Dóm­ar­arn­ir lögðu Meloni

Lestími: 14 mínútur

Ítal­ir hafa fellt um­deild­ar breyt­ing­ar á ítölsku stjórn­ar­skránni í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Nið­ur­stað­an er mik­ið áfall fyr­ir rík­is­stjórn Giorgiu Melon­i. Skýrend­ur telja marga kjós­end­ur hafa kos­ið um rík­is­stjórn Meloni frem­ur þær stjórn­ar­skrár­breyt­ing­ar sem voru á kjör­seðl­in­um.

Bar­átt­an Meloni gegn dóm­ur­un­um, eins og Ítal­ir köll­uðu hana, hef­ur ver­ið til lykta leidd og dóm­ar­arn­ir unn­u. Nið­ur­stað­an er tal­in stærsta áfall Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, síð­an rík­is­stjórn henn­ar var mynd­uð haust­ið 2022.

Stjórn­ar­skrár­breyt­ing­in sem kos­ið var um varð­ar dóms­kerf­ið, en Giorgia Meloni og hægri­­­stjórn henn­ar hafa haft horn í síðu þess alla valda­tíð sína. Breyt­ing­in gerði ráð fyr­ir nýju kerfi við skip­un dóm­ara og með henni átti einnig að koma í veg fyr­ir að sak­sókn­ar­ar gætu orð­ið dóm­ar­ar síð­ar á starfs­ferli sín­um. Þá var einnig lagt til að sett­ur yrði upp sér­stak­ur dóm­stóll til að fjalla um aga­mál dóm­ara og sak­sókn­ara en hing­að til hef­ur sér­stök deild inn­an Hæsta­rétt­ar lands­ins séð um slík mál.

Breyt­ing­arn­ar, sem ítalska þjóð­in hef­ur nú hafn­að, byggja að nokkru leyti á til­lög­um frá valda­tíð Sil­vio Berluscon­i, sem freist­aði þess sjálf­ur að breyta stjórn­ar­skránni í valdatíð sinni. Berlusconi var þá sjálf­ur flækt­ur í tugi saka­mála og lýsti hann op­in­ber­um sak­sóknur­um lands­ins sem krabba­meini lýð­ræð­is í land­in­u. Því mati eru marg­ir í rík­is­stjórn Meloni sam­mála enda hafa þeir sjálf­ir feng­ið smjör­þef­inn af því.

Kosn­ing­in stóð í tvo daga, sunnu­dag­inn 22. mars og mánu­daginn 23. mars. Upp­haf­lega var talið að góð kjör­sókn myndi vinna með Meloni og rík­is­stjórn henn­ar, en á mánu­dag varð ljóst að kjör­sókn­in yrði svo góð að mögu­lega snérist taf­lið við og svo mik­il kjör­sókn ynni gegn rík­is­stjórn­inn­i. Það varð raun­in. Kjör­sókn var rétt und­ir 60 pró­sent. 57,3 pró­sent höfn­uðu breyt­ing­unni en 43,6 pró­sent vildu stað­festa hana.

Stjórnin vildi greiða fyrir brottvísun innflytjenda

Tals­menn rík­is­stjórn­ar­inn­ar sögðu breyt­ing­arn­ar tryggja nauð­syn­lega hreins­un inn­an kerf­is­ins og greiða fyr­ir stefnu­mál­um rík­is­stjórn­ar­inn­ar um brott­vís­un ólög­legra inn­flytj­enda og auk­ið al­manna­ör­ygg­i.

View this post on Instagram

A post shared by Giorgia Meloni (@giorgiameloni)

Stjórn­ar­and­stað­an naut hins veg­ar full­ting­is dóm­ara­stétt­ar lands­ins, lög­manna og emb­ætt­is­manna úr rétt­ar­kerf­in­u, sem gagn­rýndu breyt­ing­arn­ar mjög og töldu þær til þess falln­ar að draga úr sjálf­stæði dóms­valds­ins og auka póli­tísk af­skipti af því. Vís­uðu gagn­rýnend­ur ekki síst til breyt­inga sem boð­að­ar hafa ver­ið í kjöl­far stjórn­ar­skrár­breyt­inga. Laga­frum­vörp sem gera myndu sak­sókn­ara háð­ari ráðu­neyt­um og skerða með því sjálf­stæði þeirra, jafn­vel þannig að fram­kvæmd­ar­vald­ið gæti ákveð­ið hvaða rann­sókn­ir yrðu fram­kvæmd­ar.

