
Ítalir hafa fellt umdeildar breytingar á ítölsku stjórnarskránni í þjóðaratkvæðagreiðslu. Niðurstaðan er mikið áfall fyrir ríkisstjórn Giorgiu Meloni. Skýrendur telja marga kjósendur hafa kosið um ríkisstjórn Meloni fremur þær stjórnarskrárbreytingar sem voru á kjörseðlinum.

Baráttan Meloni gegn dómurunum, eins og Ítalir kölluðu hana, hefur verið til lykta leidd og dómararnir unnu. Niðurstaðan er talin stærsta áfall Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, síðan ríkisstjórn hennar var mynduð haustið 2022.
Stjórnarskrárbreytingin sem kosið var um varðar dómskerfið, en Giorgia Meloni og hægristjórn hennar hafa haft horn í síðu þess alla valdatíð sína. Breytingin gerði ráð fyrir nýju kerfi við skipun dómara og með henni átti einnig að koma í veg fyrir að saksóknarar gætu orðið dómarar síðar á starfsferli sínum. Þá var einnig lagt til að settur yrði upp sérstakur dómstóll til að fjalla um agamál dómara og saksóknara en hingað til hefur sérstök deild innan Hæstaréttar landsins séð um slík mál.
Breytingarnar, sem ítalska þjóðin hefur nú hafnað, byggja að nokkru leyti á tillögum frá valdatíð Silvio Berlusconi, sem freistaði þess sjálfur að breyta stjórnarskránni í valdatíð sinni. Berlusconi var þá sjálfur flæktur í tugi sakamála og lýsti hann opinberum saksóknurum landsins sem krabbameini lýðræðis í landinu. Því mati eru margir í ríkisstjórn Meloni sammála enda hafa þeir sjálfir fengið smjörþefinn af því.
Kosningin stóð í tvo daga, sunnudaginn 22. mars og mánudaginn 23. mars. Upphaflega var talið að góð kjörsókn myndi vinna með Meloni og ríkisstjórn hennar, en á mánudag varð ljóst að kjörsóknin yrði svo góð að mögulega snérist taflið við og svo mikil kjörsókn ynni gegn ríkisstjórninni. Það varð raunin. Kjörsókn var rétt undir 60 prósent. 57,3 prósent höfnuðu breytingunni en 43,6 prósent vildu staðfesta hana.
Talsmenn ríkisstjórnarinnar sögðu breytingarnar tryggja nauðsynlega hreinsun innan kerfisins og greiða fyrir stefnumálum ríkisstjórnarinnar um brottvísun ólöglegra innflytjenda og aukið almannaöryggi.
Stjórnarandstaðan naut hins vegar fulltingis dómarastéttar landsins, lögmanna og embættismanna úr réttarkerfinu, sem gagnrýndu breytingarnar mjög og töldu þær til þess fallnar að draga úr sjálfstæði dómsvaldsins og auka pólitísk afskipti af því. Vísuðu gagnrýnendur ekki síst til breytinga sem boðaðar hafa verið í kjölfar stjórnarskrárbreytinga. Lagafrumvörp sem gera myndu saksóknara háðari ráðuneytum og skerða með því sjálfstæði þeirra, jafnvel þannig að framkvæmdarvaldið gæti ákveðið hvaða rannsóknir yrðu framkvæmdar.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa ekki legið á skoðunum sínum um stétt dómara og saksóknara í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Meloni hefur sakað þá um að grafa undan innflytjendastefnu ríkisstjórnarinnar og viðleitni til að sporna gegn glæpum. Í viðtölum og kosningaávörpum hefur hún sagt að verði breytingunum hafnað muni það stefna almannaöryggi í hættu og þýða að „fleiri innflytjendur, nauðgarar, barnaníðingar og eiturlyfjasalar gangi lausir.“ Dómsmálaráðherrann Carlo Nordio sem breytingin er einkum kennd við hefur uppnefnt Hæstarétt landsins sem „hálfmafíu.“

