Fjölmiðlanefnd: „Ekki nákvæm vísindi“ að reikna stöðugildi á fjölmiðlum

Lestími: 12 mínútur

Fjölmiðlanefnd getur ekki veitt upplýsingar um stöðugildi á fjölmiðlum sem fá rekstrarstuðning. „Þessi gögn eru ekki til,“ segir í svari til Gímaldsins. Formaður Blaðamannafélagsins hvetur ráðuneytið til ganga úr skugga um að Fjölmiðlanefnd sinni skyldum sínum. Frumvarp um breytingar á fjölmiðlalögum fer í samráð eftir helgi.

cameras, filming, media, reporters, conference, video, interview, tripod, cameramen, interview, interview, interview, interview, interview

Á sex árum hefur 2,7 milljörðum króna verið veitt úr ríkissjóði í endurgreiðslur vegna ritstjórnarkostnaðar einkarekinna fjölmiðla, svokallaða fjölmiðlastyrki. Reynsla er því komin á verkefnið, sem upphaflega kom til sem sérstakur stuðningur vegna heimsfaraldurs, en greint hefur verið frá því að stuðningur við fjölmiðla verði festur í sessi næstu fimm árin. Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fjölmiðla eru langt komin og verða send í samráðsferli eftir helgi, samkvæmt upplýsingum úr menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu.

Eftir að Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, kynnti aðgerðaáætlun í málefnum fjölmiðla í desember síðastliðnum skapaðist umræða um samdrátt á fjölmiðlum. Stuðningskerfi sem þetta er hugsað til að efla blaðamennsku í landinu, en síðustu misseri hafa tíðar fregnir borist af uppsögnum á ritstjórnum og stjórnendur á fjölmiðlum lýst erfiðri stöðu. Gímaldið hugðist ná utan um það hversu mörg stöðugildi á ritstjórnum eru á bak við rekstrarstuðninginn, hvort stuðningurinn hefur í raun orðið til þess að efla blaðamennsku og styrkja ritstjórnir.

Gímaldið hefur óskað eftir því við Fjölmiðlanefnd að fá uppgefinn fjölda stöðugilda á fjölmiðlum sem fengið hafa endurgreiðslur á árunum 2020 til 2025, öll árin sem stuðningur hefur verið veittur. Fjölmiðlanefnd segist ekki geta tekið þær upplýsingar saman og því ekki geta sagt til um hve mörg stöðugildi liggja að baki fjölmiðlastyrkjunum, jafnvel þótt stuðningurinn byggi eingöngu á launa- og verktakagreiðslum og allir umsækjendur þurfi að gefa upp meðalfjölda stöðugilda yfir árið í sérstökum reit á umsóknareyðublaði. „Þessi gögn eru ekki til,“ segir í svari Fjölmiðlanefndar til Gímaldsins.

Fjölmiðlum sem sækja um rekstrarstuðning er skylt að gefa upp fjölda stöðugilda á ritstjórn og heildarupphæð launa- og verktakagreiðslna sem þeir telja falla undir endurgreiðsluhæfan kostnað. Fjölmiðlanefnd – sem hefur eftirlit með löggjöf um fjölmiðla, sér um umsýslu umsókna um styrki og veitir úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna umsóknanna – segir að það séu „ekki nákvæm vísindi“ að taka saman stöðugildi að baki umsóknum.

Endurgreiðslur launakostnaðar á ritstjórnum hófust í kjölfar heimsfaraldurs Covid-19 og voru fyrst veittar árið 2020 vegna rekstrarársins 2019. Áður hafði verið lagt til og rætt á þingi að slíkur stuðningur yrði tekinn upp hér á landi líkt og á Norðurlöndum.

