Kær­um Nöru Wal­ker vís­að frá sem til­hæfu­laus­um

Lestími: 8 mínútur

Nara Wall­ker var dæmd til fang­els­is­vist­ar ár­ið 2018 fyr­ir að bíta tung­una úr þá­ver­andi eig­in­manni sín­um. Hún kærði ís­lenska rík­ið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu og kvart­aði und­an því að ekki væri tek­ið til­lit til þess að hún væri þol­andi heim­il­is­of­beld­is. Dóm­stóll­inn tók ekki und­ir með henni í nið­ur­stöðu sinni í dag.

green trees near glass building under blue sky during daytime

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu (M­DE) hef­ur vís­að máli Nöru Wal­ker gegn ís­lenska rík­in­u, frá dómi. Nið­ur­staða þess efn­is hef­ur ver­ið birt á vef dóm­stóls­ins.

Í nið­ur­stöð­unni eru kæru­efni Nöru rak­in en hún hlaut átján mán­aða fang­els­is­dóm fyr­ir tvær lík­ams­árás­ir og brot í nánu sam­bandi ár­ið 2018.

Beit stykki úr tungu þá­ver­andi eig­in­manns

Nara var dæmd fyr­ir að bíta af stykki úr tungu þá­ver­andi eig­in­manns síns og of­beldi gegn konu sem var gest­kom­andi á heim­ili þeirra hjóna. Nara hélt því fram fyr­ir rétti að brot henn­ar hefðu ver­ið fram­in í sjálfs­vörn.

Í kæru sinni til MDE kvart­aði Nara und­an því að mál henn­ar hefði átt að skoða heild­stætt og taka til­lit til sögu sam­bands henn­ar við sinn fyrr­ver­andi þeg­ar fram­burð­ur henn­ar um sjálfs­vörn var met­inn í saka­mál­inu gegn henn­i.

Hún hélt því enn frem­ur fram að kær­ur henn­ar um heim­il­is­of­beldi hefðu ekki ver­ið rann­sak­að­ar af lög­reglu með full­nægj­andi hætti og benti sér­stak­lega á að meint­ur ger­andi hafi ekki ver­ið yf­ir­heyrð­ur fyrr en tveim­ur mán­uð­um eft­ir að kæra var lögð fram og ekki hafi ver­ið tekn­ar skýrsl­ur af vitn­um fyrr en næst­um ári síð­ar.

Hún taldi að mik­il­væg sönn­un­ar­gögn hefðu ver­ið huns­uð, með­al ann­ars áverka­vott­orð og sam­skipti meints ger­anda við móð­ur Nöru á sam­fé­lags­miðl­um sem hún taldi fela í sér við­ur­kenn­ingu á brot­u­m. Þá hélt Nara því fram að lög­regla hefði kom­ið fram við sig eins og ger­anda frem­ur en þol­anda og benti á að eng­ar mynd­ir hafi ver­ið tekn­ar af áverk­um henn­ar á vett­vang­i.

Hún hélt því jafn­framt fram að lög­regl­an hefði kom­ið fram við hana sem ger­anda frek­ar en fórn­ar­lamb, og benti á að eng­ar mynd­ir voru tekn­ar af áverk­um henn­ar á vett­vangi og að hún hefði dreg­ið nokkr­ar ákær­ur sín­ar til baka til að flýta fyr­ir máls­með­ferð.

Í svör­um ís­lenska rík­is­ins til dóms­ins kom fram að sak­fell­ing henn­ar byggð­ist á ít­ar­legu mati á sönn­un­ar­gögn­um, þar á með­al vitn­is­burði allra sem voru við­stadd­ir at­vik­ið. Fram­burð­ur henn­ar um sjálfs­vörn hefði ver­ið kann­að­ur en dóm­stól­ar hefðu hafn­að hon­um á þeim grund­velli að hátt­semi henn­ar hefði ekki ver­ið tal­in nauð­syn­leg til að verj­ast ólög­mætri árás.

Varð­andi rann­sókn lög­reglu á heim­il­is­of­beldi hélt rík­ið því fram að meint­ur ger­andi hefði ver­ið yf­ir­heyrð­ur og við­eig­andi gagna hefði ver­ið aflað, þar á með­al sam­skipta af sam­fé­lags­miðl­u­m. Ákvörð­un um nið­ur­fell­ingu máls­ins hefði byggst á sönn­un­ar­stöðu sönn­un­ar­stöðu þess. Bent var á að nokk­ur tími hafði lið­ið frá at­vik­um þar til Nara kærði þau til lög­reglu og mál­ið því ekki kraf­ist taf­ar­lausra að­gerða til að tryggja sönn­un­ar­gögn. Þá hefðu fyrr­nefnd sam­skipti á sam­fé­lags­miðl­um ver­ið tví­ræð og fælu ekki í sér við­ur­kenn­ingu á meintri hátt­sem­i.

