
Uppfærð matarstefna Reykjavíkurborgar var samþykkt í síðustu viku eftir umræður sem snerust að mestu um takmörkun á unnum kjötvörum. Slík takmörkun hefur þó verið í gildi frá 2018 og Sjálfstæðisflokkurinn kvartaði á sínum tíma yfir seinagangi við innleiðingu stefnunnar. Gímaldið er yfir sögu hinnar margumtöluðu matarstefnu.

„Í þessari tillögu sem hér er lagt upp með erum við að banna það að kótilettur í raspi séu boðnar í mötuneytum borgarinnar fyrir eldra fólk og þá finnst mér ekki rétt að við séum að taka þannig ákvarðanir,“ sagði Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar, í umræðum um matarstefnu Reykjavíkurborgar á fundi borgarstjórnar í vikunni.
Af umræðum í borgarstjórn og í samfélaginu undanfarna daga mætti ætla að borgin sé nú fyrst að stemma stigu við unnum kjötvörum í matarstefnu sinni. Svo er hins vegar alls ekki enda segir í stefnu borgarinnar sem samþykkt var árið 2018: „Unnar kjötvörur verði ekki í boði sem aðalmáltíð í mötuneytum borgarinnar oftar en fjórum sinnum á ári.“
Það hefur því verið stefnan síðustu átta árin að bjóða ekki upp á unnar kjötvörur í mötuneytum borgarinnar nema í undantekningartilvikum.

Ummæli borgarfulltrúa Framsóknarflokksins sem vísað er til að ofan endurspegla þá óreiðu sem einkennt hefur umræðu um málið, bæði á fundi borgarstjórnar og svo í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum í framhaldinu. Ummælin eru látin falla í umræðu borgarstjórnar um unnar kjötvörur í mötuneytum og eldhúsum á vegum borgarinnar. Ummælin virðast á misskilningi byggð, eins og reyndar stór partur umræðunnar um málið. Í fyrsta lagi eru kótilettur ekki unnin kjötvara, þótt raspið teljist til unninnar matvöru, og í öðru lagi tekur bann við unnum kjötvörum aðeins til leik- og grunnskóla en ekki til mötuneyta sem þjónusta eldri borgara. Í ljósi upplýsingaóreiðunnar sem einkennir umræðuna um matarstefnu Reykjavíkurborgar fer Gímaldið yfir sögu stefnunnar sem samþykkt var fyrir átta árum síðan.
Magnea Gná átti sæti í þverpólitískum starfshópi sem hafði það verkefni að endurskoða og uppfæra matarstefnu Reykjavíkurborgar frá 2018-2022. Í þeim hópi sátu einnig Heiða Björg Hilmisdóttir, Samfylkingu, Líf Magneudóttir, Vinstri grænum, og Friðjón R. Friðjónsson, Sjálfstæðisflokki. Stýrihópurinn hefur starfað frá árinu 2023.
Þrátt fyrir að stærstur hluti umræðna um matarstefnuna á borgarstjórnarfundinum hafi fjallað um unnar kjötvörur þá er það aðeins hluti af mun víðtækari stefnumótun. Samkvæmt uppfærðri stefnu verður „unnið markvisst að því að allir íbúar borgarinnar hafi aðgang að mat sem er bragðgóður, næringarríkur og spennandi. Einnig að neysla matar, framleiðsla og meðhöndlun gangi ekki nærri náttúrunni, hvorki staðbundið né hnattrænt.“ Þá ætti samkvæmt stefnunni að vera auðvelt aðgengi að góðum og næringarríkum mat, og í því samhengi tekið dæmi um bændamarkaði, matvörubúðir, veitingastaði og grænmetisgarða.

Hin uppfærða stefna er 22 blaðsíður, þar sem 14 síðna umfjöllun er um sjálfa stefnuna og fjórar um aðgerðaáætlun sem hefur fimm yfirmarkmið. Þau eru að skapa forystu sem skilar árangri, að gera matvælaframleiðslu sýnilegri í borginni, að stuðla að sjálfbærni, gæðum og betri nýtingu matar, að tryggja heilsusamlegan mat og fæðuöryggi, og að efla fjölbreytta matarmenningu.
