Dagur leiðir vinnu um þörf fyrir breytingu á stjórnarskrá
Aðalheiður Ámundadóttir
4. nóvember 2025 – 08:16
Lestími: 11 mínútur
Þörf fyrir breytingu á stjórnarskránni er meginverkefni sérnefndar þingmanna undir forystu Dags B. Eggertssonar. Hlutverk nefndarinnar er að íhuga viðbrögð við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu um alþingiskosningarnar 2021. Kallað verður eftir viðhorfum breiðs hóps sérfræðinga.
Þörf fyrir breytingu á stjórnarskránni er meginverkefni sérnefndar þingmanna sem kosin var af Alþingi til að íhuga viðbrögð við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu um alþingiskosningarnar 2021.
Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar var kjörinn formaður nefndarinnar á fyrsta fundi hennar í miðjum síðasta mánuði.
„Við erum að hefja störf. Gert er ráð fyrir að starfi nefndarinnar verði áfangaskipt. Í fyrri áfanga þarf að svara spurningunni um það hvort niðurstöður Mannréttindadómstólsins ættu að leiða til breytinga á stjórnarskrá og hvort þær umbætur sem ráðist hefur verið í á undanförnum misserum og árum hafi áhrif í því sambandi,” segir Dagur.
Hann segir að í þessu skyni verði kallað eftir viðhorfum breiðs hóps sérfræðinga og öll gögn nefndarinnar verði aðgengileg á vef Alþingis eftir því sem vinnu nefndarinnar vindi fram.
Málsmeðferð á Alþingi braut gegn ákvæðum sáttmálans
Þann 16. apríl 2024 kvað Mannréttindadómstóll Evrópu upp dóm um kærur þeirra Guðmundar Gunnarssonar og Magnúsar Davíðs Norðdahl. Þeir voru báðir í framboði í kosningum til Alþingis árið 2021 og töldu sig hafa náð kjöri eftir að lokatölur voru lesnar upp í Norðvesturkjördæmi. Þeir duttu hins vegar út í endurtalningu sem framkvæmd var eftir hádegi á sunnudegi.
Með dómi Mannréttindadómstólsins var talið að málsmeðferð Alþingis í kjölfar þingkosninganna 2021 hefði brotið gegn rétti til frjálsra kosninga sem tryggð eru í mannréttindasáttmála Evrópu, með tvíþættum hætti.
Annars vegar hefðu engar reglur gilt um hagsmunaárekstra þeirra þingmanna sem tekið hefðu afstöðu til kærumála í kjölfar kosninga.
Hins vegar hefði Alþingi haft nánast ótakmarkað svigrúm til ákvarðanatöku varðandi kosningakærur, þar á meðal um hverjar afleiðingar ágalla á kosningunum ættu að vera. Þá hefði einnig verið brotið á rétti til raunhæfs úrræðis til að leita réttar síns.
Í dóminum er tekið fram að sáttmálinn geri ekki að algeru skilyrði að slíkt úrræði verði að vera dómstóll. Kæruréttur til Alþingis hefði í þessu tilviki ekki geta talist raunhæft úrræði þar sem engar reglur hefðu verið settar til að stemma stigu við hagsmunaárekstrum þeirra sem tóku afstöðu til kærumála og geðþótta valdi um hverjar afleiðingar galla á framkvæmd kosninga skyldu vera.
Endurtalning í Borgarnesi kom málinu af stað
Það var óvænt uppákoma í Borgarnesi um hádegisbil daginn eftir alþingiskosningarnar 2021 sem kom öllu málinu af stað. Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi voru lesnar upp í útvarpi og sjónvarpi snemma á áttunda tímanum á sunnudagsmorgni.
Eftir að þessar lokatölur bárust varð ljóst að mjög mjótt var á mununum við úthlutun jöfnunarsæta.
Öryggi kjörgagna í Norðvesturkjördæmi var ekki tryggt. Birt með leyfi Rúv/Ragnar Visage
Upp úr hádegi á sunnudeginum, nokkrum klukkustundum eftir upplestur á lokatölum, bárust þær fréttir frá yfirkjörstjórn í kjördæminu að talið hafi verið aftur nýjar lokatölur kynntar. Við það fór jöfnunarmannahringekjan af stað og nokkrir nýkjörnir þingmenn duttu aftur út af þingi og nýir jöfnunarþingmenn dottnir inn í staðinn.
Þessar sviptingar vöktu bæði furðu og reiði í hópi þeirra sem dottið höfðu út. Við nánari skoðun reyndist ýmislegt hafa farið úrskeiðis í Borgarnesi. Nokkrir þeirra frambjóðenda sem duttu út við endurtalningu kærðu málið til Alþingis eftir þar til gerðum reglum.
