Kvikmyndasjóður með sömu krónutölu framlaga og við upphaf kvikmyndastefnu

Lestími: 11 mínútur

Útlit er fyrir að óvenju fáar íslenskar bíómyndir komi út hér á landi í ár. Framlög ríkisins til kvikmyndagerðar hafa ekki hækkað og undanfarið hafa fagfélög og kvikmyndagerðarfólk lýst þungum áhyggjum af stöðunni.

Sex árum eftir að metnaðarfull kvikmyndastefna fyrir Ísland var kynnt er krónutala framlaga til Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, sem sér um úthlutun úr Kvikmyndasjóði, nær nákvæmlega sú sama og var á upphafsári stefnunnar. Framlög hafa ekki hækkað og ekki haldið í við verðlag. Kvikmyndagerðarfólk hefur þungar áhyggjur af stöðunni og því að verðmæt þekking glatist. Fjöldi fólks hefur stigið fram á undanförnum vikum og mánuðum og lýst alvarlegum vanda greinarinnar.

Anton Máni Svansson, formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, segir í samtali við Gímaldið að stjórnvöld þurfi að bregðast við áður en það verður of seint. „Við erum lítið land sem er að reyna að gera verkefni á íslensku. Það er ómögulegt að fjármagna íslenska kvikmynd almennilega án þess að Kvikmyndamiðstöð komi fyrst að borðinu. Hún er hjartað og grunnurinn að allri fjármögnun”.

Grein sem skili miklum verðmætum

„Íslenskar kvikmyndir gegna mikilvægu menningarhlutverki,“ stendur í stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð fyrir árin 2016-2019. Í því plaggi, sem tvö ráðuneyti og helstu félög í kvikmyndagerð stóðu að, segi ennfremur að brýnt sé „að stuðla að áframhaldandi vexti íslenskrar kvikmyndagerðar, auka fjármagn í Kvikmyndasjóð og auka hlutfall framleiðslustyrks úr Kvikmyndasjóði af heildarframleiðslukostnaði einstakra verkefna.“

Starfshópur var skipaður í lok tímabilsins sem þessi stefnumörkun gilti fyrir og skilaði sá hópur af sér tímamótaskýrslu síðla árs 2020 sem bar heitið Kvikmyndastefna til ársins 2030. Í inngangi stefnunnar slær þáverandi mennta- og menningarmálaráherra, Lilja D. Alfreðsdóttir, tóninn og lýsir mikilvægi kvikmyndagerðar fyrir þjóðarbúið. Greinin standi traustum fótum, á fjórða þúsund manns starfi við kvikmyndagerð og kvikmyndir séu mikilvægur þáttur í markaðssetningu Íslands á alþjóðlegum vettvangi. „Af þessu má álykta að með aukinni fjárfestingu muni greinin geta skilað þjóðarbúinu talsvert meiri verðmætum en hún gerir nú. Tryggja þarf íslenskri kvikmyndagerð bestu mögulegu aðstæður til að vaxa og dafna,“ segir í inngangi ráðherra í kynningarriti fyrir kvikmyndastefnuna.

Kvikmyndastefna sem kynnt var árið 2020 og gildir til 2030 er metnaðarfull en margir hafa lýst áhyggjum af rýrum fjárframlögum í Kvikmyndasjóð. Þá var í stefnunni boðaður nýr fjárfestingarsjóður fyrir sjónvarpsefni en sá sjóður hefur ekki orðið að veruleika.

Þetta var skrifað árið 2020. Það ár fékk Kvikmyndamiðstöð Íslands ríflega 1.353 milljónir króna á fjárlögum. Á þessu ári nema framlögin 1.362 milljónum króna, eða nær sömu upphæð og á upphafsári hinnar metnaðarfullu stefnu, svo aðeins munar 0,68% eða rúmum níu milljónum. Sé aðeins horft til Kvikmyndasjóðs sést að framlagið er aðeins 4,6 milljónum króna hærra árið 2026 en það var árið 2020, eða 0,37% hærra. Tölurnar eru á verðlagi hvers árs. Úr Kvikmyndasjóði, sem Kvikmyndamiðstöð hýsir, er úthlutað styrkjum til bæði kvikmynda og sjónvarpsverkefna. Framlög inn í þetta styrkjakerfi hækkuðu 2021 og 2022 en lækkuðu svo aftur.

Fagfélög í greininni hafa bent á að festa þurfi í sessi samkomulag með upphæðum sem greinin geti gert framtíðarplön út frá. „Þessa stundina stendur Kvikmyndasjóður í eingöngu 1,3 milljarði, á meðan innlendir samkeppnissjóðir sem hlutu sambærilegt framlag og við 2008 eru núna að fá um og yfir 3 milljarða. Sjóðinn þarf að leiðrétta. Hann ætti að vera í dag allavega yfir 2 milljarðar samkvæmt uppreiknuðu samkomulagi frá 2006, og 2,5 milljarðar miðað við verðlagshækkanir og áætlaða þörf geirans í dag,“ segir Anton.

