
Umfjöllun RÚV um mál Margrétar Löf hefur vakið athygli. Ýmsir hafa fordæmt að dæmdur morðingi fái orðið í Ríkisútvarpinu og hafa efasemdir um að umfjöllunin eigi rétt á sér. Fjölmiðlar hafa hins vegar hlutverki að gegna við að lýsa upp erfið mál, jafnvel þótt í því felist að birta viðtal við morðingja.

Fréttakonan Þóra Tómasdóttir og vinnuveitendur hennar á RÚV hafa sætt gagnrýni fyrir umfjöllun um mál Margrétar Löf, sem hlaut 16 ára fangelsisdóm í síðastliðið haust fyrir að bana öldruðum föður sínum og beita móður sína ofbeldi í Garðabæ í fyrravor. Gagnrýnin lýtur að fyrsta þætti hlaðvarps sem ber titilinn Vítahringur Margrétar Löf. Í þættinum er fjallað um nöturlegan aðdraganda þeirra brota sem Margrét var dæmd fyrir, um andlegt ástand Margrétar á þeim tíma, samskiptavanda hennar og foreldra hennar og árangurslitlar tilraunir fjölskyldunnar til að leita hjálpar.
Gagnrýnendur koma úr ýmsum áttum. Sumum finnst umfjöllun Þóru ótímabær og aðrir telja hana ýmist óþarfa eða jafnvel beinlínis skaðlega. Því er velt upp hvort RÚV sé að reyna að hafa áhrif á gang málsins hjá dómstólum og jafnvel gefið í skyn að annarleg sjónarmið búi að baki. Mörgum finnst ekki að morðingjar eigi að hafa rödd.
Sakamál eru fréttnæm. Þau eru spennandi, áhugaverð, stundum harmþrungin en oft líka fyndin og vandræðaleg. Fjölmiðlar fjalla um sakamál af því fólk hefur áhuga á þeim. Við erum að forvitin um óvenjulega breytni annars fólks, hvort sem við notum hana sem spegil á okkur sjálf eða dýrategundina sem við tilheyrum. Svo erum við sem betur fer áhugasöm um örlög samborgara okkar, bæði þeirra sem eru þolendur afbrota og hinna sem fremja þau.
Önnur ástæða er praktískari og tengist með beinum hætti hlutverki fjölmiðla í lýðræðislegu samfélagi sem byggir á virðingu fyrir mannréttindum. Meðferð dómsmála er opin, til að borgararnir sjálfir geti fullvissað sig um að dómsvaldi sé ekki misbeitt og að sakborningar fái réttláta málsmeðferð. Hugmyndin er að traust til dómsvaldsins sé best tryggt ef því er beitt fyrir opnum tjöldum.
Aðalmeðferðir mála eru opnar almenningi, ekki af því að einhver gleymdi að læsa, heldur til þess að við getum séð með eigin augum hvernig valdinu er beitt. Þau sem þurfa að mæta í vinnuna og mega ekki vera að því að fylgjast með öllu sem fram fer í rauntíma, geta farið á vefsvæði dómstólanna og kynnt sér þar dóma sem kveðnir hafa verið upp.
Umfjöllun fjölmiðla um dómsmál er beinlínis partur af því kerfi sem á að passa að dómskerfið virki og að við getum treyst því.
En þar sem réttarsalir landsins eru ekki nægilega stórir til að rúma alla þjóðina og fólk almennt of upptekið af eigin lífi til að hanga niðri í héraðsdómi, hefur sú hefð skapast að láta fjölmiðla sinna þessu.
Á mörgum árum hefur orðið til kerfi sem blaðamenn verða sérhæfðir í. Þeir kalla kalla eftir ákærum, fylgjast með þingfestingu, mæta við aðalmeðferð, ræða við sækjendur og verjendur og spara svo þjóðinni það ómak, að þræla sér í gegnum langa dóma, með birtingu aðgengilegs efnis um úrlausnir sem hafa gengið, í styttra eða lengra máli, í texta, hljóði eða mynd.
