5. febrúar 2026 var kannski dagurinn sem breytti lífi þínu – þú bara veist það ekki ennþá

Lestími: 13 mínútur

Það er eitthvað stórt í loftinu, skrifar maður að nafni Matt Shumer í langri grein sem hann birtir á vef sínum og nokkrum samfélagsmiðlum. Viðbrögð við greininni hans benda til þess að þetta séu engin venjuleg skrif um gervigreind. 

Það er eitthvað stórt í loftinu, skrifar ungur maður að nafni Matt Shumer í grein sem hann birti á vef sínum og setti í dreifingu á samfélagsmiðlum. Viðbrögð við greininni hans benda til þess að þetta séu engin venjuleg skrif um gervigreind. Þegar þetta er skrifað og greinin hefur verið á netinu í tvo daga hafa 68 milljónir manna lesið hana á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, og yfir 30 milljónir lesið hana á Linkedin. Greinin, sem ber yfirskriftina Somehing big is happening, hefur bókstaflega farið um netheima eins og eldur um sinu.

Shumer líkir gervigreind við Covid. Um 40 milljónir lásu grein hans um vendipunkt í þróun gervigreindar á X á fyrsta sólarhring eftir að hún var birt. Mynd/skjáskot. Aðalmynd með grein er teikning gerð af Gímaldinu með Nano Banana Pro AI

Höfundur, ungur tæknifrumkvöðull, líkir þeim breytingum sem hann skynjar tengdar gervigreind við það þegar Covid var í startholunum. Hann byrjar á að biðja lesandann að horfa til baka til ársins 2020, nánar tiltekið til febrúarmánaðar. 

„Ef þú varst að fylgjast vel með gætir þú hafa tekið eftir því að nokkrir voru að tala um veiru sem var að breiðast út erlendis. En flest okkar voru ekki að fylgjast vel með. Hlutabréfamarkaðurinn gekk frábærlega, börnin þín voru í skólanum, þú varst að fara á veitingastaði og taka í höndina á fólki og skipuleggja ferðalög. Ef einhver hefði sagt þér að hann væri að safna klósettpappír hefðir þú haldið að hann hefði verið að eyða of miklum tíma í skrítnum hluta internetsins. Síðan, á um þriggja vikna tímabili, breyttist allur heimurinn. Skrifstofan þín lokaði, börnin þín komu heim og lífið endurskipulagði sig í eitthvað sem þú hefðir ekki trúað ef þú hefðir lýst því fyrir sjálfum þér mánuði fyrr.“

Shumer telur að svipað ástand sé í gangi núna, nema að breytingarnar verði miklu stærri en Covid. Fólk almennt gruni eða telji að eitthvað stórt sé í gangi varðandi gervigreind en átti sig ekki vel á hversu langt hún er komin. „Ég held að við séum í þetta virðist ýkt-fasanum af einhverju miklu, miklu stærra en Covid,“ segir hann.

Hann segir að gervigreind hafi tekið svo stórt stökk í síðustu viku að fólk hreinilega verði að setja sig inn í það sem sé að gerast.

Af hverju skiptir 5. febrúar máli?

Fimmtudaginn 5. febrúar kynntu leiðandi tæknifyrirtæki ný og enn öflugri gervigreindarlíkön: Opus 4.6 frá Anthropic og GPT-5.3-Codex frá OpenAI. Aðeins nokkrar klukkustundir liðu á milli útgáfanna, sem er lýsandi fyrir kapphlaupið sem er í gangi í þessum geira. Líkönin eru sérstaklega hönnuð fyrir forritun og stærri, sjálfstæð verkefni. Gervigreindarlíkönin, eða spjallmennin eins og við köllum þau gjarnan, geta nú unnið sjálfstætt í margar klukkustundir án mannlegrar aðstoðar og leyst mun flóknari verkefni en áður.

Shumer vill meina að breytingarnar marki tímamót, nýtt þroskastig gervigreindar. Líkönin, sem margir treysta á í daglegum störfum, séu nú ekki lengur á tilraunastigi eða eitthvað sem sé skemmtilegt og sniðugt að ráðfæra sig við heldur geti þau nú þegar gengið í fjölmörg störf. Því sé mikilvægara en nokkru sinni fyrr að kynna sér gervigreind og afla sér þekkingar. Gervigreindarlíkön séu ekki lengur jaðartækni heldur mikilvægir innviðir. 

