Frá að­dá­anda til and­stæð­ings: Huldu­mað­ur­inn Pét­er Magy­ar

Lestími: 16 mínútur

Plakat af Viktori Orbán hékk yfir rúmi Péters Magyar í æsku og þeir voru samherjar í ungverskri pólitík þar til fyrir tveimur árum að Magy­ar snérist gegn foringja sín­um. Hann rú­staði þing­kosn­ing­um í Ung­verja­landi um helg­ina og því vilja marg­ir kom­ast að því fyr­ir hvað hann stend­ur í póli­tík. Það er hæg­ara sagt en gert.

Erf­ið­ur, óþol­in­móð­ur, skap­bráð­ur og jafn­vel upp­stökk­ur; sú mynd sem dreg­in er upp af Pét­er Magyar, sig­ur­veg­ara ný­af­stað­inna þing­kosn­inga í Ung­verja­land­i, er æði mis­jöfn. Sum­ir lýsa að­dá­un, aðr­ir andúð, eins og eðli­legt er. Sem stjórn­mála­mað­ur er Magy­ar sagð­ur ástríðu­full­ur, ein­læg­ur, kraft­mik­ill og dug­leg­ur.

„Ég held að eins og all­ir stjórn­mála­menn geti hann ver­ið erf­ið­ur­,“ hef­ur breska dag­blað­ið The Gu­ar­di­an eft­ir kvik­mynda­gerð­ar­mann­in­um Tamás Topolánszky, í nærmynd blaðsins um Magyar, en Topolánszky fylgdi Magy­ar eft­ir í að­drag­anda kosn­ing­anna. „Ég held að þetta sé eitt­hvað sem við Ung­verj­ar sjá­um nú að hafi ver­ið nauð­syn­legt til að koma okk­ur á þenn­an stað.“

Tisza, flokk­ur Magyar, hlaut 138 af 199 þing­sæt­um og tryggði sér þannig nægi­leg­an meiri­hluta á ung­verska þing­inu til að geta ráð­ist í breyt­ing­ar á stjórn­kerfi lands­ins, sem gegn­sýrt er af áhrif­um frá­far­andi stjórn­ar.

Stjórn­mála­skýrend­ur í Ung­verja­landi hafa lýst skjótri vel­gengni Tisza sem ung­versku hraða­meti en fá­ir hafi séð fyr­ir hrað­an á vexti þeirr­ar hreyf­ing­ar sem Magy­ar hef­ur byggt upp.

„Aldrei í sögu lands­ins höf­um við séð flokk rísa svona hratt,“ seg­ir ung­verski stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Gá­bor Györi í fyrrnefndri grein The Gu­ar­di­an.

Fyrrum samherji Viktors Orbán

Pét­er Magy­ar er 45 ára gam­all lög­fræð­ing­ur. Hann er fædd­ur og upp­al­inn í Búda­pest, kom­inn af mennt­uð­u­m, kristi­leg­um demókröt­um af efri milli­stétt með ná­in tengsl við valda­stétt lands­ins. Magy­ar lærði bæði í Búda­pest og við Hum­bold­t-­há­skóla í Berlín. Magy­ar hóf stjórn­mála­af­skipti í kring­um 25 ára ald­ur með þátt­töku í starfi Fidesz, flokks Vikt­ors Or­bán. Flokk­ur­inn var þá í stjórn­ar­and­stöð­u. Hann hef­ur sjálf­ur sagt frá því að plakat af Vikt­ori Or­bán hafi hang­ið fyr­ir of­an rúm­ið hans í æsku.

Eft­ir að flokk­ur­inn komst til valda í Ungverjalandi ár­ið 2010 tók Magy­ar til starfa í ut­an­rík­is­ráðu­neyt­i landsins og starf­aði næstu fjórt­án ár­in ým­ist í Brus­sel eða í stjórn­enda­stöð­um hjá rík­is­fyr­ir­tækj­um í Ung­verja­land­i. Þá­ver­andi eig­in­kona hans, Judit Varga, var dóms­mála­ráð­herra í einni af rík­is­stjórn­um Or­báns og einn nán­asti vin­ur hans var starfs­manna­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­in­u.

Magy­ar snérist hins veg­ar gegn flokki sín­um og for­ingja vegna hneyksl­is­máls sem skók stjórn Or­báns í febr­ú­ar 2024. Þá birti Magy­ar hljóð­upp­töku af eig­in­konu sinn­i, dóms­mála­ráð­herra lands­ins, þar sem hún heyr­ist lýsa því hvern­ig stjórn­völd hefðu náð­að mann sem hafði ver­ið sak­felld­ur fyr­ir að að­stoða við yf­ir­hylm­ingu kyn­ferð­is­of­beld­is á barna­heim­il­i. For­seti lands­ins, Katal­in Novák, sem und­ir­rit­aði náð­un­ina, sagði af sér vegna máls­ins sem og Judit Varga, þá­ver­andi eig­in­kona Magy­ar, sem und­ir­rit­aði náð­un­ar­skjal­ið með for­set­an­um. Eft­ir af­sögn eig­in­kon­unn­ar til­kynnti Magy­ar op­in­ber­lega af­sögn sína úr öll­um stöð­um tengd­um rík­is­stjórn­inni og sak­aði emb­ætt­is­menn Fidesz um að gera kon­urn­ar tvær að blóra­böggl­u­m.

