Fram­sókn og tím­inn: Þol­in­móð­asti flokk­ur lands­ins bíð­ur fær­is

Lestími: 20 mínútur

Nú er hægt að hlusta á um­fjöll­un Gímalds­ins um móral­inn í Fram­sókn í til­efni af for­manns­kjöri í flokkn­um um helg­ina. ­ Fram­­­sókn­­­ar­­­fólk seg­­­ir kjós­­­end­­­ur hafa feng­ið nóg af flokkn­­­um og for­ystu hans. Nú þurfi bara að bíða eft­­­ir réttu tæki­­­færi til inn­­­komu á ný. Það gæti skap­­­ast með nýrri for­yst­u.

*Þessi grein birt­ist nóv­em­ber 2025 en var les­in inn 12. febr­ú­ar 2026. Eng­ar breyt­ing­ar hafa ver­ið gerð­ar á efni grein­ar­inn­ar, en í lestr­in­um verð­ur get­ið um breyt­ing­ar sem orð­ið hafa síð­an hún birt­ist. Þar er helst að nefna nöfn þeirra sem bjóða sig fram til for­manns og þeirra sem ákváðu að gera það ekki.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn galt versta af­hroð í rúm­lega hund­rað ára sögu flokks­ins í síð­ustu alþingiskosn­ing­um. Nið­ur­stað­an var 7,8 pró­sent at­kvæða á lands­vísu og fimm kjörn­ir full­trú­ar. Flokk­ur­inn er nú ut­an stjórn­ar, hlut­skipti sem flokk­ur­inn á ekki að venj­ast og eft­ir eitt ár í stjórn­ar­and­stöðu hef­ur fylg­ið ekk­ert glæð­st held­ur þvert á mót­i.

Gímald­ið heldur áfram umfjöllun um stjórnmálaflokkana og tekur nú hús á áhrifa­fólki og al­menn­um flokks­fé­lög­um í Fram­sókn­ar­flokkn­um og ræðir stöðu hans við Ólaf Þ. Harð­ar­son, pró­fess­or í stjórn­mála­fræð­i.

„Fólk var bara orð­ið svo þreytt á okk­ur,“ seg­ir fram­sókn­ar­mað­ur sem Gímald­ið ræddi við um nið­ur­stöðu síð­ustu al­þing­is­kosn­inga. Að und­an­skild­um nokkrum mán­uð­um ár­ið 2017, hafði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ver­ið í rík­is­stjórn í 12 ár og lengst af með sama for­ystu­fólk í brúnn­i.

Við­mæl­end­ur Gímalds­ins eru sam­mála um að kjós­end­ur hafi vilj­að breyt­ing­ar. Þeim flokk­um sem buðu upp á mesta end­ur­nýj­un á list­um hafi geng­ið best í kosn­ing­un­um.

Þessi þreyta gagn­vart þaul­setnu stjórn­mála­fólki eigi ekki bara við um Fram­sókn­ar­flokk­inn. Vinstri græn og Pírat­ar hafi líka að mestu boð­ið upp á sama fólk­ið í for­ystu­sæt­u­m. Þess­um flokk­um var öll­um hafn­að.

Katrín Jak­obs­dótt­ir sé þó ef til vill besta dæm­ið um þreyt­una, þrátt fyr­ir að vera einn ást­sæl­asti stjórn­mála­mað­ur lands­ins um langt skeið hafi henni ekki tek­ist að sigra í kjöri til emb­ætt­is for­seta Ís­lands.

Stefn­unni stolið

Við­mæl­end­ur Gímalds­ins rök­styðja fram­an­greinda álykt­un um framsóknarþreytu, líka með vís­an til stefnu flokk­anna. Mál­efna­lega hafi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn ekki boð­ið upp á lak­ari stefnu fyr­ir síð­ustu kosn­ing­ar. Stefna Fram­sókn­ar hafi ver­ið mjög áþekk áhersl­um sig­ur­sælu flokk­anna, þótt ein­hver áherslu­mun­ur hafi ver­ið í skatta­mál­um og ólík sjón­ar­mið um Evr­ópu­mál.