Umræður um stefnuna snerust að stórum hluta um unnar kjötvörur þó í stefnunni séu þær aðeins nefndar í einum undirlið eins af fimm yfirmarkmiðum stefnunnar. Þegar umræðunum lauk kom fram að óskað hafi verið eftir því að greidd yrðu atkvæði í tvennu lagi; annars vegar um stefnuna sjálfa og hins vegar um aðgerðaáætlunina, og sagði borgarstjóri að það væri sér að meinalausu en benti á að þegar upphafleg matarstefna var samþykkt hafi verið greidd atkvæði í einu lagi. Nú hins vegar lá fyrir breytingatillaga frá meirihlutanum um aðgerðaáætlunina.
Uppfærð Matarstefna var samþykkt með atkvæðum fulltrúa allra flokka nema Viðreisnar sem greiddi atkvæði gegn stefnunni og tveir óháðir borgarfulltrúar sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Eitt af markmiðum stefnunnar sem samþykkt var árið 2018 var aukið aðgengi að hollum mat. Um það markmið sagði meðal annars í stefnunni:
Aðgerð C2-5: Unnar kjötvörur verði ekki í boði sem aðalmáltíð í mötuneytum borgarinnar oftar en fjórum sinnum á ári.
Ábyrgð: Skóla- og frístundasvið, velferðarsvið.
Kostnaður: Innan ramma.
Tímaáætlun: Nú þegar innleitt á skóla- og frístundasviði, innleiðing í skrefum á velferðarsviði.
Athugasemd: Unnar kjötvörur í þessu samhengi eru reykt, saltað eða rotvarið kjöt, sbr. skilgreiningu Embættis landlæknis. Sem dæmi má nefna saltkjöt, spægipylsu, beikon, pylsur, bjúgu, kjötfars, hangikjöt og skinku.
Stefnan var samþykkt við atkvæðagreiðslu í borgarstjórn 15. maí 2018. Engar bókanir voru lagðar fram sem snertu unnar kjötvörur. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram bókun um að þeir samþykki stefnuna með þeim eina fyrirvara að þeir „styðji ekki tillögur að aðgerðum sem hafa í för með sér sérstaka stofnun með tilheyrandi kostnaði.“
Þrátt fyrir samþykkta stefnu gerðist lítið í þessum málum hjá borginni næstu misseri og í september 2019, sextán mánuðum síðar, lagði meirihlutinn, skipaður fulltrúum Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna, fram tillögu um „að vinna áætlun um innleiðingu á matarstefnu borgarinnar.“ Þessi tillaga var samþykkt en borgarfulltrúar Miðflokksins og Flokks fólksins sátu hjá við atkvæðagreiðsluna.
Með samþykkt tillögunnar fylgdu bókanir. Í bókun meirihlutans kom fram að leggja þyrfti aukna áherslu á að innleiða matarstefnuna. Meðal þeirra sem stóðu að bókuninni var fulltrúi Viðreisnar, Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Í síðustu viku greiddi Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, hins vegar atkvæði gegn uppfærðri matarstefnu.
Í bókun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá 2019 sagði að þeir teldu „löngu tímabært að hefja innleiðingu matarstefnunnar. Hún samrýmist manneldismarkmiðum Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins og tryggir aukna fjölbreytni og meira val“ og ennfremur að þeir undrist seinagang við innleiðingu stefnunnar.

Gildistími þessarar fyrstu matarstefnu Reykjavíkurborgar var til ársloka 2022. Það er hins vegar ekki fyrr en að þeim tíma liðnum, í febrúar 2023, sem skipaður er starfshópur um endurskoðun og uppfærslu stefnunnar. Það er vinna þess hóps sem nú er til umræðu. Sem fyrr segir skipuðu hann þau Heiða Björg, Magnea Gná, Friðjón og Líf. Trausti Magnússon, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, var einnig upphaflega skipaður í hópnum en hann hætti í borgarstjórn ári síðar og kom enginn fulltrúi flokksins í hans stað.
Með hópnum starfaði dr. Ellen Alma Tryggvadóttir sem var ráðin inn árið 2021 sem verkefnisstjóri matarstefnu Reykjavíkurborgar. Ennfremur hafði hópurinn sér til ráðgjafar og samstarfs sérstakt matarstefnuteymi Reykjavíkurborgar, auk þess sem í erindisbréfi segir að hópurinn skuli leita ráðgjafar innan og utan borgarkerfisins hjá aðilum með sérþekkingu á efninu eftir því sem við á.
