Gímaldið komið í loftið

Lestími: 5 mínútur

Gímaldið er komið í loftið. Hér eiga eftir að birtast ýmsar greinar, skýringar og hlaðvörp. Við byrjum smátt og byggjum miðilinn upp með áskrifendum, jafnt og þétt.

Fjölmiðillinn Gímaldið er kominn í loftið. Ákvörðun um stofnun hans var tekin í lok júlí, í sólskini og fífldirfsku, eftir að við, Eyrún Magnúsdóttir og Auður Jónsdóttir, hittumst í kaffibolla. Kannski var kaffið aðeins of sterkt en einhvern veginn virtist gáfulegra að stofna fjölmiðil en eingöngu hlaðvarp til að múlbinda ekki möguleikana. En fjölmiðill er kröftugt orð – og orðinu hafði ekki fyrr verið sleppt lausu en við tók heilmikil hugmyndavinna vikum og mánuðum saman. Stundum verða hlutirinir til um leið og þeir gerast. 

audur eyja.jpg
Eyrún Magnúsdóttir og Auður Jónsdóttir

Í upphafi var það hvatning að hugsa um söguna af naglasúpunni. Um flæking sem kom í þorp, bað um vatn og setti nagla í það tl að sjóða súpu; síðan söfnuðust þorpsbúar í kringum hann með hina og þessa matarbita þar til úr varð súpa sem nærði marga. 

Þannig var bara byrjað á því að sjóða vatnið – og sjá hvort fólk myndi svo taka þátt í eldamennskunni.. 

Hörður Ágústsson

Og já! Sjá!

Allt í einu var svo búið að fara í viðtal á RÚV, í lok júlí, og tilkynna stofnun miðils á haustmánuðum.

Sagan af naglasúpunni hefur sannað gildi sitt þessa mánuði sem liðnir eru frá þessum sólríka en ögn vindasama degi. 

306608124 10229811779665118 2188104964321984377 n
Georg Gylfason

Strax eftir tilkynninguna byrjuðu þorpsbúar að tékka á pottinum og fyrstur til að demba sér í hugmyndavinnu með okkur var Hörður Ágústsson, þekktur sem stofnandi Maclands, og gjörkunnugur því að spreyta sig í ævintýramennsku. Eins og konan hans, grafíski hönnuðurinn Svala Hjörleifsdóttir, sem á sínum tíma stofnaði fyrirtækið með honum, en dembdi sér nú í að hanna vef fyrir Gímaldið. Hjónakornin stráðu sínu töfradufti í súpuna. Ekki leið á löngu þar til nýr þorpsbúi lét á sér kræla: Georg Gylfason en hann er lausapenni á nýja miðlinum. 

Georg hefur, þrátt fyrir ungan aldur, starfað sem blaðamaður bæði á Fréttablaðinu og Heimildinni en hann lærði við og útskrifaðist úr The London School of Economics and Political Science. 

Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson HÍ Ljósmynd:Kristinn Ingvarsson
Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson Mynd/Kristinn Ingvarsson

Sérstaða Georgs eru greiningar, auk þess sem hann býr yfir svo notalegri útvarpsrödd að hann mun líka hafa umsjón með hlaðvarpinu Sirkabát ásamt Brynjólfi Gauta Guðrúnar Jónssyni. Nánar um það í annarri frétt.

Með tilkomu þessa fólks bættist aldeilis næring í súpuna og þá ekki síður þegar í ljós kom að Aðalheiður Ámundadóttir, blaðamaður, lögfræðingur og fyrrum fréttastjóri Fréttablaðsins, væri líka til í að starfa undir hatti Gímaldsins. 

Aðalheiður Ámundadóttir

Viðburðir og umfjöllun í áskrift

Í hugmyndavinnu síðustu mánaða varð fljótlega ljóst að gáfulegast væri að stofna áskriftamiðil. Miðil sem gæti sérhæft sig í dýpri greiningum á þörfum málum. Hugmyndin er að þar gefist andrými til að skoða ýmislegt sem oft gefst ekki ráðrúm til í hröðum fréttaflutningi hversdagsins. Þá verður búinn til vettvangur fyrir fólk til að taka þátt í umræðu utan samfélagsmiðlanna, auglitis til auglitis, á reglulegum viðburðum á vegum Gímaldsins. 

Kristján Hafþórsson

Að sama skapi verður lögð áhersla á menningu. Bókaklúbburinn Bókapressan verður starfræktur á vegum Gímaldsins og þar gefst fólki einnig tækifæri til að vera þátttakendur, bæði í gegnum klúbbinn, á viðburðum og í gegnum hlaðvarp undir sama nafni. Raunar bættist sjöundi súpugerðarmaðurinn í hópinn: Kristján Hafþórsson sem verður annar umsjónarmanna Bókapressunnar og viðburða á vegum hennar, ásamt Auði. Kristján er stjórnandi hlaðvarpsins Jákastið, fyrirlesari og meistaranemi við Háskóla Íslands. Hann er jákvæður með eindæmum og sér glas lífsins hálffullt. 

Segja má að Gímaldið verði stílað inn á safaríkar sögur, hvort sem þær birtast í formi greininga, viðtala eða í bókum. Strax í upphafi varð ljóst að það væri markmið í sjálfu sér að stofna miðil sem veitti næringu eins og súpa, jafnframt því að vera fréttadrifinn, nú á tímum vaxandi fréttaforðunar. Nokkuð sem verður spennandi að prófa – og þróa. 

Við hlökkum til að lifa og skrifa þessa sögu með ykkur – þennan fjölmiðil okkar allra. 

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 31. október, 2025, 15:57
Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link