Í færslu á Face­book sagði hann að hug­mynd­ir Vikt­ors Or­bán um „þjóð­leg­t, full­valda, borg­ara­legt Ung­verja­land“ hefðu ekki önn­ur mark­mið en að hylma yf­ir gríð­ar­lega spill­ingu og auð­söfn­un þeirra sem hefðu réttu tengsl­in.

Við­snún­ing­ur Magy­ar vakti mikla at­hygli í Ung­verja­landi enda tíma­setn­ing­in hár­rétt. Óá­nægja ríkti með al­menn lífs­kjör í land­in­u, dýr­tíð og stöðn­un í launa­kjör­u­m. Í kjöl­far fjöl­menns mót­mæla­fund­ar tók Magy­ar yf­ir einn af smá­flokk­um lands­ins, Tisza (T­isztel­et és Sza­badság) og varð fljótt áber­andi leið­togi stjórn­ar­and­stöð­unn­ar, sem hafði ekki ver­ið til stór­ræðna leng­i. Nokkrum vik­um eft­ir yf­ir­töku flokks­ins vann Magyer stór­sig­ur í kosn­ing­um til Evr­ópu­þings­ins.

Enginn barnaleikur að fara gegn ráðandi öflum

Öll­um var þó ljóst að Magyer stefndi ann­að og hærra en til að ná alla leið þurfti hann að yf­ir­stíga hindr­an­ir sem þekkj­ast ekki í öðr­um Evr­ópu­ríkj­u­m. Eft­ir sext­án ára valda­tíð hef­ur Fidesz, flokk­ur Or­báns, kom­ið sér vel fyr­ir inn­an valda­kerf­is Ung­verja­lands með breyt­ing­um á kosn­inga­kerf­inu og ítök­um í dóms­kerf­in­u, allri stjórn­sýslu og há­skól­um lands­ins. Fjöl­miðl­ar lands­ins hafa flest­ir ver­ið keypt­ir upp af velunn­ur­um stjórn­ar­inn­ar og mörg stærstu fyr­ir­tæki lands­ins eru einnig gegn­sýrð af áhrif­um for­sæt­is­ráð­herr­ans frá­far­and­i, að ónefndu al­þjóð­legu stuðn­ings­neti mynd­uðu af helstu leið­tog­um þeirra flokka á Vest­ur­lönd­um sem kennd­ir eru við öfga­fulla hægri­stefn­u.

Ólíkt því sem gerst hef­ur und­ir Trump i Banda­ríkj­un­um hef­ur þró­un­in ver­ið hæg­ari í Ung­verja­land­i. „Hér er þetta meira eins og frosk­ur­inn sem byrj­ar að sjóða án þess að gera sér grein fyr­ir því,“ sagði Pét­er Krekó, for­stöðu­mað­ur Polit­ical Capi­tal stofn­unn­ar­inn­ar, í sam­tali við The Gu­ar­di­an fyrir tæpu ári síðan.

Hann sagði Ung­verja­land hafa stað­ið nokk­uð vel í kring­um alda­mót­in og átt sterk­ar lýð­ræð­is­leg­ar stofn­an­ir. Land­ið standi nú veikast allra Evr­ópu­ríkja að þessu leyti og „ung­versku áróð­urs­vél­inn­i“ hafi tek­ist að hamra boð­skap stjórn­valda inn hjá al­menn­ing­i: „Hann er út um allt land, á öll­um aug­lýs­inga­skilt­u­m, í út­varps­aug­lýs­ing­um, í sjón­varpi,“ sagði Krekó og bætti því við að slík­ar áróð­urs­her­ferð­ir hafi að mörgu leyti gegn­ið mjög vel við mót­un al­menn­ings­á­lits­ins í land­in­u.

Andr­e­as Ká­dár hjá ung­versku Hels­inki-­­nefnd­inni varaði við áhrif­um sem þetta veld­ur, í fyrrnefndri grein í The Guardian. Það kunni kannski að vera freist­andi að gera eina og eina mála­miðl­un í þeirri von að eitt­hvað lag­ist. „En ung­verska dæm­ið sýn­ir að þeir ganga alltaf einu skrefi lengra; við ná­um alltaf nýj­um botn­i. Það er mjög mik­il­vægt að berj­ast gegn hverri tommu og hverj­um bita í þessu ferli.“

Hann bend­ir líka á að breyt­ing­arn­ar séu oft­ast kynnt­ar og seld­ar al­menn­ingi í skjóli áróð­urs og hat­ur­s, hvort sem það er gegn ESB eða minni­hluta­hóp­um eins og inn­flytj­end­um.