For­ystu­menn rík­is­stjórn­ar­inn­ar hafa ekki leg­ið á skoð­un­um sín­um um stétt dóm­ara og sak­sókn­ara í að­drag­anda at­kvæða­greiðsl­unn­ar. Meloni hef­ur sak­að þá um að grafa und­an inn­flytj­enda­stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar og við­leitni til að sporna gegn glæp­um. Í við­töl­um og kosn­inga­á­vörp­um hef­ur hún sagt að verði breyt­ing­un­um hafn­að muni það stefna al­manna­ör­yggi í hættu og þýða að „fleiri inn­flytj­end­ur, nauð­gar­ar, barn­a­níð­ing­ar og eit­ur­lyfja­sal­ar gangi laus­ir.“ Dóms­mála­ráð­herr­ann Car­lo Nordio sem breyt­ing­in er eink­um kennd við hef­ur upp­nefnt Hæsta­rétt lands­ins sem „hálfma­fíu.“

Ráð­herr­arn­ir sjálf­ir til rann­sókn­ar

Matteo Sal­vin­i, kaus á sunnudaginn.

Meloni var sjálf tek­in til rann­sókn­ar í fyrra eft­ir að líbíska stríðs­herr­an­um Ossama al­Masri var sleppt úr hald­i. Hann var þá eft­ir­lýst­ur af Al­þjóða saka­mála­dóm­stóln­um í Haag og var á þeim grund­velli hand­tek­inn í ítölsku borg­inni Tórínó. Eft­ir að Al­Masri var leyst­ur úr haldi var hon­um flog­ið til Líb­íu í flug­vél á veg­um ítalska rík­is­ins.

Rann­sókn sak­sókn­ara beind­ist eink­um að því hvort Meloni hefði veitt stríðs­glæpa­manni á flótta, að­stoð, og gerst þannig sek um refsi­vert at­hæfi og hvort al­manna­fé hafi ver­ið ráð­staf­að með ólög­mæt­um hætti í þeirri að­gerð.

Næst­ráð­andi Meloni í rík­is­stjórn­inn­i, Matteo Sal­vin­i, hef­ur líka lent í ítalska rétt­ar­kerf­inu en hann var ákærð­ur fyr­ir mann­rán ár­ið 2021 fyr­ir að hafa lát­ið kyrr­setja bát með um 100 flótta­menn inn­an­borðs þeg­ar hann var inn­an­rík­is­ráð­herra ár­ið 2019. Var flótta­fólk­ið kyrr­sett í bátn­um í tæp­ar þrjár vik­ur áð­ur en dóm­ar­ar úr­skurð­uðu að fólk­inu skyldi hleypt í land. Sal­vini var end­an­lega sýkn­að­ur af ákærunni í des­em­ber í fyrra.

Kosn­ing sem kjós­end­ur botna ekk­ert í

Flest­ir Ítal­ir eru sam­mála um að ítalska rétt­ar­kerf­ið sé brot­ið. Mála­þung­inn er mik­ill og kerf­ið sein­virkt. Þeir sem vilja leita rétt­ar síns á Ítal­íu þurfa að vera reiðu­bún­ir að bíða nið­ur­stöðu ár­um og jafn­vel ára­tug­um sam­an. Þótt Meloni hafi hald­ið því fram að hin­ar boð­uðu breyt­ing­ar myndu gera kerf­ið skil­virkara eru fæst­ir úr lög­manna­stétt sam­mála henni um það. Breyt­ing­arn­ar komi skil­virkni kerf­is­ins ekk­ert við.

Raun­ar eru breyt­ing­arn­ar svo tækni­leg­ar að erf­ið­lega hef­ur geng­ið að skýra út fyr­ir ítölsk­um al­menn­ingi hvað þær þýða í raun og veru. Og það er stærsta vanda­mál­ið sem kjós­end­ur hafa stað­ið frammi fyr­ir. Er þetta tal­in ein af ástæð­um þess að kosn­ing­in snérist í raun­inni upp í kosn­ingu um Giorgiu Meloni og rík­is­stjórn henn­ar. Tap Meloni í þessari atkvæðagreiðslu er tal­ið mesta póli­tíska áfall for­sæt­is­ráð­herr­ans síð­an rík­is­stjórn henn­ar var mynd­uð í októ­ber 2022. Er nið­ur­stað­an tal­in muna þyngja róð­ur Meloni mjög í að­drag­anda þing­kosn­inga sem fram fara á Ítal­íu á næsta ári.