„Fólk var bara orð­ið svo þreytt á okk­ur“

„Stjórn­mál eru sam­keppni í hug­mynd­um og hug­mynda­fræð­i. Kosn­ing­arn­ar 2021 og 2022 gengu svaka­lega vel hjá okk­ur og í kjöl­far­ið fóru all­ir inn á miðju. Flokk­arn­ir sem eru í sókn gátu bara tek­ið miðj­una af okk­ur og urðu fyr­ir val­inu af því að fólk var orð­ið svo þreytt á fram­bjóð­end­un­um okk­ar.“

Sam­fylk­ing­in hafi les­ið hár­rétt í stöð­una. Flokk­ur­inn hafi fært sig mjög inn að miðju og sagt skil­ið við mörg af sín­um helstu stefnu­mál­um eins og að­ild að Evr­ópu­sam­band­in­u, til að ganga bet­ur í augu kjós­enda. Með fjölda nýrra and­lita á list­um flokks­ins hafi það plan geng­ið upp.

Fólk nefn­ir einnig að það hafi kom­ið flokkn­um mjög illa að síð­asta rík­is­stjórn hafi ekki get­að þrauk­að út kjör­tíma­bil­ið og boð­að hafi ver­ið til skyndi­kosn­inga. Það hafi enda kom­ið á dag­inn að plan Bjarna Bene­dikts­son­ar klikk­aði og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tap­aði líka í kosn­ing­un­um. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arn­ir hafi ver­ið bet­ur und­ir­bún­ir fyr­ir kosn­ing­ar.

Ágrein­ing­ur í rík­is­stjórn­inni und­ir það síð­asta og skyndi­kosn­ing­ar komu sér sér­tak­lega illa fyr­ir Fram­sókn og raun­ar alla stjórn­ar­flokk­ana. Þeim var harð­lega refs­að í síð­ustu kosn­ingunum. Þetta er hinum að kenna að mati Framsóknar. VG var alltaf að rífast og Bjarni boðaði of snemma til kosninga. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Þá hafi líka lask­að þá­ver­andi stjórn­ar­flokka og for­ystu­fólk þeirra hve ágrein­ing­ur í rík­is­stjórn­inni varð op­in­ber und­ir það síð­asta. „Fólk var ekki að nenna því leik­rit­i,“ segja fram­sókn­ar­menn.

Eft­ir því sem líð­ur frá kosn­ing­um hef­ur gremj­an yf­ir stjórn­ar­slit­un­um smám sam­an vik­ið fyr­ir raun­veru­leika sem horfast þurfi í augu við. Fólk var orð­ið þreytt á Fram­sókn og for­yst­unni og vildi ný and­lit og aðra flokka. Þetta hafi ekki bara ver­ið að ger­ast á Ís­land­i. Rík­is­stjórn­ir víða um heim lifi sjaldn­ast kosn­ing­ar af.

Í vond­um fé­lags­skap

Nú er heilt ár lið­ið frá kosn­ing­um og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist ekki hafa náð að fóta sig þannig í stjórn­ar­and­stöðu að eft­ir sé tek­ið. Flokk­ur­inn mæld­ist með 5,5 pró­senta fylgi í síð­asta Þjóð­ar­púlsi (fyrir október) sem var þó ör­lít­il fram­för, því í ágúst fékk Fram­sókn verstu mæl­ingu í rúm­lega 30 ára sögu Þjóð­ar­púls­ins, 4,5 pró­sent sem dygði ekki til að ná manni á þing.

„Við þurf­um bara að bíða að­eins. Það nenn­ir eng­inn að hlusta á okk­ur nún­a,“ seg­ir áhrifa­mað­ur í flokkn­um. Það taki tíma að vinda of­an af þreytu lands­manna á ráða­mönn­um sem höfðu ver­ið lengi á svið­in­u. „Við þurf­um ör­ugg­lega að bíða í heilt ár í við­bót, jafn­vel leng­ur.“

En hvern­ig á flokk­ur­inn þá að sinna hlut­verki sínu í stjórn­ar­and­stöð­u? Það er vand­rat­að­ur veg­ur að mati við­mæl­enda Gímalds­ins. Það sé vand­með­far­ið að vera í stjórn­ar­and­stöðu og veita rík­is­stjórn­inni að­hald en vera ekki „öm­ur­lega leið­in­leg­ur“ alla daga eins og hin­ir flokk­arn­ir í stjórn­ar­and­stöð­u. Þetta sé ekki góð­ur fé­lag­s­kap­ur fyr­ir Fram­sókn.

„Við þurf­um bara að bíða að­eins. Það nenn­ir eng­inn að hlusta á okk­ur nún­a“

Fram­sókn­ar­menn tala ein­um rómi gegn því að flokk­ur­inn fari á taug­um gagn­vart þeim flokk­um sem eru „í kapp­hlaupi út á hægri væng­inn í út­lend­inga­mál­um eða ein­hverri óttapóli­tík sem gagn­ast eng­um og skemm­ir bara fyr­ir okk­ur sem sam­fé­lag­i.“ Það sé ein­hver óskilj­an­leg ör­vænt­ing í þessu kapp­hlaupi Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks­ins, eins og það séu kosn­ing­ar á morg­un.