Meloni var sjálf tekin til rannsóknar í fyrra eftir að líbíska stríðsherranum Ossama alMasri var sleppt úr haldi. Hann var þá eftirlýstur af Alþjóða sakamáladómstólnum í Haag og var á þeim grundvelli handtekinn í ítölsku borginni Tórínó. Eftir að AlMasri var leystur úr haldi var honum flogið til Líbíu í flugvél á vegum ítalska ríkisins.
Rannsókn saksóknara beindist einkum að því hvort Meloni hefði veitt stríðsglæpamanni á flótta, aðstoð, og gerst þannig sek um refsivert athæfi og hvort almannafé hafi verið ráðstafað með ólögmætum hætti í þeirri aðgerð.
Næstráðandi Meloni í ríkisstjórninni, Matteo Salvini, hefur líka lent í ítalska réttarkerfinu en hann var ákærður fyrir mannrán árið 2021 fyrir að hafa látið kyrrsetja bát með um 100 flóttamenn innanborðs þegar hann var innanríkisráðherra árið 2019. Var flóttafólkið kyrrsett í bátnum í tæpar þrjár vikur áður en dómarar úrskurðuðu að fólkinu skyldi hleypt í land. Salvini var endanlega sýknaður af ákærunni í desember í fyrra.
Flestir Ítalir eru sammála um að ítalska réttarkerfið sé brotið. Málaþunginn er mikill og kerfið seinvirkt. Þeir sem vilja leita réttar síns á Ítalíu þurfa að vera reiðubúnir að bíða niðurstöðu árum og jafnvel áratugum saman. Þótt Meloni hafi haldið því fram að hinar boðuðu breytingar myndu gera kerfið skilvirkara eru fæstir úr lögmannastétt sammála henni um það. Breytingarnar komi skilvirkni kerfisins ekkert við.
Raunar eru breytingarnar svo tæknilegar að erfiðlega hefur gengið að skýra út fyrir ítölskum almenningi hvað þær þýða í raun og veru. Og það er stærsta vandamálið sem kjósendur hafa staðið frammi fyrir. Er þetta talin ein af ástæðum þess að kosningin snérist í rauninni upp í kosningu um Giorgiu Meloni og ríkisstjórn hennar. Tap Meloni í þessari atkvæðagreiðslu er talið mesta pólitíska áfall forsætisráðherrans síðan ríkisstjórn hennar var mynduð í október 2022. Er niðurstaðan talin muna þyngja róður Meloni mjög í aðdraganda þingkosninga sem fram fara á Ítalíu á næsta ári.
Líkt og ríkjandi stjórnarflokkar á Íslandi hafa gefið til kynna, um fyrirhugað þjóðaratkvæði hér á landi, um aðildarviðræður við ESB, hefur Meloni lagt áherslu á að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar hafi ekki áhrif á stöðu ríkisstjórnarinnar og að hún muni halda áfram í embætti óháð niðurstöðunni.
Eftir að niðurstaðan varð ljós lýsti Meloni því yfir að ríkisstjórnin muni virða niðurstöðuna. „Ítalir hafa valið og við virðum niðurstöðuna. Við höldum áfram eins og við höfum alltaf gert, af ábyrgð, einurð og virðingu fyrir ítölsku þjóðinni og Ítalíu,“ sagði Meloni í myndbandi á samfélagsmiðlum eftir að niðurstaðan varð ljós.
Stjórnmálaskýrendur segja að þótt Meloni segi ekki af sér, veiki niðurstaðan hana. Á því leiki enginn vafi. Mikið hafi verið gert úr nánu sambandi hennar við Trump og stríð hans í Íran sé óvinsælt sem og þær verðhækkanir sem það valdi. Niðurstaðan sýni óánægju fólks.
Undanfarin misseri hefur hins vegar verið mikill hiti í landsmönnum vegna alþjóðamála. Ítalir eru upp til hópa ekki hrifnir af Donald Trump en Meloni hefur verið einn af nánustu bandamönnum hans í álfunni. Hækkandi verðlag vegna stríðsreksturs hans í Íran, hefur ekki bætt úr skák.
Raunar hafa margir Ítalir átt erfitt með að kyngja utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar, allt kjörtímabilið, ekki síst í afstöðu til Ísraelsmanna og stríðsins á Gaza en Ítalir hafa mikla samúð með Palestínumönnum.
Þrátt fyrir ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslunni hefur Meloni notið mikils persónufylgis á Ítalíu. Hún mælist gjarnan með í kringum 40 prósenta fylgi, sem er óvenjulegt á Ítalíu, þar sem óstöðugleiki og tíð stjórnarskipti hafa einkennt stjórnmálin.
Meloni hefur náð þannig tökum á ítalskri pólitík að ekki hefur ríkt jafnmikill pólitískur stöðugleiki í landinu frá stofnun ítalska ríkisins árið 1946.
Giorgia Meloni, fyrsta konan til að gegna stöðu forsætisráðherra á Ítalíu, þykir bæði slæg og föst fyrir. Hún sló ítalskt hraðamet þegar ríkisstjórn hennar var mynduð haustið 2022. Þrír hægri flokkar standa að stjórninni. Hægrisinnaði íhaldsflokkur Meloni sjálfrar, Ítalíubræður, sem byggir á fasískum grunni, hægri popúlistarnir í Norðurbandalaginu undir forystu Salvini Matteo og flokkur Silvio Berlusconi heitins, Forsa Italia.

