|
|
|
|
Gímaldið heilsar 24. ágúst 2026
|
|
|
|
|
Við sendum nú að nýju út fréttabréf Gímaldsins, bæði með því nýjasta frá okkur, bæði af vef og í hlaðvarpi, en einnig nokkrum völdum molum af innlendum og erlendum vettvangi.
|
Valdið og miðin: Nýr þáttur um álitsgerðina um stóru málin Hver eru þjóðarauðkenni Íslands og íslensku þjóðarinnar? Þetta gæti verið gott að vita hefji Ísland í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hugtakið kemur fyrir í nýrri álitsgerð þriggja prófessora í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Í henni er fjallað um valdheimildir Evrópusambandsins, orkustefnuna, sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna, aðildarsamninga og aðildarviðræður. Svo eru rakin dæmi um undanþágur og sérlausnir sem ríki hafa samið um við ESB. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir rýna í álitsgerðina í hlaðvarpi Gímaldsins. Efni álitsgerðarinnar hefur fallið i skugga uppsláttar um hana á forsíðu Morgunblaðsins um helgina en höfundarnir sendu frá sér yfirlýsingu þar sem frétt Morgunblaðsins er sögð ósönn og ekki í samræmi við álitsgerðina. Í þættinum er fjallað um álitsgerðina í heild þar sem eru meðal annars talin upp dæmi um undanþágur í aðildarsamningum.
|
Elsta planta landsins er 700 ára Náttúrufræðistofnun Íslands leitar uppruna elsta þekkta lifandi einis landsins, um 700 ára gamallar plöntu sem er rúmlega sjö metrar á breidd. Einir er eina innlenda barrtré Íslands og á hraunsvæði norðan Mývatns vex óvenju þéttur hópur gamalla einirunna. Rannsókn á þeim hefur það markmið að varpa ljósi á uppruna íslensks einis, kanna hvernig einisstofnar á mismunandi landsvæðum tengjast og hvort hinn forni stofn við Mývatn hafi sérstaka erfðafræðilega eiginleika. Nákvæmri staðsetningu hinnar aldurhnignu plöntu er haldið leyndri til að vernda hana.
|
Superman sló met Usain Bolt: Heimlsleikar manngerðra vélmenna fara nú fram í Kína þar sem vélmenni keppa í hinum ýmsu greinum. Kínverskt vélmenni að nafni Superman hljóp hraðar en Usain Bolt í vikunni, hljóp 100 metrana á 9,39 sekúndum en heimsmet Bolts er 9,58 sekúndur. Eftir að hafa slegið metið hljóp Superman á vegg. Kínversk fyrirtæki vonast til að geta selt 50 þúsund mannvélmenni á þessu ári, þrefallt fleiri en í fyrra. (BBC)
|
Nauðgunarmál tekið fyrir í Strassborg: Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) mun taka til efnislegrar meðferðar mál tveggja íslenskra manna sem Hæstiréttur dæmdi í fyrra fyrir hópnauðgun. Tilkynning um þetta birtist í málakerfi fyrr í mánuðinum. Kæruefni mannanna til MDE varðar skýrslu sem brotaþoli málsins gaf með fjarfundabúnaði við aðalmeðferð málsins í Landsrétti. Mennirnir telja að ófullnægjandi rök hafi legið að baki þeirri ákvörðun og að ekki hafi verið tryggt að hún væri óháð utanaðkomandi áhrifum meðan á skýrslutöku stóð, sem brjóti gegn rétti þeirra til réttlátrar málsmeðferðar samkvæmt 6. gr. mannréttindasáttmálans. Að því er fram kemur í dómi Hæstaréttar á málið rætur að rekja til samkvæmis á heimili annars mannanna árið 2020, þegar þeir voru 27 og 28 ára gamlir, þar sem þeir eru sagðir hafa í sameiningu brotið kynferðislega gegn 18 ára stúlku. Héraðsdómur sýknaði þá upphaflega en Landsréttur sneri þeim dómi við í desember 2024, sakfelldi báða fyrir nauðgun og dæmdi þá í þriggja ára fangelsi. Hæstiréttur staðfesti dóm Landsréttar í nóvember 2025 og hafnaði málsástæðum mannanna um fjarfundabúnaðinn.
