Um 450 manns hjá Ung VIRK – Mörg misstu tökin í Covid

Lestími: 6 mínútur

Hátt í fjögur þúsund íslenskra ungmenna eru hvorki í vinnu, námi né starfsþjálfun. Um 450 ungmenni fá þjónustu hjá UngVIRK sem miðar að því að koma þeim aftur í virkni. Verkefnastjóri segir marga hafa misst tökin í Covid.

Um 450 einstaklingar fá nú þjónustu hjá í Ung VIRK sem ætlað er ungu fólki á aldrinum 16-29 ára sem hefur brotna sögu af námi eða vinnumarkaði, og glímir við andlegan eða líkamlegan heilsubrest.

„Þetta eru einstaklingar sem af ýmsum ástæðum eru að flosna upp úr samfélaginu. Ég held að það sé ekkert mikilvægara en að reyna að aðstoða þau við að koma þeim aftur á þann stað sem þau vilja vera,“ segir,“ segir Elín Steinarsdóttir, verkefnastjóri Ung VIRK. Árangurinn sem sé af starfinu sé ekki aðeins fyrir einstaklinginn heldur samfélagið í heild. 

„Það skiptir okkur máli að þessir einstaklingar nái að fóta sig í lífinu; líði vel, fari í vinnu eða fari í nám,“ segir hún.

Samkomutakmarkanir og álag á heilbrigðiskerfið

Ástæður þess að fólk leitar til Ung VIRK eru oft margþættar. Samkvæmt beiðnum sem þau fá sé ljóst margir hafi misst tökin í Covid. Hins vegar sé ekki hægt að fullyrða um að það hafi haft úrslitaáhrif, en á sama tíma var gríðarlegt álag á heilbrigðiskerfið í heild sinni.

„Allt í einu missti fólk sína rútínu og mátti jafnvel ekki fara út úr húsi. Það er ákveðinn hópur sem átti mjög erfitt með að ná sér upp eftir þennan tíma,“ segir hún og nefnir að þar geti undirliggjandi þættir á borð við kvíða skipt máli en algjör breyting á rútínu hafi einnig áhrif einhverfa einstaklinga, sem dæmi.

Elín bendir á að takmarkanir í samfélaginu hafi haft áhrif á alla í Covid en sumir hópar geti verið viðkvæmari fyrir en aðrir, til að mynda unglingar sem voru að byrja í framhaldsskóla en máttu síðan ekki mæta í skólann vegna samkomutakmarkana.

NEET hópurinn

Við mat á þjónustubeiðnum til Ung VIRK er til að mynda horft til félagslegrar einangrunar, fjárhagsvanda, neyslusögu og áfallasögu. Tæpur þriðjungur þeirra sem falla undir viðmið Ung VIRK glíma við fíknivanda. Þá hefur á undanförnum árum orðið aukning á beiðnum fyrir einstaklinga með taugaþroskaraskanir, svo sem ungmenni á einhverfurófi.

Á árinu 2025 komu 305 ungmenni ný inn í þjónustu Ung Virk og hefur fjöldinn hækkað ár frá ári eftir Covid en fyrir það, árið 2020, komu 356 ungmenni ný inn í þjónustuna. Þetta kemur fram í gögnum sem Gímaldið óskaði eftir frá VIRK. Árið 2019 var verkefnið UNG19 sett á laggirnar hjá VIRK, en það hefur þróast í gegn um árin og er það sem heitir í dag Ung VIRK.

Alls bættust 305 einstaklingar á aldrinum 16-29 ára við í UngVIRK á síðasta ári og hafa nýskráðir ekki verið fleiri frá því verkefninu var fyrst hleypt af stokkunum. Hópurinn sem nú er í virkri starfsendurhæfingu hjá VIRK telur því um 450 einstaklinga. Mynd/Virk

Ungt fólk sem hvorki er í vinnu né í námi er nefndur NEET hópurinn, en NEET stendur fyrir Not in Employment, Education or Training. Nokkur ár eru síðan Hagstofa Íslands tók saman tölfræði fyrir þennan hóp á Íslandi en þá var áætlað að 6,3% ungs fólks á aldrinum 16-24 ára hafi ekki verið í vinnu, námi eða starfsþjálfun árið 2021.