Myndun stjórnarinnar var ýmist lýst sem mikilli hægri sveiflu í ítölskum stjórnmálum eða fyrstu öfgahægristjórn Ítalíu síðan fasistum var hafnað í kjölfar seinni heimsstyrjaldarinnar.
Hin 48 ára Meloni varð fræg þegar hún setti ofan í við sjálfan Silvio Berluconi í fjölmiðlum, þegar stjórnarmyndunarviðræður stóðu yfir. Eitthvað var Berlusconi pirraður yfir því að koma ekki til greina sem ráðherraefni og lýsti efasemdum um Meloni í fjölmiðlum. Meloni sendi Berlusconi pillu á móti og sagði meðal annars að hennar stjórn yrði hliðholl NATO og hliðholl Evrópu. „Þeir sem eru ósammála því verða ekki með.“
Meloni og Donald Trump eru skoðanasystkin um margt, deila svipaðri sýn á innflytjendamál og þjóðernishyggju og hafa bæði andúð á flestu sem kennt er við woke.
Súrnandi samskipti Trumps og Evrópu hafa hins vegar sett Meloni í erfiða stöðu. Hún hefur verið treg til að gagnrýna Trump opinberlega og það hefur komið henni í bobba heima fyrir og gert henni erfitt fyrir á vettvangi ESB.

Þrátt fyrir að Giorgia Meloni sé almennt talin með í þeim hópi sem kenndur er við öfgahægri öfl í Evrópu og teljist hliðholl Donald Trump Bandaríkjaforseta, er hún ekki öll þar sem hún er séð og mörgum hefur reynst erfitt að átta sig fyllilega á henni.
Munurinn á Meloni og flestum öðrum sem kenndir eru við öfgahægri stefnu í Evrópu, er afstaða hennar til Rússlands. Meloni skilur að Rússland er ógn við Evrópu og þar skilur á milli hennar og til dæmis Viktors Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, sem hefur lengi átt náin tengsl við Rússa.

Næstráðandi Meloni í ríkisstjórn hennar, Matteo Salvini, á hins vegar meira sameiginlegt með Viktori Orbán, meðal annars afstöðu til Rússlands.
Þótt Meloni hafi verið ólíkindatól í samskiptum sínum við leiðtoga ESB hefur hún hvergi nærri verið jafnerfið og Viktor Orbán. Meloni er einarður stuðningsmaður Úkraínu og hefur til að mynda mælst til þess að á meðan Úkraína er ekki aðildarríki að NATO, sammælist aðildarríki bandalagsins um að Úkraína skuli njóta verndar 5. gr. stofnsáttmála NATO, líkt og um aðildarríki væri að ræða. Þannig fái landið þær öryggistryggingar sem það þurfi á að halda þar til það verði fullgildur aðili.
Meloni hefur þannig reynt að halda jafnvægi í afstöðu sinni, bæði til Trumps og til utanríkisstefnu Evrópu og það hefur að mestu sloppið til hjá henni.
Hún er í rauninni hvorki fullkomlega hliðholl Trump né valdamestu leiðtogum Evrópu og það er hvort tveggja í senn, styrkleiki hennar og veikleiki.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.