Líkt og ríkj­andi stjórn­ar­flokk­ar á Ís­landi hafa gef­ið til kynna, um fyr­ir­hug­að þjóð­ar­at­kvæði hér á land­i, um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB, hef­ur Meloni lagt áherslu á að nið­ur­staða at­kvæða­greiðsl­unn­ar hafi ekki áhrif á stöðu rík­is­stjórn­ar­inn­ar og að hún muni halda áfram í emb­ætti óháð nið­ur­stöð­unn­i.

„Við höld­um áfram“

Eft­ir að nið­ur­stað­an varð ljós lýsti Meloni því yf­ir að rík­is­stjórn­in muni virða nið­ur­stöð­una. „Ítal­ir hafa val­ið og við virð­um nið­ur­stöð­una. Við höld­um áfram eins og við höf­um alltaf gert, af ábyrgð, ein­urð og virð­ingu fyr­ir ítölsku þjóð­inni og Ítal­íu,“ sagði Meloni í mynd­bandi á sam­fé­lags­miðl­um eft­ir að nið­ur­stað­an varð ljós.

Stjórn­mála­skýrend­ur segja að þótt Meloni segi ekki af sér, veiki nið­ur­stað­an hana. Á því leiki eng­inn vafi. Mik­ið hafi ver­ið gert úr nánu sam­bandi henn­ar við Trump og stríð hans í Ír­an sé óvin­sælt sem og þær verð­hækk­an­ir sem það vald­i. Nið­ur­stað­an sýni óá­nægju fólks.

Und­an­far­in miss­eri hef­ur hins veg­ar ver­ið mik­ill hiti í lands­mönn­um vegna al­þjóða­mála. Ítal­ir eru upp til hópa ekki hrifn­ir af Don­ald Trump en Meloni hef­ur ver­ið einn af nán­ustu banda­mönn­um hans í álf­unn­i. Hækk­andi verð­lag vegna stríðs­rekst­urs hans í Íran, hef­ur ekki bætt úr skák.

Raun­ar hafa marg­ir Ítal­ir átt erfitt með að kyngja ut­an­rík­is­stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar, allt kjör­tíma­bil­ið, ekki síst í af­stöðu til Ísra­els­manna og stríðs­ins á Gaza en Ítal­ir hafa mikla sam­úð með Palest­ínu­mönn­um.

Hörku­tól á heima­velli en ólíkindatól í alþjóðastjórnmálum

Þrátt fyr­ir ósig­ur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni hef­ur Meloni not­ið mik­ils per­sónu­fylg­is á Ítal­íu. Hún mælist gjarn­an með í kring­um 40 pró­senta fylg­i, sem er óvenju­legt á Ítal­íu, þar sem óstöð­ug­leiki og tíð stjórn­ar­skipti hafa ein­kennt stjórn­mál­in.

Meloni hef­ur náð þannig tök­um á ítal­skri póli­tík að ekki hef­ur ríkt jafn­mik­ill póli­tísk­ur stöð­ug­leiki í land­inu frá stofn­un ítalska rík­is­ins ár­ið 1946.

Giorgia Melon­i, fyrsta kon­an til að gegna stöðu for­sæt­is­ráð­herra á Ítal­íu, þyk­ir bæði slæg og föst fyr­ir. Hún sló ítalskt hraða­met þeg­ar rík­is­stjórn henn­ar var mynd­uð haust­ið 2022. Þrír hægri flokk­ar standa að stjórn­inn­i. Hægri­s­inn­aði íhalds­flokk­ur Meloni sjálfr­ar, Ítal­íu­bræð­ur, sem bygg­ir á fasísk­um grunn­i, hægri popúlist­arn­ir í Norð­ur­banda­lag­inu und­ir for­ystu Sal­vini Matteo og flokk­ur Sil­vio Berlus­coni heit­ins, Forsa Ital­i­a.

Vladimir Putin heimsótti Silvio Berlusconi til Ítalíu árið 2008. Vel fór jafnan á með þeim.

