
Fjórir grunnskólanemendur stunda nú fjarnám hjá Reykjavíkurborg en reiknað er með að tveir til þrír bætist við á næstunni. Áherslan hefur verið á börn sem glíma við skólaforðun. Þau reykvísku börn sem voru fyrir í fjarkennslu hjá Ásgarðsskóla héldu áfram þar.

Tilraunaverkefni um fjarkennslu í grunnskóla á vegum Reykjavíkurborgar hófst í haust. Fjórir grunnskólanemendur stunda nú fjarnám hjá Reykjavíkurborg en reiknað er með að tveir til þrír bætist við á næstu vikum. Guðrún Helga Sigfúsdóttir, skólastjóri Háteigsskóla sem sér um fjarkennsluna, segir eftirspurnina mun meiri en þau hafi viljað stíga varlega til jarðar í byrjun. „Þetta hefur farið afskaplega vel af stað,“ segir hún.
Tillaga sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs um tilraunaverkefnið var samþykkt í vor. Ásgarðsskóli, skóli í skýjunum, er með samning við Reykjavíkurborg og fleiri sveitarfélög um fjarkennslu. Þau reykvísku börn sem voru fyrir í Ásgarðsskóla héldu þar áfram en nemendurnir sem eru í fjarkennslu frá Háteigsskóla koma nýir inn í það kennslufyrirkomulag.
Í greinargerð með tillögu sviðsstjóra var lagt til að farið væri í tilraunaverkefnið til þriggja ára með þeim hætti að hægt verði að fullnægja skólaskyldu með fjarkennslu, hvort heldur að hluta til eða að öllu leyti.
„Gert er ráð fyrir að fyrst og fremst verði um að ræða fjarkennslu fyrir nemendur sem búa tímabundið erlendis, nemendur sem hafa átt erfitt uppdráttar félagslega, nemendur með skólaforðun, nemendur sem orðið hafa fyrir einelti eða eiga áfallasögu, langveika nemendur og nemendur í fíkniefnaneyslu eða með sögu um slíkt,“ segir í greinargerðinni sem er síðan í mars 2025.
„Þetta er fyrir börn sem hafa ekki getað sótt skóla vegna ákveðna aðstæðna sem eru jafn mismunandi og börnin eru mörg.“ – skólastjóri Háteigsskóla
Að sögn Guðrúnar Helgu er áherslan á nemendur sem glímt hafa við skólaforðun eða eiga erfitt uppdráttar á annan hátt. „Þetta er fyrir börn sem hafa ekki getað sótt skóla vegna ákveðna aðstæðna sem eru jafn mismunandi og börnin eru mörg,“ segir hún. Ekki er hægt að sækja um fjarnám til skólans heldur eru það almennt fagstjórar grunnskóla hjá þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar sem vísa börnum þangað ef ástæða þykir til.
Nemendurnir eru skráðir með hefðbundnum hætti í grunnskólann sem sinnir tilraunaverkefninu, Háteigsskóla, en lagt var upp með að nýta grunnskóla borgarinnar þannig að nemendur væru í návígi við þá þjónustu sem skólinn getur veitt, auk þess að tækifæri skapist í tengslum við annað skóla- og frístundastarf borgarinnar.
Skóla- og frístundasvið leitaði til Háteigsskóla og óskaði eftir því að hann tæki verkefnið að sér vegna reynslu innan skólans. Til að mynda hefur þar verið rekið tungumálaver þar sem boðið er upp á fjarkennslu í sænsku, norsku og pólsku. Guðrún Helga bendir á að við skólann séu kennarar með þá tæknilegu þekkingu sem þurfi til að sinna fjarkennslu, og tekur einnig dæmi af því að áður hafi þeir kennt nemendum sem hafi farið tímabundið til útlanda og börnum með langvinna sjúkdóma. Auk þess séu við skólann hæfileikaríkir kennarar sem vinna með nemendunum við að mynda tengsl þó þeir séu í fjarnámi.
Reykjavíkurborg hefur síðustu ár verið með samning við Ásgarðsskóla, einkarekinn skóla með fjarkennslu. Samkvæmt svörum frá skóla- og frístundasviði var gerður áframhaldandi samningur við Ásgarðsskóla og stunda nú tólf reykvískir nemendur nám þar.
Í greinargerð með tillögu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs sem samþykkt var í vor kom fram að kostnaður vegna nemenda í fjarnámi hafi verið 75 milljónir fyrir árið 2024. Þá voru 20 reykvískir nemendur í fjarnámi við Ásgarðsskóla og greiddi borgin 468 þúsund krónur fyrir hvern nemanda á mánuði. „Hægt er að ná fram hagræðingu með því að nýta grunnskóla innan borgarinnar til að sinna þessari þjónustu á komandi skólaári,“ segir í greinargerðinni en samkvæmt henni hljóðaði frumkostnaðaráætlun upp á um 53,5 milljónir við að borgin tæki alfarið að sér fjarkennslu fyrir reykvíska nemendur. Ljóst er að þessar tölur hafa breyst þar sem enn eru tólf nemendur í Ásgarðsskóla og óvíst hver endanlegur fjöldi nemenda í fjarkennslu hjá Reykjavíkurborg verður á skólaárinu.
„Okkur fannst bara mikilvægt að stíga varlega til jarðar því við vildum gera þetta vel.“ – skólastjóri Háteigsskóla
Guðrún Helga segir að eftirspurnin eftir fjarkennslu hjá borginni sé mikil þrátt fyrir að aðeins fjórir fái slíka kennslu sem stendur. „Okkur fannst bara mikilvægt að stíga varlega til jarðar því við vildum gera þetta vel. Þó að það sé mikil þekking innan skólans þá er þetta samt í fyrsta skipti sem við erum með eiginlega skýjadeild,“ segir hún. Þá séu reglulega haldnir fundir um stöðuna, það sem gangi vel og hvað megi bæta. „Við finnum fyrir meðbyr frá fagstjórunum sem eru mjög ánægðir bæði með úrræðið og með samstarfið,“ segir hún.
Skólastjóri Ásgarðsskóla og eigandi hans, Kristrún Lind Birgisdóttir, skrifaði opið bréf til fulltrúa í skóla- og frístundaráði Reykjvíkurborgar í apríl 2025 eftir að hún hafði lesið í fréttum um tillögu sviðsstjóra að fara af stað með tilraunaverkefni í fjarkennslu. Hún gagnrýndi að ekkert samráð hefði verið haft við Ásgarðsskóla sem hefði mikla og góða reynslu af fjarnámi grunnskólabarna.
Skólinn fékk skólaþróunarleyfi 2021 og um haustið hófu þrír nemendur þar fjarnám. Í opna bréfi Kristrúnar kemur fram að Reykjavíkurborg hafi verið stærsti viðskiptavinur þeirra undanfarin ár. Þau hafi talið að 20-25 reykvísk börn yrðu í Ásgarðsskóla á þessum skólavetri sem nú er að liða, en eins og áður segir eru þau tólf.
Þá hafði hún efasemdir um að Reykjavíkurborg gæti komið á laggirnar vönduðu fjarnámi með svo skömmum fyrirvara. „Ég hef ekki allar forsendur til að leggja mat á hvernig ætlað er að koma upp umræddri starfsemi á svo stuttum tíma en til þess að koma á vel heppnuðu netúrræði er ekki nóg að kaupa áskrift að Zoom og hefjast handa,“ skrifaði hún í vor.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.