Auðvitað er allur gangur á því hve vel tekst til, en þetta er hugmyndin og hana þekkja bæði blaðamenn og dómstólar. Umfjöllun fjölmiðla um dómsmál er beinlínis partur af því kerfi sem á að passa að dómskerfið virki og að við getum treyst því.
Ekkert í þessu kerfi gefur til kynna að eðlilegt og rétt sé að bíða með umfjöllun um mál þar til endanleg niðurstaða liggur fyrir á æðra dómstigi. Dómar héraðsdóms eru birtir strax í kjölfar dómsuppkvaðningar en ekki haldið leyndum meðan mál er rekið fyrir Landsrétti. Kerfið gerir ráð fyrir því að almenningur og fjölmiðlar geti fylgst með rekstri dómsmála og fjallað um þau á öllum stigum, frá upphafi til enda.
Þessum sjónarmiðum er flestum snúið á hvolf í gagnrýni á umfjöllun um mál Margrétar Löf og nánast gert tortryggilegt að málið sé til umfjöllunar yfir höfuð. Erfitt er að henda reiður á hvers vegna gagnrýnendur eru svona andsnúnir vandaðri umfjöllun um dómsmál, en þó er ljóst að það er viðtal Þóru Tómasdóttur við Margréti Löf sem fólki blöskrar.
Gagnrýnin á viðtalið við Margréti er tvíþætt. Annars vegar er aðferðin gagnrýnd og kölluð „drottningarviðtal“ og hins vegar er gagnrýnt að dæmdum morðingja sé gefið orðið yfir höfuð.
Þau sem halda því fram að um drottningarviðtal sé að ræða, hafa annað hvort bara lesið fyrirsagnir en ekki hlustað á þáttinn eða misskilið efni hans.
Áður en Margrét fær orðið, útskýrir Þóra af hverju hún ákvað að hafa viðtal við Margréti sjálfa með í umfjölluninni. Málið hverfist að miklu leyti um andlegt ástand Margrétar og með þáttagerðinni sé leitast við að varpa ljósi á það. Þess vegna hafi verið rætt við Margréti um líðan hennar og ástæður þess að hún leitaði sér hjálpar áður en hún var dæmd fyrir að bana föður sínum.
Þegar komið er að samtalinu við Margréti hafa hlustendur þegar fengið lýsingu á samskiptaerfiðleikum fjölskyldunnar og aðdraganda þess ofbeldis sem dró föður Margrétar til dauða. Mynd hefur teiknast upp af andlegu ástandi Margrétar og sambandi hennar við foreldra sína. Efniviðinn í þá mynd sækir Þóra í vottorð fjölda sérfræðinga sem vísað er til í dómi héraðsdóms auk viðtala við fólk sem þekkti til fjölskyldunnar.
Í þessu samhengi er fjarstæðukennt að kalla samtal Þóru og Margrétar drottningarviðtal. Þaðan af síður er hægt að halda því fram að viðtalið gangi út á að „ógæfukonan, sem myrti föður sinn, sé réttsýn og góð,“ eins og einn gagnrýnenda hélt fram.
Með stuðningi þeirra gagna sem fjallað er um í þættinum, sýnir viðtalið ekki annað en dapurlega veruleikafirringu. Blaðamenn geta haft ólíkar leiðir til að draga fram það efni sem þeir vilja varpa ljósi á. Þóra biður Margréti að lýsa sjálfri sér og svarið veldur gæsahúð.
Hvort gefa eigi dæmdum morðingjum eða öðrum brotamönnum orðið í fjölmiðlum, fer auðvitað eftir markmiðinu hverju sinni og hvort viðkomandi geti varpað ljósi á umfjöllunarefnið þannig að við hin getum orðið einhvers vísari. Þóra spurði þeirra spurninga sem hún taldi geta varpað ljósi á andlegt ástand Margrétar.