Bent hefur verið á að sjóðurinn sé einfaldlega með allt of lítið fjármagn. Of fá verkefni fái styrki og þau sem eru styrkt séu með of lága fjármögnun.

Fjármögnun taki lengri tíma en áður

Davíð Kjartan Gestsson, starfandi kynningarstjóri Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, segir stöðuna vissulega þunga. „Staðan er um margt erfið, við verðum að taka undir það. Við sjáum að Kvikmyndasjóður hefur ekki haldið í við uppreiknað verðlag eftir talsverða lækkun 2023 þannig að fjármagn til framleiðslu er af skornum skammti og það hefur auðvitað áhrif. Opinber stuðningur úr sjóðnum er nauðsyn fyrir flest kvikmyndaverkefni hér á landi og algjör lykilforsenda fyrir því að hægt sé að leita fjármögnunar utan Íslands, en staðan er líka erfið þar. Fjármögnun getur því tekið lengri tíma en áður og það eykur á vandann.“ 

Hann segir ljóst að færri íslenskar kvikmyndir koma út í ár en síðustu ár. „Ef við horfum á heildarmyndina þá má þó sjá að árið verður ansi drjúgt fyrir leiknar sjónvarspsseríur. Nefna má Dönsku konuna og teiknimyndaseríuna Ormhildarsögu sem báðar komu út í byrjun árs, en væntanlegir eru glæpaþættirnir Bless, bless Blesi, önnur þáttaröð Pabbahelga og nokkrar seríur til viðbótar sem sýndar verða á þessu ári. Þannig að sjónvarpsárið verður sterkt,“ bendir hann á og bætir við að þó nokkur stór kvikmyndaverkefni séu í pípunum sem komi út á árunum 2027 og 2028.

Samkomulag um fjárveitingar til sjóðsins hefur verið til fjögurra ára í senn, en ekkert langtímasamkomulag er í gangi nú. Kvikmyndastefna er til staðar, en ekki tölulegt samkomulag til framtíðar.

„Það þarf hærra framlag í sjóðinn og það þarf að vera hægt að sjá lengra fram í tímann. Þá er það lykilatriði að hafa fyrirsjáanleika í fjármögnun og allar sveiflur hafa slæm áhrif. Eins og staðan er núna getum við bara séð hvert áætlað framlag í Kvikmyndasjóð verður 2027. Við sjáum ekki lengra en það og samkvæmt því verður framlagið það sama og 2026,“ segir Davíð.

Fjárfestingarsjóður sjónvarspefnis sem aldrei hefur orðið til

Fyrsta markmið kvikmyndastefnunnar, sem gildir fyrir árin 2020 til 2030, nefnist auðug kvikmyndamenning. Fyrsta aðgerðin undir þessu fyrsta markmiðini er „sterkara sjóðakerfi sem styður við fjölbreyttari kvikmyndaverk,“ eins og það er orðað í plagginu. Þá aðgerð átti að útfæra með tvennum hætti, annars vegar að efla Kvikmyndasjóð og hins vegar stofna nýjan fjárfestingarsjóð sjónvarpsefnis.

Í mars 2023 lagði þáverandi ráðherra fram frumvarp um stofnun fjárfestingarsjóðs sjónvarpsefnis sem ætlað var að styðja við framleiðslu, sölu og dreifingu leikinna sjónvarpsþáttaraða. Frumvarpið var lagt fram að nýju ári síðar, en náði ekki fram að ganga.

Þegar fjárlagafrumvarpið kom út 2024 gerði ráðuneyti mennta- og menningarmála sérstaklega grein fyrir framlögum til kvikmyndagerðar og boðaði bæði fjárfestingarsjóð sjónvarpsefnis og starfslaunasjóð kvikmyndahöfunda. Framlag í Kvikmyndasjóð var þó lækkað og greint frá því að aukið fjármagn fyrir árin 2021 og 2022 hefði verið viðbótarframlag vegna heimsfaraldurs Covid-19 sem ekki yrði framhald á. 

Árið 2024 gaf menningar- og viðskiptaráðuneytið líka út skýrslu um framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar hér á landi. „Beint framlag menningar og skapandi greina nam 3,5% af landsframleiðslu árið 2023. Það er litlu minna en framlag sjávarútvegs, sem nam fjórum prósentum. Hver króna sem hið opinbera fjárfestir í menningu og skapandi greinum verður að þremur krónum í hagkerfinu,“ sagði meðal annars í skýrslunni. Á þetta hafa fagfélög kvikmyndagerðarfólks einnig bent og telja það sæta furðu að ekki sé gefið í með framlög í ljósi þess að þau skili sér margfalt til baka.

Núverandi ráðherra málaflokksins, Logi Einarsson menningar-, háskóla- og nýsköpunarráðherra hefur lagt fram frumvarp um svokallað menningarframlag streymisveitna. Í því er lagt til að streymisveitur, á borð við Netflix, greiði 5% af seldum áskriftum hér á landi sem skatt í ríkissjóð. Tekjurnar verði síðan nýttar til að efla Kvikmyndasjóð. Þetta myndi eiga við bæði um innlendar og erlendar streymisveitur. Óljóst er hversu miklu þetta mun skila í auknum framlögum til Kvikmyndasjóðs en í greinargerð með frumvarpinu er talað um 140-150 milljónir á ári til viðbótar. Hver heildarupphæðin verður er þó háð mikilli óvissu og málið er ekki komið inn á dagskrá alþingis.

