Hvers vegna koma skipulagsmál okkur alltaf í opna skjöldu?  

Lestími: 9 mínútur

Of stórt, of hátt, of … óafturkræft. Skipulagsmál eiga að gefa okkur, mér og þér, færi á að vera með að móta umhverfið okkar. Hvers vegna kemur niðurstaðan okkur svona oft í opna skjöldu?

Í gær var það græna gímaldið, í dag er það hjörð af tvílyftum smáhýsum mitt í einni fallegustu landslagsheild á Íslandi. Á morgun verður það eitthvað enn annað sem fær okkur til að hugsa: hver leyfði þetta?  

Markmið skipulagslaga er meðal annars að passa upp á að fólk fái aðkomu að ákvörðunum um breytingar á umhverfi sínu. Að við getum passað upp á hluti sem skipta okkur máli: fugla, fornminjar, loftgæði, leiksvæði, samgöngukerfi sem er þegar yfirfullt af bílum og má ekki við meiru, og þar fram eftir götunum.  

Hvers vegna eru skipulagsmál samt reglulega í fréttum með neikvæðum formerkjum? Og það þrátt fyrir margar umferðir af kynningum, fundum, skýrslum, mati á umhverfisáhrifum? Hvers vegna koma þau okkur sífellt á óvart – og stundum óþyrmilega? 

Velkomin – ef þið getið 

Skipulagsmál eru oft eins og opið námskeið sem allir mega sækja, án skráningargjalds. Það mega allir fylgjast með og taka þátt í umræðutímum. Kennslugögnin eru opin og án endurgjalds.  

En stundaskráin er stopul. Námskeiðið getur tekið eitt ár, tíu ár, kannski meira, kannski minna. Við vitum oft ekki alveg hvenær næsti áfangi verður kenndur.  

Fyrirvaralaust fréttirðu svo af því að þú hafir sex vikur til að lesa kannski fleiri hundruð síður og skila af þér umsögn. Þetta getur komið mitt í jólaösinni eða í sauðburðinum; þú þarft að geta brugðist við hvenær sem er. Kannski fréttirðu ekki einu sinni af því fyrr en fresturinn er liðinn.  

Gögnin eru opin en þú þarft að vera læs á texta, tölfræði og kort, félagshagfræðilegar greiningar og áhrifamat vatnshlota, svo fátt eitt sé nefnt. 

Og þetta þarftu kannski að gera ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur oft. Fyrir stærri framkvæmdir eru þetta (minnst) tvö samhliða ferli, bæði breytingar á skipulagi og umhverfismat framkvæmdar. Þú þarft að hafa augun á boltanum og það lengi.  

Og þó að búið sé að samþykkja skipulag, þarftu að fylgjast með hvort því verði breytt. Í grein sinni um græna gímaldið og stjórnsýslu skipulagsmála rekur Ásdís Hlökk Theódórsdóttir að deiliskipulagi Suður-Mjóddar hafi verið breytt 12 sinnum frá 2009 til 2024. Þetta voru litlar tilfærslur í einu en samanlagt stórar breytingar frá upprunalegu skipulagi.  

Það eru ráð. Skrollaðu niður, ef þú vilt fara beint þangað.  

Það kom hingað maður, sem vill… 

En byrjum nú á byrjuninni. Sveitarfélögin fara með skipulagsvaldið og taka ákvarðanir um skipulagsmál. Langflest sveitarfélög á landinu eru fámenn og mörg hafa oft og tíðum upplifað sig í langvarandi varnarbaráttu síðustu áratugi.  

Margar sveitarstjórnir (og bæjar- og borgarstjórnir) taka almennt vel í hugmyndir um uppbyggingu og eru viljugar að greiða leið þeirra sem vilja byggja upp og skapa störf. Þegar stórhuga menn banka upp á, opnast margar dyr upp á gátt. Í litlu samfélagi vilja fáir vera Þrándur í götu. En þótt einhver segi verði þinn vilji, kemur amen ekki í beinu framhaldi. Nei, við erum rétt að byrja.  

Verður ekki bæði sleppt og haldið 

Skipulagsmál eiga að tryggja hagsmuni heildarinnar: okkar allra og þó sérstaklega þeirra sem búa nærri uppbyggingunni. Hljómar einfalt, ef það væri ekki svona flókið. Við höfum nefnilega bæði hag af uppbyggingu, t.d. störf, íbúðir, raforku, og líka oft hag af því að ekki verði af henni.   

Nýtt skipulag og breytingar á notkun svæða koma íbúum oft í opna skjöldu. Mynd/Reykjavíkurborg/Róbert Reynisson. Aðalmynd með grein: RÚV/Ragnar Visage.

Við viljum fá störf og hús og raforku en við viljum áfram hafa svæði til útivistar og hreyfingar, hreint drykkjarvatn, fornminjar sem tengja okkur við söguna, náttúru sem veitir okkur bæði gleði og þjónustu og svo framvegis.  

Þess vegna erum við með þetta viðamikla og frekar flókna kerfi sem á að hjálpa okkur að koma öllu vel fyrir, þannig að við byggjum það sem við þurfum, þar sem við þurfum það – án þess að við fórnum meiri hagsmunum fyrir minni.  

