Ráð­herra íhug­ar rann­sókn­ar­nefnd um kvenna­morð

Lestími: 9 mínútur

Raf­rænt eft­ir­lit með ger­end­um, fang­elsi fyr­ir vændis­kaup, þyngri refs­ing­ar og hærri bæt­ur. Þetta og fleira er til skoð­unn­ar í fyrstu Lands­á­ætl­un dóms­mála­ráð­herra gegn kyn­bundnu of­beldi gegn kon­um.

Dóms­mála­ráð­herra hef­ur birt drög að lands­á­ætl­un gegn kyn­bundnu of­beldi gegn kon­um, í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Raf­rænt eft­ir­lit með ger­end­um, fangelsi fyr­ir vændis­kaup, þyngri refs­ing­ar og hærri bæt­ur. Þetta og fleira er til skoð­unn­ar í fyrstu lands­á­ætl­un af þessari tegund.

Í drög­un­um eru 25 að­gerð­ir sem ráð­ast á í á næstu fjór­um ár­um. Þetta er fyrsta lands­á­ætl­un sinn­ar teg­und­ar og hún er byggð á skuld­bind­ing­um Ís­lands sam­kvæmt samn­ingi Evr­ópu­ráðs­ins, kennd­um við Ist­an­búl, um for­varn­ir og bar­áttu gegn of­beldi gegn kon­um og heim­il­is­of­beld­i.

„Bar­átt­an gegn kyn­bundnu of­beldi er eitt allra mik­il­væg­asta jafn­rétt­is­mál sam­tím­ans og hef­ur ver­ið bar­áttu­mál Við­reisn­ar frá stofn­un flokks­ins,“ seg­ir Þor­björg S. Gunn­laugs­dótt­ir dóms­mála­ráð­herra og bæt­ir við: „Með þess­ari lands­á­ætl­un stíg­um við skýr og af­drátt­ar­laus skref til að auka ör­yggi þolenda, bæta þjón­usta og auka þekk­ingu inn­an kerf­is­ins.“

Áætl­un­in er með­al ann­ars byggð á til­mæl­um eft­ir­lits­nefnd­ar sem starfar sam­kvæmt Ist­an­búl samn­ingn­um (GREVIO nefnd­in) en nefnd­in birti fyrstu stöðu­skýrslu sína um Ís­land í nóv­em­ber 2022.

Ger­end­ur und­ir raf­rænu eft­ir­liti

Að­gerð­irn­ar 25 taka til skil­grein­inga í lög­um, vernd­ar og stuðn­ings fyr­ir þolend­ur, for­varna, rann­sókn­ar og sak­sókn­ar fyr­ir brot, sam­hæfð­ar stefnu og gagna­öfl­un­ar, efn­is­legs rétt­ar, eft­ir­fylgni og inn­leið­ing­ar.

Hluti að­gerða sam­kvæmt áætl­un­inni er þeg­ar komn­ar á rek­spöl og má þar nefna frum­varp ráð­herra um nálg­un­ar­bann, sem þegar hefur verið lagt fyrir ríkisstjórn og verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum. Með frum­varp­inu er lagt til að lögfest verði heim­ild til að hafa raf­rænt eft­ir­lit með þeim sem sæta nálg­un­ar­banni eða brott­vís­un af heim­ili að upp­fyllt­um skil­yrð­u­m. Þessi breyt­ing er í sam­ræmi við til­lög­ur GREVIO nefnd­ar­inn­ar og þeim var ætl­að að styrkja rétt­ar­stöðu þeirra sem mega þola heim­il­is­of­beldi og um­sát­ursein­elti.

Sæti meðferð á skilorði

Önn­ur að­gerð í lands­á­ætl­un­inni er að efla notk­un þess úr­ræð­is að láta þá sem dæmd­ir eru til skil­orðs­bund­inn­ar refs­ing­ar sæta með­ferð. Laga­heim­ild er nú þeg­ar fyr­ir hendi í al­menn­um hegn­ing­ar­lög­um til þessa en sam­kvæmt lands­á­ætl­un er stefnt að því að halda fræðslu um þessi efni fyr­ir ákærend­ur og dóm­ara.

„Til þess að stuðla að því að skil­orð ger­enda of­beld­is í nán­um sam­bönd­um og kyn­ferð­is­of­beld­is sé í aukn­um mæli bund­ið við með­ferð, á borð við þá sem Heim­il­is­frið­ur og Taktu skref­ið veita, verð­ur hald­in fræðsla fyr­ir ákærend­ur og dóm­ara. Til þess að skil­orðs­bundn­ir dóm­ar sem eru bundn­ir slík­um sér­skil­yrð­um þjóni til­gangi sín­um þarf að vera unnt að fram­fylgja þeim eins og til er ætl­ast. Því verða sett­ar skýr­ar regl­ur um um­sjón og eft­ir­lit Fang­els­is­mála­stofn­un­ar þar um­,“ seg­ir í áætl­un­inni.

Þá er lagt til að heið­urstengt of­beldi hér á landi verði kort­lagt og fræðslu­efni um birt­ing­ar­mynd­ir þess og nei­kvæðs fé­lags­legs taum­halds gegn kon­um og stúlk­um verði miðl­að til starfs­fólks í fé­lags­þjón­ust­u, lög­reglu, inn­an skóla­ og frí­stunda­sviðs og heil­brigð­is­kerf­is­ins. Einnig á að vinna fræðsluefni fyrir fatlað fólk.

