Utanríkisráðuneytið: Vörur frá hernumdum svæðum verða brátt sérmerktar

Lestími: 3 mínútur

Vörur sem koma frá hernumdum svæðum í Palestínu verða merktar sérstaklega í verslunum. Tillaga um málið hefur verið lögð fram á þingi í meira en áratug en aldrei hlotið afgreiðslu.

Vörur frá hernumdum svæðum í Palestínu sem seldar eru hér á landi verða merktar sérstaklega. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu er vinnan langt á veg komin.

„Greining og vinna innan Stjórnarráðsins varðandi merkingar á vörum frá hernumdu svæðunum, svo neytendur geti auðveldlega áttað sig á uppruna þeirra, er langt komin,“ segir í svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Gímaldsins.

Að loknum fundi utanríkismálanefndar með utanríkisráðherra þann 8. september 2025, þar sem fram fóru umræður um ástandið á Gaza, greindi ráðherra frá nokkrum aðgerðum Íslands í fjölmiðlum, meðal annars því að vörur frá hernumdum svæðum yrðu merktar sérstaklega. Ekkert hefur heyrst af því hvernig staðið verður að merkingunum eða hvar málið er statt innan stjórnkerfisins síðan þá.

Neytendur eigi að geta áttað sig á uppruna vara

Gímaldið sendi fyrirspurn á ráðuneytið í nokkrum liðum þar sem spurt var um stöðu og framkvæmd málsins. Spurt var um umfang og kostnað verkefnisins og ennfremur um hver kæmi til með að sjá um merkingarnar.

„Greining og vinna innan Stjórnarráðsins varðandi merkingar á vörum frá hernumdu svæðunum, svo neytendur geti auðveldlega áttað sig á uppruna þeirra, er langt komin. Um er að ræða yfirgripsmikla vinnu sem hefur krafist aðkomu annarra ráðuneyta, og eftir atvikum undirstofnana þeirra.

Vænta má niðurstöðu úr þessari vinnu og tillagna um næstu skref innan skamms, en líklega munu sölu- og dreifingaraðilar bera ábyrgð á því að vörur verði rétt merktar,“ segir í svarinu.

Þá var spurt um hvort breyta þyrfti lögum eða setja nýja reglugerð vegna málsins. „Þær tillögur sem helst er verið að skoða kalla ekki á lagabreytingu né sérstaka reglugerð,“ segir í svari ráðuneytisins.

Þaulsætin þingsályktunartillaga

Mál þetta hefur flækst um þingið í meira en áratug. Tillaga til þingsályktunar um merkingu á vörum frá hernumdum svæðum Palestínu var flutt á hverju þingi frá árinu 2012 til 2023. Fyrstu árin var Árni Þór Sigurðsson flutningsmaður tillögunnar, þá Katrín Jakobsdóttir og loks Steinunn Þóra Árnadóttir, öll þingmenn Vinstri grænna. Ýmsir aðrir þingmenn, úr Pírötum, Framsóknarflokki, Samfylkingu og Viðreisn, hafa verið meðflutningsmenn.

Málið hefur þó aldrei náð að komast lengra en upp úr fyrri umræðu og inn í nefnd. Síðast var málið flutt á haustþingi 2023, þá í annað sinn það ár, en málið hafði einnig verið tekið fyrir á vorþingi.

Í greinargerð með þingsályktunartillögunni þá kom fram að víða um heim hafi stjórnvöld og neytendur vaknað til vitundar um að hluti útflutningsvara frá Ísrael eigi uppruna sinn að rekja til ólöglegra landnemabyggða á hernumdum svæðum Palestínu, en þær eru einkum á Vesturbakka Jórdanar og í austurhluta Jerúsalemborgar, en ekki til svæða innan alþjóðlega viðurkenndra landamæra Ísraelsríkis. Þá segir þar að með þeim ráðstöfunum sem kallað er eftir með þingsályktunartillögunni yrði íslenskum neytendum gert kleift að taka sjálfir ákvörðun um hvort þeir vilja styðja efnahagslíf á ólöglegum landnemabyggðum á hernumdu svæðunum í Palestínu.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 17. janúar, 2026, 13:47

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link