
Átakalínurnar eru víða í Framsókn í við upphaf flokksþings. Sigurður Ingi styður einn frambjóðanda en Willum Þór styður aðra. Önnur er að norðan en hin úr Reykjavík. Málefnin eru hins vegar það sem sameinar þær Lilju og Ingibjörgu eins og heyra má í þessum viðtölum við þær við upphaf kosningabaráttu þeirra.

Ingibjörg Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir komu báðar til viðtals við Gímaldið eftir að þær tilkynntu framboð sín til formennsku í Framsóknarflokknum. Nú er komið að úrslitastundu. Þær hafa daginn í dag til að berjast fyrir embættinu á sjálfu flokksþinginu sem hefst í dag og lýkur á morgun. 860 eru á kjörskrá en 350 atkvæði gætu dugað til sigurs, allt eftir því hversu vel fulltrúar mæta til þingsins.
Viðtölin eru í spilurunum hér að ofan og á helstu hlaðvarpsveitum.
Formannskjörið um helgina er ekki bara barátta milli landsbyggðar og suðvesturhornsins. Líkt og oft áður berjast tvær fylkingar nú um forystu Framsóknarflokksins. Þær Ingibjörg Isaksen og Lilja Alfreðsdóttir lýstu svipaðri Framtíðarsýn fyrir Framsóknarflokkinn. Hann eigi að vera flokkur venjulegra Íslendinga, sem þurfi húsnæði, lífsviðurværi, atvinnu og öryggi. Þær eru því á svipuðum slóðum í efnahagsmálum, velferðarmálum og utanríkismálum.
Það eru aðrir hlutir sem greina þær tvær að. Lilja Alfreðsdóttir hefur óneitanlega sterkari ferilskrá. Hún er með hagfræðipróf frá Columbia Háskóla í Bandaríkjunum, starfaði um tíma hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og síðar í Seðlabanka Íslands. Hún hefur verið varaformaður flokksins í áratug og hefur verið ráðherra í þremur ráðuneytum, utanríkisráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og menningar- og ferðamálaráðherra.
Ingibjörg Isaksen er íþróttakennari að mennt og hefur starfað sem grunnskólakennari, forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar og framkvæmdastjóri Læknastofa Akureyrar. Hún hefur verið í sveitarstjórn í Eyjafjarðarsveit og í bæjarstjórn Akureyrar. Hún settist á þing árið 2021 og hefur gegnt starfi þingflokksformanns þau ár sem hún hefur setið á þingi. Hún hefur ekki gegnt ráðherraembætti.
Þótt Lilja hafi vissulega meiri reynslu, gæti það unnið gegn henni að hafa verið lengi í framvarðarsveit Framsóknarflokksins og átt sæti ríkisstjórnum sem voru óvinsælar undir það síðasta.
Lilja var oddviti í Reykjavík suður fyrir síðustu kosningar en hlaut ekki kosningu og datt út af þingi. Í þeirri kosningu hlaut Framsóknarflokkurinn verstu kosningu í sögu sinni. Niðurstaðan varð 7,8 prósent og fimm þingmenn.
Sjálfir vísa Framsóknarmenn til Framsóknarþreytu hjá landsmönnum, til að skýra ósigurinn. Fólk hafi verið orðið þreytt á flokknum og forystufólki hans og viljað breytingar. Þessi krafa er erfið fyrir Lilju. Við það bætist að verði hún kjörin formaður mun hún gegna því embætti utan þings til næstu kosninga, en tæp þrjú ár eru eftir af kjörtímabilinu.
Stuðningsmenn Lilju halda því hins vegar fram að ákall um breytingar lúti fyrst og fremst að formanni flokksins og að Ingibjörg sé frambjóðandi sitjandi formanns. Sigurður Ingi Jóhannsson styðji Ingibjörgu og stuðningi hans fylgi mörg atkvæði úr Suðurkjördæmi. Þá hefur Lilja bent á að Ingibjörg sé einn helsti talsmaður flokksins á þingi í dag og á yfirstandandi kjörtímabili hafi fylgið ekkert braggast.
