir ævina – breytist lítið í raun.

Þessar sveiflur eru einfaldlega afleiðing þess hvernig mælikvarðinn er skilgreindur – sem ákveðið meðaltal frjósemis allra árganga á einu ári. Þegar fólk eignast börn fyrr eða seinna á ævinni en við væri búist getur talan hoppað til, jafnvel án breytinga á endanlegum fjölda barna sem kynslóð eignast.

Slíkar sveiflur eru dæmigerðar í kringum stóra samfélagsatburði. Í kórónuveirufaraldrinum jókst frjósemi íslenskra kvenna tímabundið — úr 1,94 bæði 2019 og 2020 í 2,08 árið 2021 — en féll skömmu síðar aftur niður í 1,85 árið 2022 og hefur verið 1,78 síðan þá. Þetta bendir til þess að undirliggjandi þróunin hafi lítið breyst þótt árleg frjósemi hafi hækkað þetta eina ár.

Árleg frjósemi er því gagnleg til greininga — hún gefur reglulegar og tímanlegar upplýsingar — en hún er jafnframt næm fyrir tímabundnum sveiflum og breyttri tímasetningu barneigna. Því er mikilvægt að túlka hana með varúð og horfa ekki strax á miklar sveiflur milli ára sem merki um raunverulega breytingu í frjósemi kvenna til lengri tíma.

Glöggir lesendur gætu hafa tekið eftir því að hér stendur að frjósemi íslenskra kvenna hafi verið 1,78 í fyrra, en í opinberri umræðu hefur nær alltaf verið talað um töluna 1,56. Getur verið að hvorug talan sé röng?

Talan 1,56 á við um allar konur búsettar á Íslandi, en 1,78 á við um íslenskar konur sérstaklega. Þegar samfélagslegar breytingar leiða til þess að þessir tveir hópar breytast með ólíkum hætti verður æ mikilvægara að spyrja „um hvaða konur er verið að tala?“

Innflytjendur og mælingar á frjósemi

Undanfarna tvo áratugi hefur innflytjendum fjölgað mikið á Íslandi. Árið 2000 voru innflytjendur 5,2 prósent af konum á aldrinum 15 – 49 ára. Í fyrra var hlutfallið orðið 26,7 prósent. Í fréttatilkynningu Hagstofu Íslands frá mars stendur að árið 2024 „var frjósemi kvenna búsettum á Íslandi 1,56“. Þegar hlutfall innflytjenda af konum á barneignaaldri hækkar svona hratt, hvaða áhrif hefur það á árlega frjósemi?

Við heyrðum í vinum okkar allra á Hagstofunni og spurðum hvort þau ættu gögn um frjósemi eftir bakgrunni móður. Í eftirfarandi greiningum eru íslenskar konur þær sem fæddust á íslandi, eiga foreldra sem fæddust á íslandi og afar og ömmur þeirra fæddust á Íslandi. Innflytjendur eru þær konur þar sem ekkert þessara á við.

Þegar litið er á frjósemi íslenskra kvenna og hún borin saman við frjósemi innflytjenda sést að nokkur munur er þar á. Frjósemi kvenna með erlendan bakgrunn er nokkuð lægri en frjósemi þeirra hafa fæðst hér á landi. Í fyrra fæddu íslenskar konur að jafnaði 1,78 börn hver, á meðan innflytjendur fæddu 1,12 börn. Á milli þeirra er svo talan sem á við um allar konur búsettar á Íslandi, 1,56 börn.

Þessi munur hefur þó ekki alltaf verið svona mikill. Árið 2011 var árleg frjósemi þessara hópa nánast jöfn, 2,11 meðal íslenskra kvenna en 2,02 meðal innflytjenda. Síðan þá hefur árleg frjósemi innflytjenda lækkað nokkuð stöðugt til ársins í ár.


Það er erfitt að segja hvers vegna við sjáum þennan mun og hvort hann komi til með að aukast eða minnka, en eitt er þó víst. Mælingar á árlegri frjósemi ber að túlka með varúð. Bæði vegna sveiflna og breyttri tímasetningu barneigna og vegna breyttrar samsetningar íbúa. Lukkulega er til annar algengur mælikvarði á frjósemi, sem hefur þó ekki fengið að njóta sín í opinberri umræðu hér á landi.

