
Matarverð hér á landi hefur hækkað umfram kostnað og launahækkanir. Samkeppniseftirlitið skoðar nú bæði hækkanir á matvöru og hækkanir á eldsneyti. Hagsmunagæslufólk leggur sig fram um að sá efasemdum um að hátt verðlag í landinu og hagnaður stórfyrirtækja tengist.

Matvöruverð hér á landi er í hæstu hæðum, tugum prósenta hærra en annars staðar í Evrópu. Hagnaður þeirra stórfyrirtækja sem selja okkur matinn er einmitt líka meiri en nokkru sinni fyrr og hefur aukist verulega á fáum árum. En mér dettur ekki í hug að draga línu þarna á milli. Ef ég tengi punktana saman þá fæ ég líklega her af sérhagsmunatalsmönnum yfir mig sem reyna að sá efasemdafræjum um að þetta tvennt tengist.
Þannig að slíkar tengingar verða ekki gerðar. Mér dettur ekki í hug að fullyrða að hagnaður matvörurisa sé á nokkurn hátt tengdur háu matvöruverði. Læt það bara alveg eiga sig. Hér verður heldur ekki heldur gerð tilraun til að skýra verð á eldsneyti með óhóflegri álagningu. Enda kom skýrt fram í fréttum RÚV að til þess að nefna megi þetta tvennt í sömu andrá þarf að vera á hreinu að ég geti „skýrt að þetta eigi sér ekki aðrar skýringar“.
Í ítarlegri umfjöllun Gímaldsins um matvöruverð, sem birt var á dögunum og er aðgengileg bæði í textaformi og á helstu hlaðvarpsveitum, kemur fram að samanlagður hagnaður Haga, sem á Bónus, og Festi, sem á Krónuna, nam 13,6 milljörðum króna á síðasta uppgjörsári félaganna.
Arðgreiðslur til hluthafa í Högum og Festi námu samanlagt 5,5 milljörðum króna.
Hagnaður Haga, eiganda Bónus, hefur verið í tröppugangi upp á við síðustu ár. Farið úr tveimur og hálfum milljarði í sjö milljarða á fimm árum, eins og sjá má á fínni mynd úr ársreikningi fyrirtækisins. Hluthafar fengu 3,3 milljarða í arð á síðasta ári.
Önnur fín mynd sýnir hvernig hver hluthafi hefur hagnast meira og meira á hverju ári.
Líkt og lesa má um í ársreikningi Haga þá gengur vel, framlegð af rekstrinum eykst, hagnaðarhlutfall, framlegðarhlutfall, EBITDA og allar helstu lykiltölur eru á glimrandi siglingu. Nýjasta uppgjörið, fyrir fyrsta ársfjórðung þessa rekstrarárs, sýnir líka sterka stöðu Haga. Framlegð eykst, hagnaðarhlutfall hækkar og stjórnendur gera ráð fyrir góðri afkomu fyrir rekstrarárið. Tröppugangurinn upp á við virðist halda áfram.
Tröppugangurinn hjá Festi lítur ögn öðruvísi út en hjá Högum, en allt í rétta átt.

Festi getur ekki síður glaðst yfir sínum árangri, eins og sjá má á síðustu ársskýrslu. Hagnaðurinn var 6,2 milljarðar í fyrra og fengu hluthafar 2,2 milljarða í arð vegna síðasta árs. Fyrsti ársfjórðungur gekk líka vel hjá Festi og sýnir meiri vörusölu, aukna framlegð og almenna bætingu frá því á sama tíma í fyrra.
Víkjum þá að matarverði. En samt bara alveg ótengt þessu að ofan.
Matarverð hér á landi er 55% hærra en í löndum Evrópusambandsins. Þetta kemur fram í umræðuskjali Samkeppniseftirlistins, en eftirlitið vinnur nú að úttekt á matvörumarkaðnum og hefur óskað eftir umsögnum hagsmunaaðila á markaðnum vegna málsins. Líkt og fram kom í umfjöllun Gímaldsins um matarverð hefur stéttarfélagið Viska einnig gefið út greiningu um verðlag hér á landi þar sem meðal annars kemur fram að Ísland er miklu dýrara en hin Norðurlöndin í flestum flokkum, t.d. 44% dýrara í matvörum, þar af 71% dýrara í kjötvörum. Þá kemur fram að verðhækkanir séu umfram hækkanir á framleiðslukostnaði og hækkanir á launum.
En ef ég gerðist svo framhleypin að segja að hagnaður matvörurisa tengist á einhvern hátt háu og hækkandi matarverði þá er líklegt að það sé einhverskonar misskilningur. Skýringar gætu verið aðrar og ég verð líklega krafin um nákvæma útreikninga sem sýna ótvírætt fram á tengslin og óyggjandi orsakasamband þarna á milli.
Þess vegna verður þetta heldur sundurlaus grein, því hér er í raun bara verið að telja upp ýmsar tölur sem gætu tengst eða ekki. Skýringar sem er skýrt að eru skýringar, eða ekki.

Kannski er ekki skýrt að hátt verðlag eigi sér þær skýringar sem við höldum.
Ef ég færi líka að tala um verð á eldsneyti þá væri ég sennilega komin út á hálan ís. Það er nefnilega ekkert víst að það hafi hækkað eða lækkað í takt við það sem Samkeppniseftirlitið hefur nefnt. Því tengt (eða ótengt) má hér benda á annað umræðuskjal Samkeppniseftirlitsins um hækkun á eldsneytisverði. Þar segir: „Álagning á bensínlítrann hefur hækkað verulega, nú síðast um 25% að raunvirði frá árinu 2022.“ Byggir þetta á ítarlegri gagnaöflun og greiningu á markaðnum. SA og SVÞ hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem gerðar eru athugasemdir við bæði umræðuskjöl Samkeppniseftirlitsins, um matvöruhækkanir og eldsneytismarkaðinn.
Annað þessu tengt, eða jafnvel alls ekki. Við notum ennþá orðið „olíufélögin“ þegar rætt er um eldsneytisverð. En í raun eru þau ekki lengur til. Olís er hluti af Högum, rétt eins og Bónus og Hagkaup. N1 er hluti af Festi, eins og Krónan. Orkan er hluti af Skel, sem á einnig Nettó, Prís og Samkaup. Sömu fyrirtæki ráða verði á matvöru og eldsneyti.
En allt þetta eru ótengdar upplýsingar sem hér eru aðeins settar fram sem dægrastytting fyrir lesendur.
Þótt það sé skýrt að verðlag á mat hér á landi er það hæsta í Evrópu, þótt það sé skýrt að matvörukeðjur hagnast sem aldrei fyrr, þótt það sé skýrt að hækkanir á olíuverði skila sér hraðar til neytenda en lækkanir, þá er auðvitað alls ekki skýrt að neitt af þessu tengist.
Þótt stóru olíufélögin séu nú hluti af sömu samsteypum og stóru matvöruverslanirnar þá eru skýringar á þessu ekki skýrar.
Höfum það alveg skýrt.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.