„Ég hef eytt sex árum í að byggja upp gervigreindarfyrirtæki og fjárfesta í greininni. Ég lifi í þessum heimi. Og ég er að skrifa þetta fyrir fólkið í mínu lífi sem gerir það ekki… fjölskyldu mína, vini mína, fólkið sem mér þykir vænt um sem heldur áfram að spyrja mig hvað er málið með gervigreind? og fær svar sem er ekki lýsandi fyrir það sem er í raun og veru að gerast. Ég held áfram að gefa þeim kurteisu útgáfuna. Kokteilboðs-útgáfuna. Vegna þess að heiðarleg útgáfan hljómar eins og ég hafi misst vitið. Og í nokkurn tíma sagði ég sjálfum mér að það væri nógu góð ástæða til að halda því sem er í raun að gerast fyrir mig. En bilið á milli þess sem ég hef verið að segja og þess sem er í raun að gerast er orðið allt of stórt. Fólkið sem mér þykir vænt um á skilið að heyra hvað er að koma, jafnvel þó það hljómi brjálað.

Ég vil að vera skýr um eitt strax í upphafi: þrátt fyrir að ég vinni í gervigreind hef ég nánast engin áhrif á það sem er að fara að gerast, og það á líka við um langflesta í greininni. Framtíðin er að mótast af áberandi fáum: nokkrum hundruðum vísindamanna hjá handfylli fyrirtækja… OpenAI, Anthropic, Google DeepMind og nokkrum öðrum. Ein einasta þjálfunarlota, stjórnað af litlu teymi í nokkra mánuði, getur framleitt gervigreindakerfi sem breytir allri braut tækninnar. Flest okkar sem vinna í gervigreind erum að byggja ofan á grunni sem við lögðum ekki. Við erum að horfa á þetta þróast á sama hátt og þú… við erum bara nógu nálægt til að finna jörðina skjálfa fyrst,“ skrifar Shumer.

Hann segir að nú sé kominn tími til að segja þetta upphátt. Ekki með því að segja jæja, við þurfum nú að tala um þessa gervigreind heldur segja þetta er að gerast núna og þú þarft að skilja það.

Ég veit að þetta er raunverulegt vegna þess að það gerðist hjá mér fyrst

Matt Shumer er tæplega þrítugur gervigreindarfrumkvöðull sem hefur meðal annars byggt upp HyperWrite AI ritvinnsluaðstoð, fengið fjármagn frá helstu fjárfestum og náð að skapa sér nafn í umræðunni um gervigreind og nýja tækni. Hann gefur sig sjálfur út fyrir að „sjá fyrir horn“, semsagt reynir að spá fyrir um það sem gerist næst í tækni. Hann þykir framsýnn og eins og greinin sem hér er vísað í vitnar um þá hafa orð hans vægi. Greinin Something big is happening er einhver mest lesna greinin um gervigreind sem birt hefur verið, þó hefur hún aðeins verið á vefnum í tvo daga. 

Frumkvöðullinn Matt Shumer hefur fengið ævintýralega mikinn lestur á grein þar sem hann lýsir því að gervigreind geti nú þegar unnið tæknilegan hluta starfs hans sem forstjóra í gervigreindarfyrirtæki. Meðal annars hafa yfir 30 milljónir séð hana á Linkedin. Breytingarnar séu á þannig skala að það sé erfitt að ná utan um þær, rétt eins og fólk átti erfitt með að átta sig á þeim breytingum sem Covid myndi hafa í för með sér í upphafi faraldursins. Mynd/skjáskot

Shumer skrifar greinina á sína eigin síðu en deilir upphaflega í gegnum X, áður Twitter. Deilingar á greininni halda þar, á Linkedin og víðar í netheimum. Rætt er um að þetta sé einhver mest lesna grein um gervigreind sem birt hefur verið í langan tíma.

