
Finnur Ricart og Auður Alfífa hafa mikinn vind í seglum í forvali VG í Reykjavík. Þau hafa femínista með sér, unga fólkið og stóran hluta forystunnar. Stefán er þó talinn eiga mikið inni og reynslan kennir að ekki beri að vanmeta Líf í forvali.

Forval Vinstri grænna í Reykjavík fer fram um helgina. Ungt og upprennandi fólk í flokknum vill steypa reynsluboltum af stóli en segja má að forvalið sé keppni milli tveggja liða. Þau skipa annars vegar Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur í umhverfis og loftslagsmálum og Auður Alfífa Ketilsdóttir, smíðakennari, og hins vegar Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi og Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi.
Sigurvegarar forvalsins munu skipa annað og þriðja sæti á lista hins sameiginlega framboðs Vor til vinstri en þar mun borgarfulltrúinn Sanna Magdalena Mörtudóttur vera oddviti. Viðræður standa einnig yfir um mögulega þátttöku Rósarinnar, eins af aðildarfélögum Samfylkingarinnar.
Líf Magneudóttir borgarfulltrúi flokksins, hefur verið í öndvegi VG í langan tíma og borgarfulltrúi síðan 2016. „Hún hefur eiginlega aldrei haft breiðan stuðning forystunnar og hefur oftast gengið á eigin vegum,“ segir einn viðmælanda Gímaldsins. Hún er sögð duglegur atkvæðasmalari og hana megi aldrei vanmeta í forvali.
Það hefur verið gerð töluverð aðför að henni í aðdraganda þessa forvals og hún þarf verulega að hafa fyrir sínu að þessu sinni, segir flokksfólk sem Gímaldið ræddi við. „Hún á í vök að verjast og ef hún hefur þetta af verður það mjög tæpt.”
„Hún á í vök að verjast og ef hún hefur þetta af verður það mjög tæpt.”
Það sem vinnur helst gegn henni núna er í fyrsta lagi slakt fylgi í Reykjavík um langan tíma, í öðru lagi ákall um breytingar og nýtt upphaf í flokknum og í þriðja lagi hópar innan flokksins sem hafa haft horn í síðu hennar fyrir ýmsar sakir.
Til að mynda hafa femínistar í VG enn ekki fyrirgefið Líf að hafa farið gegn Sóleyju Tómasdóttur í forvali flokksins árið 2014. Sóley vann það forval með minnsta mögulega mun því aðeins einu atkvæði munaði á þeim í oddvitasætið. Femínistar í VG hafa ekki staðið með Líf síðan og vinna beinlínis gegn henni núna, segja viðmælendur. „Hvort Líf er femínisti sjálf er allt annað mál en hún er allavega ekki þeirra femínisti.“
Kreðsur tengdar verkalýðsfélögum hafa líka unnið gegn henni. Þá er vert að minnast ályktunar sem stjórn Reykjavíkurfélags VG birti vegna leikskólamála í borginni fyrir nokkru. En þá var ályktað gegn málum sem Líf hafði verið í forsvari fyrir.
„Hún er mjög flokksholl og dugleg.“
„Líf er búin að vera með þrjú prósent fylgi úr kosningum og könnunum í langan tíma og ekki margir sem líta á hana sem leiðtoga sem trekkir atkvæði að flokknum því hún er búin að afsanna það,“ segir einn viðmælanda Gímaldsins. „En hún er mjög flokksholl og dugleg og kannski einna duglegust allra í flokknum á þessu tímabili.“
Styrkur Lífar felst hins vegar í öflugu stuðningsliði sem hún hefur byggt upp á löngum tíma og í langtíma hollustu hennar við flokkinn. Fylgi flokksins í borginni er hins vegar hennar stærsti veikleiki. Þetta segja viðmælendur, að gæti fellt hana núna og efast um að hún fái fleiri tækifæri.