|
Slava Ukraini: Fulltrúar Bandalags hinna viljugu ríkja koma saman í Kiev í dag til að ítreka stuðning sinn við Úkraínu á þjóðhátíðardegi landsins. Í ár eru liðin 35 ár frá því landið lýsti yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum árið 1991. Fundi leiðtoganna stýra Emmanuel Macron Frakklandsforseti, Friedrich Merz Þýskalandskanslari og Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands. Meðal gesta verða António Costa, forseti leiðtogaráðs ESB, auk leiðtoga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Úkraínumenn hafa kallað eftir auknum stuðningi í ljósi þungra árása Rússlandshers sem dynja á landinu nánast á hverri nóttu og Zelensky forseti hvetur leiðtogana til að auka þrýsting á Rússa. Kaja Kallas, utanríkismálastjóri ESB, undirbýr nú tillögur um hörðustu þvingunaraðgerðir gegn Rússum til þessa.
|
Niðurgreiddur matur borgarfulltrúa: Í síðustu viku var fjallað um það að Reykjavíkurborg hyggst hækka verð á máltíðum fyrir eldri borgara um allt að 73% en hækka eigin verð eigin máltíða um 95%. Eftir hækkun verður matur borgarfulltrúa og eldri borgara á sama verði, máltíðin mun kosta 1.900 krónur. Talnaglöggir sjá að hækkun borgarfulltrúanna er meiri, sem auðvitað skýrist af því að hádegisverðurinn þeirra var ódýrari fyrir, kostaði aðeins á 974 krónur á móti 1.100 krónum fyrir eldri borgara. Borgarfulltrúar eru með vel á aðra milljón króna í laun frá borginni, þar á meðal sérstaka greiðslu til að mæta starfskostnaði. Eftir að málið komst í fréttir stendur eftir spurningin: Af hverju var matur borgarfulltrúanna svona ódýr? Ekki einu sinni Alþingismenn greiða svona lítið fyrir hádegisverðinn, í þinginu kostar þúsundkall að næra sig í hádeginu.
|
Gímaldið sendir þér stutt fréttayfirlit alla virka morgna.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Margrét Kjartansdóttir átti sér þann draum að eignast börn og verða heimavinnandi húsmóðir en líf hennar tók aðra stefnu; hún varð innkaupastjóri í stórverslun, kokkur á sjó, rak veitingahús í Kaupmannahöfn, stofnaði fyrirtæki, ferðaðist víða og dvaldi langdvölum erlendis. Líf Margrétar hefur þó ekki verið dans á rósum. Hún glímdi við lesblindu, ófrjósemi og áfengisvanda, missti aleiguna og afplánaði fangelsisdóm. Í Flórída var hún svikin grimmilega af vinkonum en á Indlandi fann hún innri ró.
|
Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir og rithöfundur, skráir einstaka sögu Margrétar og birtir samtöl þar sem þær velta fyrir sér viðbrögðum hennar við erfiðleikum og áföllum. Þar nýtir Sæunn sér áratugareynslu úr starfi sínu til að varpa ljósi á lífshlaup margbrotnu systur sinnar. Sæunn er rithöfundur og sjálfstætt starfandi sálgreinir með mikla reynslu af einstaklingsmeðferð og handleiðslu fagfólks í heilbrigðisþjónustu. Hún er ein af stofnendum Miðstöðvar foreldra og barna. Bækur Sæunnar hafa vakið mikla athygli og reynst mörgum ómetanlegur leiðarvísir á mikilvægum stundum.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Sigur demókrata í bandarísku þingkosningunum var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Í hlaðvarpi Gímaldsins ræðir Karen Kjartansdóttir við Eyrúnu Magnúsdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Aðalheiður Ámundadóttir fer yfir hvað demókratar geta gert með nýfenginn meirihluta á meðan repúblikani situr í Hvíta húsinu.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Móðurást: Lausnargjaldið er fjórða bókin í verðlaunaritröð Kristínar Ómarsdóttur um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri nítjándu öld. Þessi nýstárlega og djúphugula frásögn hefur heillað lesendur og gagnrýnendur til jafns. Fyrsta bókin, Móðurást: Oddný, fékk Fjöruverðlaunin og sú næsta, Móðurást: Draumþing, hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin.
