Svona sundrum við samfélagi

Lestími: 12 mínútur

Þegar sameiginlegur skilningur á staðreyndum veikist er ekki lengur deilt um skoðanir heldur um það hvað sé yfir höfuð satt. Í slíku umhverfi er enginn áhorfandi. Með hverri deilingu, hverju samþykki og hverri þögn tökum við þátt í að móta þann veruleika sem við teljum okkur aðeins vera að fylgjast með

Það gerist sjaldnast í einu vetfangi. Samfélög breytast smám saman, oft án þess að það sé strax augljóst. Þau sundrast ekki með látum og hafa ekki endilega skýran vendipunkt. Þau einfaldlega gliðna í sundur; með orðunum sem eru notuð, með því hvernig mál eru sett fram, með því hvernig mynd sem dregin er upp af öðrum og af sjálfum raunveruleikanum.

Fyrst verða skilin aðeins skýrari. Síðan enn skarpari. Að lokum verða þau að mörkum sem erfitt er að stíga yfir – þar sem samtal er gert tortryggilegt og leiðin að samstöðu lokast smám saman

Skoðanamunur er ekki vandamálið. Hann er eðlilegur og jafnvel nauðsynlegur í lýðræðissamfélagi. Vandinn verður til þegar við hættum að vera sammála um hvað við erum ósammála um; þegar skilningur okkar á veruleikanum verður svo ólíkur að enginn sameiginlegur grunnur er lengur til staðar til að ganga út frá.

„Ef staðreyndirnar falla ekki að skoðun stofnunarinnar eru staðreyndirnar rangar“

Þegar Panamaskjölin voru birt  2016 vöknuðu spurningar um fjárhagsleg tengsl þáverandi forsætisráðherra Íslands, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, og hann steig á endanum til hliðar. Málið vakti mikla umræðu og varð að prófraun þegar kemur að trausti.

Þegar hann gagnrýndi síðar umfjöllun RÚV um málið, í grein sem hann skrifaði í ágúst 2017, snerist gagnrýnin ekki um einstakar staðreyndir eða leiðréttingar. Hann sagði að Ríkisútvarpið beitti þeirri „gömlu brellu“ að krefjast játningar og afsökunar og líkti vinnubrögðum þess við stofnanir í Austur-Þýskalandi og sagði RÚV starfa eftir reglunni: „Ef staðreyndirnar falla ekki að skoðun stofnunarinnar eru staðreyndirnar rangar.“

Setningin stendur eftir vegna áhrifa hennar á umræðuna sem færist frá því að snúast um atvik yfir í það hvernig við skiljum þau. Þarna er gengið út frá því að staðreyndir séu ekki sameiginlegur grunnur sem hægt er að deila um heldur að þær verði til í átökum milli ólíkra aðila.

Þegar sú nálgun festir sig í opinberri umræðu breytist eðli ágreinings. Þá er ekki lengur aðeins deilt um hvað sé rétt eða rangt heldur um það hver hafi rétt til að skilgreina það. Sá grunnur sem allar sanngjarnar deilur þurfa að standa á — sameiginlegur skilningur á því hvað er satt og hvað er ósatt — fer að veikjast. Og þegar hann veikist breytist líka sjálf deilan. Hún snýst ekki lengur um efnið eitt og sér heldur um það hver hafi rétt til að skilgreina veruleikann.

Þegar sömu orðin þýða ólíka hluti

Ákveðin líkindi birtast í ESB-umræðunni sem nú stendur yfir, í því hvernig málið er sett fram. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar segir þjóðaratkvæðagreiðsluna snúast um „mjög einfalda spurningu“ — hvort þjóðin vilji vita meira. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur sagt á blaðamannafundi að „fólk þarf ekki allar upplýsingar um hvað það að tilheyra Evrópusambandinu endanlega myndi þýða.“ Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrðir að ríkisstjórnin sé „viljandi að reyna veikja samkeppnisstöðu Íslands til að geta seinna meir fært rök fyrir því að Íslandi sé betur borgið innan ESB.“

Allar þrjár tala um þjóðina, lýðræðið og upplýsta umræðu. En þær meina ekki sama hlutinn. Og þegar sömu orðin þýða ólíka hluti er ekki lengur aðeins deilt um stefnu heldur um hvað er yfir höfuð að gerast.

Þegar einhverjir græða

En hverjir græða og hvernig? Þessari spurningu er sjaldan varpað fram.

Pólitískar hreyfingar sem þurfa stuðning frekar en samstöðu hafa beinan hvata til að kynna mál sem baráttu fremur en sem flókin vandamál sem þarf að leysa saman.Skýrari línur gera auðveldara að virkja þá sem eru þegar sammála – fá þá til að mæta, deila, berjast – og skilgreina andstæðinginn með orðum sem vekja tilfinningar frekar en rök. Einföld og afgerandi fullyrðing nær lengra á samfélagsmiðlum en yfirveguð greining. Það sem hreyfir við tilfinningum fólks fær fleiri læk og fleiri deilingar. Þetta er hvati sem er innbyggður í þau kerfi sem stjórnmálamenn nota til að afla sér fylgis.

