
Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst ægivald sitt í íslenskum stjórnmálum og flokksfólk er í sjálfskoðun. Félagar í Samfylkingunni finna fyrir vaxtaverkjum en flug flokksins er ekki varanlegt. Stjórnmálaflokkar eru að víkja fyrir samtökum frambjóðenda.

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn standa á krossgötum. Kynslóðaskipti hafa orðið í forystu Samfylkingarinnar sem er á mikilli siglingu eftir langa eyðimerkurgöngu. Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins tekur við flokki í tilvistarkreppu eftir 16 ára valdatíð Bjarna Benediktssonar. Rúmum áratug eftir upplausn fjórflokkakerfisins hefur orðið grundvallarbreyting á skipulagi íslenskra stjórnmála og eðli og hlutverki stjórnmálaflokka.
Þessar breytingar á íslensku stjórnmálalandslagi og staða meginflokkanna á vinstri og hægri vængjum eru til umræðu í fyrstu stjórnmálagreiningu Gímaldsins. Með samtölum við áhrifafólk í flokkunum, tók Gímaldið púlsinn á sálarlífi þessara tveggja turna í íslenskri pólitík. Þá er rætt við Eirík Bergmann prófessor í stjórnmálafræði.
Samfylkingin hefur farið í gegnum níu alþingiskosningar frá stofnun flokksins árið 1999. Allan fyrsta áratuginn var hún í nokkuð stöðugu fylgi í kringum 30 prósent, en svo hrundi fylgið og við tók heill áratugur eyðimerkurgöngu. Að því leyti má segja að Samfylkingin hafi farið verst út úr uppbroti fjórflokksins sem var skoraður á hólm af nýjum stjórnmálahreyfingum sem spruttu upp í kjölfar hrunsins.
Nú er Samfylkingin hins vegar á mikilli siglingu eftir að ný kynslóð tók við árið 2022. Er Samfylkingin aftur orðinn sá turn vinstra megin við miðju sem henni var ætlað að vera við stofnun?
Eiríkur Bergmann svarar því neitandi: „Það er mikill meðbyr með Samfylkingunni núna. Þetta eru bara pendúlhreyfingar og oft er það nú meira svona rás tímans sem ræður þessu frekar en einhverjir leikendur á sviðinu,“ segir hann.
Eftir þrjú ár á formannsstóli Samfylkingarinnar og tæpt ár í embætti forsætisráðherra telja flestir viðmælendur Gímaldsins Kristrúnu njóta trausts meðal flokksfélaga og eru almennt ánægðir með störf hennar út á við og gott gengi flokksins.

„Samfylkingin var búin að ganga í gegnum alveg ofboðslega djúpan öldudal og var eiginlega búin að týna sér alveg og vissi ekki alveg hver hún var en rís núna upp sem þessi svona miðjusækni flokkur. „Iðnaðarkratar“ eins og það var kallað hér áður fyrr. Það er sú vídd sem hefur náð yfirhöndinni í flokknum.
Þessi hópur hefur auðvitað bara leitt Samfylkinguna í alveg nýjar hæðir. En tákn tímans er líka að slík staða helst ekki. Síðan bara blása vindarnir í aðrar áttir og þá fær enginn við neitt ráðið. Það er dálítið mikið þannig sem samtíminn er,“ segir Eiríkur.
Öllum ber þó saman um að formaðurinn og hirð hennar haldi fast um stjórnartaumana. Til dæmis hafi orðið töluvert uppnám á landsfundi vegna „yfirtöku“ á málefnastarfinu með þeim afleiðingum að mál sem hafi verið hluti af grunngildum flokksins frá stofnun hafi ekki komist að, mál á borð við aðskilnað ríkis og kirkju, Evrópumál og umhverfismál. Þá er mörgum sárt um útlendingamálin.
Til að halda stjórn á flokksstarfinu beiti hirðin í kring um formanninn ungliðahreyfingu flokksins. Þannig hafi Samfylkingarfélagið i Reykjavík orðið fyrir miklum búsifjum nýlega þegar flestir fulltrúar félagsins voru felldir í kjöri í fulltrúaráð flokksins í Reykjavík, en það er sú stofnun flokksins sem ákveður með hvaða hætti er valið á lista fyrir borgarstjórnarkosningar. Ljóst sé að forystan hyggist hafa þar hönd í bagga en bæði ráðherra í ríkisstjórn og aðstoðarmaður forsætisráðherra hafi mætt á aðalfund fulltrúaráðsins með stóran hóp ungliða og tekið með því alla stjórn á fundinum.