Bandaríski sálfræðingurinn Gary Marcus, vísindamaður og vinsæll skríbent um gervigreind, er þó gagnrýninn. Segir hann í færslu á Substack-reikningi sínum að lesa verði grein Shumers í því ljósi að hann hafi sjálfur hag af því að tala upp gervigreind. Í greininni séu vissulega góðar ábendingar, en hún sé til marks um of mikla trú á getu gervigreindarinnar. 

Grípum þó aftur niður í grein Matt Shumer: 

„Hér er það sem enginn fyrir utan tæknigeirann skilur alveg ennþá: ástæðan fyrir því að svo margir í greininni eru að hringja viðvörunarbjöllum núna er að þetta hefur nú þegar gerst hjá okkur. Við erum ekki að spá þessu. Við erum að segja ykkur hvað gerðist í okkar eigin störfum og vara ykkur við að þið séuð næst.“

Shumer vitnar því næst í eigin reynslu og segir að í mörg á hafi gervigreindin bætt sig jafnt og þétt. Stór stökk hafi verið tekin hér og þar, en nægilega langt á milli þeirra til að að hægt væri að aðlagast hverju stökki. 

Í fyrra hafi öll þróun orðið hraðari. Og síðan enn hraðari. Stökkin hafi stækkað og hvert nýtt líkan (ný uppfærsla af ChatGPT og álíka spjallmennum) ekki bara aðeins betra en það síðasta heldur miklu betra. Þá hafi einnig farið að vera styttra á milli útgáfa. Minna þurfi að leiðrétta gervigreindina og Shumer segir að hún geti í auknum mæli leyst verkefni sem hann taldi að krefðust sinnar eigin sérfræðiþekkingar.

„Svo gerðist það í síðustu viku, þann 5. febrúar, að tvö stór gervigreindarfyrirtæki gáfu út ný líkön á sama degi: GPT-5.3 Codex frá OpenAI og Opus 4.6 frá Anthropic (framleiðendur Claude). Og eitthvað small. Ekki eins og ljósaskipti… meira eins og augnablikið þegar þú áttar þig á að vatnið hefur verið að hækka í kringum þig og er núna komið upp að brjósti.“

Shumer fer yfir þróun undanfarinna ára með þessari lýsingu:

„Árið 2022 gat gervigreind ekki gert einfaldar reikniaðgerðir á áreiðanlegan hátt. Hún hefði sjálfsörugg sagt þér að 7 × 8 = 54.

Árið 2023 gat hún staðist próf í lögfræði.

Árið 2024 gat hún skrifað virkan hugbúnað og útskýrt vísindi á hærra stigi.

Seint á árinu 2025 sögðu sumir af bestu forriturum heims að þeir hefðu afhent mestan hluta kóðunarvinnu sinnar til gervigreindar.

Þann 5. febrúar 2026 komu ný líkön sem láta allt sem fyrir er virka eins og annað tímabil.

Ef þú hefur ekki prófað gervigreind á síðustu mánuðum þá er þær útgáfur sem eru til í dag þér óþekkjanlegar.“

Lýsing á verkefni er nóg

Shumer segist nú, eftir nýjar uppfærslur, ekki þurfa lengur að sinna tæknilegum hluta starfs síns. Hann lýsi því einfaldlega fyrir gervigreindinni hvað hann vilji að hún búi til. Það geri hann á einföldu máli en ekki tæknimáli. „Og það bara birtist. Ekki uppkast sem ég þarf að laga, heldur fullbúin vara. Ég segi gervigreindinni hvað ég vil, geng frá tölvunni í fjórar klukkustundir og kem til baka og verkinu er lokið. Það er vel gert, betur en ég hefði gert það sjálfur, og ég þarf ekki að gera leiðréttingar.