Frjósemi árganga

Í staðinn fyrir að taka sneiðmynd af samfélaginu á einu ári og reikna vegið meðaltal frjósemis allra aldurshópa á því ári, hvað ef við myndum einfaldlega velja árgang og skoða hvað konur í þeim árgangi eignuðust mörg börn í raun og veru?

Á ensku kallast þessi mælikvarði Cohort Fertility Rate (CFR), en hér munum við kalla hann árgangsfrjósemi. Kosturinn við árgangsfrjósemi er að við reiknum nákvæmlega það sem við viljum vita: Fjölda lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Sömuleiðis er árgangsfrjósemin ekki jafn berskjölduð fyrir tilfallandi skammtímaáföllum og sveiflum eða kerfisbundinni seinkun á barneignum. Gallinn er hins vegar sá að við þurfum að bíða eftir að árgangar ljúka við barnsburðarárin, gjarnan skilgreint við 49 ára aldur.

Gögn um árgangsfrjósemi á Íslandi má nálgast á vef Hagstofu Íslands undir nafninu „Frjósemi eftir fæðingarárgöngum mæðra 1834 – 1990“. Nú hugsarðu eflaust, kæri lesandi, að konur fæddar árið 1990 eru ekki orðnar 49 ára. Þær verða bara 35 ára í ár. Fyrir árganga sem hafa ekki náð tilskyldum aldri notast Hagstofan við frjósemi fyrri árganga til að spá fyrir um fjölda bara það sem eftir er af barnsburðarárum árganga.

Því fleiri ár sem þarf að fylla upp í, því erfiðara er að segja til um hvort spáin sé líkleg eða ekki. Hér ber að hafa í huga að þessu sé ekki endilega ætlað að túlkast sem spá eins og mannfjöldaspána, heldur sem einfalda og þæginlega útreikninga.

Á myndinni að neðan berum við saman árlega frjósemi og árgangsfrjósemi. Bláu línunni, sem táknar árgangsfrjósemi, hefur verið hliðrar 30 ár fram í tímann til að auðvelda samanburn, en 30 ára aldur er gróflega miðpunkturinn á barneignaaldrinum. Árlega frjósemin á myndinni er mælingin fyrir allar konur búsettar á Íslandi, ekki bara íslenskar konur.

Við sjáum strax að bláa lína árgangsfrjósemi er mun stöðugri og sveiflast síður en rauða lína árlegrar frjósemi. Sömuleiðis má sjá að árgangsfrjósemi hefur aldrei farið undir brotalínuna sem táknar viðmiðið um 2,1 barn á hverja konu.

Stóra frjósemisráðgátan

Hér nálgumst við stóra vandamálið sem blasir við tölfræðingum og öðrum sem vilja vita hvert frjósemin stefnir hér á landi og annars staðar. Eru konur raunverulega að eignast færri börn yfir ævina eða eru þær að eignast jafn mörg börn seinna á ævinni? Eða er þetta blanda beggja og að hvaða leyti?

Svörin við þessum spurningum eru ekki augljós og niðurstöðurnar eru ólíkar milli ríkja heims. Í Svíþjóð virðast konur vera að eignast um það bil jafn mörg börn og fyrri kynslóðir en þó seinna ævinni. Í Japan lítur út fyrir að konur eru að eignast færri börn og jafnframt fresta barneignunum lengra inn í ævina. Lesa má nánar um þessar vangaveltur í grein sem birtist fyrr á þessu ári á á vef Our World in Data. Hér á landi svipar þróunin meira til þeirra sem hefur átt sér stað í Svíþjóð þó með ýmsum fyrirvörum.

Það er mjög erfitt að spá og hvað þá um framtíðina eins og danski eðlisfræðingurinn Niels Bohr sagði. Því er ríkt tilefni til að staldra aftur við þetta viðfangsefni, kafa dýpra og jafnvel ræða það betur við fólkið sem glímir við þessar spurningar í fræðasamfélaginu.

Við viljum þakka starfsfólki Hagstofu Íslands fyrir aðstoð með gagnasöfnun og útskýringar á hugtökum.

Í Sirkabát verður leitast við að kafa dýptina og skoða betur tölurnar sem birtast í fyrirsögnunum og móta gjarnan umræður um ýmis mál. Við hvetjum hlustendur og lesendur til þess að senda okkur tölur sem þeir hafa rekist á í fréttum sem þeir eru forvitnir um að vita meira um. Tillögur að umfjöllunarefni skal senda á [email protected]

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 13. nóvember, 2025, 15:37

Georg Gylfason

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link