Þá erfa margir „meðferðina“ á Degi B Eggertssyni, bæði í aðdraganda kosninga en ekki síður eftir að ljóst varð að Samfylkingin myndi leiða ríkisstjórn. Stuðningsfólk hans í flokknum telur hann vannýtta auðlind. Farsælla hefði til dæmis verið að nýta krafta hans og reynslu til formennsku í þingflokknum. Þar hafi hins vegar orðið fyrir valinu nýliði í stjórnmálum og mögulega hafi reynsluleysi hans átt þátt í hve erfiðlega gekk að semja um þinglok í sumar.
Þessar miklu sviptingar innan flokksins hafa vakið spurningar um gildi flokksstarfsins. Fólk sem er virkt í grasrótinni furðar sig á að það þyki fullkomlega eðlilegt í dag og jafnvel beinlínis kostur að nýtt fólk geti komið „inn af götunni“ og tekið stjórnmálaflokka bókstaflega yfir. Það sé litið hornauga að fólk „alist upp“ inni í flokkunum, taki þátt í starfinu og bjóði krafta sína fram fyrir hönd flokksins.
Eiríkur bendir á að flokkarnir séu ekki lengur sömu fjöldahreyfingar sem þeir eitt sinn voru. „Þannig að öflugir yfirtökuhópar geta bara náð yfirtökuvaldi á flokkunum,“ segir hann.
„Í eina tíð var litið á stjórnmálaflokka, sem ekki bara samkeppnisaðila um að fá kosna frambjóðendur inn í þing og sveitarstjórnir heldur líka sem lýðræðislegan vettvang í sjálfu sér. Lýðræði væri ekki bara iðkað í kosningum á fjögurra ára fresti heldur í allskonar samtali og félagasamtökum,“ segir Eiríkur. Stjórnmálaflokkarnir hafi verið í lykilhlutverki sem lýðræðislegur vettvangur þar sem fólk kom saman, tókst á um hugmyndir sínar, ræddi sig til niðurstöðu, myndaði bandalög og þjálfaðist til lýðræðisstarfa.
„Þetta var gríðarlega mikilvægt og í raun grunnurinn að hinu frjálslynda lýðræðiskerfi Vesturlanda. Þetta er mikið breytt núna,“ segir Eiríkur.

Upp hafi runnið tímabil þar sem gert var lítið úr starfi innan stjórnmálaflokka. „Það var uppnefnt þannig að fólk væri bara að raða stólum til þess að fá þingsæti að launum seinna. Þetta væru bara klíkur og að sumu leyti hlegið út af borðinu sem alvarlegur vettvangur.
Afleiðingin af því niðurrifi í umræðunni blasir núna við okkur. Að stjórnmálaflokkarnir eru ekki sá lýðræðislegi vettvangur sem þeir áður voru heldur meira svona eins og samtök frambjóðenda og að því leyti meira eins og skeljar utan um inntakið sem einu sinni var innan þeirra.“
Eiríkur segir að þetta kerfi stjórnmálastarfs í landinu hafi byrjað að brotna upp á eftirhrunsárunum. „Það voru lengi vel á Íslandi þessir fjórir flokkar, hinn svokallaði fjórflokkur, sem bauð upp á starfsemi af þessum toga og síðan er þessi fjórflokkur skoraður á hólm af nýjum samtökum frambjóðenda,“ segir hann og heldur áfram: „Í kjölfarið brotnar smám saman upp þetta kerfi og þá er eins og virðið í því að vera fjöldahreyfing og alvöru stjórnmálaflokkur gufi bara upp og við sviðinu taki ný samtök frambjóðenda, samtök sem eru allt eins bara smíðuð rétt fyrir kosningar, yfirleitt undir forystu einhvers öflugs leiðtoga.“ Í stað þess að halda sínu striki með sitt flokksstarf hafi gömlu flokkarnir í raun leitað í sama farveg og nýsmíðarnar, hætt að vera fjöldahreyfingar sem buðu fram sitt forystufólk sem stóð fremst meðal jafningja, urðu í raun fylkingar utan um leiðtoga.
„Þetta er auðvitað bara mjög mikil breyting og auðvitað hefur einhverjum þeim þroska lýðræðis sem tók áratugi að koma á, því hefur á einhvern hátt bara verið kastað út og kannski barninu verið fleygt út með baðvatninu,“ segir Eiríkur.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf haft sérstöðu umfram aðra flokka á Íslandi, verið stærstur og sterkastur. En þrátt fyrir að Sjálfstæðismenn standi framar öðrum í flokksskipulagi og státi af öflugustu grasrót landsins, finnur flokksfólk fyrir breytingu.