Þeir sem hafa hagsmuni af því að enginn geti krafið þá um svör, að gagnrýni drukkni í hávaða, eru þeir sem hagnast þegar sameiginlegur grundvöllur staðreynda veikist. Vantraust í garð samfélagsins verndar þá betur en nokkuð annað.

Sundrung þarf ekki að vera skipulögð til að vera raunveruleg. Þegar margir fylgja sömu hvötum í sömu átt, hvötum sem eru innbyggðir í pólitísk kerfi og samfélagsmiðla, verða áhrifin þau sömu og ef einhver hefði skipulagt þetta af ásetningi.

Þegar það er engin hindrun

Þetta myndi ganga hægar fyrir sig ef einhver hindrun væri til staðar. Á samfélagsmiðlum er ekkert slíkt til staðar. Þvert á móti.

Í skýrslu Fjölmiðlanefndar frá árinu 2023, Upplýsingaóreiða og skautun í íslensku samfélagi, kemur fram að tæplega helmingur svarenda sagði ögranir og háð hafa haft neikvæð áhrif á þátttöku sína í umræðum á netinu. Fimmtán prósent sögðust orðin varkárari í að lýsa skoðunum sínum, fimmtán prósent hættu að taka þátt í umræðum og átta prósent leituðu í lokaðar hópa í stað opinnar umræðu.

Þetta þýðir að sá vettvangur þar sem almenningur lætur skoðanir í ljós endurspeglar ekki samfélagið sem heild. Þeir með sterkustu skoðanirnar tjá þær óspart en aðrir draga sig í hlé. Og þegar hópurinn sem talar verður smærri og einsleitari verður hann öfgafyllri. Cass Sunstein, prófessor sem rannsakar áhrif netsins á lýðræðislega umræðu, sýndi þetta í rannsóknum sínum um aldamótin. Þetta snýst ekki um að þeir vilji ekki hlusta. Málið er að þeir heyra bara í sjálfum sér, fastir í bergmálshelli.

Á COVID-tímanum fór umræða um lyfið Ivermectin flug á samfélagsmiðlum. Þetta er ormalyf fyrir hesta sem einnig hefur verið notað gegn ákveðnum sníkjudýrum hjá mönnum en sumir héldu fram að það nýttist einnig gegn COVID. Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknar, skrifaði ítarlegar greinar þar sem hann vitnaði í erlendar rannsóknir og taldi heilbrigðisyfirvöld standa í vegi fyrir notkun lyfsins. Lyfjastofnun og embætti landlæknis mátu stöðuna þannig að þau þyrftu að gefa út sameiginlega yfirlýsingu og mæltu gegn notkun lyfsins við COVID. Helstu rannsóknirnar sem umræðan byggðist á reyndust síðar ótraustar eða voru dregnar til baka. En umræðan þagnaði ekki. Hún hélt áfram í lokuðum hópum á samfélagsmiðlum, meðal fólks sem hafði þegar glatað trausti á opinberum heilbrigðisstofnunum. Þegar traust er orðið nógu veikt nær yfirlýsing fagfólks ekki til þeirra sem þurfa að heyra hana.

Þegar ráðamenn fara með fleipur

Sama mynstur kemur fram í útlendingaumræðunni. Þar nægir stundum einfaldlega það sem fólk segir. Bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ fullyrti á bæjarstjórnarfundi í beinni útsendingu 2023 að verslanir í bænum væru komnar með neyðarhnappa vegna hælisleitenda. Heimildin hafði samband við lögreglu á Suðurnesjum sem kannaðist alls ekki við þetta. Síðar viðurkenndi bæjarfulltrúinn við blaðamann Heimildarinnar að hann hefði ekki sannreynt fullyrðinguna áður en hann flutti hana á fundinum.

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði á Alþingi í lok mars 2023 að ástandið á Suðurnesjum væri að verða „ógnvænlegt og óbærilegt vegna fjölda hælisleitenda, hræðslu og ógnandi umhverfis“. Þegar blaðamaður Heimildarinnar spurði hann hvaðan hann hefði þessar upplýsingar sagði hann: „Þetta er það sem fólk segir. Ég hef ekki tíma til að gá hvort fólk er á götunni.“ Lögreglan á Suðurnesjum sagðist ekki geta staðfest þessa ógn og óöld. Margrét Valdimarsdóttir, doktor í afbrotafræði, komst að þeirri niðurstöðu að þegar litið væri til íbúafjölgunar hefðu hegningarlagabrot á Suðurnesjum ekki aukist. „Hér er því að ástæðulausu verið að ýta undir ótta,“ sagði hún.

Hér endurtók þingmaður í pontu það sem hann hafði heyrt, án nokkurrar ábyrgðar, og það nægði til að koma því inn í umræðuna í búningi staðreynda. Að veita aðhald og sannreyna fullyrðingar áður en þær festast í umræðunni er forsenda þess að fjölmiðill sinni hlutverki sínu. Annars verða þeir einfaldlega þátttakendur í sundrungunni.

