
Ítarleg álitsgerð um yfirráð yfir náttúruauðlindum í ljósi reglna Evrópuréttar var birt í vikunni. Í henni er snert á heitustu umræðuefnum sumarsins; valdheimildum Evrópusambandsins og yfirráðum yfir auðlindunum og fjallað um orkuna, fiskinn og möguleika á undanþágum í aðildarsamningi.

Í nýjasta hlaðvarpsþætti Gímaldsins rýna Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir í nýútkomna álitsgerð þriggja prófessora í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Gunnar Þór Pétursson, Hafsteinn Dan Kristjánsson og Margrét Einarsdóttir unnu álitsgerðina að beiðni forsætisráðuneytisins. Álitsgerðin fjallar um nokkur af þeim stóru málum sem mest hefur verið deilt um í sumar. Hægt er að hlusta á hann í spilaranum hér að neðan og rás Gímaldsins á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Forsætisráðuneytið óskaði eftir því að þrír sérfræðingar við Háskólann í Reykjavík ynnu álitsgerð „þar sem gerð verði grein fyrir ákvæðum sáttmála Evrópusambandsins um náttúruauðlindir og áhrifum á forræði aðildarríkja á náttúruauðlindum. Í því samhengi verði einnig gerð grein fyrir því svigrúmi sem er fyrir hendi samkvæmt gildandi ESB-rétti til að taka tillit til mikilvægra
þjóðarhagsmuna, sérkenna og sérstöðu aðildarríkja. Jafnframt verði umfjöllun um undanþágur sem aðildarríki hafa samið um í aðildarsamningum, eftir því sem við á,“ segir í inngangi.
Álitsgerðin er í þremur hlutum og fjallar um valdsvið Evrópusambandsins, forræði yfir náttúruauðlindum, orkumál, sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna og undanþágur sem bæði aðildarríki og umsóknarríki hafa fengið í samningum við Evrópusambandið.

Álitsgerðin er dagsett 10. ágúst síðastliðinn en var birt á vef forsætisráðuneytisins þann 19. ágúst.
Höfundarnir sendu frá sér yfirlýsingu á laugardag eftir að Morgunblaðið birti frétt um álitsgerðina og setti í undirfyrirsögn á forsíðu eftirfarandi fullyrðingu: Þrír lagaprófessorar telja engar undanþágur í boði við aðild.
Yfirlýsingin er stutt og kjarnyrt en í henni segir meðal annars: „Þessi frétt er ósönn og ekki í samræmi við álitsgerð okkar.“
Eftir að yfirlýsingin var send út birti Morgunblaðið þá skýringu að um væri að ræða álit Heiðrúnar Lindar Marteinsdóttur framkvæmdastjóra SFS á skýrslunni, það hefði verið dregið fram með þessum hætti á forsíðu blaðsins.
Ekki er getið um það á forsíðunni að um sé að ræða tilvitnun í orð hennar heldur mátti skilja á orðalagi í fréttinni að verið sé að fullyrða að höfundar haldi þessu fram í álitsgerðinni.
Þá er heldur ekki að sjá að setningin á forsíðu sé fengin frá Heiðrúnu enda segir hún í viðtali inni í blaðinu að álitshöfundar telji ekki raunhæft að fá undanþágur. Hvorugt er í rauninni rétt; hvorki fullyrðing Morgunblaðsins um að fyrirsögn á forsíðu sé úr viðtalinu við Heiðrúnu né umrædd fullyrðing Heiðrúnar því hvergi í álitsgerðinni er því haldið fram að ekki sé raunhæft að fá undanþágur, heldur þvert á móti.
„Á forsíðunni segir að við teljum að engar undanþágur séu í boði við aðild. Þetta er ekki í samræmi við það sem kemur fram í álitsgerðinni og hérna er að okkar mati um að ræða óvandaða og ósanna framsetningu á henni og bara til þess fallið að afvegaleiða umræðuna, því miður,“ segir Gunnar Þór Pétursson, einn höfunda, í samtali við RÚV vegna málsins. Hann segir þvert á móti bent á fjölmörg dæmi um varanlegar undanþágur í álitsgerðinni.
Í þættinum, sem hlusta má á í spilara að ofan og á hlaðvarpsveitum, er farið yfir hvern hinna þriggja hluta álitsgerðarinnar fyrir sig.
Í fyrsta hlutanum er fjallað um valdheimildir og þær skýrðar út. Þar er hnykkt á því að Evrópusambandið hafi aðeins þær valdheimildir sem aðildarríkin hafa veitt því. Það geti ekki sjálft búið til valdheimildir fyrir sjálft sig. Stofnanir ESB mega ekki taka sér vald sem þeim hefur ekki verið veitt.
Ítarlega er rætt um eignarréttindi og fjallað um það að eignarhald á auðlindum eða öðrum eignum færist hvorki til ESB né breytist á annan hátt við inngöngu ríkja í sambandið.
Reglur innanlandsréttar halda áfram að kveða á um eignarhald, þótt lúta þurfi reglum Evrópuréttar, til dæmis um bann við mismunun á grundvelli ríkisfangs, fjórfrelsisreglnanna og samkeppnisreglna, þar á meðal um ríkisaðstoð.
Minnst er á skyldu ESB til að virða þjóðarauðkenni aðildarríkja sem vísar til stjórnskipulegs og stjórnmálalegs grunnskipulags þeirra. Samkvæmt álitsgerðinni verður „ekki ráðið af dómaframkvæmd hingað til að ráðstafanir varðandi náttúruauðlindir falli undir þjóðarauðkenni“ en hins vegar segir að „mögulega væri unnt að gera ákveðin atriði að slíku auðkenni með því að stjórnarskrárbinda þau.“
Tekið er fram að ákvæðið sé enn í mótun en þó sé ljóst að það rúmi alls ekki allt sem tekið er fram í stjórnarskrám aðildarríkjanna.