Flokks­fólk reyn­ir að sýna still­ingu

En eru all­ir jafn þol­in­móð­ir? Hvað segja al­menn­ir flokks­fé­lag­ar úti um land, sætta þeir sig við að flokk­ur­inn bíði bara ró­leg­ur eft­ir rétta tæki­fær­inu til að kom­ast aft­ur í tísku, eft­ir því að fram­sókn­ar­þreyt­an líði úr lands­mönn­um?

Nei auð­vit­að hafa ver­ið átök og þetta hef­ur reynt mjög á, að sögn við­mæl­enda Gímalds­ins. For­yst­an hafi geng­ið svipu­göng­in á fund­um víða um land eft­ir kosn­ing­ar og hlust­að á óá­nægju flokks­manna. Auð­vit­að hafi ein­hverj­ir ver­ið með hjart­að í bux­un­um á fund­um að segja, „Við verð­um að vera meira svona og meira hinseg­in,“ en ein­hvern veg­inn virð­ast flokks­menn samt ná að anda í kvið­inn og sýna still­ing­u; já þol­in­mæð­i. Þótt þeir vilji breyt­ing­ar.

Tóma­rúm í for­ystu flokks­ins hjálp­ar ekki. Nú liggur fyrir að for­manns­skipti verða í flokkn­um í febrúar næstkomandi og á með­an sitj­andi for­mað­ur er á út­leið og ekki er vitað hver tek­ur við, er eng­in for­ysta í flokkn­um sem get­ur tek­ið af skar­ið um hvert skuli halda.

„Fram­sókn­ar­mað­ur­inn þrífst ekk­ert mjög vel í mik­illi óvissu en hann er til í breyt­ing­ar en veit ekki al­veg hvaða breyt­ing­ar af því for­ystu­fólk­ið er ekki bú­ið að segja hvað það ætl­ar að ger­a,“ seg­ir einn við­mæl­enda. Nú bíði fólk þess að ný for­ysta ver­ið kjör­in.

Stjórn­sæk­inn miðju­flokk­ur

„Það hef­ur alltaf ver­ið ein­kenni Fram­sókn­ar­flokks­ins að hann hef­ur ver­ið ákaf­lega stjórn­sæk­inn, það er að segja hann vill sitja í rík­is­stjórn­,“ seg­ir Ólaf­ur Þ. Harð­ar­son pró­fess­or í stjórn­mála­fræð­i. Ef frá eru tald­ir nokkr­ir mán­uð­ir ár­ið 2017 hef­ur flokk­ur­inn að­eins átt tvö stjórn­ar­and­stöðu­skeið frá ár­inu 1971, en ann­ars alltaf ver­ið í rík­is­stjórn.

Flokk­ur­inn hef­ur alltaf skil­greint sig á miðj­unni en fær­ist oft ör­lít­ið eft­ir því hvern­ig vind­ar blása og eft­ir áhersl­um for­ystu flokks­ins hverju sinn­i. Ólaf­ur minn­ist þess þeg­ar báð­ir voru í for­ystu flokks­ins, Her­mann Jón­as­son og Ey­steinn Jóns­son. þá hafi ver­ið tal­að um að Her­mann brosti meira til vinstri en Ey­steinn til hægri.

Ólaf­ur Þ. Harð­ar­son, pró­fess­or í stjórn­mála­fræð­i, seg­ir að Fram­sókn þurfi ekki að hafa áhyggj­ur af Mið­flokkn­um. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge.

Ólaf­ur vís­ar til ís­lensku kosn­inga­rann­sókn­ar­inn­ar. Sam­kvæmt henni skil­greini kjós­end­ur Fram­sókn­ar­flokk­inn rétt hægra meg­in við miðju og við­horf kjós­enda flokks­ins séu þar einnig.

Í gegn­um tíð­ina hafi flokk­ur­inn ým­ist set­ið í stjórn með Sjálf­stæð­is­flokkn­um eða vinstri flokk­un­um. „Það voru kall­að­ar vinstri stjórn­ir ef Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn var ekki í þeim,“ svar­ar Ólaf­ur.

Sam­kvæmt þeirri skil­grein­ingu hafi flokk­ur­inn hall­ast mun meira til hægri á und­an­förn­um ára­tug­um og ekki ver­ið í eig­in­legri vinstri stjórn síð­an Stein­grím­ur Her­manns­son leiddi slíka stjórn á ár­un­um 1988 til 1991.