Stýrihópurinn átti að skila kostnaðarmetinni aðgerðaáætlun fyrir 31. október 2023. „Vinnunni seinkaði nokkuð“ segir í skilabréfi stýrihópsins til borgarstjórnar sem er dagsett 10. apríl 2026 og það var svo í síðustu viku, 14. apríl, að stefnan var lögð fyrir borgarstjórn.
Eitt af fimm yfirmarkmiðum nýju matarstefnunnar er Sjálfbærni, gæði og bætt nýting matar. Til að ná þessu markmiði var eftirfarandi tillaga lögð til í aðgerðaáætluninni: „Boðið er upp á val um grænmetisrétt í öllum mötuneytum og unnar kjötvörur falla út af matseðli sem aðalmáltíð.“
Það var um þennan lið sem meirihlutinn gerði breytingartillögu sem virðist hafa sett allt á hliðina í umræðunni í borgarstjórn.

Breytingartillagan fól annars vegar í sér að tillagan um grænmetisrétti stæði þarna ein og hins vegar að tillagan um unnar kjötvörur færðist undir yfirmarkmiðið Heilsusamlegur matur og fæðuöryggi, og verða svohljóðandi: „Unnar kjötvörur falla út af matseðli í leik- og grunnskólum og öðrum þeim starfsstöðum borgarinnar sem þjónusta börn, nema í undantekningatilvikum. Æskilegt viðmið er að hámarki fjórum sinnum á ári.“
Breytingin sem meirihlutinn lagði til felur því í sér að tillagan um unnar kjötvörur taki bara til starfsstaða sem þjónusti börn, í stað allra starfsstaða borgarinnar, að orðalagi verði breytt og sagt að unnar kjötvörur falli út „af matseðli“ fremur en „sem aðalmáltíð“, og inn er sett klausa um æskilegan fjölda undantekninga. Og það er um þessar breytingar meirihlutans sem umræðan á borgarstjórnarfundi snerist að stóru leyti.
Rétt er að geta þess hér að á virkum dögum borða á þriðja tug þúsunda hádegismat á vegum borgarinnar. Stærsti hlutinn eru leik- og grunnskólabörn, um tuttugu þúsund, en þar á eftir kemur starfsfólk borgarinnar, fólk sem nýtir sér máltíðaþjónustu velferðarsviðs, hjúkrunarheimili og búsetukjarna. Fjallað er um þetta undir liðnum „Máltíðir borgarinnar“ í stefnunni.
Friðjón, sem sat í stýrihópnum sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði margt í stefnunni lykta af óskhyggju, og bætti við: „Mér finnst þessi nýja viðbót sem kom núna varðandi að banna unnar kjötvörur vera svolítið sérstök og koma svolítið óvænt. Því unnar kjötvörur eru hugtak sem getur verið svolítið vítt.“ Í kjölfarið ræddu Friðjón og Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata, lengi um skilgreiningar á unnum kjötvörum, muninn á unnum og gjörunnum kjötvörum, og hvaða unnu kjötvörur væru skilgreindar sem krabbameinsvaldandi.

Í stefnunni sjálfri, sem til umræðu var, er hins vegar endurtekið vísað embætti landlæknis og kemur fram að embættið gefi út opinberar ráðleggingar um mataræði fyrir ólíka aldurshópa, auk þess sem bent er á handbækur embættis landlæknis um leikskólaeldhús og grunnskólaeldhús. Í báðum þessum handbókum er fjallað um unnar kjötvörur á eftirfarandi hátt: „Unnar kjötvörur ætti að hafa mjög sjaldan á borðum en með unnum kjötvörum er átt við kjöt (oftast rautt kjöt) sem er reykt, saltað eða rotvarið með nítrati eða nítríti. Sem dæmi má nefna saltkjöt, spægipylsu, pepperóní, beikon, pylsur, bjúgu, kjötfars, hangikjöt og skinku.“ Þessi listi er nokkuð tæmandi þegar kemur að unnum kjötvörum sem yfir höfuð er boðið upp á í leik- og grunnskólum. Þá var einnig vísað í skilgreiningu embættis landlæknis sérstaklega í skýringum við tillöguna í fyrri matarstefnu, þeirri sem stýrihópurinn fékk það hlutverk að uppfæra.