Í öðrum hluta er fjallað um efnisreglur ESB í ljósi annars vegar orkumála og hins vegar sjávarútvegsmála. Þótt orkumálin séu stór málaflokkur eru álitamálin fleiri í sjávarútvegi. Stærsti hluti sameiginlegrar orkustefnu ESB er að mestu þegar orðinn hluti af EES-samningnum eða í innleiðingarferli.
Ísland hefur líka undanþágur frá hluta hennar og byggja þær á sérstöðu landsins. Enginn markaður er fyrir jarðgas á Íslandi og ekkert land innan ESB er með hærra hlutfall heimila sem hituð eru með endurnýjanlegri orku.
Áréttað er sérstaklega í álitsgerðinni að ESB hafi ekki vald til að þvinga fram lagningu sæstrengs frá einu landi til annars án vilja og samþykkis þeirra ríkja sem í hlut eiga.
Í álitsgerðinni er fjallað um veiðiheimildir í staðbundnum stofnum og deilistofnum. Vísað er til meginreglu um hlutfallslegan stöðugleika sem felur í sér að byggt er á veiðireynslu fyrri ára. Þar sem ekkert annað aðildarríki hefur veiðireynslu í staðbundnum íslenskum stofnum má, samkvæmt álitsgerðinni, ætla að ekkert annað ríki fengi úthlutað veiðiheimildum í þeim.
Öðru máli gegnir um deilistofna á borð við makríl, norsk-íslenska síld og kolmunna, sem flakka milli hafsvæða. Um þá fer ESB með valdheimild til að semja við þriðju ríki. Ísland hefur gert tvíhliða samninga um veiði á makríl við Noreg, Breta og Færeyinga. Ef farið verður í aðildarviðræður þyrfti að huga að þessum samningum sérstaklega því þeir falla niður gangi Ísland í Evrópusambandið.
Þriðji hluti álitsins fjallar um aðildarsamninga og undanþágur. Þar er áréttað að aðildarsamningar séu hluti af frumrétti ESB, jafnréttháir stofnsáttmálunum. Þeim verður ekki breytt nema með einróma samþykki allra aðildarríkja og dómstóll sambandsins hefur ekki heimild til að ógilda ákvæði þeirra.
Bent er á í álitsgerðinni að ekki er fjallað sérstaklega um undanþágur í reglum ESB. Fjallað er um aðild nýrra ríkja og aðildarsamninga í einu ákvæði stofnsáttmálans og þar er ekkert minnst á undanþágur, hvorki tímabundnar né ótímabundnar.
Við mat á því hvort og hversu raunhæft er að fá undanþágur frá regluverki ESB í aðildarviðræðum er bent á að ekki liggi alltaf fyrir hvort og hversu oft sé óskað eftir undanþágum. Fáar undanþágur geti því alveg eins bent til fárra beiðna frá umsóknarríkjum um sérstakar undanþágur.
Í lokin eru svo reifuð nokkur dæmi um undanþágur. Tekið er fram að tímabundnar undanþágur séu algengar í aðildarsamningum. Þótt þær séu oft mjög mikilvægar verði ekki lögð áhersla á þær í álitinu heldur hinar sem taldar eru ótímabundnar.
Nokkrum sinnum hafa verið gerðar umfangsmiklar breytingar á stofnsáttmálum ESB. Slíkar breytingar þurfa öll ríkin að samþykkja einróma. Ef allt fer í hnút hefur verið gripið til sérsamninga við einstök ríki.
Danmörk fékk nokkrar undanþágur frá Maastricht-sáttmálanum. Danir tóku ekki upp evru og fengu líka undanþágur frá ákvæðum um ESB-ríkisborgararétt og sameiginlegri stefnu í öryggis- og varnarmálum.
Eftir innrás Rússa í Úkraínu drifu Danir þó heila þjóðaratkvæðagreiðslu í gang og samþykktu í henni að ganga inn í varnarsamstarfið.
Sama er að segja um Schengen. Bæði Bretar og Írar fengu að standa utan við það þegar kerfið var fellt inn í ESB-réttinn.
Í álitsgerðinni eru tekin nokkur dæmi um undanþágur og sérlausnir sem umsóknarríki hafa samið um við ESB.
Einn höfunda álitgerðarinnar, Gunnar Þór Pétursson, flutti erindi við Háskólann á Akureyri snemma í haust og rakti þar flest þeirra dæma sem nefnd eru í álitsgerðinni. Gímaldið gerði erindinu skil á vef Gímaldsins.
Í álitsgerðinni er minnst á dönsku sumarhúsaundanþáguna, rétt Svía til að framleiða munntóbak þrátt fyrir almennt bann innan ESB, og sérlausn Möltu um fiskveiðar innan 25 sjómílna. Þá fengu Svíþjóð og Finnland heimild til að veita ríkisstyrki til landbúnaðar sem stundaður er norðan 62. breiddargráðu. Ísland liggur allt norðan þeirrar línu.
Þótt ekki sé tekin afstaða í álitsgerðinni til líkinda þess að Ísland fái þær undanþágur eða sérlausnir sem lögð verður áhersla á, er bent á dæmi þess að um slíkt hafi verið samið.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan og á rás Gímaldsins á hlaðvarpsveitum.
Mynd með frétt er af Akranesvita. Hún tengist efni fréttarinnar ekki sérstaklega nema að því leyti að úr vitum er horft til sjávar, líkt og gert er í umræðum um Evrópusambandið og mögulegar aðildarviðræður Íslands. Ljósmyndari er Áskell Þórisson.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.