Vill end­ur­bætta stjórn­ar­skrá í af­mæl­is­gjöf ár­ið 2030

Lestími: 13 mínútur

Fyrr­ver­andi for­seti tel­ur stríð­andi fylk­ing­ar, deil­ur um auð­lind­ir og al­gera kröfu um víð­tæka sátt, hafi stað­ið breyt­ing­um á stjórn­ar­skrá fyr­ir þrif­um.

Guðni Th. Jó­hann­es­­son, fyrrverandi forseti Íslands, tel­­ur synj­un­ar­vald stríð­andi fylk­ing­­a, deil­­ur um auð­lind­a­á­kvæði og al­­gera kröfu um víð­tæka sátt, hafa stað­ið breyt­ing­­um á stjórn­­­ar­­skrá fyr­­ir þrif­­um. Hann legg­­ur til að þjóð­in fái end­­ur­­skoð­aða stjórn­­­ar­­skrá ár­ið 2030, á 1100 ára af­­mæli Al­­þing­­is. Þetta kom fram í er­indi sem for­­set­inn fyrr­ver­andi hélt í Há­­skól­an­­um á Ak­­ur­eyri í síð­­­ustu viku.

Er­indi Guðna bar yf­ir­skrift­ina: Af hverju er ekki leng­ur hægt að breyta stjórn­ar­skrá lýð­veld­is­ins? En með spurn­ing­unni vís­aði Guðni til lof­orðs um heild­ar­end­ur­skoð­un stjórn­ar­skrár­inn­ar sem gef­ið var í að­drag­anda lýð­veld­is­stofn­unn­ar 1944 og velti því fyr­ir sér af hverju hún hefði ekki enn tek­ist nú rúmum 80 árum síðar.

Sam­an­dreg­ið svar Guðna var að tvær fylk­ing­ar hefðu tek­ið sér synj­un­ar­vald og kæmu með því í veg fyr­ir breyt­ing­ar. Póli­tísk deilu­efni eink­um um auð­linda­á­kvæði hafi líka spillt fyr­ir. Þá sé al­ger krafa um að breyt­ing­ar séu gerð­ar „í sátt og sam­lynd­i“ ef til vill mesta and­stöðu­afl breyt­inga á stjórn­ar­skrá.

Sam­staða þjóð­ar­inn­ar skipti öllu í upp­hafi

Lof­orð­ið um heild­ar­end­ur­skoð­un kom til vegna þess að þeg­ar Ís­lend­ing­ar lýstu yf­ir sjálf­stæði í miðri seinni heim­styrj­öld töldu menn af­ar brýnt, að­stæðna vegna að þjóð­in lýsti sem mestri sam­stöðu um þann vilja sinn að stofna lýð­veld­i.

Lýð­veldi var stofn­að á Þing­völl­um ár­ið 1944. Sam­staða um nýja stjórn­ar­skrá skipti öllu máli og því var beð­ið með gagn­ger­ar breyt­ing­ar. Mynd/­Þjóð­minja­safn Ís­lands.

„Þess vegna var um það rætt og um það samið í þing­sal að engu yrði breytt í stjórn­ar­skránni nema því sem nauð­syn­legt væri til að breyta kon­ungs­ríki í lýð­veld­i,“ sagði Guðn­i. Svo yrði tek­ið til við end­ur­skoð­un stjórn­ar­skrár­inn­ar eft­ir stofn­un lýð­veld­is.

Þetta heppn­að­ist að því leyti að sam­stað­an var nær al­ger, tæp 99 pró­sent lands­manna greiddu at­kvæði með nýrri stjórn­ar­skrá í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. En end­ur­skoð­un­in sem lof­að var hef­ur ekki enn far­ið fram, þótt fyrstu ár­in hafi reglu­lega ver­ið minnt á það. Til dæm­is Sveinn Björns­son sem kvart­aði und­an því í nýársávarpi ár­ið 1959 að ekk­ert bóli enn á þeirri stjórn­ar­skrá sem lof­að hafi ver­ið og von­andi drag­ist það ekki of leng­i.