Tveggja ára barátta úti á vettvangi

Magy­ar stóð því ekki að­eins frammi fyr­ir þeirri áskor­un að telja kjós­end­ur á að treysta sér þrátt fyr­ir for­tíð sína held­ur þurfti hann líka að finna leið til að koma mál­flutn­ingi sín­um á fram­færi við fólk sem set­ið hef­ur und­ir áróðri Or­báns nán­ast gagn­rýn­is­laust ár­um sam­an, eft­ir öðr­um leið­um en stjórn­mála­menn geta venju­lega reitt sig á.

Magy­ar gat hvorki treyst á fjöl­miðla né venju­leg­ar vinnu­staða­heim­sókn­ir í bar­áttu sinni og ekki fékk hann að­gang að aug­lýs­inga­skilt­um sem birt hafa áróð­ur Or­báns. Í stað­inn skipu­lagði hann fjölda­fundi um land allt með slag­orð­inu „Nú eða aldrei!“ (Most vagy so­ha!).

Kosningabarátta Magyars var að mestu háð á útifundum víða um Ungverjaland, enda ekki á fjölmiðla í landinu að treysta. Mynd/Unsplash.

Fjöl­menn­ir fund­ir í helstu borg­um lands­ins vöktu at­hygli en það var ekki síst í dreif­býl­inu sem Magy­ar náði ár­angri. Hann hef­ur ferð­ast um land­ið und­an­far­in tvö ár og heim­sótt litla bæi og þorp, mörg þeirra oft­ar en einu sinn­i.

Á enda­spretti kosn­inga­bar­átt­unn­ar hélt hann fimm til sex kosn­inga­fundi dag.

Af­rek hans hef­ur vak­ið heims­at­hygl­i. Blaða­mað­ur­inn virt­i, Anne App­el­baum, geng­ur svo langt að segja stjórn­ar­and­stöð­una í Ung­verja­landi hafa breytt stjórn­mál­um um all­an heim.

App­el­baum seg­ir sig­ur Péters binda enda á hug­mynda­fræði MAGA­-hreyf­ing­ar­inn­ar og orð­ræðu Vla­dimírs Pútíns Rúss­lands­for­seta – þess efn­is að ófrjáls­lynd­um flokk­um sé ætl­að að halda völd­um að ei­lífu af því þeir njóti stuðn­ings „hins raun­veru­lega“ fólks. Sag­an virki hins veg­ar ekki þannig því raun­veru­legt fólk verði þreytt á vald­höf­um sín­um, hug­mynd­irn­ar verði úr­elt­ar og yngra fólk­ið fari að ef­ast um rétt­trún­að­inn. Ófrjáls­lyndi leiði til spill­ing­ar. „Og ef Or­bán get­ur tap­að, þá geta rúss­nesk­ir og banda­rísk­ir að­dá­end­ur hans líka tap­að.“

Margt á huldu um stefnumálin

Þrátt fyr­ir stans­lausa kosn­inga­bar­áttu í tvö ár og 240 blað­síðna stefnu­skrá telja flest­ir enn óljóst hvað Magy­ar stend­ur í raun og veru fyr­ir. Það kann að vera með­vit­uð stefna hjá Magy­ar að ein­hverju leyt­i, til að gefa ekki and­stæð­ing­um sín­um högg­stað á sér í óvin­veittu fjöl­miðlaum­hverf­i.

Á Wikipedi­a-­­síðu hans er hon­um lýst sem íhalds­söm­um frjáls­lynd­is­mann­i, mark­aðs­sinn­uð­um efna­hags­lega með áherslu á borg­ara­lega ábyrgð, rétt­ar­ríki og þjóð­menn­ing­u.

Magy­ar hef­ur lýst yf­ir stuðn­ingi við upp­töku evru í Ung­verja­land­i, enda myndi það styrkja fjár­mála­stöð­ug­leika og stöðu Ung­verja­lands inn­an Evr­ópu­sam­bands­ins. Hann er sagð­ur vilja efla sam­starf Ung­verja­lands inn­an ESB og að­lög­un að vest­ræn­um lýð­ræð­is­gild­um. Hann hef­ur gagn­rýnt harð­línu­stefnu rík­is­stjórn­ar Or­báns gagn­vart stofn­un­um ESB og ná­in tengsl henn­ar við Rúss­land.

