Borg­ar­full­trú­ar gegn flokks­for­ystu

Lestími: 11 mínútur

Fram­bjóð­end­ur í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­inn­ar skipa sér í fylk­ing­ar bak við tjöld­in. Flest­ir borg­ar­full­trú­ar standa sam­an en for­ysta flokks­ins veðj­ar á end­ur­nýj­un og er í horni nýrra fram­bjóð­enda. Próf­kjör­ið fer fram eft­ir rúm­ar tvær vik­ur.

Eft­ir að ljóst varð að Hild­ur Björns­dótt­ir er sjálf­kjör­in sem leið­togi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni má ætla að mesta spenn­an um val á lista fyr­ir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar verði hjá Sam­fylk­ing­unn­i. Borg­ar­stjór­inn Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir hef­ur feng­ið mót­fram­boð í leið­toga­sæt­ið frá Pétri Mart­eins­syni veit­inga­manni og marg­ir být­ast um önn­ur efstu sæt­i.

Próf­kjör um efstu sex sæt­in á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar fer fram laug­ar­dag­inn 24. jan­ú­ar. Sautján flokks­menn til­kynntu um fram­boð áð­ur en frest­ur til þess rann út um helg­ina. Flest þeirra sem gefa kost á sér styðja ann­að hvort odd­vita­efna flokks­ins til for­yst­u, þótt þau gefi stuðn­ing sinn ekki upp op­in­ber­lega.

Flokka­drætt­ir í próf­kjörs­bar­áttu eru sjaldn­ast bein­lín­is op­in­ber­ir, enda öll­um ljóst að þeir fram­bjóð­end­ur sem ná kjöri í efstu sæt­in muni þurfa að vinna sam­an bæði í kosn­inga­bar­átt­unni og ekki síð­ur sem kjörn­ir full­trú­ar og sam­herj­ar að kosn­ing­um lokn­um. Hins veg­ar er al­gengt að fram­bjóð­end­ur í próf­kjöri skipi sér í fylk­ing­ar með­an á próf­kjörs­bar­áttu stend­ur og eigi í óform­legu sam­starfi upp að því marki sem þeir telja það geta gagn­ast bar­áttu sinn­i.

Bandalög um tossalista

Fram­bjóð­end­ur eiga mik­ið und­ir því að kjós­end­ur setji þá í það sæti sem þeir gefa kost á sér í til að at­kvæð­in nýt­ist sem best. Fram­bjóð­andi sem gef­ur kost á sér í 2. sæt­i, vill að kjós­andi setji hann í það til­tekna sæt­i, til að auka lík­ur á að hann fái flest at­kvæði í það sæt­i. Viðkomandi er því almennt ekki í beinni samkeppni við frambjóðanda um oddvitasætið eða þá sem stefna á sæti neðar á lista flokksins. Samvinna frambjóðenda sem keppa um ólík sæti getur því verið fýsileg.

Próf­kjörs­bar­átta fer að miklu leyti fram í bein­um sam­töl­um við kjós­end­ur. Fram­bjóð­end­ur fá af­henta kjör­skrá flokks­ins og hringja í kjör­genga flokks­menn, hver í kapp við ann­an. Sum­ir hafa jafn­vel út­hringi­ver sjálf­boða­liða á sín­um snær­um til að auka af­köstin. Og um hvað er rætt í þess­um sím­töl­u­m?

Mest púð­ur fer auð­vit­að í að ræða þann fram­bjóð­anda sem hringt er fyr­ir en svo get­ur mynd­ast rými til að ræða list­ann að öðru leyti. Svokallaður tossalisti er þá gjarnan hluti af handriti þeirra sem hringja út, það er listi yfir aðra frambjóðendur sem viðkomandi hefur gert samkomulag um að mæla með. Flest­ir fram­bjóð­end­ur eru með fyr­ir fram mót­að­ar skoð­an­ir á með hverj­um beri að mæla í önn­ur sæti á list­an­um. Þetta er þó ekki ein­hlítt. Eðli málsins samkvæmt hugsa frambjóðendur mest um sjálfa sig og minna um aðra.