Skipulagskerfið á líka að gæta þess að öll plön séu uppi á borðum, allir geti sagt hvað þeim finnst og að þannig skapist meiri sátt við niðurstöðuna.  

Svo hvers vegna kemur niðurstaðan flatt upp á okkur?  

Samráðsþreytan 

Þegar vinnuvélarnar mæta er oft langt síðan það varð of seint að koma með athugasemdir. Það virðist samt vera þá sem rennur upp ljós fyrir mörgum að eitthvað sé á döfinni. 

Í langflestum tilfellum þegar fólk rekur í rogastans og spyr: „Hvar er samráðið?“ hefur ferlið farið fram eftir lögum og reglum. Það var samráð og það er löngu, löngu búið. Þetta gerist jafnvel þar sem sveitarfélag og fagaðilar hafa lagt sig í líma við að ná til fólks og upplýsa.  

Ferlin eru of löng, í of mörgum umferðum, á of mörgum stigum, með of mörgum fylgiskjölum og of mörgum fundum til þess að venjulegt fólk geti gætt hagsmuna sinna á sem bestan hátt.  

Flest eigum við nóg með okkar daglega amstur. Athyglin okkar er annars staðar. Orkan fer í annað. Það eru svo margir fundir, svo margar tilkynningar, svo margt sem við eigum að láta okkur varða. Æ, var ekki að lenda ný sería í netflix?  

Þetta er ekki séríslenskt. Ég heyrði nákvæmlega það sama þegar ég vann við skipulagsmál í Noregi. Það er þreyta í fólki og það skilur ekki hvers vegna þetta þarf að vera svona flókið.  

Ferlin eru of löng, í of mörgum umferðum, á of mörgum stigum, með of mörgum fylgiskjölum og of mörgum fundum til þess að venjulegt fólk geti gætt hagsmuna sinna á sem bestan hátt.  

Ég skil að venjulegu fólki geti fundist skipulagsmál eins og torskilin gjörningalist.  

Skipulagsvaldabaráttan 

En ég, sem vinn við skipulagsmál, er samt líka óttaslegin við tilhugsunina um hraðsoðna einföldun á regluverkinu. Ég óttast að það muni bitna á möguleikum okkar til að vernda sameiginlega hagsmuni okkar allra, þar með talið náttúru og lífríki.   

Því skipulagsmál eru valdabarátta ólíkra hagsmuna. Í sumum tilfellum er ávinningur framtakssamra einkaaðila á einni vogarskál og hagsmunir nágranna og náttúru á hinni. Sókn og vörn. Hagsmunir af að gera og hagsmunir af að gera ekki – en þó líka með möguleikanum á að gera öðru vísi, velja annan valkost, færa og aðlaga. Við megum ekki gleyma þeim möguleika.  

Það sama á við um skipulagsmálin og Churchill sagði um lýðræðið: versta stjórnkerfið – fyrir utan allt hitt sem við höfum prófað. Kerfið er ekki fullkomið. Við megum við því að sverfa af nokkra vankanta, en pössum okkur að gera það nú samt með þjöl, ekki með öxi.   

Ef á að breyta regluverkinu, takið þá í guðs bænum loksins heildarendurskoðun á skipulagslögum, að sjálfsögðu með gnótt af samráði. Eins einfalt og hægt er – en ekki einfaldara. Það má ekki verða of auðvelt að valta yfir hagsmuni almennings.  

Á meðan við bíðum, hvað getum við gert? Sem betur fer er sífellt að verða auðveldara að fylgjast með og hafa áhrif.  

  • Skipulagsgáttin – skráðu þig 

Á skipulagsgáttinni geturðu séð hvort eitthvað sé að gerjast í nágrenni við þig. Þú getur líka skráð þig á póstlista þannig að þú fáir tilkynningu ef einhver vill breyta einhverju í námunda við þig. Þú getur líka fylgst með ákveðnum málum.  

Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum, farðu í Valmynd efst til hægri og þaðan í Áskriftir og veldu hverju þú vilt fylgjast með. 

  • Athugaðu hvað er í gildi nærri þér 

Skoðaðu málið á skipulagsvefsjánni. Athugaðu samt að skipulagsvefsjáin gerir eins vel og hún getur en í einhverjum tilfellum getur vantað skjöl. Sum sveitarfélög eru með kortasjár á map.is og Reykjavíkurborg er með eigin skipulagssjá á borgarvefsjánni.  

  • Náðu kjöri 

Skipulagsvaldið býr hjá sveitarfélögunum og ákvarðanir um skipulagsmál eru teknar af kjörnum fulltrúum. Mestu áhrifin á skipulagsmál geturðu fengið með því að einhenda þér í kosningabaráttu í vor.  

Engar áhyggjur, reynsla og þekking af skipulagsmálum eru kostur en alls engin krafa.   

Flestar sveitarstjórnir eru mannaðar áhugamönnum sem gera sitt allra besta til að taka upplýstar ákvarðanir um alls konar mál sem þau hafa ekki djúpa fagþekkingu á, enda fagsvið sveitarfélaga óhemju breitt.  

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 31. janúar, 2026, 12:14

Herdís Sigurgrímsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link