MDE vís­aði til ný­legs ís­lensks máls

Í nið­ur­stöðu MDE var gerð grein fyr­ir al­menn­um sjón­ar­mið­um um já­kvæða skyldu rík­is­ins til að vernda þolend­ur of­beld­is af hendi ann­arra ein­stak­linga á grund­velli 3. gr. sátt­mál­ans um bann við pynd­ing­um og ómann­úð­legri með­ferð og 8. gr. um frið­helgi einka­lífs.

Vís­aði MDE með­al ann­ars til tveggja ný­lega upp­kveð­inna dóma gegn Ís­landi sem varða kyn­bund­ið of­beld­i. Við með­ferð þeirra í Strass­borg hefði dóm­stóll­inn, í því skyni að leggja mat á hvort ís­lenska rík­ið upp­fyllti já­kvæð­ar skyld­ur sín­ar, skoð­að vand­lega ís­lensk­an lag­ara­mma um með­ferð heim­il­is­of­beld­is og máls­með­ferð­ar­skyld­ur yf­ir­valda við rann­sókn slíkra kæra. Í þess­um fyrr­nefndu mál­um hefði dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að lag­ara­mm­inn sem var í gildi á við­kom­andi tíma­bili veitti full­nægj­andi úr­ræði til vernd­ar gegn heim­il­is­of­beldi og kyn­ferð­is­of­beldi í gegn­um refsi­lög­gjöf­ina.

Ekkert athugavert við vinnubrögð

Eft­ir að hafa fjall­að um al­menn­ar já­kvæð­ar skyld­ur ís­lenska rík­is­ins snéri MDE sér að saka­mál­inu gegn Nöru. Dóm­stóll­inn ít­rek­aði að það sé ekki hlut­verk hans að leggja sjálf­stætt mat á sönn­un­ar­gögn og skipta því mati út fyr­ir mat inn­lendra dóm­stóla.

Það var mat MDE að ekk­ert benti til þess að ís­lensk­ir dóm­stól­ar hafi lát­ið hjá líða að meta mik­il­væg sönn­un­ar­gögn, rök­stuðn­ing­ur þeirra hafi ver­ið handa­hófs­kennd­ur eða aug­ljós­lega ósann­gjarn. Þvert á móti hafi full­yrð­ing­ar Nöru um sjálfs­vörn ver­ið tekn­ar til skoð­un­ar en þeim hafn­að á grund­velli sönn­un­ar­gagna máls­ins. Þá hafi ís­lensk­ir dóm­stól­ar fært ít­ar­leg rök fyr­ir nið­ur­stöð­um sín­um.

Að lok­um snéri MDE sér að rann­sókn á meintu heim­il­is­of­beld­i. MDE vís­aði til þess að báð­ir að­il­ar máls hafi ver­ið yf­ir­heyrð­ir og sönn­un­ar­gagna ver­ið afl­að. Sak­sókn­ari hafi met­ið kær­ur Nöru og fært ít­ar­leg rök fyr­ir ákvörð­un um nið­ur­fell­ingu rann­sókn­ar.

„Sú stað­reynd að kær­andi er ósam­mála mati á sönn­un­ar­gögn­um fel­ur ekki í sjálfu sér í sér van­rækslu“

MDE tók sér­stak­lega fram að skylda ríkja til vand­aðra rann­sókna mála sé skylda um leið­ir og ferli en ekki skylda til að kom­ast að til­tek­inni nið­ur­stöð­u. Í máli Nöru hafi yf­ir­völd fram­kvæmt rann­sókn, afl­að sönn­un­ar­gagna og fært rök fyr­ir nið­ur­stöðu sinn­i.

„Sú stað­reynd að kær­andi er ósam­mála mati á sönn­un­ar­gögn­um fel­ur ekki í sjálfu sér í sér van­rækslu á því að upp­fylla máls­með­ferð­ar­skyld­ur sam­kvæmt 3. og 8. gr. samn­ings­ins,“ seg­ir að lok­um í nið­ur­stöð­unn­i.

Í ljósi fram­an­greinds taldi dóm­stóll­inn að hafna bæri kær­um Nöru sem aug­ljós­lega til­hæfu­laus­um og vís­aði þeim frá dómi.

Nara Wal­ker lauk af­plán­un dóms­ins ár­ið 2019 en var á reynslu­lausn fram á seinni hluta árs 2020. Nara Wal­ker er áströlsk að upp­runa og fljót­lega eft­ir að hún varð frjáls ferða sinna flutti hún til Ástr­al­íu þar sem hún býr í dag.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 11. júní, 2026, 07:24

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link