|
Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Alþekkt er í sveitinni hvað ábúendur eru skrítnir, þá sérstaklega stúlkur um fermingaraldur. En næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Karl Wernersson bauð vinum, vandamönnum og fjölmiðlum í bíósal til að segja sögu sína af sautján ára málaferlum. Á tjaldinu birtust dómsniðurstöður, fjölskyldumyndir og vondi karlinn úr Austin Powers. Í lokin myndaðist röð fólks sem vildi faðma hann.
|
|
|
|
|
|
|
Frá námsárum til forsetakjörs fór höfundur víða og vann með áhrifamönnum í ýmsum álfum. Hér segir af ungum manni sem heldur út í heim, berst á öldufaldi breytinga og myndar bandalög við leiðtoga þar sem barist er fyrir afvopnun, friði og farsæld fátækra ríkja. Samfelldur þráður liggur frá námsárum í Bretlandi til baráttunnar um Bessastaði.
|
Vegferð um veröldina segir frá starfi innan alþjóðlegu þingmannasamtakanna Parliamentarians for World Order, sem síðar nefndust Parliamentarians for Global Actions. Samtökin voru skipuð þingmönnum frá ýmsum löndum sem innblásnir af friðarhreyfingum tímans freistuðu þess að að virkja þjóðarleiðtoga til að rjúfa vítahring sívaxandi vígbúnaðar.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Fjöldi skrautlegra frambjóðenda og rísandi stjarna takast á um völdin á Bandaríkjaþingi í komandi kosningum. Mest spenna ríkir um hvort óvinsældir forsetans muni kosta Repúblikana meirihlutann í báðum deildum. Farið yfir allt það helsta í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Veisla þrjú er óður til lífsins, funandi ástarsaga um rómantískt æði og hamslausan fögnuð konu sem tókst ekki að deyja, frásögnin barmafull af húmor og visku.
|
Fyrir gráglettni örlaganna bjargast LínLín úr bráðum háska og er þar með komin á nýjan byrjunarreit. Hefur hún eitthvað að lifa fyrir þegar næstum allt sem hún hefur elskað um dagana er gengið henni úr greipum? Vini á hún þó enn sem styðja hana og styrkja, og sjálfri sér til furðu finnur hún ofsafengnar tilfinningar ólga innra með sér: lífsþorsta, tilhlökkun og ásthrifningu á ókunnugri manneskju sem hún kallar Veislu þrjú.
|
Steinunn Sigurðardóttir hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2023 fyrir skáldsöguna Ból sem er dimmtóna og dramatísk – en aðalpersónan LínLín stígur hér fram á ný bæði breytt og söm, tilbúin í næsta dans.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Talið er víst að demókratar í Bandaríkjunum vinni fulltrúadeildina í þingkosningum á þriðjudag, en til að vinna öldungadeildina líka þarf flokkurinn að leggja allt sitt traust á nokkra frambjóðendur í fylkjum djúpt inn í MAGA landi.
|
|
|
|
|
Vertu með!
Þú þarft ekki að skrolla daglega, við sendum efnið beint í pósthólfið þitt.
|
Vertu með! Ef þú ert ekki enn með áskrift þá bendum við á að þa er einfalt að gerast áskrifandi.
|
|
Þinn stuðningur gerir okkur kleift að verja tíma í vandaða og sjálfstæða umfjöllun.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|