Áður fyrr hafi til dæmis verið nánast óhugsandi að fólk yfirgæfi flokkinn sinn til að fara í framboð fyrir annan flokk en þetta þyki varla tiltökumál í dag. Þetta sé ekki séríslenskt fyrirbæri heldur megi sjá þetta bæði í Bretlandi, á Norðurlöndum og víðar. Það sama eigi við um almenna félaga flokksins. Sjálfstæðisfólk hafi lengst af verið trútt sínum flokki í kjörklefanum, en í dag kýs það eftir hagsmunum sínum á annan hátt en áður og hiki ekki eins mikið við að svíkja lit ef því finnst persónulegum hagsmunum sínum betur borgið annarsstaðar.

Smábátasjómenn til dæmis, studdu flestir sinn Sjálfstæðisflokk, þrátt fyrir að vera alltaf óánægðir með stefnu flokksins í sjávarútvegsmálum. Nú sé þessi hópur nánast allur farinn til Flokks fólksins. Þeim líki ekkert endilega við Ingu Sæland eða aðra sem standa með henni í brúnni en þeir kjósa hana samt og viðurkenna það fúslega.
Einn viðmælandi lýsti því þannig að stjórnmálaflokkarnir væru orðnir eins og hilluvara sem kjósendur velja á milli hverju sinni, allt eftir því hver býður best hverju sinni. Það geri að verkum að fylgið fer á fleygiferð. Litlir flokkar geta stækkað mjög mikið og tekið af öðrum en dottið svo út af þingi í næstu kosningum.
„Flokkarnir eru orðnir eins og hilluvara“
Þessi hilluvörustjórnmál gefi popúlistum líka tækifæri sem blöstu ekki eins við þegar fólk hélt fast við sinn flokk. Þetta sjáist til dæmis víða í Evrópu. Stórir meginflokkar sem setið hafa lengi í ríkisstjórn, búi ekki við þann lúxus að geta gasprað ábyrgðarlaust út í loftið, líkt og frambjóðendur sem hafa hvorki staðið sjálfir í brúnni né þurft að verja erfiðar ákvarðanir sem taka þurfi í ríkisstjórn, segir einn viðmælanda og nefnir Nigel Farage, í hinum breska Reform flokki, sem farið hefur með himinskautum í könnunum og gengið með því nánast milli bols og höfuðs á breska Íhaldsflokknum.
Það hefur verið lengi verið sérkenni íslenskra stjórnmála hvað hægri vængurinn hélst vel saman á meðan vinstrið var meira og minna tvístrað í áratugi. Eiríkur segir þó sömu meginþætti á ferð. Klofningurinn sem einkenndi vinstri hliðina sé kominn yfir til hægri, hann hafi bara verið lengur á leiðinni.
„Þetta er auðvitað bara hugmyndastraumur sem er allstaðar í Evrópu. Það hefur algerlega klofnað upp á milli frjálslyndra, kristilegra hægri flokka annars vegar og svona andinnflytjenda þjóðernissinnaðra hægri flokka sem voru í sömu kosningablokkinni en eru núna á algerlega öndverðum meiði.“
Eiríkur segir Sjálfstæðisflokkinn í rauninni hafa verið þrjá stjórnmálaflokka. Innan hans hafi þrifist hófsamur kristilegur demókrataflokkur, harður íhaldsflokkur á breskan máta og til skamms tíma öflug frjálshyggjuvídd. „Þetta eru þrír ólíkir hugmyndastraumar, en þeir héldust allir saman innan Sjálfstæðisflokksins og það var alltaf verkefni formannsins að halda þessum þremur ólíku hópum saman,“ segir Eiríkur og heldur áfram:
„Núna er þetta bara gjörbreytt og flokkurinn er ekki lengur þessi víðfema kirkja hægra megin hryggjar og að sumu leyti nánast eins og hann sé tvístigandi milli annars vegar hinna frjálslyndu afla í Viðreisn hægra megin við miðju og svo hinna íhaldssamari afla í Miðflokknum. Það er eins og hann viti ekki í hvorn fótinn hann eigi að stíga í þessum efnum. Og það er þessi togstreita sem ég held að skýri ansi margt.“
Þá vekur Eiríkur athygli á því að frjálshyggjan virðist alveg horfin úr íslenskum stjórnmálum. Ungliðahreyfing Sjálfstæðisflokksins hafi í gegnum tíðina haldið henni mjög á lofti en ef marka megi nýafstaðið landsþing Sambands ungra Sjálfstæðismanna, ráði íhaldið ríkjum þar í dag.