Fyrir árið 2024 voru 5.0% íslenskra ungmenna á aldrinum 16-29 ára í NEET hópnum, samkvæmt nýjustu tölum sem birtar eru hjá Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins, og eru byggðar á Lífskjararannsókn Hagstofunnar. Þetta jafngildir tæplega 3700 einstaklingum. Tölur EuroStat innihalda hópinn 25-29 ára til viðbótar við þá sem voru birt í samantekt Hagstofunnar fyrir árið 2021, og voru 7,3% íslenskra ungmenna í NEET hópum þá samkvæmt EuroStat. 

Aðeins Holland er með lægra hlutfall ungmenna sem tilheyrir NEET hópnum árið 2024, samkvæmt EuroStat, eða 4,9%, en meðaltal landa Evrópusambandsins var þá 11,1%. Samkvæmt skýrslu stjórnarráðsins frá 2022 um Virkni ungs fólks kemur fram að ungt fólk, 18-29 ára, hefur verið í sérstökum áhættuhópi hvað ótímabæra örorku varðar hér á landi samanborið við hin Norðurlöndin.

Aldursviðmið fært niður í 16 ár

Hópurinn sem Ung VIRK veitir þjónustu var upphaflega frá 18-29 ára en árið 2024 var aldursviðmiðið lækkað niður í 16 ár.

„Markmiðið með þessari breytingu er að grípa inn fyrr,“ segir Elín. „Við sjáum að margir unglingar detta snemma úr skóla, missa tengsl við jafningja og kerfin í kringum sig og dragast smám saman inn í vanvirkni. Þegar það ástand hefur varað í nokkur ár verður mun erfiðara að snúa þróuninni við.“

Elín nefnir sérstaklega dæmi um ungmenni sem hafa glímt við skólaforðun vegna andlegra vandamála síðustu ár grunnskóla og eru þegar farin að einangra sig þegar þau ná sextán ára aldri. „Ef ekkert er gert á þessum tímapunkti er hætt við að vandinn festist í sessi. Þá sjáum við fólk koma til okkar um tvítugt, eftir að hafa verið utan skóla, vinnu og félagslegs umhverfis í langan tíma.“

Með því að opna Ung VIRK fyrir yngri aldurshópa vonast þau til að fá beiðnir fyrr, áður en vanvirkni, félagsleg einangrun og lágt sjálfsmat verða langvarandi. „Því fyrr sem gripið er inn í, því meiri líkur eru á að ungmennin nái aftur fótfestu í námi eða vinnu,“ segir Elín.

Viðamikið samstarfsverkefni sett á laggirnar 2019

Ung19 varð til hjá VIRK árið 2019 þegar sett var af samstarfsverkefni um bætt lífskjör og lífsgæði ungs fólks með skerta starfsgetu á vegum Félagsmálaráðuneytisins, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Tryggingastofnunar ríkisins, Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar og VIRK. Hjá UngVIRK starfar þverfaglegt teymi sem er með fjölda samstarfsaðila, svo sem starfsendurhæfingarstöðvar um land allt, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og fleiri. Unnið er út frá einstaklingsmiðaðri nálgun, hugmyndafræðinni Individual Placement and Support – IPS, þar sem lögð er áhersla á að koma einstaklingnum í tengingu við atvinnu eða nám þannig að það verði hluti af endurhæfingingarferlinu frekar en að bíða með slíkar tengingar þar til endurhæfingu er lokið. Afar misjafnt er hversu lengi fólk er í þjónustu UngVIRK en Elín segir að haldið sé áfram með starfið á meðan stígandi sést í árangri hjá hverjum einstaklingi. „Sumir þurfa styttri tíma en aðrir lengri,“ segir hún.

VIRK birti tilkynningu á dögunum þar sem fram kemur að 2.576 einstaklingar, í öllum aldurshópum, hófu starfsendurhæfingu hjá VIRK á árinu 2025, 205 fleiri en árið áður, sem er 8,6% fjölgun. Um metaðsókn að þjónustu VIRK er að ræða og hafa aldrei fleiri byrjað í starfsendurhæfingu hjá VIRK á einu ári.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 9. febrúar, 2026, 19:24

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link