Maximilian Conrad, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands sem rannsakar áhrif eftirsannleiks á lýðræðið, segir í nýjasta félagsriti Blaðamannafélags Íslands að sameiginlegur skilningur á því hvað er satt sé ekki lengur sjálfgefinn, og að það sé „ekki lengur þannig að það að halda sig við staðreyndir tryggi sigur í rökræðu“. Þetta er ekki spádómur. Þetta er lýsing á ástandi sem þegar er komið.

Þegar við höfum séð þetta áður

Þetta hefur lengi verið þekkt. Abraham Lincoln sagði 1858, þegar Bandaríkin stóðu á barmi borgarastríðs: „Hús sem er skipt gegn sjálfu sér getur ekki staðið.“ Þetta voru varnaðarorð um það sem gerist þegar grundvallarmál verða ekki leyst með rökræðum heldur er farið í skotgrafir þar sem ekkert sameiginlegt stendur lengur eftir.

Office of Strategic Services, forveri CIA, gaf árið 1944 út handbókina Simple Sabotage Field Manual, ætlaða til dreifingar meðal almennra borgara í hernumdum löndum í Evrópu. Hugmyndin var að veikja andstöðuna að innan með því að lama kerfið. Í því felst að krefjast allra hluta í rituðu formi, tefja ákvarðanir, draga umræður á langinn þar til menn gefast upp, færa athyglina frá aðalatriðum yfir í smáatriði og ráðast að fólki persónulega. Þetta er fjöldi smárra athafna sem safnast upp, smátt og smátt, þar til kerfið er brostið.Oft er vísað í þessa handbók þegar rætt er um blandaðar hernaðarógnir vegna þess að mynstrið sem hún lýsir birtist aftur og aftur.

Stjórnmálaheimspekingurinn Hannah Arendt skrifaði í The Origins of Totalitarianism árið 1951: „Hin fullkomna undirsáta alræðisstjórnar er ekki sannfærður nasisti eða sannfærður kommúnisti, heldur fólk sem greinir ekki lengur á milli staðreynda og skáldskapar.“

Hún var að lýsa skilyrðinu sem alræðisstjórnir þurfa til að blómstra: fólk sem hefur hætt að greina á milli staðreyndar og skáldskapar. Þegar sá greinarmunur er horfinn getur hvaða frásögn sem er fest sig í sessi vegna þess að ekki er lengur til staðar sameiginlegur mælikvarði á sannleikann sem getur hafnað henni. 

Þegar lögreglan talar um sundrung

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þá þingmaður Viðreisnar í stjórnarandstöðu, beindi óundirbúinni fyrirspurn til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, í janúar 2024, um skautun pólitískrar umræðu. Katrín svaraði að skautun væri „eitt stærsta áhyggjuefni mitt sem manneskju í íslensku samfélagi“ og að hún hefði rætt þetta í mörg ár. Þorgerður tók undir: „Ábyrgt stjórnmálafólk hér í þingsal á að vinna gegn henni.“ Katrín sagðist „hjartanlega sammála.“

Um þetta voru þær sammála, fulltrúar ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu. En þegar kom að því hvað það þýddi í verki, hvaða ákvarðanir þyrfti að taka og hverjir bæru ábyrgð, voru þær ekki lengur á sama stað. Umræðunni lauk án þess að nokkuð hefði breyst, nema að báðar höfðu lýst yfir áhyggjum af skautun og báðar höfðu gert nákvæmlega það sem skautun gerir; snúið umræðunni upp í pólítísk átök.

Skautunin er nú orðin þess eðlis að hún vekur athygli lögregluyfirvalda. Finnbogi Jónasson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra, sagði við Gímaldið fyrr í þessum mánuði að greiningardeildin fylgist með upplýsingaóreiðu í tengslum við lýðræðislegar deilur og þjóðaratkvæðagreiðslur á borð við þá sem stendur fyrr dyrum um ESB. Slíkt snúist oft ekki um niðurstöðu einstakra mála heldur um eitthvað dýpra, sagði hann: „að keyra upp skautun og sundra samfélaginu.“

Þegar greiningardeild lögreglu notar orðið sundra til að lýsa því sem við erum að horfa á, er þetta hætt að vera fræðileg spurning.

Þegar grunnurinn brestur

George Orwell, sem skrifaði mikið um tengsl valds og tungumáls, orðaði þetta árið 1949 þannig: ef menn mega ekki segja upphátt að tveir plús tveir séu fjórir þótt það sé augljóst, þá er frelsið þegar farið.

Þetta snýst ekki um skoðanamun. Þetta snýst um hvað gerist þegar við hættum að vera sammála um hvað við erum ósammála um. Þegar traust til dómstóla, lögreglu og vísindamanna brotnar og farið er að líta á þá sem talsmenn andstæðingsins.

Þá er ekki lengur deilt um hvernig mál skuli leyst. Þá er deilt um hvað er að gerast: um hvort eitthvað sé yfir höfuð sem þarf að leysa.

Það gerist sjaldnast í einu vetfangi. Það þýðir þó ekki að engin leið hafi verið að sjá í hvað stefndi.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 28. mars, 2026, 10:33

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link