
Í tilefni af því að eitt ár er nú liðið frá kosningum lítur Gímaldið yfir farinn veg hjá stjórnmálaflokkunum; skoðar þróun fylgis þeirra í könnunum og það sem á daga þeirra hefur drifið á árinu.

Á morgun er eitt ár liðið frá síðustu alþingiskosningum. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur nýtur enn mun meiri stuðnings en stjórnarandstaðan sem hefur átt á brattan að sækja.
Samkvæmt könnun Maskínu sem birt var 10. október um viðhorf til stjórnar og stjórnarandstöðu, hefur ánægja með ríkisstjórnina aukist frá kosningum, en 48 prósent sögðust ánægð með ríkisstjórnina á þriðja ársfjórðungi samanborið við 41 prósent sem var ánægð með hana í upphafi árs. Óánægja hefur reyndar líka aukist, en í síðustu mælingu sögðust 28 prósent óánægð með ríkisstjórnina samanborið við 21 prósent í upphafi árs.
Mikil óánægja hefur hins vegar verið með störf stjórnarandstöðunnar og hefur hún farið vaxandi á árinu. Í dag eru 62 prósent óánægð með störf stjórnarandstöðunnar og aðeins 12 prósent ánægð. Óánægjan hefur vaxið mjög frá upphafi kjörtímabilsins þegar 28 prósent voru ánægð með störf stjórnarandstöðunnar.
Í tilefni af því að eitt ár er nú liðið frá kosningum lítur Gímaldið yfir farinn veg hjá stjórnmálaflokkunum; skoðar þróun fylgis þeirra í könnunum og það sem á daga þeirra hefur drifið á árinu.
Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, nýtur mikils persónufylgis og hefur hugmyndafræði hennar, um að láta af dægurþrasi og duttlungum og beina öllum kröftum að efnahagsmálum og lífskjörum, átt mjög upp á pallborð landsmanna þetta tæpa ár sem ríkisstjórn hennar hefur setið að völdum.
Kristrún þykir hafa staðið sig best allra flokksformanna samkvæmt skoðanakönnunum, en hún er ekki aðeins vinsæl hér innanlands heldur berst hróður hennar víða en hún er á lista bandaríska tímaritsins Time yfir 100 hæst rísandi stjörnur ársins 2025.