Misskilningur að hægt sé að láta Kvikmyndasjóð bíða

Anton Máni bendir á að mikil uppbygging hafi verið í greininni á undanförnum árum auk þess sem námsframboð í kvikmyndagerð hafi aukist. Framlög í sjóðinn hafi setið eftir. Ekki sé á það að treysta að gróska verði í greininni ef yfirvöld fylgja stefnunni ekki. „Við getum misst þetta allt,“ bendir hann á.

Stærstu vandamálin segir hann vera fjársvelti Kvikmyndasjóðs, tóman fjárfestingarsjóð sjónvarps og skort á stöðugleika. Fjármögnun og framleiðsla taki langan tíma og fjármagn leiti fremur inn í greinina ef starfsumhverfið sé fyrirsjáanlegt. Hann bendir líka á kaldhæðni þess að um leið og metnaðarfull stefna um kvikmyndir hafi litið dagsins ljós hafi fjármagn ekki haldið í við loforð.

Sálfræðitryllirinn Röskun er eina íslenska bíómyndin í fullri lengd sem komið hefur út á þessu ári. Allt bendir til þess að bíóárið verið rýrt þótt nokkur stór verkefni séu í pípunum fyrir næstu ár.

„Langtímasamningar hafa reglulega verið gerðir við greinina á Íslandi allt frá 1999 og þá með stighækkandi framlögum. Allt fram til gerðar Kvikmyndastefnunnar 2020 þar sem greinin hélt að hún væri með í höndum nýjan samning en á lokametrum voru upphæðir í sjóðinn teknar út. Eftir varð mjög góð stefna en með þeim misskilningi að hægt væri að láta Kvikmyndasjóðinn bíða á meðan ýmis önnur atriði í stefnunni voru uppfyllt. Kvikmyndasjóðurinn er burðarás íslenskrar kvikmyndagerðar og forsenda þess að íslenskar sögur verði sagðar á okkar eigin tungumáli, og í dag eru framlög til hans langt undir raunþörf geirans,“ bendir Anton á.

Endurgreiðslukerfi ýti ekki undir fleiri íslenskar bíómyndir

Endurgreiðslukerfi kvikmynda hefur fest sig í sessi og var nýverið framlengt til ársins 2028. Á árunum 2024 og 2025 fóru endurgreiðslur yfir sex milljarða hvort ár. Eins og sjá má á mynd eru þessar endurgreiðslur mest vegna sjónvarpsefnis og útlit fyrir að svo verði einnig í ár. Endurgreiðslukerfið gengur út á að endurgreiða kostnað við framleiðslu. Framleiðendur hafa því þegar greitt kostnað, laun, skatta og allt sem fylgir en fá svo endurgreiðslu á hluta kostnaðarins. Ekki er því um að ræða beina styrki, heldur má frekar lesa út úr þeim upplýsingar um veltu í greininni. Fyrst þarf að fjármagna verkefni og þá er hægt að fá vilyrði fyrir endurgreiðslu hluta framleiðslukostnaðar. Endurgreiðslan er 25% eða 35% eftir stærð verkefna. Líkt og sjá má af myndinni er afar lítill hluti af heildarendurgreiðslum vegna vegna íslenskra bíómynda. Stærstur hluti er vegna erlendra sjónvarpsverkefna.

Eingöngu allra stærstu verkefnin, sem oftast eru erlend sjónvarpsverkefni, fá 35% endugreiðslu en flest innlend verkefni frá 25%. Hafi verkefni fengið styrk úr Kvikmyndasjóði dregst sú upphæð frá endurgreiðslunni, sem hefur verið gagnrýnt. Þegar endurgreiðslukerfið var endurmetið árið 2020 var talað um að fylgjast með þróun þess og endurmeta stöðuna.

„Það er orðið skýrt í dag að til að ná jafnvægi á greinina og láta ekki halla á íslenska frumsköpun þá þarf endurgreiðslukerfið að nýtast betur fyrir alla innlenda kvikmyndagerð og er í því samhengi mikilvægt að það vinni einnig vel með Kvikmyndasjóðnum. Það er kristaltært að íslensk stjórnvöld þurfa núna að þora að fjárfesta af alvöru í íslenskri kvikmyndagerð og koma fram með metnaðarfull framtíðarplön fyrir þennan geira ef þau vilja einhvern tímann sjá hann á heilbrigðum stað þar sem við nýtum þá hæfileika, þekkingu, og sterka innviði sem við höfum svo unnið hart við að byggja upp síðustu áratugi.

Það gerir lítið gagn að útskrifa nemendur á háskólastigi í kvikmyndagerð ef ekki er til grunnfjármagnið sem þarf til að framtíðarverkefni þeirri verði að veruleika,“ segir Anton Máni Svavarsson.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 17. apríl, 2026, 08:12

Eyrún Magnúsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link