Rósa Björk segir JÁ í ágúst en gefur ekki út flokkslínu

Lestími: 12 mínútur

Formaður Vinstri grænna ræðir hugarfarsbreytingu í Evrópumálum innan VG og segir forystu flokksins þurfa að leggja við hlustir. Ólíkar skoðanir um málið endurspegli lýðræðislegan styrk VG. Henni finnst breytt afstaða samkvæmt könnunum skiljanleg og skynsamleg og hún ætlar sjálf að segja já í ágúst. Hún segir áherslur VG þurfa að heyrast við samningaborðið.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður Vinstri grænna, ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Þótt flokkurinn sé formlega andvígur aðild að Evrópusambandinu segist formaðurinn vilja sjá hverju aðildarviðræður geti skilað. Hún áréttar að ekki sé verið að kjósa um aðild að ESB heldur um viðræður.

Rósa Björk ræðir Evrópumálin, landsmálin, ríkisstjórnina, NATO, móralinn í flokknum og framtíðina í viðtali við Gímaldið. Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

„Ég hef tekið þá ákvörðun að gefa ekki út eina flokkslínu eða línu formanns fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst, eins og sumir formenn stjórnmálaflokka hafa gert,“ segir Rósa Björk. Hún segir þessa afstöðu ekki síst mikilvæga í ljósi þess að mikill meirihluti kjósenda flokksins fer í raun gegn stefnu hans og vill sjá hvað komið geti út úr samningaviðræðum.

„Ég mun segja já enda vil ég sjá hverju aðildarviðræður geti skilað okkur“

„Persónulega finnst mér sjálfri sú afstaða skiljanleg og skynsamleg og ég mun segja já enda vil ég sjá hverju aðildarviðræður geti skilað okkur,“ segir Rósa Björk.

Skoðanakannanir hafa ítrekað mælt mikinn og vaxandi stuðning við aðildarviðræður meðal kjósenda Vinstri grænna en 93 prósent kjósenda flokksins segjast nú ætla að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þá eru 65 prósent kjósenda flokksins hlynntir aðild að ESB.

Gímald­ið ræddi við Rósu Björk í síma en hún er stödd í norð­an­verð­um Vatna­jök­uls­þjóð­garði og sendi Gímald­inu þessa sjálfu frá Detti­fossi.

„Þetta sýnir náttúrulega eindreginn og skýran vilja meðal kjósenda VG til að segja já við áframhaldandi viðræðum við ESB og við í forystu flokksins þurfum auðvitað að hlusta á og taka til okkar þau skilaboð frá kjósendum og líka þau skilaboð sem virkir félagar hafa komið á framfæri við okkur og aðra,“ segir Rósa Björk og bætir við:

„Að mínu mati þá hefur aldrei farið vel fyrir stjórnarflokkum sem hafa aftengst eða fjarlægst kjósendur sína. Mér finnst allavega að ný forysta eigi að leggja við hlustir og taka tillit til þessa háa hlutfalls.“

Fann fyrir breytingum í fyrra

Það eru ekki aðeins skoðanakannanir sem benda til þessa, heldur hefur Rósa sjálf fundið fyrir þessari breytingu.

„Ég fann þetta líka meðal virkra félaga okkar á flokksráðsfundi fyrir rúmu ári síðan, þegar málefni Evrópusambandsins voru til umræðu. Ég var mjög hugsi eftir þann flokksráðsfund, því að þá fann ég að það var meiri fjöldi sem var orðinn jákvæður gagnvart ESB.“

Rósa leggur áherslu á að um tvær aðskildar ákvarðanir sé að ræða: nú sé kosið um að hefja viðræður að nýju, ekki um aðild eða aðlögun. Verði samningur að veruleika taki þjóðin aðra ákvörðun þegar hann liggur á borðinu.

„Mér finnst óskynsamlegt að loka dyrum,“ segir Rósa og telur skynsamlegra að hafa þær opnar og sjá hverju viðræðurnar skili.

Kynslóðaskipti og breyttar aðstæður

Spurð hvort viðhorfsbreytingin skýrist af endurnýjun í flokknum, kynslóðaskiptum eða því að fólk sé beinlínis að skipta um skoðun, segir Rósa allt þetta eiga við. Flokkurinn sé að ganga í gegnum kynslóðaskipti en einnig sé um að ræða raunverulega breytingu á afstöðu rótgróinna félaga, á meðan sumir haldi fast í fyrri skoðun, hvort sem hún er með eða á móti.