Aðeins tiltekin störf á ritstjórn teljast stuðningshæfur kostnaður

Stuðningshæfur kostnaður, sem fjölmiðlar hafa getað fengið endurgreiddan frá árinu 2020, telst eingöngu beinn launakostnaður eða verktakagreiðslur blaða- og fréttamanna, ritstjóra og aðstoðarritstjóra, myndatökumanna, ljósmyndara, umbrotsmanna og prófarkalesara. Ekkert annað telst stuðningshæft en sá kostnaður sem beinlínis fellur til við að greiða laun eða verktakagreiðslur til þeirra sem vinna við að afla frétta og miðla fréttum, fréttatengdu efni og fjalla um samfélagsleg málefni, eins og það hefur verið orðað í reglugerð sem hefur verið uppfærð nokkrum sinnum.

Stuðningurinn hefur numið á bilinu 380 til 550 milljónum króna á ári á sex ára tímabili. Samanlagt hafa rúmlega 2,7 milljarðar króna farið í rekstrarstuðning á sex ára tímabili.

Árvakur og Sýn, stærstu fjölmiðlanir, hafa fengið samanlagt 1,2 milljarða króna frá því stuðningurinn var veittur fyrst. Greiðslur til þeirra fimm fjölmiðlaveitna sem hæstar endurgreiðslur hafa fengið nema samanlagt tæpum tveimur milljörðum króna, eða um 72 prósentum af heildarstuðningi. Þess ber þó að geta að stuðningur sem sýndur er á súluriti dreifist í raun á fleiri fyrirtæki í gegnum árin. Upphæðir Fjölmiðlatorgs og Sameinaða útgáfufélagsins innihalda stuðning sem greiddur var til annarra fyrirtækja, líkt og skýrt er út neðanmáls í súluritinu.

Alls hafa á bilinu 23 til 28 fjölmiðlar uppfyllt skilyrði fyrir stuðningi ár hvert. Flestir fá smærri upphæðir en sýndar eru á súluritinu. Í heild hafa 38 fjölmiðlafyrirtæki fengið stuðning, sum aðeins einu sinni en önnur öll sex árin. Alls hafa 22 fjölmiðlaveitur, eða um 57 prósent þeirra sem fengið hafa rekstrarstuðning, fengið innan við 30 milljónir króna í stuðning á tímabilinu.

Eingöngu tekið saman fyrir ráðuneytið vegna eins árs

Á síðasta ári fékk blaðamaður Gímaldsins upplýsingar frá Fjölmiðlanefnd um fjölda stöðugilda á fjölmiðlum vegna ársins 2023, sem úthlutun endurgreiðslu til fjölmiðla árið 2024 byggir á. Þessar upplýsingar má sjá í töflu að neðan.

Gímaldið óskaði í framhaldinu eftir upplýsingum um fjölda stöðugilda fyrir öll hin árin sem fjölmiðlar hafa fengið endurgreiðslu, þar með talið 2024 en þá var nýbúið að endurgreiða fjölmiðlum hluta kostnaðar vegna þess starfsárs. Þá fengust þau svör frá Fjölmiðlanefnd að nefndin gæti ekki tekið þessi gögn saman. Með vísan í áðurnefnt svar um fjölda stöðugilda fyrir 2023 sagði Fjölmiðlanefnd að það hafi aðeins verið tekið saman í þetta eina skipti vegna þess að ráðuneytið hafi óskað sérstaklega eftir þeim upplýsingum.

Svona líta reitirnir út sem stuðningur til fjölmiðla er reiknaður út frá. Setja þarf inn upplýsingar um laun og verktakagreiðslur ásamt upplýsingum um fjölda launamanna og verktaka í sérstakt excel-skjal. Það skjal reiknar svo út, tekur saman heildartölur og fyllir sjálfkrafa út í reitina sem sjást á myndinni.

Til þess að fá endurgreiðslu þurfa fjölmiðlar að uppfylla tilekin skilyrði sem eru tíunduð í reglugerð. Fylla þarf út í excel-skjal ýmsar upplýsingar um reksturinn, enda talið mikilvægt að stuðningurinn fari sannarlega í það sem honum er ætlað. Úr skjalinu uppreiknast reitir í sjálfu umsóknareyðublaðinu. Þeir reitir innihalda meðalfjölda stöðugilda, heildarlaunagreiðslur (verktakagreiðslur með taldar) og tryggingagjald.