Vinsældir Kristrúnar endurspeglast líka í góðu gengi Samfylkingarinnar sem farið hefur með himinskautum í skoðanakönnunum allt kjörtímabilið. Flokkurinn hefur haldið kjörfylgi sínu og bætt í, ekki síst nú á haustmánuðum en flokkurinn mældist með 32 prósenta fylgi í könnun Maskínu í september. Flokkurinn nýtur þess einnig að frekar lítið hefur borið á ráðherrum hans að forsætisráðherra undanskildum, í samanburði við ráðherra samstarfsflokkana sem margir hafa staðið í ströngu.
Mikið hefur mætt á ráðherrum Viðreisnar á kjörtímabilinu. Tollastríð, útlendingamál, veiðigjöld, staða efnahagsmála og málefni lögreglunnar; þessir málaflokkar og fleiri eru á ábyrgð ráðherraliðs flokksins.
Formaðurinn, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra hefur staðið í ströngu vegna stríðsástands í heiminum, tollastefnu Donalds Trump, sem ráðherra þykir reyndar heillandi maður, og ekki síst vegna verndartolla ESB á járnblendi, en hagsmunagæsla um varnar og viðskiptahagsmuni Íslands hafa án efa verið forgangsmál númer eitt hjá utanríkisráðherra.
„Hann er nú heillandi kallinn, hann má eiga það.“ – Þorgerður Katrín um Donald Trump.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra tók við einum erfiðasta kaleik stjórnmála samtímans, útlendingamálum og er milli steins og sleggju, sökuð um að gera ýmist of lítið eða ganga of hart fram. Hún hefur einnig verið í eldlínunni vegna sviptinga innan lögreglunnar, einkum embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum sem auglýst var í september síðastliðnum og embætti ríkislögreglustjóra sem losnaði eftir að Sigríður Björk Guðjónsdóttir tilkynnti afsögn sína í kjölfar umdeildra viðskipta við ráðgjafafyrirtækið Impru. Sigríður Björk starfar nú að eigin frumkvæði í ráðuneyti Þorbjargar.
Fjármálaráðherrann, Daði Már Kristófersson, hefur fengið ógrynni efnahagsáfalla í höfuðið undanfarin misseri, mörg þeirra stuttu eftir framlagningu fyrstu fjárlaga sinna. Bilun í álverinu á Grundartanga, fall Play, vaxtadóm Hæstaréttar auk tollastríða sem aukið hafa á óvissuna í efnahagshorfum landsins. Hann hefur þó unnið sér það til frægðar að ljúka sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka á árinu og mæltist salan vel fyrir meðal landsmanna samkvæmt könnunum.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnumálaráðherra hefur unnið eina stóra orustu á kjörtímabilinu, um veiðigjöld. Hún er þó með fleiri mál á sínu borð, sem gætu orðið umdeild, þar á meðal heildarlög um lagareldi og breytingar á búvörulögum.
Flokkur fólksins hefur átt frekar skrautlegt ár og sérstaklega voru fyrstu mánuðirnir í ríkisstjórn erfiðir. Strax í janúar greindi Morgunblaðið frá því að flokkurinn hefði fengið 240 milljónir í styrk þrátt fyrir að hafa ekki uppfyllt skilyrði en flokkurinn var þá skráður sem félagasamtök en ekki stjórnmálaflokkur. Upphófust þá nokkrar erjur í sambandi flokksins við Morgunblaðið, sem formaðurinn Inga Sæland, félagsmálaráðherra, kallaði „óvandaðan falsfréttamiðil.“ Nokkru síðar lagði einn þingmanna flokksins, Sigurjón Þórðarson, til að ríkisstyrkir til Morgunblaðsins yrðu teknir til endurskoðunar vegna umfjöllunarinnar.
„Óvandaðir falsfréttamiðlar í eigu auðmanna og ákveðinna stjórnmálaafla koma fram við fólk eins og fífl.“
Ásthildur Lóa Þórisdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, tapaði dómsmáli snemma á árinu og sagði opinberlega af því tilefni að hún gerði ekki lengur ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum. Ekki þótti athugasemdin sæma ráðherra í ríkisstjórn og baðst Ásthildur afsökunar. Nokkru síðar sagði hún af sér ráðherraembætti vegna erfiðra mála úr fortíð sinni.
Eftirmaður Ásthildar í embætti, Guðmundur Ingi Kristinsson, lét ekki sitt eftir liggja í vandræðagangi. Hann hóf ráðherraferil sinn á ensku og galt nokkrar háðsglósur fyrir. Undanfarna daga hefur Guðmundur svo endurnýjað misklíð flokks síns við Morgunblaðið og staðið í ritdeilum við blaðið um fjölda barna í vímuefnaneyslu, meðal annars á vefsíðu stjórnarráðsins, þar sem birtust ekki aðeins ein heldur tvær tilkynningar um málið. Hefur Guðmundur uppskorið mikla gagnrýni fyrir, meðal annars frá Blaðamannafélagi Íslands.
Innviðaráðherra flokksins, Eyjólfur Ármannsson, sem margir óttuðust að yrði helsta dramadrottning ríkisstjórnarinnar, hefur hins vegar reynst einn allra hæglátasti ráðherra hennar það sem af kjörtímabilinu.
Flokkur fólksins hefur átt erfiðast uppdráttar í könnunum meðal stjórnarflokkanna og má nánast lýsa fylgishruni síðustu vikur og mánuði. Langmesta fylgistapið hefur farið til Miðflokksins, eins og sjá má af mynd Maskínu hér fyrir neðan, en rúm 24 prósent þeirra sem kusu Flokk fólksins í síðustu kosningum segjast nú myndu kjósa Miðflokkinn. Þá hefur flokkurinn misst 12 prósent af kjörfylgi sínu til Samfylkingarinnar.

Stjórnarandstaðan hefur átt erfitt ár að Miðflokknum undanskildum. Framganga bæði Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins hefur mælst frekar illa fyrir, má þar einkum nefna málþóf um veiðigjöld síðastliðið sumar. Formenn flokkanna tveggja þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson koma verst út úr könnun Maskínu um hver formanna fólki þykir hafa staðið sig best á kjörtímabilinu.
Kjör nýs formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi síðasta vor varð ekki til að lyfta flokknum í skoðanakönnunum, heldur þvert á móti. Formaðurinn mælist mjög illa í skoðanakönnunum og nú er svo komið að innan við þriðjungi kjósenda Sjálfstæðisflokksins þykir hún hafa staðið sig best formanna a kjörtímabilinu.

