„Við er­um ekki í stríði en við er­um held­ur ekki í frið­i“

Lestími: 4 mínútur

Gímald­ið ræð­ir við Dag B. Eggertsson um heims­mál­in, vest­ræna sam­vinn­u, sam­band­ið við Banda­rík­in og Evr­ópu, vígbúnað Norðurlandanna og hvern­ig Ís­lend­ing­ar eiga að fara að því að verj­ast mögu­leg­um ófrið­i.

Rík­is­stjórn­in þarf að hafa gott sam­ráð við stjórn­ar­and­stöðu­flokka á Al­þingi um stór mál sem fram und­an eru í þing­inu og varða þjóðar­ör­ygg­is­mál Ís­lend­inga. Þetta seg­ir Dag­ur B Egg­erts­son þing­mað­ur Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Hann seg­ir átök­in um að­ild Ís­lands að NATO fyr­ir 80 ár­um enn hvíla á þjóð­inn­i. Þetta sé til marks um að leynd­arkúltúr gagn­ist ekki þótt um við­kvæm þjóðar­ör­ygg­is­mál sé að ræða. Dag­ur hvet­ur til sam­ráðs á sem flest­um svið­u­m, þar á með­al um tíma­setn­ingu þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um að­ild að Evr­ópu­sam­band­in­u.

Dag­ur er for­mað­ur Ís­lands­nefnd­ar NATO­­-þings­ins og átti sæti í þing­manna­nefnd þeirri sem lagði grunn að ör­ygg­is­ og varn­ar­stefnu sem er til með­ferð­ar á Al­þing­i. Áð­ur en Dag­ur sett­ist á þing var hann um ára­bil for­mað­ur Al­manna­varn­ar­nefnd­ar. Gímald­ið ræð­ir við Dag um heims­mál­in, vest­ræna sam­vinn­u, sam­band­ið við Banda­rík­in og Evr­ópu, vígbúnað Norðurlandanna og hvern­ig Ís­lend­ing­ar eiga að fara að því að verj­ast mögu­leg­um ófrið­i.

„Norð­ur­lönd­in eru að búa sig und­ir stríð, ekki bara með hern­að­ar­upp­bygg­ingu held­ur einnig með öðr­um við­bún­aði til dæm­is á sjúkra­hús­um og með birgða­söfn­un,“ seg­ir Dag­ur. Hann legg­ur áherslu á að Ís­land veiti góða gisti­rík­is­þjón­ustu fyr­ir banda­lags­ríki gætu þurft á Ís­landi að halda en lega lands­ins er mik­il­væg hern­að­ar­lega.

Þessu tengt:

„Mað­ur vill ekki mála upp of dökka mynd en þetta er svo­lít­ið eins og í al­manna­vörn­un­um að við verð­um að vera samt heið­ar­leg með það sem get­ur teikn­ast upp og axla ábyrgð á að búa okk­ur und­ir það. Hluti af því er að fólk átti sig á því að í þess­um breytta heimi get­um við ekki bara leg­ið á bak­inu og von­að það besta,“ seg­ir Dag­ur.

Dag­ur vík­ur bæði að stríð­inu í Úkra­ínu og að skipt­um skoð­un­um um við­brögð við hót­un­um Banda­ríkja­for­seta í garð Græn­lands. „Einn þráð­ur í um­ræð­unni hef­ur ver­ið sá að við eig­um að láta sem minnst fyr­ir okk­ur fara og ekki taka prinsipp af­stöðu og með al­þjóða­lög­um og Græn­lend­ing­um en þá í mín­um huga er­um við far­in að tala gegn þjóð­ar­hags­mun­um,“ seg­ir Dag­ur. Það sé skylda okk­ar að und­ir­búa okk­ur bæði með það fyr­ir aug­um sem er lík­leg­ast, að NATO haldi og varn­ar­samn­ing­ur­inn haldi en að við þurf­um líka að búa okk­ur það sem er ólík­legt en mjög af­drifa­ríkt.

Í við­tal­inu ræð­ir Dag­ur fjöl­breytt sam­starf Ís­lands í varn­ar­mál­um við Bret­land, Belg­íu, Kana­da, Norð­ur­lönd­in, Eistra­salts­rík­in og önn­ur ríki Evr­ópu. „Þeg­ar heim­ur­inn breyt­ist verð­um við að átta okk­ur á því að þurf­um við sterk­ari banda­lög, við þurf­um meiri sam­stöðu með Norð­ur­lönd­un­um inn­an NATO en líka inn­an Evr­ópu­sam­vinn­unn­ar. „Þess vegna finnst mér rök­in fyr­ir því að bind­ast Evr­ópu sterk­ari bönd­um vera þjóðar­ör­ygg­is­mál.“

Hægt er að hlusta á við­talið við Dag í spil­ar­an­um hér fyr­ir of­an og í öll­um helstu hlað­varpsveit­u­m.

Þessu tengt:

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:43

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link