Í tölvupósti frá Fjölmiðlanefnd til blaðamanns Gímaldsins, þar sem óskað er samskonar upplýsinga og fram koma í töflunni fyrir önnur ár sem rekstrarstuðningur hefur verið veittur, segir:

Við erum búin að fara ítarlega yfir fyrirspurn þína og þær upplýsingar sem þú ert að biðja um í erindi þínu.

Það er rétt að Fjölmiðlanefnd reyndi að áætla stöðugildi fjölmiðla fyrir eitt ár og það voru upplýsingarnar sem samstarfskona þín fékk hjá okkur á sínum tíma. Þetta eru þó ekki nákvæm vísindi og voru stöðugildi áætluð út frá skýrslum fjölmiðlaveitna sem þeir þurfa að skila skv. 23. gr. laga um fjölmiðla, en ekki út frá umsóknum um stuðning.

Ástæðan fyrir því að reynt var að taka þetta saman þetta eina ár var vegna þess að ráðuneytið óskaði eftir slíkum upplýsingum vegna þeirrar stefnumótunarvinnu sem verið var að vinna á þessum tíma. Þetta var afar tímafrekt og þessi útreikningur er ekki nákvæm vísindi þar sem áætla þurfti bæði stöðugildi og fjölda þeirra voru verktakar í hlutastöðu hjá fjölmiðlum.

Elfa Ýr Gylfadóttir er framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar. Mynd/skjáskot af RÚV

Nú er það svo að þó að Fjölmiðlanefnd sendi út skýrsluformið til fjölmiðla þá er samkomulag við Hagstofuna um að vinna tölfræði úr skýrslunum um fjölmiðlamarkaðinn, enda er það hlutverk Hagstofunnar að birta slíkar tölur. Við höfum verið í sambandi við Hagstofuna til að athuga hvort hún hefur reynt að áætla stöðugildi eftir árum og hvort hægt væri að visa þér þangað. Hagstofan hefur hins vegar ekki tekið þetta saman af sömu ástæðum og segir hér að ofan.

Þessar tölur sem óskað er eftir liggja því ekki fyrir nema fyrir þetta eina ár, en sú tala var áætlun stöðugilda eins og fyrr segir.

Telja að fjöldi stöðugilda sem fjölmiðlar nefna standist ekki

Gímaldið sendi póst að nýju á Fjölmiðlanefnd eftir að hafa fengið svarið sem vísað er til hér að ofan. Var ósk um upplýsingar um stöðugildi ítrekuð og auk þess spurt hver sé ástæða þess að Fjölmiðlanefnd geti ekki tekið út þessa reiti í umsóknum fjölmiðla og sent upplýsingar um stöðugildi á fjölmiðlum. Í framhaldssvari vísar Fjölmiðlanefnd til skýrslna frá fjölmiðlum, en fjölmiðlum er skylt að gefa upp ýmsar upplýsingar um rekstur sinn árlega í þar til gerðu skýrsluformi nefndarinnar. Vísar nefndin til ósamræmis milli skýrslugerðar og umsókna um stuðning.

Til frekari útskýringa er sú tala sem þarna kemur fram ekki í öllum tilvikum sú sama og fjölmiðlarnir senda okkur í skýrslunum sínum á grundvelli 23. gr. Það væri mikil vinna að bera gögnin saman og kanna af hverju tölurnar eru ekki þær sömu. Þá er það í mjög mörgum tilvikum þannig að þegar launagreiðslur og verktakagreiðslur eru teknar saman í yfirferð styrkumsókna þá er ljóst að fjöldi stöðugilda sem fjölmiðlarnir setja þarna inn stenst ekki og þarfnast frekari skýringa.