Flokkurinn virðist mjög tvístígandi milli annars vegar hinna frjálslyndu afla í Viðreisn og svo hinna íhaldssamari afla í Miðflokknum. Nú þegar bæði Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn eru í stjórnarandstöðu hefur kapphlaup þessara tveggja flokka orðið æ sýnilegra en þeir eru nú báðir að höfða til sama hægra fylgisins; kjósenda sem aðhyllast þjóðernishollustu, íhaldssöm fjölskyldugildi og strangt eftirlit á landamærum.
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem hafa sig mest í frammi virðist hins vegar lítið reyna að höfða til eigin klofningsfylgis sem færði sig yfir til Viðreisnar um árið en í þeim hópi er meira af menntuðu og efnuðu frjálslyndu hægra fólki, með tengsl við atvinnulífið.

Framsóknarflokkurinn er hins vegar feginn að vera laus við Miðflokkinn. Framsóknarmenn sem Gímaldið hefur rætt við telja arfaslakt fylgi undanfarið ár ekki tengjast öðrum flokkum, heldur hafi kjósendur orðið þreyttir á stjórnarflokkum síðustu kjörtímabila og óeiningu milli þeirra í síðustu ríkisstjórn. Framsókn hafi verið lengi í ríkisstjórn og kjósendur hafi hreinlega fengið leið á flokknum og forystu hans. Það þýði ekkert að reyna að hífa fylgið upp strax, þreyta kjósenda þurfi að jafna sig og það gagnist lítt að troða sér upp á fólk.
Sitjandi formaður flokksins endurspeglar þó ekki þessa sýn Framsóknarfólks að öllu leyti, en framganga hans í stjórnarandstöðu hefur ekki hreyft við botnfrosnu fylgi flokksins. Persónufylgi hans er mjög lítið fæstum þykir hann hafa staðið sig best allra formanna á kjörtímabilinu. Kjör nýs formanns í febrúar á næsta ári gæti hins vegar haft jákvæð áhrif á flokkinn, bæði fylgið og nýja stefnu, hver sem hún verður.

Miðflokkurinn er eini flokkurinn í stjórnarandstöðu sem hefur verið að gera þokkalegt mót í skoðanakönnunum þetta fyrsta ár kjörtímabilsins. Hann er líka eini flokkurinn sem náði flugi vegna málþófsins síðasta sumar. Fylgi flokksins virðist ekki síst sótt í kistu menningarstríða en einnig í áherslur sem átt hafa upp á pallborðið í nágrannalöndunum og eru að sækja í sig veðrið hér á landi; þjóðernisáherslur, harðari landamærastefna og almenn íhaldssemi. Miðflokkurinn hefur verið að taka mest af því fylgi sem aðhyllist þessar áherslur á kostnað Sjálfstæðisflokksins sem reynir mjög að fiska í sömu torfu án árangurs.
Nokkrir flokkar sem buðu fram til þings í síðustu kosningum fengu enga fulltrúa kjörna. Píratar og Vinstri græn misstu þingmenn sína og Sósíalistar höfðu ekki erindi sem erfiði í annarri tilraun sinni til að ná manni á þing. Þessir flokkar fengu samanlagt um 10 prósenta fylgi í kosningunum en hafa verið að mælast með samanlagt fylgi í kringum 1214 prósent það sem af er kjörtímabilsins. Þótt hver og einn þessara flokka hafi mjög lítið fylgi, er það engu að síður umtalsvert samanlagt frá sjónarhorni þess fjölda kjósenda sem eiga engan fulltrúa á þingi.
Lítið hefur heyrst í Vinstri grænum á kjörtímabilinu en þeir fóru svo illa út úr kosningunum að þeir náðu ekki lágmarksfylgi til að fá fjárstyrk frá ríkinu. Við það þyngist róðurinn enn. Píratar eru að reyna að kjósa sér formann, það hefur enn ekki tekist. Allt logar svo í illdeilum hjá Sósíalistum. Flokkurinn er í raun klofinn og hefur núverandi stjórn hans skorað á eina lýðræðislega kjörna fulltrúa flokksins, borgarfulltrúann Sönnu Magdalenu Mörtudóttur að ganga úr flokknum.
Þetta er staðan í stjórnmálunum eftir fyrsta ár kjörtímabilsins. Allt virðist spilast upp í hendur ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstaðan hefur hvergi náð taki á henni. Blikur á lofti í efnahagsmálum, eftir röð áfalla undanfarnar vikur og mánuði gæti þó farið að síga í hjá stjórninni. Þrálát verðbólga, vaxandi atvinnuleysi og frost á húsnæðismarkaði ættu að fela í sér tækifæri fyrir stjórnarandstöðuna.
Þessi úttekt er opin öllum tímabundið, en efni Gímaldsins er almennt í áskrift vegna þess að við ætlum að byggja upp áskriftarmiðil. Til að vera með í Gímaldssamfélaginu er hægt að gerast áskrifandi hér.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.