Hækkandi fæðingartíðni fjölmiðla

Lestími: 3 mínútur

Sjöundi dagur Gímaldsins er runninn upp. Við horfum björtum augum fram á veginn en hvetjum öll og ömmu þeirra til að gerast áskrifendur. Það er besta leiðin til að koma fjölmiðli á legg.

Gímaldið hrökk í gang 30. október síðastliðinn og viðbrögðin hafa satt að segja farið langt fram úr vonum. Sex dagar í loftinu og margt búið að gerast. Í gær upplifðum við það að vefurinn okkar þoldi ekki álagið og við duttum úr loftinu í einhverjar mínútur. Þetta var þó lagað í snarhasti og netþjónn sem hýsti Gímaldið hefur verið stækkaður til að minnka líkur á að staðan komi upp aftur. Við greinilega litum ekki nógu stórt á okkur!

Gímaldið er fjölmiðill í mótun. Eftir því sem staflinn af birtu efni verður hærri verður karakter miðilsins greinilegri. Við viljum birta greiningar, fréttaskýringar og hlaðvörp, en reyna að tapa ekki gleðinni og leyfa okkur að vera skemmtileg líka. Oft mun okkur takast vel til en svo verðum við eflaust mistæk eins og gengur og birtum inn á milli eitthvað sem enginn nennir að lesa eða hlusta á. Þá er líka í góðu lagi að áskrifendur láti okkur heyra það. 

Fjölmiðlar hafa víðtækt hlutverk í samfélaginu og það er eðlilegt að almenningur fylgist vel með þeim og hafi á þeim skoðun. Þannig á það að vera. Verst er fyrir fjölmiðil ef öllum er sama um hann, þá fyrst er ástæða til að hafa áhyggjur. 

Nýr fjölmiðill er ekki settur í loftið til höfuðs öðrum fjölmiðlum. Þvert á móti lítum við svo á að með okkar framtaki séum við að bætast „á vaktina“ og stuðla að enn öflugri umfjöllun um innlend og erlend málefni. Meiri breidd, meira efni á íslensku, fleiri blaðamenn að störfum – vonandi öllum til heilla. Okkur dreymir um að efla samtal, skýra út og dýpka umræðuna. Hvernig okkur tekst upp verður tíminn að leiða í ljós. Okkur langar að gera meira fyrir áskrifendur, meðal annars auka framboð af hljóðefni, þannig að hægt sé að hlusta á greinar með þægilegum hætti. Við reynum að taka einn dag í einu og bæta framboð efnis jafnt og þétt.

Í dag er sjöundi starfsdagur Gímaldsins. Við erum búin að fjalla um stjórnmál, tungumálið, lýðheilsu, bækur og sitthvað fleira á þessum fyrstu dögum. Tvö hlaðvörp eru farin af stað og það þriðja fer senn í loftið. Bókapressan verður miðstöðu umfjöllunar um bækur hjá Gímaldinu og þátturinn Sirkabát fer senn af stað en í honum verður rýnt í tölurnar á bak við fyrirsagnirnar.

Fréttabréf Gímaldsins eru líka í mótun og á næstu vikum langar mikið til að fara að hitta áskrifendur. Til þess að svo megi verða er líklega réttast að við bjóðum í heimsókn. Við auglýsum fyrsta viðburð Gímaldsins innan fárra daga og vonumst til að umræðukvöld af ýmsu tagi geti orðið mikilvægur hluti af starfseminni. 

Efni Gímaldsins er fyrir áskrifendur. Fjölmiðlar þurfa víst fé til að geta lifað, og við keppumst nú við að byggja upp sterkan tekjugrunn með því að hvetja fólk til að gerast áskrifendur að nýfæddum fjölmiðli. Í sameiningu komum við ferskum fjölmiðli á legg.

Takk áskrifendur, þið eruð hetjurnar okkar. Áfram og upp!

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 5. nóvember, 2025, 09:41

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link