Magnea Gná, fulltrúi Framsóknar, sagði á borgarstjórnarfundinum að hún væri mótfallin bæði þeirri aðgerð um unnar kjötvörur sem kynnt var í nýrri stefnu sem og breytingatillögu meirihlutans: „Ég verð bara að segja fyrir mitt leyti að sú tillaga sem upphaflega var lögð til með að það væri allar unnar kjötvörur færi út er heldur ekkert skárri heldur en þessi breytingatillaga. Þær eru báðar jafn slæmar. Mér finnst að borgin eigi ekki að banna skinku á pítsu í félagsmiðstöðvum eða öðrum stöðum þar sem börn eru.“
Magnús Davíð benti á að börn gætu enn tekið unnar kjötvörur með sér sem nesti í skólann ef þau vildu, að ekki væri tekið fyrir það með aðgerðaáætluninni. Þá vakti hann sömuleiðis athygli á því að með breytingatillögunni væri rými fyrir undantekningar „meðal annars til að geta mætt þjóðlegum hefðum, hangikjöt og saltkjöt og slíkt“. Hann undraðist þó að Magnea Gná væri mótfallin báðum útgáfum af ákvæðinu þar sem hún hefði setið í stýrihópnum sem skilaði af sér þeirri fyrri. Hún sagðist hins vegar ekki kannast við umræður þar um unnar kjötvörur.
„Ég man nú bara ekkert eftir að þetta hafi sérstaklega verið tekið til umræðu inni í þessari matarstefnu og ef svo er þá hefði ég ekki samþykkt þessa tillögu sérstaklega,“ sagði hún. Því næst sagði hún lagt upp með að banna kótilettur í raspi í mötuneytum borgarinnar fyrir eldri borgara. Sem fyrr segir þá eru kótilettur hins vegar ekki unnar kjötvörur og ekkert í stefnunni sem bannar þær.
„En þá langar mér að spyrja borgarfulltrúann; er þessi tillaga þá að leggja til ef að félagsmiðstöðvar vilja halda pítsakvöld og panta pítsur, eins og stundum er gert og við þekkjum, að þá verði ekki hægt að panta pítsu með pepperóní í félagsmiðstöðvum borgarinnar vegna þessarar tillögu?“

Spurningunni var beint til Magnúsar Davíðs sem benti á að hann hafi ekki setið í stýrihópnum heldur hún sjálf. Magnea Gná tók þetta óstinnt upp: „Ég verð nú bara að gera athugasemd við það að ég hafi ekki kynnt mér efni þessarar stefnu, það er ekki svo heldur man ég ekki eftir að þetta hafi sérstaklega verið rætt á þessum fundum. Það er auðvitað þannig sem við þekkjum sem höfum unnið í stýrihópum að við ræðum og svo tekur starfsfólk við þeim upplýsingum sem eru ræddar og það er unninn einhver texti, og ég bara átta mig ekki á því hvernig þetta hefur ratað hérna inn. Hvorki ég né Friðjón, sem erum fulltrúar minnihlutans í þessum stýrihóp erum neitt sérstaklega hress með þessa tillögu eða til í hana og ég hefði ekki samþykkt hana svona út.“
Friðjón kannaðist hins vegar við að stýrihópurinn hafi rætt unnar kjötvörur en honum fannst ekki skýrt hvað nákvæmlega væri átt við: „Þegar við vorum að tala um unnar kjötvörur í nefndinni þá var í mínum huga vorum við að tala um gjörunnar kjötvörur, og ég geri greinarmun þar á, og ég skal bara viðurkenna það hérna í þessum sal að það voru kannski mistök að gera ekki kröfu um það að við værum að tala um gjörunnar kjötvörur.“ Þá bætti hann við að honum fyndist fullt tilefni til að sleppa gjörunnum kjötvörum yfir höfuð í mötuneytum borgarinnar, og sömuleiðis: „Ég hef svosem ekkert stórkostlegar athugasemdir við það að unnar kjötvörur séu ekki aðalmáltíð. Það er hitt hinsvegar, þegar við erum farin að segja það, að við eigum ekki að bjóða upp á unnar kjötvörur, með hvaða hætti sem þær eru, sem að ég staldra við.“

Þá benti Friðjón á að matarstefnan hafi verið unnin í nokkuð góðri sátt en síðan komi meirihlutinn skyndilega fram með breytingatillögu, tillögu sem ekki væri sátt um: „Af hverju komuð þið ekki með þessar athugasemdir inn fyrir löngu síðan, þegar starfshópurinn var að störfum?“
Svo fór að breytingartillaga meirihlutans var samþykkt með tólf atkvæðum meirihlutans gegn ellefu atkvæðum minnihlutans. Aðgerðaáætlunin var svo samþykkt í heild sinni, ásamt nýsamþykktri breytingu meirihlutans, með tólf atkvæðum meirihlutans gegn níu atkvæðum minnihlutans, og tveir óháðir borgarfulltrúar sátu hjá.