Kannski eru margir þeirrar skoðunar að ekki eigi að leyfa morðingjum að tjá sig í fjölmiðlum, af þeirri einu ástæðu að þeir séu morðingjar og misbjóði réttlætiskennd fólks með því að leggja orð í belg. Breyti þá engu hvort markmið sé að bera af sér sakir, skýra gjörðir sínar eða lýsa eign sýn andlegt ástand sitt.
Forvitni er eftirsóknarverðasti eiginleiki manneskjunnar og lykill allra framfara. Það á ekkert síður við um morðingja en annað sem vekur forvitni og kallar á lausnir. Ef við viljum ekki heyra frá dæmdum morðingjum höfum við ekki nema takmarkaðan áhuga á að leysa þau vandamál sem leiða til morða og ofbeldis.
Meðal gagnrýnisradda koma þó fram góðar spurningar. „Hverju á þetta nú að skila?“ er oft viðkvæði þeirra sem trúa því að umfjöllun fjölmiðla um sakamál eigi uppruna í lágkúrulegri hnýsni um persónulega harmleiki. Spurningin sjálf á þó fullkomlega rétt á sér.
Umfjöllun Þóru um Margréti Löf og foreldra hennar er reyndar alveg sérlega vel til þess fallin að ræða hlutverk fjölmiðla í umfjöllun um sakamál. Umfjöllunin og málið allt skilur eftir áleitnar spurningar um gerendur og þolendur heimilisofbeldis, meðvirkni, ráðaleysi og skyldur okkar gagnvart samborgurum okkar. Hún varpar ljósi á þjáningar sem flestum eru huldar, ofbeldi gegn öldruðum, aðrar birtingarmyndir ofbeldis en við eigum að venjast og vanmátt sem fæstir trúa að óreyndu að þeir geti fundið fyrir. Síðast ekki síst skilur hún eftir sig áleitnar spurningar um okkur sjálf. Flest okkar vilja trúa að við myndum bregðast öðruvísi við en Sigurbjörn, en getum við verið viss?
„Ég vildi ekki hafa þetta þarna,“ segir Sigurbjörn Bárðarson hestamaður í viðtali við Þóru, og vísar til ofbeldis sem hann segist hafa séð Margréti beita móður sína við hesthús hans. Í viðtalinu lýsir Sigurbjörn miklu hugarangri og ráðaleysi um hvernig honum hefði borið að bregðast við. „Þó mér þætti óskaplega vænt um hjónin, þá var þetta samband sem maður kýs ekki að hafa innandyra hjá sér. Ég vildi ekki hafa þetta þarna.“
Umfjöllunin og málið allt skilur eftir áleitnar spurningar um gerendur og þolendur heimilisofbeldis, meðvirkni, ráðaleysi og skyldur okkar gagnvart samborgurum okkar.
Það er auðvelt fyrir okkur sem á þetta hlýðum að heimta inngrip; hringja í lögregluna, bregðast við, ganga í milli. En þótt erfitt sé að horfast í augu við það, erum við líklega flest á svipuðum slóðum og Sigurbjörn. Við lítum enn á heimilisofbeldi sem persónulegt og sárt einkamál þeirra sem beita því og búa við það. Það á að vera heima hjá sér, og ekki koma inn á okkar gafl.
Sjálf trúum við því að okkar eigin viðbrögð yrðu önnur og meira afgerandi en viðbrögð þeirra sem urðu vitni að ofbeldinu sem lýst var í þættinum Vítahringur Margrétar Löf. En áður en við vitum af höfum við valið þögnina.
Þátturinn lýsir upp djúpstæðan vanda og í gegnum viðtöl, meðal annars við dæmdan morðingja, nær blaðamaðurinn að varpa mikilvægu ljósi á sárt og erfitt mál. Ofbeldi þrífst alltaf í þögn. Það má gagnrýna fjölmiðla, en heiftarleg gagnrýni á þá sem leggja sig fram um að lýsa upp, rýna, spyrja spurninga og kryfja flókin mál er ekkert annað en krafa um þögn. Fjölmiðlar eiga aldrei að verða við þeirri kröfu.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.