Gímaldið fær styrk úr sjóðnum Vísindi og velferð fyrir hlaðvarpið Sirkabát

Lestími: 6 mínútur

Gímaldið hefur hlotið styrk úr sjóðnum Vísindi og velferð: Styrktarsjóði Sigrúnar og Þorsteins til þróunar á hlaðvarpinu Sirkabát. Í þáttunum er rýnt í tölur á bak við fréttir. Styrkurinn er mikilvæg viðurkenning og nýtist við frekari áherslu á að sannreyna fullyrðingar í opinberri umræðu.

Veittir voru sjö styrkir úr sjóðnum til verkefna sem tengjast vísindasögu, -heimspeki og -miðlun. Gímaldið hóf að gefa út Sirkabát í október síðastliðnum, en þættirnir eru aðgengilegir á helstu hlaðvarpsveitum. Í þáttunum hefur verið fjallað um ólík málefni á borð við verðbólgu, tölfræði um innflytjendur, gerð úrtaka fyrir skoðanakannanir og afbrotatölfræði.

Í Sirkabát er rýnt í tölur í fréttum með það að markmiði að auka skilning og skoða hvað liggur að baki tölum í opinberri umræðu. Stjórnendur þáttarins eru Georg Gylfason, sagnfræðingur með meistaragráðu í hagsögu frá London School of Economics og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, stærðfræðingur og doktorsnemi í tölfræði við Háskóla Íslands. Eyrún Magnúsdóttir, útgefandi Gímaldsins, veitti styrknum viðtöku í hátíðarsal Háskóla Íslands á föstudag.

Sirkabát leitast við að efla vísindahugsun í gegnum rýni á tölum úr fréttum og almennri umræðu og gera hlustendur betur í stakk búna til að meta áreiðanleika fullyrðinga sem settar eru fram á opinberum vettvangi. Sirkabát er að nokkru leyti innblásið af hlaðvarpi BBC, More or Less, en aðlagað að íslenskum aðstæðum. „Í Sirkabát er leitast við að styrkja stöðu vísinda og tölfræði sem undirstöðu upplýstrar ákvarðanatöku. Lögð er áhersla á að gera flókið efni aðgengilegt án þess að slaka á vísindalegum vinnubrögðum,“ eins og segir í tilkynningu um styrkveitinguna.

Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson, Georg Gylfason og Eyrún Magnúsdóttir kampakát eftir afhendingu styrksins í Háskóla Íslands.

Sjóðnum Vísindi og velferð er annars vegar ætlað að efla doktorsnám og sérfræðiþekkingu í félagsráðgjöf með áherslu á málefni barna og fjölskyldna og hins vegar rannsóknir og nýjungar sem tengjast vísindasögu, vísindaheimspeki og vísindamiðlun. Að þessu sinni voru veittir styrkir til verkefna á síðarnefndu sviðunum, en auglýst er árlega eftir umsóknum á hvoru meginsviði til skiptis.

Önnur verkefni sem styrkt voru af sjóðnum að þessu sinni eru afar fjölbreytt. Greint er frá afhendingu styrkjanna með tilkynningu á vef Háskóla Íslands, en þar má lesa nánar um hvert verkefni fyrir sig.

Gauti Leon Agnarsson BS-nemi í stærðfræði og eðlisfræði, hlaut styrk fyrir verkefnið „Heimur öreindanna gerður sýnilegur með þokuklefa“. Verkefnið gengur út á smíði þokuklefa (e. cloud chamber) sem gerir öreindir sýnilegar með berum augum.

Hafsteinn Einarsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ, fékk styrk fyrir verkefnið „Vísindavaktin: Leikur að staðreyndum“. Verkefnið hefur það að markmiði að þróa snjallsímaleik sem eykur vísindalæsi almennings og safnar gögnum til mats á getu gervigreindar á íslensku.