Þegar Rósa talar um breyttar aðstæður vísar hún fyrst og fremst til alþjóðamála. Vegið sé að Evrópu bæði úr austri og vestri, grafið undan lýðræði, mannréttindum og réttindum fólks, og Ísland geti ekki staðið utan við þær hræringar sem eiga sér stað. Hún nefnir ásælni Bandaríkjaforseta gagnvart nágrönnum Íslands og segir að of lengi hafi ríkt værukærð í íslenskri utanríkisstefnu, þar sem þjóðin hafi talið sig geta treyst á landfræðilega sérstöðu sína. Það þurfi að endurskilgreina. Systurflokkar VG á Norðurlöndum hafi einnig breytt stefnu sinni í Evrópumálum, ekki síst vegna Úkraínustríðsins og þrýstings, áróðurs og upplýsingaóreiðu sem á uppruna sinn í Rússlandi og er hluti af stríðsrekstri Rússa.

„Að mínu mati þá hefur aldrei farið vel fyrir stjórnarflokkum sem hafa aftengst eða fjarlægst kjósendur sína“

Efnahagslegar ástæður vega líka þungt. Rósa bendir á að ungt barnafólk sé að sligast undan lánabyrði. Verðbólga og verðlag séu hærri en víða í Evrópu og að um 30 prósent launafólks nái ekki endum saman um mánaðamót. Þá lifi margir sauðfjárbændur nánast við fátæktarmörk. Margir vilji því einfaldlega sjá hverju viðræður geti skilað.

„Ég virði þessar skoðanir allar“

Ýmsir áhrifamenn í flokknum hafa stigið fram undanfarna daga og lýst skoðun sinni. Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi formaður flokksins, lýsti skoðun sinni á Facebook í vikunni og af hverju hún ætlar að segja NEI. Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi tekur virkan þátt í baráttu Nei-hreyfingarinnar og ungliðahreyfing flokksins starfar með ungliðum Sjálfstæðisflokks og Miðflokks í baráttu gegn aðild.

Rósa segir ólíkar skoðanir um málið endurspegla lýðræðislegan styrk hreyfingarinnar. Innan VG séu bæði félagar með sterkar skoðanir gegn aðild, aðrir séu fylgjandi og enn aðrir nokkuð hlutlausir. „Ég virði þessar skoðanir allar,“ segir hún og kveðst eiga gott samband við fyrrverandi formenn flokksins og leita reglulega ráða hjá þeim. Hún vill að fólk fái að taka upplýsta ákvörðun í friði fyrir upphrópunum, hræðsluáróðri og pólaríserandi umræðu og telur að stór hluti kjósenda vilji einmitt fá að gera það í ró og næði.

Áherslur VG eigi erindi í samningaviðræður

Þegar svo hátt hlutfall kjósenda VG ætlar að segja já felast í því, að mati Rósu, sterk skilaboð til ríkisstjórnarinnar um að áherslumál flokksins verði að vera við samningaborðið í komandi viðræðum, ákveði þjóðin að halda þeim áfram.

Rósa minnir á að viðræðurnar hófust í tíð ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna og nú þegar kjósendur VG sýna jafn eindreginn vilja til að halda þeim áfram þurfi að taka tillit til áherslumála flokksins verði þeim haldið áfram. Rósa Björk nefnir sérstaklega vernd náttúru og náttúruauðlinda, að umhverfis- og loftslagsmál séu höfð til hliðsjónar í öllu ferlinu, að vel verði samið fyrir bændur og íslenskan landbúnað og fyrir sterka landsbyggðarstefnu, og að tryggður verði sjálfbær og öflugur sjávarútvegur.

Hún leggur einnig áherslu á hagsmuni og réttindi vinnandi fólks, umgjörð vinnumarkaðar og aðgerðir gegn ójöfnuði, að mannréttindi fólks í viðkvæmri stöðu séu höfð til hliðsjónar og að setja verði skýra umgjörð um gervigreind, stafræna umbyltingu og áframhaldandi neytendavernd.

Samfylkingin fjarverandi í baráttunni

Rósa hrósar ríkisstjórninni fyrir að stefna að tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum, fyrst um viðræðurnar og svo um aðildina. Á sama tíma gagnrýnir hún stjórnarflokkana fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel utan um sitt eigið mál. Henni finnst hafa skort á skýrleika um markmið Íslands í viðræðunum, sem skýri ákveðið óöryggi í mörgum hópum.

Þá gagnrýnir Rósa Samfylkinguna sérstaklega fyrir dauflega baráttu. Hún segist hugsi yfir því hve fjarverandi Samfylkingin hafi verið í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar og sérstaklega forsætisráðherra. „Hún er formaður Samfylkingarinnar og það er ekki hægt að hlaupast undan því,“ segir Rósa sem segir líka athyglisvert hve fáir þingmenn flokksins hafi tekið þátt í baráttunni.