Fram­sókn marki sér sér­stöðu

„Ég þótt­ist nú sjá það fyr­ir síð­ustu kosn­ing­ar að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn væri að brosa of­ur­lít­ið til vinstri,“ seg­ir Ólaf­ur. Það hafi ver­ið mál margra að hefðu Sam­fylk­ing­in, Við­reisn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn náð þing­meiri­hluta hefðu þess­ir þrír flokk­ar mynd­að rík­is­stjórn. Svo varð hins veg­ar ekki.

Í stjórn­ar­and­stöð­unni hafi Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokkn­um og Mið­flokkn­um í meiri mæli en Ólaf­ur átti von á, ekki síst í veiði­gjaldsum­ræð­unn­i. „Það hef­ur ekki hjálp­að hon­um í skoð­ana­könn­un­um,“ seg­ir hann.

„Það er ekki mjög lík­legt til ár­ang­urs fyr­ir Fram­sókn­ar­flokk­inn að reyna að höfða í sama kjós­enda­hóp og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Mið­flokk­ur­inn er að höfða í,“ seg­ir Ólaf­ur. Ólíkt Sjálf­stæð­is­flokkn­um þurfi Fram­sókn ekki að hafa sér­stak­ar áhyggj­ur af Mið­flokkn­um því kjós­enda­hóp­ur þess flokks eigi miklu meira sam­eig­in­legt með kjós­enda­hópi Sjálf­stæð­is­flokks­ins held­ur en nú­ver­andi og hefð­bundn­um kjós­enda­hópi Fram­sókn­ar­flokks­ins.“

Halla Hrund Loga­dótt­ir, ein af nýju and­lit­­um flokks­ins, neit­aði að taka þátt í mál­þófi um veiði­gjöld. Það vakti um­tal með­al flokks­manna að hún skyldi víkja af þingi með­­­an á um­­ræð­­um stóð en vara­mað­ur henn­ar tók þátt í um­ræð­un­um. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Ólaf­ur seg­ir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn þurfi að muna að hans kjós­end­ur séu nær miðj­unni og hann verði að höfða meira inn á miðj­una og jafn­vel að­eins til vinstri. „Ef Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill vera hóf­sam­ur miðju­flokk­ur sem get­ur unn­ið með öðr­um miðju­flokk­um og vinstri flokk­um og jafn­vel ein­hverj­um hægri flokk­um þá nátt­úru­lega get­ur hann ekki boð­ið bara upp á hægri póli­tík­,“ seg­ir hann.

Þess vegna sé lík­legt að flokk­ur­inn muni færa sig skýr­ar inn á miðj­una á yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili og reyna að marka sér sér­stöð­u. „Þeir munu nátt­úru­lega gagn­rýna rík­is­stjórn­ina eins og all­ir flokk­ar í stjórn­ar­and­stöðu gera en ég held að þeir muni í vax­andi mæli reyna að skapa sér sér­stöðu gagn­vart Sjálf­stæð­is­flokkn­um og Mið­flokkn­um og láta bara Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Mið­flokk­inn um að slást um þetta hægra fylg­i,“ seg­ir Ólaf­ur.

„Gam­all og seig­ur flokk­ur“

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er elsti flokk­ur lands­ins, stofn­að­ur 1916. Hann er hok­inn af reynslu og hef­ur ver­ið sam­ferða þjóð­inni gegn­um bæði harð­inda­ og fram­fara­skeið, oft í far­ar­brodd­i.

Framsóknardagblaðið Tíminn sagðist boða frjálslyndi og framfarir.

Það finnst stund­um fyr­ir þessu í sam­ræð­um við fram­sókn­ar­fólk. Þess­um háa aldri. Eins og all­ir muni tím­ana tvenna. Þrátt fyr­ir gremju og von­brigði reyna fram­sókn­ar­menn að halda kúl­inu og bíða fær­is.

„Þetta er nátt­úru­lega gam­all flokk­ur og seig­ur flokk­ur þannig að það kæmi mér ekki á óvart að þau taki þessu bara frek­ar ró­lega og reyni að ná vopn­um sín­um,“ seg­ir Ólaf­ur og bæt­ir við: „Og ég held hon­um tak­ist það, þó mað­ur sé að vísu var­kár­ari eft­ir að Vinstri græn duttu út af þing­i. Manni datt nú eig­in­lega ekki í hug að það gæti gerst að neinn af gömlu fjór­flokk­un­um dytti út af þing­i. En þeg­ar einn er bú­inn að gera það þá geta nátt­úru­lega fleiri kom­ið á eft­ir. Mér þætti samt ólík­legt að Fram­sókn dytti út af þing­i.“

Ólaf­ur tel­ur að flokk­ur­inn muni fara í gegn­um ákveð­ið tíma­bil og reyna að ná átt­u­m, en muni svo, eft­ir næstu eða þarnæstu kosn­ing­ar byrja að velta fyr­ir sér, með hvaða flokk­um hugs­an­legt sé að hann geti mynd­að meiri­hluta með.