Það er ástæða fyrir því að það er mjög mikil vinna sem felst í því að fara yfir umsóknir um stuðning og skoða öll gögnin sem liggja að baki stuðningshæfum kostnaði. Í flestum tilvikum þarf að óska eftir frekari upplýsingum og iðulega þarf að lagfæra upplýsingar þar sem stundum er talinn með kostnaður sem ekki er styrkhæfur. Sú tala sem er að finna í upphaflegri umsókn fjölmiðla er því ekki alltaf rétt og alls ekki til að byggja á.

Ég ítreka það að þessi gögn eru ekki til og hafa ekki verið tekin saman hvorki af Fjölmiðlanefnd né Hagstofunni, nema í þessu eina tilviki. Ef farin væri þessi leið sem þú nefnir væri verið að byggja stöðugildi blaðamanna hér á landi á röngum gögnum sem ekki er hægt að treysta. Fjölmiðlanefnd getur ekki sem opinbert stjórnvald sent frá sér svo óáreiðanlega tölfræði mörg ár aftur í tímann.

BÍ hvetur til þess að Fjölmiðlanefnd sinni skyldum sínum

Gímaldið leitaði viðbragða hjá Blaðamannafélagi Íslands. Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands segist ekki skilja hvernig á því standi að upplýsingar um stöðugildi fjölmiðla liggi ekki fyrir hjá Fjölmiðlanefnd, enda hafi margoft komið fram að rekstrarstuðningi við fjölmiðla sé ætlað að efla blaðamennsku. Stuðningurinn miði að því að hægt sé að halda í fagfólk og því mikilvægt að haldið sé utan um gögn sem sýni þróun í greininni.

Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður BÍ. Hún hvetur ráðuneytið til að fylgjast með því að Fjölmiðlanefnd sinni skyldum sínum gagnvart fjölmiðlum og almenningi. Mynd/BÍ

„Við sem fagfélag blaðamanna sem sinnum hagsmunagæslu fyrir fjölmiðla og blaðamenn í landinu hvetjum það ráðuneyti sem þessi stofnun heyrir undir til að ganga úr skugga um að Fjölmiðlanefnd sinni skyldum sínum og haldi skrá yfir upplýsingar sem varða þessa mikilvægu grein. Benda má á að í lögum um fjölmiðla er skýrt ákvæði um starfsemi Fjölmiðlanefndar þar sem fram kemur að nefndinni sé, orðrétt, „skylt að fylgjast með stöðu og þróun á fjölmiðlamarkaði og safna upplýsingum þar að lútandi.“ Þetta ákvæði er næstefst á lista í þeirri lagagrein sem snýr að því hvað Fjölmiðlanefnd ber að gera.

Við munum sannarlega fylgja þessu eftir, ekki síst í ljósi þess að nú er verið að endurskoða fyrirkomulag reglna um úthlutun rekstrarstuðnings þannig að tryggt verði að fullt gagnsæi ríki um hvað liggur til grundvallar. Það er mikilvægt að almenningur hafi traust á þessu ferli, og það á auðvitað að gilda um öll fjárútlát ríkisins. En þetta er ekki síður mikilvægt fyrir blaðamenn og þá fjölmiðla sem sannarlega leggja út í mikinn kostnað við að gefa út fréttir og fréttatengt efni og fjalla um mikilvæg samfélagsleg málefni. Lögum samkvæmt á að vera tryggt að stuðningurinn fari í beinan kostnað vegna launa eða verktakagreiðslna vegna starfa við það, ekkert annað fellur undir þennan stuðning,“ segir Sigríður Dögg.  

Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem annast eftirlit samkvæmt lögum um fjölmiðla
og daglega stjórnsýslu á því sviði sem lögin ná til. Þá annast fjölmiðlanefnd þau hlutverk
sem henni eru falin í öðrum lögum. Með starfsemi Fjölmiðlanefndar skal stuðlað að því að markmiðum og tilgangi laga um fjölmiðla verði náð.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 21. febrúar, 2026, 15:29

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link