„Hins vegar er frjálshyggjuarmurinn algerlega horfinn úr íslenskum stjórnmálum og enginn sem heldur þeim hluta á lofti lengur“
Eiríkur segir alls ekki óþekkt í löndunum í kringum okkur að flokkar hafi nánast átt sviðið og aðrir flokkar í rauninni ekki átt aðra valkosti við stjórnarmyndun en að reyna sig við hann einan. „En núna hefur þessi breyting orðið og ekki auðvelt fyrir Guðrúnu að vinna með þá stöðu.“
Gímaldið ræddi við fólk í Sjálfstæðisflokknum og bar þessa greiningu Eiríks undir það. Flest sem rætt var við taka undir með Eiríki. Þessi togstreita sé vissulega til staðar. Flokkurinn hefur ekki enn gróið af því sári sem stofnun Viðreisnar var. „Það var bara rosaleg blóðtaka,“ varð einum viðmælanda að orði.
Það sé ekki aðeins missir af því fylgi sem fór til Viðreisnar heldur ekki síður því forystufólki í Sjálfstæðisflokknum sem yfirgaf flokkinn. Því þrátt fyrir „ranga skoðun“ í Evrópumálum hafi hópurinn sem hvarf á braut verið mjög öflugt fólk sem á hugmyndafræðilega mikla samleið með Sjálfstæðisflokknum.
Við klofninginn hafi líka sú breyting orðið að framámenn í atvinnulífinu voru ekki lengur allir í Sjálfstæðisflokknum eins og áður fyrr.

Þrátt fyrir að flokkurinn sé enn í sárum eftir stofnun Viðreisnar segja viðmælendur Gímaldsins að undanfarin ár hafi kjörnir fulltrúar flokksins verið mun uppteknari af Miðflokknum. Grasrót flokksins sé mun íhaldssamari en kjósendur hans og kjörnir fulltrúar fái stöðugt að heyra að Miðflokkurinn tali miklu skýrar í umdeildum málum eins og Bókun 35.
Þetta setji pressu á kjörna fulltrúa og valdi kvíða og jafnvel ótta við hvaða útspil Sigmundur Davíð og félagar hafi upp í erminni sem erfitt kunni að vera fyrir ábyrgt stjórnmálafólk að bregðast við.
Sjálfstæðisflokkurinn er nú í stjórnarandstöðu í fyrsta sinn síðan vinstri stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar var við völd á árunum 2009 til 2013. Reynsla af því að sitja í stjórnarandstöðu er ekki mikil í þingliði flokksins en aðeins tveir þingmenn flokksins voru á þingi í tíð vinstri stjórnarinnar.
Eðli málsins samkvæmt er allt öðruvísi starf að vera í stjórnarliði eða stjórnarandstöðu. Helsta hlutverk Sjálfstæðisflokksins nú er hvorki að stjórna né setja lög heldur að veita ríkisstjórninni aðhald.
Ekki fer flokkurinn vel af stað í því hlutverki ef marka má skoðanakannanir en samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallup mælist hann með 19,5 prósenta fylgi og í könnun Maskínu í þessum mánuði var fylgi flokksins aðeins 15,9 prósent.
„Sumarið fór rosalega illa með okkur,” sagði einn viðmælandi úr þingliði flokksins og vísar til málþófs sem flokkurinn stóð fyrir langt fram á sumar. Það hafi skaðað ímynd flokksins. Ef ekki hefði verið fyrir það, hefði ný forysta fengið betri byr í seglin við upphaf þings í haust en nú sé róðurinn heldur þungur.
Hins vegar viðurkenna viðmælendur að það læðist að þeim nokkur léttir að fá smá frí frá því að vera í stjórn. Þetta hafi verið erfitt lengi og fólk orðið þreytt á því að verja óvinsæl mál og óvinsælar ríkisstjórnir síðustu tólf ár.
Viðmælendur Gímaldsins telja stöðu Guðrúnar Hafsteinsdóttur almennt frekar þunga. Hún hafi ekki notið mikils persónufylgis í formannskjörinu heldur fremur notið stuðnings andstæðinga Áslaugar Örnu Sigurjónsdóttur, keppinautar síns. Það geti þrengt stöðu hennar að hún sé of háð Guðlaugi Þór Þórðarsyni þingmanni en það er á almannavitorði að hann sé leiðtogi stórrar hreyfingar í flokknum í Reykjavík. Prófkjörsbaráttan í borginni er oftar en ekki sú harðasta í flokknum og þar öttu síðast kappi Guðlaugur Þór og fyrrnefnd Áslaug Arna.