Andstæðingar Lífar eru þó varaðir við því að hún hafi áður komið á óvart í forvali og sé oft vanmetin. Hún er sögð mikill atkvæðasmali og gríðarlega öflug í kosningabaráttum innan flokksins.
Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi, styður Líf í oddvitasætið og gefur sjálfur kost á sér í 2. sæti. Stuðningur hans við Líf kann að vera af illri nauðsyn því samkvæmt reglum flokksins um fléttulista mega karlar ekki vera í tveimur sætum í röð. Þetta þýðir að nái Finnur oddvitasæti gæti Stefán í besta falli fengið þriðja sætið. Viðmælendur Gímaldsins telja þó að Stefán hafi styrkt sig verulega innan flokksins og vaxið eftir að hann fór að starfa á vettvangi borgarmálanna. Hann er sagður eiga mikinn stuðning inni og gæti komið á óvart í forvalinu. Vinsældir hans vinna væntanlega með Líf.
Finnur Ricart Andrason er talinn njóta meiri stuðnings meðal áhrifafólks í flokknum en Líf, segja má að hann njóti þess að Líf eigi ekki lengur upp á pallborðið og það séu ekki síður óvinsældir hennar en vinsældir hans sem tryggi honum mikinn stuðning.
Finnur er 23 ára og hefur verið nokkuð áberandi í þjóðfélagsumræðunni sem forseti Ungra umhverfissinna. Hann er sagður metnaðargjarn og ófeiminn við að koma opinberlega fram.
Stuðningur við hann kemur úr ýmsum áttum; Frá áhrifafólki í flokknum sem vill endurnýjun og breytingar, frá umhverfissinnum og ungu fólki. Þá fær Finnur líka stuðning frá fólki sem vill losna við Líf, eins og femínistum.
Efasemdir um Finn lúta fyrst og fremst að ungum aldri hans og reynsluleysi í stjórnmálum. Hann þykir mjög metnaðargjarn og reyndar svo mjög að sumum blöskrar og þykir nóg um. Svo er hann nánast óskrifað blað í stjórnmálum. „Á móti kemur að þau sem eru virkust í pólitík eru svo þreytt og pirruð út í alla sem þau þekkja að þau vilja miklu frekar einhverja sem þau þekkja ekki,“ segir einn flokksfélaga við Gímaldið.

Talið er líklegt að framboð hans og Auðar Alfífu eigi stóran þátt í tæplega 400 manna fjölgun í Reykavíkurfélagi VG síðustu vikur. Vegna smölunarinnar hefur félagið stækkað um 20 prósent og félagar sem hafa munu kosningarétt í forvalinu eru nú um 2.500.
Þau sem Gímaldið ræddi við telja þó að það sé töluverð dreifing á nýjum félögum en flestir telja að meirihluti þess muni frekar gagnast Finni og Auði Alfífu en Líf og Stefáni. Þó er bent á að þegar Finnur var gerður að oddvita í öðru kjördæminu í Reykjavík fyrir síðustu þingkosningar, hve lítið af umhverfisverndarsinnum fylgdi honum. Vonir hafi staðið til að ungur og efnilegur maður myndi draga með sér fjölda fólks inn í flokkinn en það hafi brugðist.
Hann þykir mjög metnaðargjarn og reyndar svo mjög að sumum blöskrar
Finnur hefur verið orðaður við formannsframboð í flokknum en ný forysta verður kjörin á landsfundi snemma í næsta mánuði. Mörgum þykir Finnur þó heldur ungur og óreyndur til að taka við forystu í flokknum. Það sé of stórt skref meðan hann er enn óskrifað blað í pólitík. Heimildir herma þó að tekist hafi að slá á metnað hins unga stjórnmálamanns og hann sé nú sjálfur að verða fráhverfur formannsframboði að sinni en íhugi í staðinn embætti varaformanns.

Auður Alfífa Ketilsdóttir gefur kost á sér í annað sæti. Femínistahópur flokksins er sagður styðja Auði Alfífu alveg sérstaklega og í raun Finn líka, vegna andstöðu við Líf.
Meðal stuðningsfólks Finns og Auðar eru, eins og fyrr segir, áhrifafólk í flokknum, umhverfissinnar, auk stórs hluta unga fólksins í flokknum og femínista sem fyrr segir.
Að sögn heimildarmanna Gímaldsins er allt á mikilli hreyfingu innan flokksins um þessar mundir eftir töluverðan doða undanfarið ár. Stemningin er talin velta á því, meðal annars, hvernig forvalið fer. „Það væri áfall fyrir kjarnafólkið í flokknum ef Finnur tapar fyrir Líf,“ segir einn flokksmanna.
„Það væri áfall fyrir kjarnafólkið í flokknum ef Finnur tapar fyrir Líf.“
Landsfundur flokksins verður haldinn á Selfossi tveimur vikum eftir forval og mun hann líka hafa mikil áhrif á uppbyggingarstarfið sem fram undan er í flokknum.
Þrátt fyrir að þessum fjórum frambjóðendum sé gjarnan stillt upp sem tveimur liðum, er ekki talið líklegt að annað liðið vinni og hitt tapi. Niðurstaðan verður að öllum líkindum blönduð því líklegast er að þau Líf og Finnur raði sér í efstu tvö sætin. Samherjar annars hvors þeirra fái þriðja sætið og fléttureglan gæti ráðið því ekki síður en atkvæðin sem koma upp úr kjörkössunum.
Fréttinni hefur verið breytt. Fullyrt var að Auður Alfífa geti ekki verið í öðru sæti á eftir Líf vegna fléttureglu flokksins. Þetta er rangt því fléttureglan heimilar að tvær konur séu í röð á listanum en ekki tveir karlar.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.