
Frambjóðendur í prófkjöri Samfylkingarinnar skipa sér í fylkingar bak við tjöldin. Flestir borgarfulltrúar standa saman en forysta flokksins veðjar á endurnýjun og er í horni nýrra frambjóðenda. Prófkjörið fer fram eftir rúmar tvær vikur.

Eftir að ljóst varð að Hildur Björnsdóttir er sjálfkjörin sem leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í borginni má ætla að mesta spennan um val á lista fyrir borgarstjórnarkosningar verði hjá Samfylkingunni. Borgarstjórinn Heiða Björg Hilmisdóttir hefur fengið mótframboð í leiðtogasætið frá Pétri Marteinssyni veitingamanni og margir býtast um önnur efstu sæti.
Prófkjör um efstu sex sætin á lista Samfylkingarinnar fer fram laugardaginn 24. janúar. Sautján flokksmenn tilkynntu um framboð áður en frestur til þess rann út um helgina. Flest þeirra sem gefa kost á sér styðja annað hvort oddvitaefna flokksins til forystu, þótt þau gefi stuðning sinn ekki upp opinberlega.
Flokkadrættir í prófkjörsbaráttu eru sjaldnast beinlínis opinberir, enda öllum ljóst að þeir frambjóðendur sem ná kjöri í efstu sætin muni þurfa að vinna saman bæði í kosningabaráttunni og ekki síður sem kjörnir fulltrúar og samherjar að kosningum loknum. Hins vegar er algengt að frambjóðendur í prófkjöri skipi sér í fylkingar meðan á prófkjörsbaráttu stendur og eigi í óformlegu samstarfi upp að því marki sem þeir telja það geta gagnast baráttu sinni.
Frambjóðendur eiga mikið undir því að kjósendur setji þá í það sæti sem þeir gefa kost á sér í til að atkvæðin nýtist sem best. Frambjóðandi sem gefur kost á sér í 2. sæti, vill að kjósandi setji hann í það tiltekna sæti, til að auka líkur á að hann fái flest atkvæði í það sæti. Viðkomandi er því almennt ekki í beinni samkeppni við frambjóðanda um oddvitasætið eða þá sem stefna á sæti neðar á lista flokksins. Samvinna frambjóðenda sem keppa um ólík sæti getur því verið fýsileg.
Prófkjörsbarátta fer að miklu leyti fram í beinum samtölum við kjósendur. Frambjóðendur fá afhenta kjörskrá flokksins og hringja í kjörgenga flokksmenn, hver í kapp við annan. Sumir hafa jafnvel úthringiver sjálfboðaliða á sínum snærum til að auka afköstin. Og um hvað er rætt í þessum símtölum?
Mest púður fer auðvitað í að ræða þann frambjóðanda sem hringt er fyrir en svo getur myndast rými til að ræða listann að öðru leyti. Svokallaður tossalisti er þá gjarnan hluti af handriti þeirra sem hringja út, það er listi yfir aðra frambjóðendur sem viðkomandi hefur gert samkomulag um að mæla með. Flestir frambjóðendur eru með fyrir fram mótaðar skoðanir á með hverjum beri að mæla í önnur sæti á listanum. Þetta er þó ekki einhlítt. Eðli málsins samkvæmt hugsa frambjóðendur mest um sjálfa sig og minna um aðra.

Nú eru aðeins rúmar tvær vikur til stefnu og tossalistar símavera frambjóðenda að taka á sig mynd. Samkvæmt heimildum Gímaldsins halda flestir sitjandi borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar hópinn.
Þeirra á meðal eru borgarstjórinn Heiða Björg, Skúli Helgason sem gefur kost á sér í 2. sæti, Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi Pírati sem biður um 3. til 4 sæti og Ellen J. Calmon varaborgarfulltrúi sem gefur kost á sér í 3. til 5. sætið. Undantekningin eru varaborgarfulltrúarnir Birkir Ingibjartsson og Sara Björg Sigurðardóttir. Þau eru sögð vinna saman og eiga samleið með Skúla en ekki með Heiðu.
Nýliðinn Pétur Marteinsson er með flokksforystuna í sínu horni en það var á almannavitorði að flokksforystunni hafi ekki hugnast listi undir forystu sitjandi borgarstjóra og leitað hafi verið að mótframboði þar til Pétur steig fram.