Lilja Alfreðsdóttir er ekki allra og Sigurður Ingi, fráfarandi formaður, er talinn í hópi þeirra Framsóknarmanna sem myndi styðja flesta frambjóðendur sem færu gegn Lilju. Þannig hefði Sigurður Ingi án efa stutt Willum Þór, hefði hann farið fram. Í hugum sumra snýst baráttan þannig ekki síst um að Lilja fái ekki að verða formaður Framsóknarflokksins.
Hvað það er í fari Lilju sem þessum hópi Framsóknarmanna líkar ekki við í, hefur ekki farið hátt. Framsóknarmenn gagnrýna yfirleitt ekki leiðtoga sína eða framvarðarsveit opinberlega. Lilja er talin fylgin sér í pólitík og fór oft ekki í felur með skoðanir sínar þegar hún var ósammála ráðherrum í ríkisstjórnum sem hún sjálf átti sæti í. Hún hefur einfaldlega karaktereinkenni til þess að vera umdeild. Þá kann að vera að það hræði einhverja hve náið samband var milli Lilju og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar en hún var efnahagsráðgjafi hans þegar hann var forsætisráðherra.
Önnur nokkuð skýr átakalína í formannskjörinu er milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. Ingibjörg Isaksen er að norðan en Lilja úr höfuðborginni. Lilja nýtur mikils stuðnings á öllu höfuðborgarsvæðinu en Ingibjörg er sterk á landsbyggðinni, sérstaklega í sínu kjördæmi fyrir norðan og í kjördæmi sitjandi formanns, á Suðurlandi.
Kosningabarátta Lilju og Ingibjargar er hins vegar fæstum mjög sýnileg nema þeim sem gætu átt þátttökurétt á flokksþinginu um helgina. Formaður Framsóknarflokksins er ekki kosinn af öllum framsóknarmönnum á landinu, heldur aðeins af þeim sem mæta á flokksþing. Um 860 fulltrúar eiga þátttökurétt. Annars vegar eru hátt á þriðja hundrað í miðstjórn flokksins með þátttökurétt og svo fá 600 manns kjörbréf gegnum aðildarfélög víða um land. Um þessa fulltrúa hafa Lilja og Ingibjörg barist um.
Þær Ingibjörg og Lilja hafa hins vegar ekki aðeins notað sannfæringarkraftinn til að afla sér atkvæða meðal þeirra sem mæta á flokksþingið, heldur hefur baráttan einnig snúist um að koma réttu fólki á kjörskrá með því að tryggja þeim kjörbréf sem í boði eru hjá aðildarfélögum landsins. Vegna þess hve lokað formannskjörið er geta frambjóðendur, með því manna kjörbréfin, ekki aðeins tryggt sér fleiri atkvæði, heldur komið í veg fyrir að stuðningsmenn andstæðingsins hafi atkvæðisrétt. Í frétt RÚV segir að Lilja hafi gengið hart fram í að tryggja sínum stuðningsmönnum kjörbréf, þó ekki nema til annars en að koma í veg fyrir að stuðningsmenn Ingibjargar komist á þingið. Dæmi séu um að rótgrónir Framsóknarmenn sem alla jafna eigi rétt til að sækja þingið, hafi misst kjörbréf sitt til fólks með lítil sem engin tengsl við flokkinn.
Flokksþingið hefst í dag en formannskjör hefst klukkan eitt á morgun. Búist er við niðurstöðu síðdegis á morgun eða annað kvöld.
Þótt Lilja sé talin sigurstranglegri hefur Ingibjörg verið að sækja í sig veðrið og ef það er meiri vindur í hennar seglum nú þegar kjörið er að bresta á er aldrei að vita hvað getur gerst.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.