En þetta dróst og dróst. Ýmsu hef­ur þó ver­ið breytt í stjórn­ar­skránn­i. Guðni nefndi til dæm­is að deilda­skipt­ing al­þing­is var af­num­in1991 og við sama tæki­færi var gerð sú breyt­ing að þing­menn halda áfram um­boði sínu þótt þing sé rof­ið. Nýr mann­rétt­inda­kafli tók gildi 1995 og ákvæð­um um kjör­dæma­skip­an hef­ur þrí­veg­is ver­ið breytt í stjórn­ar­skrá.

Vanda­mál­ið er kóng­ur­inn ekki dansk­an

Þrátt fyr­ir þess­ar breyt­ing­ar standi meg­in­kafl­inn enn nán­ast óhreyfð­ur; Kafl­inn um hina eig­in­legu stjórn­skip­un lands­ins, um þjóð­höfð­ingja og sam­band hans við aðra vald­hafa. Í er­indi sínu staldr­aði Guðni lengst við þenn­an meg­in­kafla stjórn­ar­skrár­inn­ar enda sé það hann ekki síst sem þarfn­ist end­ur­skoð­un­ar. Um­fjöll­un Guðna um þenn­an meg­in­kafla stjórn­ar­skrár­inn­ar er stór­skemmti­leg en hægt er að hlusta á er­indi hans í heild hér.

Guðni tel­ur það ekki helsta ágalla stjórn­ar­skrár­inn­ar að hún sé dönsk, þótt marg­ir hafi am­ast við því gegn­um tíð­ina. Meg­in­vanda­mál­ið að mati Guðna er að hún skrif­uð fyr­ir kon­ungs­ríki en ekki lýð­veld­i. Það geti skap­að ákveð­in vand­kvæð­i.

Guðni lýs­ir svo þess­um vand­kvæð­u­m. Kafl­inn sé byggð­ur upp eins og for­seti hafi geysi­leg völd sem svo séu tek­in af hon­um með skýr­ing­um um hvers vegna hann hafi þau ekki leng­ur. „Úr verð­ur flók­in blanda sem erfitt er að henda reið­ur á,“ sagði Guðn­i.

Synj­un Ólafs setti allt í skrúf­una

Ólaf­ur Ragn­ar Gríms­son hafði mik­il áhrif á hug­mynd­ir um for­seta­emb­ætt­ið er hann synj­aði lög­um stað­fest­ing­ar í fyrsta sinn ár­ið 2004.

Guðni sagði end­ur­skoð­un þessa kafla hafi aft­ur orð­ið mönn­um hug­stæð upp úr alda­mót­um og þá með það mark­mið að færa kafla um þjóð­höfð­ingja nær raun­veru­leika ís­lenskr­ar stjórn­skip­un­ar.

„Þetta varð ekki til lykta leitt vegna þess að það gerð­ist dá­lít­ið,“ seg­ir Guðni kím­inn og vís­ar til þess þeg­ar Ólaf­ur Ragn­ar Gríms­son, þá­ver­andi for­seti ákvað að synja lög­um stað­fest­ing­ar í fyrsta sinn ár­ið 2004. Vökn­uðu þá ný lög­fræði­leg álita­mál.

Þótt eng­inn velk­ist nú í vafa um þetta vald for­seta, var því alls ekki svo far­ið þá. Fóru all­ar um­ræð­ur um stjórn­ar­skrár­breyt­ing­ar í skrúf­una upp úr þessu, því um­ræð­an um synj­un­ar­vald­ið varð svo yf­ir­þyrm­and­i.

