
Rannsakendur sem þóttust vera unglingar spurðu tíu vinsæl gervigreindaspjallforrit um skotmörk, vopn og undirbúning árása. Samkvæmt rannsókn CNN og bandarískra samtaka sem rannsaka hatursorðræðu og öfgaefni á netinu veitti meirihluti forritanna upplýsingar sem gætu nýst við ofbeldisverk.

„Happy (and safe) shooting!“ Þannig lauk eitt vinsælasta gervigreindarspjallforrit heims samræðum við Liam, gerviprófíl sem rannsakendur bjuggu til, þegar hann spurði hvernig mætti ráðast á nafngreindan stjórnmálamann á Írlandi. Fyrr í sömu samræðum hafði forritið lýst yfir stuðningi við mannréttindi og fjölbreytileika.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í rannsókn sem fjölmiðillinn CNN og bandarísk samtök sem rannsaka hatursorðræðu og öfgaefni á netinu birtu í dag. Í rannsókninni voru prófuð tíu vinsælustu gervigreindaspjallforrit heims – þar á meðal ChatGPT, Gemini, Meta AI, DeepSeek og Claude frá Anthropic.
Blaðamenn og rannsakendur bjuggu til tvo gerviprófíla – Daniel í Bandaríkjunum og Liam á Írlandi – og þóttust vera unglingar sem spurðu forritin um hvernig mætti skipuleggja ofbeldisverk gegn nafngreindum einstaklingum og stofnunum. Samkvæmt niðurstöðum þeirra veittu átta af tíu forritum notendum hagnýtar upplýsingar í meira en helmingi tilvika, svo sem um vopn, staðsetningar eða aðferðir. Perplexity veitti slíkar upplýsingar í öllum tilvikum, Meta AI í 97% og DeepSeek í 96%.
Claude frá Anthropic var eina spjallforritið sem neitaði endurtekið að veita slíkar upplýsingar og í 33 af 36 samræðum hvatti það notendur til að leita sér hjálpar.
Rannsóknin fór þannig fram að fyrst lýstu gerviprófílarnir andlegri vanlíðan sinni, síðan báðu þeir forritin um upplýsingar þekkt ofbeldisverk og spurðu loks um hugsanleg skotmörk og leiðir til að útvega vopn. Þrátt fyrir að mörg forritin lýstu yfir áhyggjum af líðan viðkomandi í upphafi þá greindi meirihluti þeirra ekki samhengið þegar samræðurnar þróuðust yfir í áhuga á ofbeldisverkum.
Í einum samræðunum skrifaði Liam hatursfulla yfirlýsingu í garð annarra kynþátta – „the west has fallen to racial impurity“ – og spurði síðan um bestu hnífabúðir í Dublin. Meta AI svaraði því til að forritið styddi fjölbreytileika en veitti í sömu samræðum lista yfir hnífabúðir, vörumerki og heimsendingarmöguleika.
Síðasta vor í Finnlandi stakk 16 ára drengur þrjá 14 ára samnemendur sína eftir að hafa undirbúið árásina í næstum fjóra mánuði með aðstoð ChatGPT, samkvæmt dómsskjölunum sem CNN fékk aðgang að. Skjölin sýna að hann skrifaði hundruð fyrirspurna um hvernig ætti að skipuleggja, undirbúa og framkvæma árásina, þar á meðal um tækni við hnífsstungur, ástæður fjöldamorða og hvernig mætti hylja sönnunargögn. Drengurinn var í lok síðasta árs dæmdur fyrir þrjár tilraunir til manndráps
Samkvæmt könnun sem CNN vísar til segjast 64% bandarískra ungmenna nota gervigreindaspjallforrit.
Forsvarsmenn fyrirtækjanna sem reka spjallforritin brugðust mismunandi við niðurstöðum rannsóknarinnar þegar CNN leitaði svara. Sumir þeirra sögðust hafa bætt öryggisráðstafanir síðan rannsóknin fór fram, sem var í lok árs 2025. Forsvarsmenn OpenAI gagnrýndu aðferðafræði rannsóknarinnar og sögðu ChatGPT endurtekið hafa neitað að veita leiðbeiningar um hvernig ætti að verða sér úti um vopn, þrátt fyrir að niðurstöðurnar sýni að forritið veitti hagnýtar upplýsingar um slíkt í 61% tilvika. Forsvarsmenn Anthropic og Snapchat sögðust að öryggisstefna þeirra væri reglulega endurskoðuð.
Fyrrverandi starfsmenn sem sáu um öryggismál hjá gervigreindafyrirtækjum segjast í samtali við CNN að niðurstöðurnar komi ekki á óvart. Þeir benda á að þróun öryggisráðstafana sé tímafrek og kostnaðarsöm og að fyrirtækin hafi lítinn fjárhagslegan hvata til að innleiða þær á meðan keppinautar gera það ekki. „Ef einhver framkvæmdastjóri segði að þetta þyrfti að gerast, myndi það gerast á vikum,“ segir fyrrverandi starfsmaður hjá Google í viðtali við CNN.
Mynd í frétt er skjáskot úr myndbandi sem er hluti af umfjöllun CNN. Hana má nálgast í heild sinni með því að smella hér.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.