Rósa veltir fyrir sér hvort flokkurinn og forysta hans vilji halda fjarlægð til að hengja ekki líf stjórnarinnar á niðurstöðuna, eða hvort forsætisráðherra vilji taka tillit til þeirra sem ætla að segja nei og vilji tala fyrir alla þjóðina.

„Hún er formaður Samfylkingarinnar og það er ekki hægt að hlaupast undan því“

Rósa segir ákvörðun stjórnarflokkanna um að halda þjóðaratkvæðagreiðslu fela í sér mikla pólitíska áhættu. Verði niðurstaðan NEI í ágúst sé ljóst að skaðinn verði mestur fyrir Viðreisn enda sú hreyfing stofnuð um Evrópusambandsaðild. Hún minnir þó á að Samfylkingin hafi einnig haft aðild að ESB sem kjarnamál frá stofnun. Hún segir að ríkisstjórnin muni án efa leita allra leiða til að láta niðurstöðuna ekki hafa áhrif á samstarfið, verði hún neikvæð, þótt slík niðurstaða myndi vissulega skaða hana. „Þetta er stærra mál heldur en að það snúist um líf einnar ríkisstjórnar,“ segir Rósa.

Virkjanablæti, atvinnuleysi og útlendingaandúð

Í viðtalinu er líka rætt við Rósu um landsmálin almennt en Vinstri græn guldu afhroð í síðustu þingkosningum og eiga ekki fulltrúa á þingi. Rósa Björk lýsir vonbrigðum með ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur á sviði náttúruverndar og umhverfismála. Hún segir þau hafa verið sett alveg til hliðar og talar um mikinn „virkjanahug“ og „virkjanablæti“ hjá stjórnvöldum.

Rósa Björk var stödd í Vesturdal í Öxarfirði þegar Gímaldið hafði samband og smellti af nokkrum sjálfum.

Staða efnahagsmála sé einnig áhyggjuefni. Ekki hafi tekist að ná niður verðbólgu og vöxtum og Rósa hefur áhyggjur af atvinnuleysi, sérstaklega meðal ungs fólks. Talið sé að um 5.000 manns á aldrinum 18 til 24 ára séu án atvinnu nú um hásumar, sem er fjölgun um nærri 3.000 milli ára, án þess að boðaðar hafi verið aðgerðir til að mæta því.

Loks nefnir Rósa mannréttindamál, harðari stefnu í málefnum fólks sem leitar alþjóðlegrar verndar og vaxandi kynþáttafordóma sem hún saknar að ríkisstjórnin taki almennilega á.

Fáir að boða framtíðarsýn

Rósa Björk segir skorta á framtíðarsýn í íslenskum stjórnmálum í dag en frekar beri á fortíðarþrá en framtíðarsýn. Rósa telur íslenskt samfélag þurfa á stjórnmálahreyfingu eins og Vinstri grænum að halda og bendir á að 21.000 kjósendur eigi nú engan kjörinn fulltrúa á þingi. Hún segir verkefni formanns VG, við núverandi aðstæður, bæði vera tilhlökkunarefni og mikla áskorun.

Verkefni nýrrar forystu VG verði að breikka flokkinn, opna hann fyrir nýjum kjósendum og skerpa málflutninginn. Hún nefnir að í borgarstjórnarkosningum hafi VG boðið fram í kosningabandalaginu Vinstrinu með Sönnu Magdalenu Mörtudóttur. Framboðið hafi mælst í kringum 11 til 12 prósent en fengið 9,5 prósent upp úr kjörkössunum.

Rósa segist finna fyrir eftirspurn eftir stjórnmálaafli sem leggi áherslu á umhverfismál, jöfnuð, lífskjör og mannréttindi á sama tíma og hægri slagsíða einkenni íslensk stjórnmál. Hún segir fjölda fólks hafa haft samband við nýju forystuna og hvatt hana til dáða, þar sem enginn annar tali um þau mál sem VG setur á oddinn.

Umhverfisverndarfólk þyrsti eftir afli sem tali hátt um náttúruvernd og fólk vilji að rætt sé á mannamáli um kjör, stéttaskiptingu, húsnæðismál og verðlag. Endurreisn trausts sé lykillinn og keppikefli hennar sem formanns. Verkefnið sé langhlaup sem krefjist seiglu og þrautseigju.

Umfram allt vill formaðurinn horfa fram á við. „Mig þyrstir líka í framtíðina. Við erum búin að tala svo mikið um fortíðina, við erum búin að tala um mistökin, við erum búin að tala um það sem gekk vel og ekki og svo framvegis, en við þurfum að fara að tala um framtíðina. Við þurfum að fara að skilgreina hana og varða leiðina fram á við.“

Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru yfir viðtalið við Rósu Björk. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 9. ágúst, 2026, 10:56

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link