Tvær fylk­ing­ar með synj­un­ar­vald

„Svo kom hrun­ið með ákalli um nýtt lýð­veld­i, nýja stjórn­ar­skrá. Stjórn­laga­þing sem varð stjórn­laga­ráð samdi til­lögu að nýrri stjórn­ar­skrá og færði þing­inu en svo stopp­aði það allt sam­an­,“ sagði Guðni og leit­að­ist svo við að svara að­al­spurn­ingu sinn­i:

„Síð­an þá höf­um við hald­ið áfram í ákveðn­um hjól­för­um sem við komumst ekki upp úr og ég myndi nán­ast líta á það þannig að á síð­ustu ár­um og ára­tug hafa tvær fylk­ing­ar haft synj­un­ar­vald. Ann­ars veg­ar þau sem segja að engu þurfi að breyta og hins veg­ar þau sem segja að öllu þurfi að breyta. Og við lend­um alltaf í eld­lín­unni milli stríð­andi fylk­inga, við skyn­sama fólk­ið sem vilj­um mála­miðl­an­ir og áfanga­sigr­a. En ekk­ert ger­ist.“

„Síð­an höf­um við hald­ið áfram í ákveðn­um hjól­för­um sem við komumst ekki upp úr“

Guðni nefndi í dæma­skyni vin sinn Birgi Ár­manns­son, fyrr­ver­andi al­þing­is­mann og for­seta Al­þing­is. Guðni líkti eft­ir Birgi í lands­föð­ur­leg­um tón: „Vissu­lega þarf að skoða viss­ar end­ur­bæt­ur á stjórn­ar­skrá en hér þarf að vanda til verka og taka sér næg­an tíma.“ Guðni ít­rek­aði svo að þeg­ar Birg­ir tali um ‚næg­an tíma‘ þá sé hann að hugsa í ára­tug­um.

Guðni gerði góð­lát­legt grín að vini sín­um og sagði að þeg­ar Birg­­ir Ár­manns­son tali um ‚næg­­an tíma‘ þá sé hann að hugsa í ára­tug­­um. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Á móti Birgi og fé­lög­um standi svo bylt­ing­ar­sinn­arn­ir sem segi allt ónýtt og það þurfi nýja stjórn­ar­skrá frá grunni og það strax.

á með­an þess­ar fylk­ing­ar voru að takast á missti fólk hrein­lega áhuga á mál­in­u. Guðni rifj­aði upp er­indi sem hann hélt á fundi hjá Stjórn­ar­skrár­fé­lag­inu ár­ið 2015. „Glugg­inn er bú­inn að lokast,“ sagði ég. Það er ekki leng­ur krafa í sam­fé­lag­inu um þessa bylt­ingu sem var svo rík ár­in 2009, 2010 og 2011. Þessi bylt­ing­ar­and­i, hann þvarr.“

Þetta megi sjá í skoð­ana­könn­un­um um þau mál sem brenni á fólki en þar sé stjórn­ar­skrár­mál­ið kom­ið mjög aft­ar­lega á mer­ina.

Sam­setn­ing Al­þing­is eft­ir síð­ustu kosn­ing­ar sýni þetta lík­a. Þar sé ekki leng­ur sterkt ákall um breyt­ing­ar á stjórn­ar­skrá. Pírat­ar eigi ekki full­trúa á þingi og Sam­fylk­ing­in sem hafi áð­ur hald­ið mál­inu mjög á lofti hafi aðr­ar áhersl­ur í dag.

Ákvæði um auð­lind­ir þránd­ur í götu

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir, fyrr­ver­andi þing­mað­ur, var í saln­um, og í um­ræð­um eft­ir fram­sögu Guðn­a, benti hún á að það væru ekki ein­göngu stríð­andi fylk­ing­ar um allt eða ekk­ert sem stöðv­að hefðu breyt­ing­ar held­ur líka af­staða til ein­stakra mála. Nefndi hún sér­stak­lega til­lög­ur um auð­linda­á­kvæði sem allt hafi strand­að á í til­raun­um til breyt­inga.