Þetta er einmitt það sem Fram­sókn­ar­menn segj­ast ætla að ger­a. Fara inn á við, í ræt­urn­ar og finna sjálfa sig á ný. „Viss­irðu að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn var stofn­að­ur sem rót­tæk­ur um­bóta­flokk­ur?” spyr einn við­mæl­enda og hlær. „Það eru ör­ugg­lega fá­ir sem hugsa um Fram­sókn sem rót­tæka í dag en við vor­um það einu sinn­i.“

Ann­ar viðmælandi legg­ur út af kapp­hlaupi sumra flokka út á hægri væng­inn. Al­ger sam­staða virð­ist vera í Fram­sókn að elt­ast ekki við það en eft­ir sit­ur að það er sterk þjóð­ern­is-­ og sjálf­stæð­is­taug í flokkn­um.

„Hún er miklu meira sú að við er­um stolt af því að hafa ver­ið sam­vinnu­fólk í gamla daga, þeg­ar við vor­um að berj­ast úr því að vera ekki leng­ur fá­tæk­asta þjóð í Evr­ópu. Þá var það sam­vinnu­hreyf­ing­in sem byggði hafn­ir, stóra skóla, inn­við­i, kaup­fé­lög og allt sem þurfti í sveit­um lands­ins. Þetta var gert með sam­vinnu­hug­sjón,“ seg­ir hann og held­ur áfram: „Svo fór sam­band­ið á haus­inn og þetta sam­vinnu el­em­ent verð­ur bara eitt­hvað hall­æris­legt og tengt spill­ingu sem það var sann­ar­lega und­ir lok­in. En það er þessi sam­vinnu­hugs­un sem er íhald­ið í okk­ur. Virð­ið í því að láta gott af sér leiða og búa til gott sam­fé­lag.“

Tíma­setn­ing er allt

„Tíma­setn­ing er allt“ sagði hver ein­asti Fram­sókn­ar­mað­ur sem Gímald­ið ræddi við, eins og um mön­tru væri að ræða. En hver er þessi tíma­setn­ing?

Það eru blik­ur á lofti í efna­hags­mál­um og nái stjórn­in ekki tök­um á verð­bólg­unn­i, þá opn­ist tæki­færi fyr­ir Fram­sókn. Evr­ópu­mál­in munu gera for­sæt­is­ráð­herra erfitt fyr­ir og svo er bók­staf­lega eng­inn vinstra meg­in við miðju. “Af hverju stíg­ur Fram­sókn ekki inn í það gat?” spyr aldr­að­ur Fram­sókn­ar­mað­ur að norð­an. „Við átt­um að fara þang­að strax í upp­hafi.“ Fram­sókn­ar­fólk sér fyr­ir sér ótal tæki­færi til inn­komu. En sá kann allt sem bíða kann.

Allt kann sá sem bíða kann

Svo muni for­sæt­is­ráð­herra óhjá­kvæmi­lega gera mis­tök. Þau sem Gímald­ið ræddu við veðja helst á inn­komu þar. Staða Kristrúnar Frostadóttur geti bæði veikst út á við en mögu­lega líka inn­an Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Sam­fylk­ing­in sé ólík Fram­sókn­ar­flokkn­um þeg­ar kem­ur að trún­að­ar­trausti til for­yst­unn­ar.

„Um leið og Kristrún mis­stíg­ur sig eru þau kom­in í bak­ið á henn­i. Við hins veg­ar höld­um í okk­ur út í hið óend­an­lega,“ seg­ir einn við­mæl­enda Gímalds­ins. Við það bæt­ist að þótt það þurfi reglu­lega að hreinsa til, skilji sótt­hreins­un eins og for­ysta Sam­fylk­ing­ar­inn­ar hafi far­ið í, óhjá­kvæmi­lega eft­ir marg­ar tær sem bú­ið er að stíga á inn­an flokks­ins.

Hveiti­brauðs­dag­ar for­sæt­is­ráð­herra muni því taka enda, bæði inn á við og út á við. Færi muni gef­ast fyr­ir Fram­sókn.

Hér er linkur á seinni hluta umfjöllunarinnar, sem fjallar um forystuvandamál flokksins.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 08:02

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link