Jón Emil Guðmundsson, prófessor við Verkfræði- og náttúruvísindadeild HÍ, tók á móti styrk sem formaður Stjarnvísindafélags Íslands fyrir  verkefnið „Vísindaraddir: Viðtöl við íslenska stjarnvísindamenn“.

Matthias Baldursson Harksen er doktorsnemi í kennilegri eðlisfræði við HÍ og vinnur að verkefninu Stjörnusjónaukar á almyrkvaslóðinni. Verkefnið felur í sér að endurtaka hina sögulegu Eddington-tilraun frá árinu 1919 í tengslum við almyrkva á sólu sem verður sýnilegur á Íslandi 12. ágúst 2026.

Nanna Kristjánsdóttir er meistaranemi í vísindamiðlun við Imperial College London. Í náminu er fengist við ýmsar hliðar félagsfræði og heimspeki vísindanna auk margvíslegra tengdra fræðilegra og praktískra flata vísindamiðlunar. 

Victor Karl Magnússon stundar doktorsnám í heimspeki gervigreindar við Oxford-háskóla á Bretlandi þar sem hann rannsakar áhrif gervigreindar á lýðræðislega ákvarðantöku. 

Brýnt að sannreyna fullyrðingar og rýna í tölur

Styrkurinn til Sirkabát verður nýttur til áframhaldandi þróunar þáttarins, gerð hljóðmyndar og í að auka útbreiðslu á efni þáttanna. Við hjá Gímaldinu trúum því að Sirkabát geti stuðlað að því að valdefla almenning til gagnrýnnar og vísindalegrar hugsunar um tölurnar að baki málefnum líðandi stundar. 

Brýnt er að fjölmiðlar rýni í og sannreyni fullyrðingar byggðar á tölfræði sem birtist í fréttum og verða grundvöllur almennrar umræðu. Yfirborðskennd umfjöllun og uppsláttur á tölum án viðhlítandi gagna eða vísindalegs rökstuðnings er meinsemd í þjóðfélagsumræðu.

Gímaldið vill vera leiðandi í því að sannreyna upplýsingar og telur þáttinn Sirkabát mikilvægt innlegg á þeirri vegferð. Styrkurinn gerir fjölmiðlinum kleift að efla þáttinn og byggja hann upp sem mikilvæga rödd í umræðunni.

Sigrún Júlíusdóttir og Silja Bára Ómarsdóttir við afhendingu styrkja úr sjóðnum á föstudag. Myndina og aðalmynd að ofan tók Kristinn Ingvarsson.

Sjóðurinn Vísindi og velferð: Styrktarsjóður Sigrúnar og Þorsteins var stofnaður árið 2021. Stofnendur sjóðsins voru hjónin Sigrún Júlíusdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson, fyrrverandi prófessorar við Háskóla Íslands.

Sigrún er fyrrverandi prófessor í félagsráðgjöf og hefur verið einn ötulasti talsmaður þróunar, rannsókna og fræða í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og stofnandi Rannsóknaseturs í barna- og fjölskylduvernd. Þorsteinn, sem lést á síðasta ári, var prófessor í eðlisfræði og vísindasögu, stofnandi og fyrsti ritstjóri Vísindavefsins og brautryðjandi í vísindafræðum við skólann.

Nýjasti þáttur Sirkabát fjallar um skoðanakannanir og vandann sem fylgir því að gera úrtak.

Hér með er komið á framfæri þakklæti til aðstandenda sjóðsins fyrir styrkinn til Gímaldsins og þá viðurkenningu á mikilvægi útgáfunnar sem í honum felst.

Sirkabát er gefið út af Gímaldinu, sem er áskriftarmiðill. Þátturinn er öllum opinn á hlaðvarpsveitum en við hvetjum áhugasama um frekari þróun þáttanna til að gerast áskrifendur að Gímaldinu. Þannig getum við haldið áfram að vaxa og efla vandaða umfjöllun byggða á staðreyndum, hvort sem það er í formi hlaðvarps eða annars konar miðlunar.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 28. mars, 2026, 09:35

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link