Leyfðu mér að gefa þér dæmi svo þú getir skilið hvernig þetta lítur í raun út. Ég segi gervigreindarlíkaninu: Ég vil byggja þetta forrit. Hérna er hvað það ætti að gera, hérna er svona nokkurn veginn hvernig það ætti að líta út. Finndu út notendaflæðið, hönnunina, allt saman. Og það gerir það. Það skrifar tugþúsundir kóðalína. Síðan, og þetta er hlutinn sem hefði verið óhugsandi fyrir ári síðan, opnar það forritið sjálft. Það smellir í gegnum hnappana. Það prófar eiginleikana. Það notar forritið á þann hátt sem manneskja myndi gera. Ef gervigreindinni líkar ekki hvernig eitthvað lítur út eða finnst, fer hún til baka og breytir því, á eigin spýtur. Hún endurtekur, eins og forritari myndi gera, lagar og fínpússar þar til hún er ánægð. Aðeins þegar hún hefur ákveðið að forritið uppfylli eigin staðla kemur hún til baka til mín og segir: Það er tilbúið fyrir þig að prófa. Og þegar ég prófa það er það yfirleitt fullkomið.

Ég er ekki að ýkja.“ 

Shumer segir að nýjasta útgáfa spjallmennisins sem við þekkjum sem ChatCPT, sú sem heitir GPT-5.3 Codex, hafi orðið til þess að hann áttaði sig á að gervigreindin sé ekki lengur bara að fylgja fyrirmælum. Hún geti nú þegar tekið ákvarðanir. „Það hafði eitthvað sem fannst, í fyrsta skipti, eins og dómgreind.“ 

Gervigreind skrifar sjálfa sig

Shumer bendir á að með nýjustu útgáfunni sé gervigreindin í raun farin að taka þátt í að bæta sjálfa sig. Í tæknilýsingu fyrir nýjustu útgáfuna kemur einmitt fram að GPT-5.3-Codex sé fyrsta líkanið frá OpenAI sem hafi tekið þátt í að búa til sjálft sig. Codex teymið notaði fyrstu útgáfur til að finna villur í þjálfun líkansins og til að greina prófniðurstöður og mat.

Gervigreindin hafi þannig hjálpað til við að byggja og bæta sjálfa sig.

Í umfjöllun Business Insider um greinina er vakin athygli á þeirri sýn Shumers að við ættum nú þegar að búa okkur undir að gervigreind hafi miklu meiri áhrif á daglegt líf en Covid gerði. Aðlögun að breytingum á störfum sé ekki eitthvað sem sé í framtíðinni heldur sé nú þegar orðin nauðsynleg.

Bilið á milli skynjunar og raunveruleika

Shumer er auðvitað bara einn af mörgum sem fjalla um gervigreind. En af ýmsum ástæðum hefur grein hans vakið þessa miklu athygli og fengið jafnmikla dreifingu og raun ber vitni. Hann tekur raunhæf dæmi og skrifar greinina á aðgengilegan hátt en ekki tæknimáli. Hún hefur því náð til margra.

Hann segist hafa til þessa gefið fólki öruggu útgáfuna af því hvert gervigreindin sé komin, en að með greininni vilji hann lýsa raunveruleikanum þótt hann kunni að hljóma klikkaður. Líkingin við Covid verður til þess að fólk tengir við eitthvað stórt sem getur breytt öllum heiminum, jafnvel á skömmum tíma.

Hvort 5. febrúar 2026 reynist vendipunktur í tæknisögunni verður ekki skorið úr um á þessari stundu. Saga tækninnar sýnir að raunveruleg áhrif nýrra kerfa koma oft fram smám saman, ekki endilega með einum hvelli. Það sem grein Shumers gerir hins vegar er að varpa ljósi á tilfinningu sem virðist raunveruleg innan geirans sjálfs: að hraðinn sé orðinn meiri en áður og að bilið milli þeirra sem fylgjast náið með þróuninni og almennings sé að breikka.

Spurningin sem stendur eftir er því ekki endilega hvort hann hafi rétt fyrir sér að öllu leyti, heldur hvort við tökum eftir breytingunum á meðan þær eru að gerast. Ef hann hefur rétt fyrir sér gæti 5. febrúar 2026 síðar verið nefndur sem dagurinn sem markaði upphaf nýs tímabils. Ekki vegna þess sem við sjáum nú, heldur vegna þess sem við áttum á okkur seinna.

Grein Matt Shumer í heild sinni

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 12. febrúar, 2026, 11:12

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link