Rann­sókn­ar­nefnd kvenna­morða

Efna á til rannsóknar um við­horf og reynslu fag­fólks í refsi­vörslu­kerf­inu af breyt­ing­um í lagaum­hverfi og verk­lagi und­an­far­in ár og hvort frek­ari að­gerða sé þörf. Þessi að­gerð er til­kom­in vegna til­mæla GREVIO um nauð­syn þess að geta lög­regla og ákæru­valds í mála­flokkn­um verði auk­in og kort­lagð­ir þeir þætt­ir sem hægt hafa á með­ferð kyn­bund­inna of­beld­is­mála.

Koma á upp kerf­is­bundnu áhættu­mati vegna þeirra brota sem lands­á­ætl­un­in tek­ur til. Þá verður kannað kannað hvort setja eigi á fót nefnd sem rann­saki kvenna­morð. Slík nefnd hefði sam­bæri­legt hlut­verk og rann­sókn­ar­nefnd sam­gönguslysa sem kem­ur sam­an í hvert sinn sem ein­hver læt­ur líf­ið í sam­gönguslysi og rann­sak­ar or­sak­ir slysa með það fyr­ir aug­um að draga úr hættu á sams­kon­ar slys­um og af­leið­ing­um þeirra.

Kveð­ið er á um öfl­ugri gagna­öfl­un en nú er hald­ið til haga og reglu­lega verði birt gögn um birt­ing­ar­mynd­ir kyn­bund­ins of­beld­is. Mark­mið þessa er að sam­ræmd­ar upp­lýs­ing­ar brota­þola, ger­end­ur og teg­und­ir brota verði að­gengi­leg­ar um allt land. Út­lend­inga­stofn­un verði einnig falið að skrá, safna og birta gögn um fjölda um­sókna um al­þjóð­lega vernd á grund­velli kyn­bund­inna of­sókna.

Þolend­ur ekki skyld­að­ir í sátta­með­ferð

Í kafla áætl­un­ar­inn­ar um efn­is­leg­an rétt er fjall­að um vernd þolenda í for­sjár­ og um­gengn­is­deil­u­m, eink­um að þol­anda of­beld­is verði ekki gert að sæta lög­bund­inni sátta­með­ferð í for­sjár­mál­u­m. Þá er lagt til að væg­asta refs­ing fyr­ir vændis­kaup verði fang­elsi en ekki sekt og skoð­að verði hvort rétt sé að gera breyt­ing­ar á lög­um til að koma í veg fyr­ir að vændis­kaup­end­ur njóti nafn­leynd­ar þeg­ar mál fara fyr­ir dóm­stóla og gæta bet­ur að rétt­ind­um selj­enda vænd­is.

Í kafl­an­um er einnig fjall­að um end­ur­skoð­un reglna um greiðslu bóta úr rík­is­sjóði til þolenda of­beld­is með það mark­mið að tryggja bet­ur bóta­rétt þeirra.

Hér eru að­gerð­irn­ar 25 sem dóms­mála­ráð­herra legg­ur til í drög­um Lands­á­ætl­un­ar­inn­ar en hún verð­ur til um­sagn­ar í Sam­ráðs­gátt stjórn­valda til 6. jan­ú­ar næst­kom­and­i.

  1. Skilgreining ofbeldis í nánum samböndum
  2. Kortlagning á samræmdum verkferlum og leiðbeiningum
  3. Samræmt verklag í heilbrigðisþjónustu fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum
  4. Aðgengi að þjónustu eflt um land allt
  5. Upplýsingagjöf til þolenda
  6. Skýrari umgjörð réttargæslu
  7. Fræðsla innan réttarvörslukerfisins um kynbundið ofbeldi gegn konum 
  8. Skilorð gerenda ofbeldis í nánum samböndum og kynferðisofbeldis í auknum mæli bundið við meðferð
  9. Fatlað fólk og kynheilbrigði
  10. Kortlagning á heiðurstengdu ofbeldi og neikvæðu félagslegu taumhaldi gegn konum og stúlkum
  11. Fræðsla um heiðurstengt ofbeldi og neikvætt félagslegt taumhald gegn konum og stúlkum
  12. Meðferð kynbundinna ofbeldismála innan réttarvörslukerfisins
  13. Áhættumat og áhættustýring
  14. Rannsóknarnefnd kvennamorða
  15. Nálgunarbann og brottvísun af heimili
  16. Aðstaða í dómhúsi
  17. Gagnaöflun um allar tegundir kynbundins ofbeldis
  18. Umsóknir um alþjóðlega vernd á grundvelli kynbundinna ofsókna
  19. Öryggi þolenda í forsjár- og umgengismálum
  20. Bann við þvinguðum ófrjósemisaðgerðum
  21. Þyngri refsingar fyrir vændiskaup og nafngreining gerenda
  22. Bætur til þolenda afbrota
  23. Stýrihópur um framkvæmd og innleiðingu landsáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum
  24. Framkvæmdasjóður landsáætlunar gegn kynbundnu ofbeldi gegn konum
  25. Mælaborð um framfylgd aðgerða í landsáætluninni
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 10. febrúar, 2026, 12:21

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link