Í bókun Viðreisnar við afgreiðslu málsins segir meðal annars að bann við unnum kjötvörum nema fjórum sinnum á ári sé „takmörkun sem gengur of langt enda í okkar matarmenningu töluvert um unnar kjötvörur. Myndi fulltrúi Viðreisnar ekki vilja sjá þennan stóra hluta af okkar menningarheimi glatast svo auðveldlega fyrir ungum Reykvíkingum og þá sérstaklega þeim með fjölbreyttan bakgrunn sem hafa ekki kost á að nálgast hann heima fyrir.“
En þótt ný matarstefna ásamt aðgerðaáætlun hafi verið samþykkt í borgarstjórn greiddist ekkert úr óreiðunni. Flestir fjölmiðlar fjölluðu um málið eins og meint aðför að unnum kjötvörum hefði hafist með breytingartillögu meirihlutans í síðustu viku og létu þess hvergi getið að takmörkun slíkrar vöru hefði átt sér stoð í stefnu borgarinnar frá árinu 2018.
„Unnar kjötvörur úr mötuneytum í skólum borgarinnar,” sagði í fyrirsögn fréttar RÚV um málið og mbl.is sagði „Borgarstjórn vill banna unnar kjötvörur“ í sinni fyrirsögn. Svipaðar fyrirsagnir voru í öðrum miðlum.
Margir frambjóðendur flokkanna sem bjóða fram í borginni í vor hafa vakið athygli á málinu. Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri, taldi kótilettuna til unninnar kjötvöru.
Fyrrverandi aðstoðarmaður Einars, Björg Magnúsdóttir, oddviti framboðslista Viðreisnar, vék einnig að málinu í færslu á Facebook.
Brynjar Níelsson, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, skautar framhjá því að ákveðið um unnar kjötvörur nær aðeins til mötuneyta barna en ekki fullorðinna.
Líf Magneudóttir lýsir hins vegar ánægju með uppfærða stefnu en talar þó um að eftir sé að tryggja fjármagn og innleiðingu.
Fjölmargt er undir í matarstefnunni annað en unnar kjötvörur. Í henni felst til að mynda að komið verður á laggirnar nýrri stöðu innan stjórnsýslunnar, verkefnastjóra næringar.
Í stefnunni er fjallað um að sérstakt matarstefnuteymi hafi starfað frá árslok 2021 en tekið fram að: „Það er þó ljóst að sé raunverulegur vilji til að gera breytingar og fylgja aðgerðaráætluninni eftir er mikilvægt að skipa verkefnastjóra næringar til að hafa yfirumsjón með starfinu. Reynslan sýnir að það er eina leiðin til að tryggja heildaryfirsýn yfir framvindunni, samhæfa starfsemi milli sviða og deilda og til að tengja saman verkefni sem eru í gangi.“ Þá segir að verkefnastjóri næringar yrði staðsettur miðlægt í stjórnsýslunni.
Fulltrúi Viðreisnar var sá eini sem greiddi atkvæði gegn þessu, sumsé matarstefnunni sjálfri, og þetta var ekki fókus átaka í umræðunum í borgarstjórn heldur var hann settur á unnu kjötvörurnar.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.