Niðurstaða nefndar á vegum þingsins komst að þeirri niðurstöðu að gallar hefðu verið á talningu í Norðvesturkjördæmi. Helst lutu þeir að meðferð og varðveislu kjörgagna þann tíma sem leið milli fyrri talningar og endurtalningar en einnig að öðrum þáttum, þar á meðal tilkynninga til umboðsmanna flokkana um að endurtalning yrði framkvæmd.
Í kjölfarið blasti það erfiða verkefni við Alþingi að ákveða hvaða talning ætti að gilda, eða hvort kjósa þyrfti á ný í kjördæminu. Að lokum var ákveðið að miða við endurtalninguna og í kjölfarið kærðu tveir frambjóðendur málið til Mannréttindadómstóls Evrópu.
Kæra þeirra varðaði einna helst meðferð Alþingis á málinu, enda blasti við að nýkjörið þing gat tæpast talist hlutlaust um gildi kosninganna.
Alþingi sker enn úr um gildi kosninga
Í gildandi stjórnarskrá segir að Alþingi skeri sjálft úr um gildi kosninga og af því leiðir að það er alltaf einhverskonar meirihluti á þingi sem þarf að staðfesta eigið kjör eða lögmæti eigin kjörs.
Guðrún taldi breytingar á stjórnarskrá nauðsynlegar en hún var dómsmálaráðherra þegar dómur var kveðinn upp. Birt með leyfi Rúv/Ragnar Visage
Í ljósi þessa virðist liggja beinast við að gera breytingar á stjórnarskrá, því lagabreytingar sem gerðar væru til að fela öðrum en Alþingi úrskurðarvald um gildi kosninga, færu óhjákvæmilega gegn þessu ákvæði stjórnarskrárinnar.
Þess má geta að strax í kjölfar þess að Mannréttindadómstóllinn birti niðurstöðu sína sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra en núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins að gera þyrfti breytingar á stjórnarskrá til að bregðast við niðurstöðunni. Flestir fræðimenn hafa tekið í sama streng.
„Í fyrri áfanga þarf að svara spurningunni um það hvort niðurstöður Mannréttindadómstólsins ættu að leiða til breytinga á stjórnarskrá”
Dómstóllinn sjálfur tekur ekki af skarið um það heldur lætur innlendum stjórnvöldum eftir að ákveða hvernig bregðast skuli við og tryggt verði að framkvæmdin sé í samræmi við sáttmálann.
Nokkrar umbætur verið gerðar eftir dóminn
Í svari við fyrirspurn Gímaldsins, segir Dagur að þörf fyrir breytingu á stjórnarskrá verði metin, meðal annars í ljósi þeirra umbóta sem þegar hafi verið gerðar eftir að dómurinn var kveðinn upp í Strassborg.
Inntur nánar eftir þeim umbótum nefnir Dagur meðal annars ákvæði í nýjum kosningalögum sem tóku gildi 1. janúar 2022.
Þar sé meðal annars kveðið á um sjálfstæða stjórnsýslunefnd sem hafi yfirumsjón með framkvæmd allra kosninga. Hún hafi meðal annars það hlutverk að leggja fyrir Alþingi rökstudda umsögn um kosningakærur, mat á kjörgengi og gildi ágreiningsseðla, en með þessu sé leitast við að mál sé sem best upplýst og að fyrir liggi sjónarmið og þær röksemdir sem kæra um gildi kosninga byggist á og þau sjónarmið sem leggja beri til grundvallar við mat á gildi ágreiningsseðla.
Þá hafi verið settar reglugerðir til að tryggja samræmda og trygga framkvæmd kosninga meðal annars um talningu atkvæða, um kjörgögn og önnur aðföng við kosningar, gerðabækur kjörstjórna og innsigli við kosningar.
„Við munum kalla eftir viðhorfum breiðs hóps sérfræðinga og öll gögn nefndarinnar verða aðgengileg á vef Alþingis eftir því sem verkinu vindur fram,” segir Dagur.
Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar. Mynd/Ragnar Visage/RÚV
Fræðsla hafi verið aukin fyrir kjósendur, frambjóðendur, kjörstjórnir, umboðsmenn stjórnmálasamtaka og fjölmiðla.
Og að lokum hafi lögum um þingsköp Alþingis verið breytt og grundvöllur undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar treystur, kveðið nánar á um valdheimildir nefndarinnar og áréttuð þau viðmið sem nefndinni ber að fylgja við störf sín.
Óvíst er að framangreindar umbætur dugi til að alþingiskosningar hér á landi geti talist í samræmi við Mannréttindasáttmála Evrópu. Það er verkefni nefndarinnar að leggja mat á það.
Aðspurður segist Dagur ekki getað svarað því hvenær áætlað sé að vinnu nefndarinnar ljúki enda muni það ráðast af ýmsu, þar á meðal niðurstöðu fyrri áfangans; um hvort þörf sé talin á breytingum á stjórnarskrá.
Kæri lesandi Gímaldsins
Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.
Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.