Almennt er fólk þó reiðubúið að gefa Guðrúnu tækifæri til að spreyta sig. Mannabreytingar sem hún hefur ráðist í mæta almennt skilningi þótt ýmsir lýsi pirringi og formaðurinn sagður hafa farið klaufalega að. Nokkurar óþreyju er hins vegar farið að gæta meðal flokksmanna, hún þykir of tvístígandi og fari hægt af stað í embætti formanns.
Sjálfstæðismenn velkjast ekki í neinum vafa um erfiða stöðu flokksins. Þeir sem rætt var við voru einlægir og opinskáir og augljóslega hugsi yfir stöðunni og leitandi um bæði skýringar og lausnir.
Einn segir það muni taka mörg ár fyrir flokkinn að rétta úr kútnum og kynslóðaskipti þurfi að verða meðal helsta áhrifafólks flokksins til að svo geti orðið. Flestir sem rætt var við virðast þó bera litla von í brjósti um að flokkurinn muni endurheimta sinn fyrri sess. Stjórnmálalandslagið sé varanlega breytt auk þess sem við lifum á víðsjárverðum tímum og stjórnmálin ekki eins stöðug í dag. Áður fyrr hefðu menn getað spáð fyrir um þróun mála með þokkalegri nákvæmni en nú geti allt gerst og ófyrirsjáanlegir atburðir haft mun meiri áhrif á gengi stjórnmálaflokka en áður. Því sé ómögulegt að segja hvernig flokknum muni farnast. Hann gæti til dæmis horfið alveg á höfuðborgarsvæðinu og breyst í landsbyggðarflokk.
En þótt Sjálfstæðismenn taki sínum eigin formanni með nokkrum fyrirvara, liggja þeir ekki á skoðunum sínum um formann Samfylkingarinnar, þegar nafnleynd er lofað. Flestir viðurkenna að hún sé öflugur stjórnmálamaður, sumir eru beinlínis fullir aðdáunar. Hún sé röggsöm og henni hafi tekist að hreinsa til í flokknum sínum, bæði hvað varðar mannskap og málefni án þess að missa flugið. Haldi hún vel á spöðunum verði hún í aðalhlutverki í íslenskum stjórnmálum næstu tíu til fimmtán ár.

Aðrir telja Kristrúnu þó hafa verið heppna með tímasetningu. Hún hafi gengið inn í ákveðið gat í pólitíkinni og slæm staða Sjálfstæðisflokksins hafi hjálpað henni.
Hún njóti þess hins vegar á yfirstandandi kjörtímabili að mæta lítilli andstöðu frá vinstri í þinginu og því sé í raun óreynt hvernig hún tekst á við mótlæti. Einn viðmælandi orðaði það þannig að mikilvægasta verkefni flokksins núna sé að halda Vinstri grænum í skefjum. Það þýði hins vegar að leyfa þurfi róttækum sjónarmiðum og umhverfisverndarsinnum að blómstra innan flokksins í samkeppni við iðnaðarkratana.
Þær standa ef til vill frammi fyrir sama verkefninu, formennirnir tveir, en Guðrún hefur talað fyrir því að sameina fjölbreytta flóru hægrisins aftur undir kjörorðinu stétt með stétt.
Eiríkur lýsir hins vegar efasemdum um þau markmið enda slíkar breiðfylkingar liðin tíð.
„Hugmyndir um hina víðfeðmu kirkju, að stjórnmálaflokkurinn hafi breiðan faðm og þar séu margar ólíkar vistarverur þar sem fólk með ólík sjónarmið nær saman um ákveðin grundvallargildi, þetta er að mörgu leyti bara liðin tíð í íslenskum stjórnmálum, nánast hvar sem þú stígur niður í flóru stjórnamálaflokkanna og eru auðvitað bara einhverskonar tákn samtímans. Ekki bara á Íslandi heldur mun víðar. Við hugsum ekki lengur um stjórnmálaflokka sem stórt mengi hugmynda þar sem margar raddir fá að hljóma í einu heldur eru þeir orðnir miklu þrengri hugmyndalegur vettvangur og miklu meiri krafa um einsleitni. Þess vegna er flokkakerfið að brotna upp.“
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.