Útlendingastofnun tilkynnti trúnaðarbrot starfsmanns til lögreglu

Lestími: 5 mínútur

Útlendingastofnun hefur tilkynnt brot starfsmanns sem birti nöfn skjólstæðinga á samfélagsmiðli til lögreglu. Stofnunin frétti af málinu þegar blaðamaður Gímaldsins hafði samband þann 18. desember síðastliðinn. Fyrir liggur að starfsmaðurinn birti upplýsingar um synjun á samfélagsmiðlum áður en einstaklingunum sjálfum var tilkynnt um þá ákvörðun Útlendingastofnunar.

Útlendingastofnun hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að starfsmaður stofnunarinnar sem braut lög um persónuvernd og þagnarskyldu opinberra starfsmanna hafi „lokið störfum hjá stofnuninni“.

Í yfirlýsingunni segir að þann 18. desember hafi Útlendingastofnun fengið upplýsingar um alvarlegt brot starfsmanns stofnunarinnar á lögum, en það var þegar blaðamaður Gímaldsins hafði samband vegna skjáskota sem hann hafði undir höndum og sýndu að starfsmaðurinn hafði deilt nöfnum skjólstæðinga stofnunarinnar á Instagram. 

Gímaldið sendi Útlendingastofnun fyrirspurn vegna málsins í gær og í svarinu kemur fram að það liggi fyrir að upplýsingarnar voru birtar á samfélagsmiðlum áður en einstaklingunum sjálfum var tilkynnt um ákvarðanir stofnunarinnar í málum þeirra.

Sjá einnig: Starfsmaður Útlendingastofnunar birti nöfn skjólstæðinga á Instagram

„Frá því málið kom upp hefur verið farið yfir allar ákvarðanir sem viðkomandi starfsmaður hafði aðkomu að á meðan hann starfaði hjá stofnuninni. Þetta var gert til að ganga úr skugga um að verkferlum sem eiga að tryggja gæði ákvarðana hafi verið fylgt í hvívetna. Á meðal þess sem það felur í sér er að allar stjórnvaldsákvarðanir stofnunarinnar skuli lesnar yfir og staðfestar af yfirmanni og því komi ávallt fleiri en einn starfsmaður að hverri ákvörðun. Við yfirferð umræddra mála kom ekkert fram sem gefur tilefni til að endurskoða eða taka upp að nýju ákvarðanir sem starfsmaðurinn hafði aðkomu að. Ekkert bendir heldur til þess að viðkomandi hafi áður viðhaft slíka háttsemi og gengur stofnunin út frá því að um einangrað tilvik sé að ræða,“ segir í yfirlýsingu Útlendingastofnunar. 

Þar kemur einnig fram að í ljósi alvarleika málsins hafi Útlendingastofnun einnig tilkynnt brot starfsmannsins til lögreglu.

„Ég vil vera skýr um að brot á trúnaði verða ekki liðin innan stofnunarinnar.“ – forstjóri Útlendingastofnunar

Í yfirlýsingunni er haft eftir Kristínu Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar: „Ég geri þá kröfu að starfsfólk Útlendingastofnunar standi undir þeirri ábyrgð sem fylgir meðhöndlun viðkvæmra persónuupplýsinga. Traustið sem skjólstæðingar okkar sýna okkur byggir á því, og ég vil vera skýr um að brot á trúnaði verða ekki liðin innan stofnunarinnar.“ 

Þá segir þar ennfremur að í samvinnu við persónuverndarfulltrúa stofnunarinnar hafi brotið verið tilkynnt sem öryggisbrestur til Persónuverndar og hafi ákvæðum um meðferð slíkra mála verið fylgt til hins ítrasta. Persónuvernd hefur jafnframt hafið frumathugun á öryggi við vinnslu persónuupplýsinga hjá Útlendingastofnun í því skyni að afla upplýsinga og gagna til athugunar á því hvort tilefni sé til að hefja úttekt eða frumkvæðisathugun á vinnslunni.

Gímaldið birti frétt þann 20. desember þar sem fram kom að starfsmaður Útlendingastofnunar hefði birt nöfn umsækjenda um vernd í lokuðum hópi á samfélagsmiðlinum Instagram. Samsett mynd.

Útlendingastofnun tekur fram að stofnunin hafi við þetta tilefni brýnt fyrir starfsfólki sínu mikilvægi þess að gæta ítrustu varkárni við meðhöndlun þeirra gagna sem stofnuninni er treyst fyrir. Stofnunin muni hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að upplýsa og fræða starfsfólk sitt um rétta meðferð gagna og þær skyldur sem hvíla á starfsmönnum samkvæmt lögum og reglum.

Birtist á Instagram áður en fólkinu var tilkynnt um ákvörðunina

Gímaldið sendi Útlendingastofnun fyrirspurn í gær vegna málsins og óskaði meðal annars svara við því til hvaða afleiðingar brotin hefðu haft fyrir viðkomandi starfsmann. 

Þá spurði Gímaldið einnig um þá einstaklinga sem voru nafnbirtir á skjáskotunum:

– Var haft samband við þá og þeim tilkynnt að starfsmaður Útlendingastofnunar hefði brotið trúnað við meðferð mála þeirra ?

– Liggur fyrir – eða er til skoðunar – hvort nöfn þeirra, ásamt upplýsingum að þeir hefðu fengið synjun, birtust á samfélagsmiðlum áður en þeim sjálfum var tilkynnt um synjunina?

– Verða mál þeirra séu tekin upp aftur í ljósi trúnaðarbrots við málsmeðferð þeirra innan stofnunarinnar?

Í svari Útlendingastofnunar til Gímaldsins, sem innihélt vísun í yfirlýsinguna á vef stofnunarinnar sem birt var fyrr í dag, stóð ennfremur: „Aðeins birtist fullt nafn eins einstaklings á myndunum og hefur sá aðili verið upplýstur um trúnaðarbrotið. Það liggur fyrir að upplýsingarnar voru birtar á samfélagsmiðlum áður en einstaklingunum sjálfum var tilkynnt um ákvarðanirnar. Mál þeirra, og allra annarra sem starfsmaðurinn hefur haft aðkomu að, hafa verið yfirfarin með tilliti til þess hvort verkferlum stofnunarinnar sem eiga að tryggja gæði ákvarðana, hafi verið fylgt í hvívetna. Ekkert kom fram sem gefur tilefni til að endurskoða eða taka upp að nýju ákvarðanir sem starfsmaðurinn hafði aðkomu að.“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 10. febrúar, 2026, 12:57

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link