Flokksforystan veðjar á nýtt fólk

Heiða Björg Hilm­is­dótt­ir borg­ar­stjóri er tal­in eiga stuðn­ing flestra borg­ar­full­trúa flokks­ins sem gefa kost á sér áfram. Mynd/RÚ­V/Ragn­ar Visa­ge

Nú eru að­eins rúm­ar tvær vik­ur til stefnu og tossa­list­ar síma­vera fram­bjóð­enda að taka á sig mynd. Sam­kvæmt heim­ild­um Gímalds­ins halda flest­ir sitj­andi borg­ar­full­trú­ar og vara­borg­ar­full­trú­ar hóp­inn.

Þeirra á með­al eru borg­ar­stjór­inn Heiða Björg, Skúli Helga­son sem gef­ur kost á sér í 2. sæt­i, Dóra Björt Guð­jóns­dótt­ir, fyrr­ver­andi Pírati sem bið­ur um 3. ­til 4 sæti og Ellen J. Calmon vara­borg­ar­full­trúi sem gef­ur kost á sér í 3. ­til 5. sæt­ið. Und­an­tekn­ing­in eru vara­borg­ar­full­trú­arn­ir Birk­ir Ingi­bjarts­son og Sara Björg Sig­urð­ar­dótt­ir. Þau eru sögð vinna sam­an og eiga sam­leið með Skúla en ekki með Heið­u.

Nýliðinn Pét­ur Mart­eins­son er með flokks­for­yst­una í sínu horni en það var á al­manna­vit­orði að flokks­for­yst­unni hafi ekki hugn­ast listi und­ir for­ystu sitj­andi borg­ar­stjóra og leit­að hafi ver­ið að mót­fram­boði þar til Pét­ur steig fram.

Pét­ur Mart­eins­son til­kynnti fram­boð í odd­vita­sæt­ið á dög­un­um. Hann hef­ur ekki tek­ið þátt í starfi flokks­ins áð­ur en hef­ur tryggt sér stuðn­ing flokks­for­yst­unn­ar. Mynd/Skúli Hólm.

Ung­liða­hreyf­ing flokks­ins hélt sér­stakt próf­kjör í eig­in röð­um og sig­ur­veg­ar­ar þess, Bjarn­veig Birta Bjarna­dótt­ir og Stein Olav Romslo gefa kost á sér í 2. til ­3. sæt­ið og 4. sæt­i. Flokks­for­yst­an hef­ur unn­ið mik­ið með ung­liða­hreyf­ingu flokks­ins í innra starf­inu eins og flokks­menn urðu vitni að á lands­fundi flokks­ins síð­asta vor. Því kem­ur ekki á óvart að ung­lið­arn­ir í próf­kjör­inu vinni með Pétri í að­drag­anda próf­kjörs­ins.

Ann­ar nýr fram­bjóð­andi í horni Pét­urs og for­yst­unn­ar er Stein­unn Gyð­u-­ og Guð­jóns­dótt­ir for­mað­ur Kvenna­hreyf­ing­ar Sam­fylk­ing­ar­inn­ar en hún gef­ur kost á sér í 2. sæt­i.

Magnea Mar­in­ós­dótt­ir al­þjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur sem sæk­ist eft­ir 2. til 4. sæti er hins veg­ar tal­in styðja Heiðu til for­ystu frekar en Pét­ur. Sama á við um Ólöfu Helgu Jak­obs­dótt­ur og Sig­fús Ómar Hösk­ulds­son en þau gefa kost á sér í 5. og 6. sæt­i.

Guð­mund­ur Ingi Þór­odds­son, for­mað­ur Af­stöð­u, sem gef­ur kost á sér í 3. sæti hef­ur hefur ekki gefið upp hvort hann styðji Heiðu eða Pétur. Hann gekk í flokk­inn í að­drag­anda síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga og hóf mikla smöl­un í flokk­inn er var svo ekki tal­inn kjör­geng­ur og því varð ekki af fram­boð­i. Fjall­að var um fram­boð Guð­mund­ar á Vísi og fjölda ný­skrán­inga í flokk­inn í tengsl­um við fram­boð hans. Í frétt Vís­is gef­ur Guð­mund­ur ekk­ert upp um stuðn­ing sinn við Heiðu eða Pét­ur. Hann gæti því hall­ast í hvora átt­ina sem er eða unn­ið með fram­bjóð­end­um þvert á fylk­ing­ar.