Mynd­un stjórn­ar­inn­ar var ým­ist lýst sem mik­illi hægri sveiflu í ítölsk­um stjórn­mál­um eða fyrstu öfga­hægristjórn Ítal­íu síð­an fas­ist­um var hafn­að í kjöl­far seinni heims­styrj­ald­ar­inn­ar.

Hin 48 ára Meloni varð fræg þeg­ar hún setti of­an í við sjálf­an Sil­vio Berluconi í fjöl­miðl­u­m, þeg­ar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­ur stóðu yf­ir. Eitt­hvað var Berlusconi pirr­að­ur yf­ir því að koma ekki til greina sem ráð­herra­efni og lýsti efa­semd­um um Meloni í fjöl­miðl­u­m. Meloni sendi Berlusconi pillu á móti og sagði með­al ann­ars að henn­ar stjórn yrði hlið­holl NATO og hlið­holl Evr­ópu. „Þeir sem eru ósam­mála því verða ekki með­.“

Flók­in jafn­væg­is­list milli Trump og Evr­ópu

Meloni og Don­ald Trump eru skoð­ana­systk­in um marg­t, deila svip­aðri sýn á inn­flytj­enda­mál og þjóð­ern­is­hyggju og hafa bæði andúð á flestu sem kennt er við woke.

Súrn­andi sam­skipti Trumps og Evr­ópu hafa hins veg­ar sett Meloni í erf­iða stöð­u. Hún hef­ur ver­ið treg til að gagn­rýna Trump op­in­ber­lega og það hef­ur kom­ið henni í bobba heima fyr­ir og gert henni erfitt fyr­ir á vett­vangi ESB.

Meloni hefur verið einn helsti bandamaður Donalds Trump í Evópu. Mynd/Governo Italiano

Þrátt fyr­ir að Giorgia Meloni sé al­mennt tal­in með í þeim hópi sem kennd­ur er við öfga­hægri öfl í Evr­ópu og telj­ist hlið­holl Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seta, er hún ekki öll þar sem hún er séð og mörg­um hef­ur reynst erfitt að átta sig fylli­lega á henn­i.

Mun­ur­inn á Meloni og flest­um öðr­um sem kennd­ir eru við öfga­hægri stefnu í Evr­ópu, er af­staða henn­ar til Rúss­lands. Meloni skil­ur að Rúss­land er ógn við Evr­ópu og þar skil­ur á milli henn­ar og til dæm­is Vikt­ors Or­bán, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands, sem hef­ur lengi átt ná­in tengsl við Rússa.

Matteo Salvini hefur ekki farið leynt með stuðning sinn við rússnesk stjórnvöld. Þessa mynd birti hann á Facebook árið 2014.

Næst­ráð­andi Meloni í rík­is­stjórn henn­ar, Matteo Sal­vin­i, á hins veg­ar meira sam­eig­in­legt með Vikt­ori Or­bán, með­al ann­ars af­stöðu til Rúss­lands.

Þótt Meloni hafi ver­ið ólík­inda­tól í sam­skipt­um sín­um við leið­toga ESB hef­ur hún hvergi nærri ver­ið jafn­erf­ið og Vikt­or Or­bán. Meloni er ein­arð­ur stuðn­ings­mað­ur Úkra­ínu og hef­ur til að mynda mælst til þess að á með­an Úkra­ína er ekki að­ild­ar­ríki að NATO, sam­mælist að­ild­ar­ríki banda­lags­ins um að Úkra­ína skuli njóta vernd­ar 5. gr. stofnsátt­mála NATO, líkt og um að­ild­ar­ríki væri að ræða. Þannig fái land­ið þær ör­ygg­is­trygg­ing­ar sem það þurfi á að halda þar til það verði full­gild­ur að­il­i.

Meloni hef­ur þannig reynt að halda jafn­vægi í af­stöðu sinn­i, bæði til Trumps og til ut­an­rík­is­stefnu Evr­ópu og það hef­ur að mestu slopp­ið til hjá henn­i.

Hún er í raun­inni hvorki full­kom­lega hlið­holl Trump né valda­mestu leið­tog­um Evr­ópu og það er hvort tveggja í senn, styrk­leiki henn­ar og veik­leik­i.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 24. mars, 2026, 11:05

Aðalheiður Ámundadóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link