Í ræð­um sín­um hef­ur Magy­ar ein­beitt sér að efna­hags­mál­u­m, heil­brigð­is­þjón­ustu og skól­u­m, auk end­ur­reisn­ar lýð­ræð­is­legs að­halds og valda­jafn­væg­is. Hann hef­ur hins veg­ar forð­ast þau stefnu­mál sem Or­bán lagði áherslu á: al­þjóða­stjórn­mál, stríð­ið í Úkra­ínu og sam­sær­is­kenn­ing­una um að Úkra­ína gæti tek­ið upp á að ráð­ast inn í Ung­verja­land.

Hann hef­ur þó sagt að hann vilji bæta sam­skipt­in við Evr­ópu, þótt hann sé andsnú­inn því, eins og Or­bán, að senda Úkra­ínu­mönn­um vopn og styðji ekki flýti­með­ferð um­sókn­ar Úkra­ínu um að­ild að ESB. Þó hef­ur ver­ið bent á að til­tölu­lega lít­il breyt­ing geti skipt miklu í sam­skipt­um Ung­verja­lands við Evr­ópu­sam­band­ið. Það eitt að Ung­verja­land hætti að beita neit­un­ar­valdi í ráð­herra­ráð­inu sé stórt skref fram á við.

Á löng­um blaða­manna­fundi í gær sagði Magy­ar Ung­verja stolta af því að vera í ESB og NATO, þrátt fyr­ir gagn­rýni á skrifræð­ið í Brus­sel. Hann sagð­ist viss um að hægt yrði að finna mála­miðl­un í þeim mál­um sem Ung­verja og ESB grein­ir á um. Hann lýsti því einnig yfir að hann teldi Úkra­ínu vera þol­and­ann í stríð­inu og hvatti Rússa til að láta af árás­um sín­um.

Þótt Magyar hafi gagnrýnt Orbán fyrir náið samband við ráðamenn í Kreml og lýst yfir vilja til að gera Ungverja óháða Rússum í orkumálum hefur hann sagt að nálgast þurfi sambandið við Rússa af raunsæi.

Þótt Magyar hafi verið þögull um ýmis umdeild mál hefur verið varað við því að of mikið sé lesið í það. Hann hef­ur til dæm­is ekki gef­ið sig upp í af­stöðu til Pride-­við­burða sem bann­að­ir hafa ver­ið í Ungverjalandi und­ir stjórn Or­báns. Al­mennt sé gert ráð fyr­ir að Magy­ar verði „mun vina­legri“ en nú­ver­andi stjórn­völd í slík­um mál­u­m, þótt hann hafi ekki tal­að um það í kosn­inga­bar­átt­unn­i. Á blaða­manna­fund­in­um í gær sagði hann alla hafa rétt til að lifa lífi sínu í sam­ræmi við sína sam­visku svo fremi það stang­ist ekki á við lög. Þá sagð­ist hann virða funda­frelsi fólks sem talið er gefa fyr­ir­heit um að hann muni ekki standa í vegi fyr­ir því að hægt verði að halda Pride­-við­burði að nýju í land­in­u.

Hófstillt bjartsýni um framhaldið

Það rík­ir því tölu­verð óvissa um hvað fram und­an er í ung­versk­um stjórn­mál­u­m. Ekki að­eins er margt á huldu um raun­veru­leg­ar fyr­ir­ætl­an­ir Magyars held­ur er verk­efn­ið fram und­an gríð­ar­lega krefj­andi vegna þess hversu gegn­sýrt allt sam­fé­lag­ið er af áhrif­um Or­báns og stjórn­ar hans eft­ir 16 ára valda­tíð.

Þó er ástæða til bjart­sýni að mati Anne App­el­baum:

„En hvað sem ger­ist næst, þá tákna þess­ar kosn­ing­ar raun­veru­leg tíma­mót. Fyr­ir flest­ar evr­ópsk­ar rík­is­stjórn­ir eru þessi úr­slit létt­ir: Við get­um ekki enn vit­að hvers kon­ar rík­is­stjórn Tisza mun mynda, en það verð­ur ekki stjórn sem virk­ar sem leik­brúða Rúss­lands í Evr­ópu, sem hindr­ar fjár­mögn­un ESB til Úkra­ínu eða evr­ópsk­ar refsi­að­gerð­ir gegn Rúss­land­i. Né verð­ur það stjórn sem þjón­ar sem fyr­ir­mynd fyr­ir Banda­ríkja­menn eða Evr­ópu­búa sem vilja ná yf­ir­ráð­um yf­ir eig­in ríkj­u­m, eða taka í sund­ur eig­ið að­hald og jafn­væg­i, eða þröngva eig­in ófrjáls­lyndu hug­mynda­fræði upp á fólk sem sam­þykk­ir hana ekki.“

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 14. apríl, 2026, 09:52

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link