Erfitt að spá um úrslit

Þrátt fyr­ir þessa óop­in­beru flokka­drætti í aðdraganda prófkjörs eru mest­ar lík­ur á að nið­ur­stað­an verði blönd­uð og að fram­bjóð­end­ur úr báðum fylkingum raði sér í efstu sætin. Bæði má ætla að mjótt verði á mun­um milli fylk­inga auk þess sem fjöldi fram­bjóð­enda í 2., 3. og 4. sæti dreg­ur úr fyr­ir­sjá­an­leika um nið­ur­stöð­una.

Þannig get­ur hörð sam­keppni um þessi sæti vald­ið því að það odd­vita­efni sem ekki nær kjöri í efsta sæt­ið detti al­veg út og fái ekk­ert sæti í próf­kjör­in­u.

Þá geta reglur flokksins um jafnan hlut kynjanna á lista haft þau áhrif að sætaskipan verði hrókerað að prófkjöri loknu.

Ákall um end­ur­nýj­un kepp­ir við kosn­ingamask­ín­ur

Tölu­vert hef­ur ver­ið rætt um þörf fyr­ir end­ur­nýj­un á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar I Reykja­vík. Þetta ákall vinn­ur með Pétri, ung­lið­un­um og öðr­um nýj­um fram­bjóð­end­um.

Sitj­andi borg­ar­full­trú­ar sem áð­ur hafa ver­ið í fram­boði búa hins veg­ar að reynslu af próf­kjörs­bar­áttu og setja nú í gang marg­reynda mask­ín­u. Þessa reynslu má held­ur ekki van­meta, né held­ur þekkt­an hóp stuðn­ings­manna sem fram­bjóð­end­ur hafa afl­að sér í margra ára starfi inn­an flokks­ins.

Próf­kjör Sam­fylk­ing­ar­inn­ar gæti af þess­um sök­um orð­ið æsispenn­andi og mik­ið í húfi fyr­ir alla fram­bjóð­end­ur sem og for­ystu flokks­ins.

Mæl­ast með sex borg­ar­full­trúa

Þrátt fyr­ir litl­ar vin­sæld­ir sitj­andi borg­ar­stjóra hef­ur fylgi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar ekki fall­ið mik­ið í könn­un­um. Í nýrri könn­un Gallup mælist flokk­ur­inn með 23,3 pró­sent og tap­ar þrem­ur pró­sent­um frá síð­ustu könn­un. Engu að síð­ur mælist flokk­ur­inn með meira fylgi en kom upp úr kjör­köss­un­um í síð­ustu kosn­ing­um og bæt­ir við sig ein­um borg­ar­full­trú­a.

Fram­bjóð­end­ur í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­inn­ar:

  • 1. sæti             Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri
  • 1. sæti             Pétur Marteinsson rekstrarstjóri
  • 2. sæti             Skúli Helgason borgarfulltrúi
  • 2. sæti             Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar
  • 2.- 3. sæti        Bjarnveig Birta Bjarnadóttir rekstrarstjóri (sigurvegari í prófkjöri ungliðahreyfingar)
  • 2.- 4. sæti        Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur
  • 3. sæti             Sara Björg Sigurðardóttir varaborgarfulltrúi
  • 3. sæti             Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu
  • 3. – 4. sæti       Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi
  • 3. – 4. sæti       Birkir Ingibjartsson varaborgarfulltrúi og arkitekt
  • 3. – 5. sæti       Ellen J. Calmon varaborgarfulltrúi
  • 4. sæti             Stein Olav Romslo stærðfræðikennari  (2. sæti í prófkjöri ungliðahreyfingarinnar)
  • 4. – 6. sæti       Valný Óttarsdóttir
  • 4. – 6. sæti       Rúnar Logi Ingólfsson
  • 5. sæti             Ólöf Helga Jakobsdóttir
  • 5. – 6. sæti       Bjarni Þór Sigurðsson
  • 6. sæti             Sigfús Ómar Höskuldsson
Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 10. febrúar, 2026, 12:30

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link