Ungliðahreyfing flokksins hélt sérstakt prófkjör í eigin röðum og sigurvegarar þess, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir og Stein Olav Romslo gefa kost á sér í 2. til 3. sætið og 4. sæti. Flokksforystan hefur unnið mikið með ungliðahreyfingu flokksins í innra starfinu eins og flokksmenn urðu vitni að á landsfundi flokksins síðasta vor. Því kemur ekki á óvart að ungliðarnir í prófkjörinu vinni með Pétri í aðdraganda prófkjörsins.
Annar nýr frambjóðandi í horni Péturs og forystunnar er Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar en hún gefur kost á sér í 2. sæti.
Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur sem sækist eftir 2. til 4. sæti er hins vegar talin styðja Heiðu til forystu frekar en Pétur. Sama á við um Ólöfu Helgu Jakobsdóttur og Sigfús Ómar Höskuldsson en þau gefa kost á sér í 5. og 6. sæti.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, sem gefur kost á sér í 3. sæti hefur hefur ekki gefið upp hvort hann styðji Heiðu eða Pétur. Hann gekk í flokkinn í aðdraganda síðustu borgarstjórnarkosninga og hóf mikla smölun í flokkinn er var svo ekki talinn kjörgengur og því varð ekki af framboði. Fjallað var um framboð Guðmundar á Vísi og fjölda nýskráninga í flokkinn í tengslum við framboð hans. Í frétt Vísis gefur Guðmundur ekkert upp um stuðning sinn við Heiðu eða Pétur. Hann gæti því hallast í hvora áttina sem er eða unnið með frambjóðendum þvert á fylkingar.
Þrátt fyrir þessa óopinberu flokkadrætti í aðdraganda prófkjörs eru mestar líkur á að niðurstaðan verði blönduð og að frambjóðendur úr báðum fylkingum raði sér í efstu sætin. Bæði má ætla að mjótt verði á munum milli fylkinga auk þess sem fjöldi frambjóðenda í 2., 3. og 4. sæti dregur úr fyrirsjáanleika um niðurstöðuna.
Þannig getur hörð samkeppni um þessi sæti valdið því að það oddvitaefni sem ekki nær kjöri í efsta sætið detti alveg út og fái ekkert sæti í prófkjörinu.
Þá geta reglur flokksins um jafnan hlut kynjanna á lista haft þau áhrif að sætaskipan verði hrókerað að prófkjöri loknu.
Töluvert hefur verið rætt um þörf fyrir endurnýjun á lista Samfylkingarinnar I Reykjavík. Þetta ákall vinnur með Pétri, ungliðunum og öðrum nýjum frambjóðendum.
Sitjandi borgarfulltrúar sem áður hafa verið í framboði búa hins vegar að reynslu af prófkjörsbaráttu og setja nú í gang margreynda maskínu. Þessa reynslu má heldur ekki vanmeta, né heldur þekktan hóp stuðningsmanna sem frambjóðendur hafa aflað sér í margra ára starfi innan flokksins.
Prófkjör Samfylkingarinnar gæti af þessum sökum orðið æsispennandi og mikið í húfi fyrir alla frambjóðendur sem og forystu flokksins.
Þrátt fyrir litlar vinsældir sitjandi borgarstjóra hefur fylgi Samfylkingarinnar ekki fallið mikið í könnunum. Í nýrri könnun Gallup mælist flokkurinn með 23,3 prósent og tapar þremur prósentum frá síðustu könnun. Engu að síður mælist flokkurinn með meira fylgi en kom upp úr kjörkössunum í síðustu kosningum og bætir við sig einum borgarfulltrúa.
Frambjóðendur í prófkjöri Samfylkingarinnar:
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.