„Auð­linda­á­kvæði get­ur bara spillt fyr­ir allri annarri vinn­u.“

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir var með­al þeirra sem á hlýddu og benti á að einnig hafi strand­að á deil­um um auð­linda­á­kvæð­i. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Guðni tók und­ir þetta. „Ég hygg að þetta skipti máli og það yrði miklu erf­ið­ara að þoka áfram breyt­ing­um á kafl­an­um um þjóð­höfð­ingj­ann […] ef við líka tök­um slag­inn um auð­linda­á­kvæð­ið. Sem er nota bene það eina sem nú­ver­andi rík­is­stjórn minn­ist á þeg­ar vik­ið er að stjórn­ar­skrár­breyt­ing­um í sátt­mála henn­ar,“ sagði Guðni og kjarn­aði svar sitt:

„Stutta svar­ið er, auð­linda­á­kvæði get­ur bara spillt fyr­ir allri annarri vinn­u.“ Guðni nefndi einnig fram­sals­á­kvæð­i, sem skap­að hef­ur vanda­mál vegna fram­kvæmd­ar al­þjóð­legra skuld­bind­inga hér á landi en ekki hef­ur reynst mögu­legt að koma slíku ákvæði í stjórn­ar­skrá vegna ótta við að það verði nýtt til inn­göngu í Evr­ópu­sam­band­ið.

„Þarna koma inn hápóli­tísk­ar deil­ur sem myndu gera allt svo miklu erf­ið­ar­a.“

Krafa um sátt helsta and­stöðu­aflið

Guðni við­ur­kenndi að ákvæð­in um hvern­ig breyta megi stjórn­ar­skránni séu erf­ið. Fyrst þurfi sam­þykki þings, svo ber að rjúfa þing og næsta þing stað­festi svo breyt­ing­arn­ar áð­ur en þær ganga í gild­i. En þetta sé hins veg­ar ekki það erf­ið­asta við breyt­ing­ar á stjórn­ar­skrá.

„Við höf­um bú­ið til þá kenn­ingu að það megi bara breyta stjórn­ar­skrá í sátt og sam­lynd­i. Og það er hið sterka and­stöðu­afl, ekki endi­lega breyt­inga­á­kvæði stjórn­ar­skrár­inn­ar,“ sagði Guðni og hélt áfram í ákafa: „Og þetta er bara ekki satt. Það er bara ekki satt að stjórn­ar­skrá hafi alltaf ver­ið breytt í sátt og sam­lynd­i,“ sagði Guðni og rifj­aði upp breyt­ing­ar á stjórn­ar­skrá um kjör­dæma­skip­an bæði ár­ið 1942 og 1959 en mikl­ar deil­ur hafi stað­ið um þær breyt­ing­ar sem af­greidd­ar voru gegn­um al­ger­lega sundruð þing.

„Það er bara ekki satt að stjórn­ar­skrá hafi alltaf ver­ið breytt í sátt og sam­lynd­i“

„Þannig að við verð­um kannski að losna und­an því oki lík­a. Við get­um ekki leyft að hver og einn sem er á mót­i, finnst þetta ekki nóg eða of mik­ið, segi bara, „ég er ekki sátt­ur“ og þá ger­ist ekki neitt. Það þarf bara að stíga yf­ir þann þrösk­uld og þá mun kannski eitt­hvað ger­ast,“ sagði Guðni og bætti við: „Við þurf­um að finna milli­veg­inn.“

Guðni benti á dæmi þess að reynt hafi ver­ið að ráð­ast í end­ur­skoð­un við sér­stök til­efn­i. Til dæm­is hafi ver­ið uppi hug­mynd­ir um slíkt ár­ið 1974 í til­efni af 1100 ára Ís­lands­byggð­ar, en ekk­ert orð­ið af því. Hann benti svo fimm ár fram í tím­ann til árs­ins 2030 þeg­ar ell­efu ald­ir verða frá stofn­un Al­þing­is. „Hvern­ig væri að reyna einu sinni enn?“

„Hvern­ig væri að reyna einu sinni enn?“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 28. nóvember, 2025, 15:10

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link