Epstein greiddi fyrir þvott á orðspori sínu

Lestími: 7 mínútur

Barnaníðingurinn Jeffrey Epstein greiddi fúlgur fjár til að láta fegra ímynd sína á netinu. Þetta má sjá í tölvupóstum hans sem hafa verið gerðir opinberir. Einfalt er að leita í tölvupóstum Epstein í gagnagrunni sem hefur verið settur upp eins og klón af Gmail.

Á Wikipedia síðu um Epstein stendur efst að hann hafi verið bandarískur fjárfestir, barnaníðingur, raðnauðgari og skipuleggjandi mansals. Wikipedia-síður eru gjarnan með því fyrsta sem kemur upp þegar nöfn fólks eru gúggluð, og hafði Jeffrey Epstein af því nokkrar áhyggjur hvernig ímynd hans birtist á netinu eftir að hann játaði árið 2008 að hafa borgað fyrir kynlíf með ólögráða stúlku, sumsé að nauðga barni.

Epstein afplánaði fangelsisdóm fyrir þetta, eftir að hafa gert samning um að játa á sig þetta eina brot gegn því að fleiri ákærur yrðu felldar niður. Þetta var í framhaldi af umfangsmikilli lögreglurannsókn þar sem grunur lék á að Epstein tæki þátt í skipulögðu mansali þar sem stúlkur væru seldar í kynlífsþrælkun.

„Í fyrirsögnunum er ekki lengur talað um dæmdan kynferðisbrotamann eða barnaníðing heldur góðgerðastarfsemi, Epstein-stofnunina og stuðning við vísindamenn“ – úr tölvupósti til Epstein, desember 2010

Eftir að Epstein losnaði úr fangelsi lagði hann mikla áherslu á að bæði endurreisa og fegra orðspor sitt, til að mynda með því að hafa áhrif á leitarniðurstöður á netinu. 

„Í fyrirsögnunum er ekki lengur talað um dæmdan kynferðisbrotamann eða barnaníðing heldur góðgerðastarfsemi, Epstein-stofnunina og stuðning við vísindamenn“. Þetta segir í tölvupósti til Jeffrey Epstein í desember 2010. Sendandinn, Al Seckel, lýsti þessu sem „mikilvægum sigri“.

Seckel sendir þennan póst sem var við pósti þar sem Epstein segir: „Google síðan er ekki góð“, og af samhengi má ráða að hann vísi þar til fyrstu síðunnar sem kemur upp þegar leitað er að nafninu hans á Google. 

Skjáskot sem Seckel sendi Epstein til að sýna honum árangur af starfi sínu við að hafa áhrif á leitarniðurstöður

Epstein rekur síðan að Seckel hafi sagst geta komið þessu í lag fyrir 20 þúsund dollara, sem jafngilti þá tveimur og hálfri milljón íslenskra króna. Þessu hafi Seckel lofað fyrir nóvembermánuð. Síðan hafi bæst við tíu þúsund dollarar, og aðrir tíu þúsund dollarar, og loks „emergency“ gjald til að halda netþjónum gangandi. Epstein vísar síðan til þess að hann hafi greitt þriðja manninum fjörutíu þúsund dollara vegna þessa, og gagnrýnir hversu seint verkefnið gengur.

Tveimur mánuðum áður, í október 2010, hafði Seckel sent Epstein: Við erum að gera hægfara breytingar á Wikipedia-síðunni og núna er þetta farið að bera meiri árangur.

Stuttu eftir þessi póstsamskipti Epstein og Seckel segir sá síðarnefndi að einungis ein neikvæð grein sé eftir á forsíðu leitarinnar í Google, grein sem birtist í Huffington Post í júlí 2010: Jeffrey Epstein, Convicted Pedophile and Former Hedge Fund Titan Now a Free Man, en Seckel segir að mjög erfitt sé að koma henni af forsíðunni því það séu milljónir tengla á hana, auk þess sem fréttasíðan sé mjög virk.

Talað er um það sem orðsporsþvott (e. reputation laundering) þegar einstaklingur eða stofnun reynir markvisst að hylma yfir ósiðlega eða refsiverða háttsemi, eða annars konar umdeild mál, með því að ráðast í aðgerðir til að fegra ímynd sína, móta nýja frásögn og beina athyglinni frá fyrri gjörðum.

Leiðir til að leita í Epstein-skjölunum

Þessi tölvupóstsamskipti þeirra, og meira til, er hægt að finna á netinu eftir að hluti Epstein-skjalanna var birtur. Á vef dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna hafa verið birtar um 3,5 milljónir síðna af skjölum sem tengjast máli Epstein, auk tvö þúsund myndbanda og 180 þúsund mynda.

Mögulegt er að leita með einföldum hætti í tölvupóstum Epsteins á vefnum jmail.world þar sem búið er að hanna gagnagrunn sem safnar og birtir tölvupósta sem gerðir voru opinberir á grundvelli laga sem samþykkt voru á Bandaríkjaþingi til að tryggja gagnsæi í tengslum við Epstein-málið. Safn með öllum gögnum má finna hér á vef bandaríska dómsmálaráðuneytisins.

Viðmótið sem birtist á jmail.world líkir eftir Gmail þar sem notandi sér gögnin eins og hann sé skráður inn í persónulegt pósthólf Epstein, [email protected]. Þarna má finna skilaboð allt fram til 2019, þegar hann lést.

Skjáskot sem Seckel sendi Epstein til að sýna honum dæmi um leitarniðurstöður sem birtist ofarlega á Google í stað frétta sem tengdu hann við barnaníð.

Gagnagrunnurinn var hannaður sérstaklega til að hrekja fullyrðingar bandaríska dómsmálaráðneytisins um að ómögulegt sé að leita kerfisbundið í gögnum Epstein-málsins vegna tæknilegra takmarkana. Vefurinn nýtir sjónræn greiningarkerfi til að lesa og umbreyta skönnuðum skjölum í texta sem hægt er að leita í, en inni í hverjum pósti er hægt að smella á upprunalegt skjal úr safni ráðuneytisins.

Þeir sem þróuðu jmail.world eru gagnablaðamaðurinn Riley Waltz og gervigreindarverkfræðingurinn Luke Igel. Þegar þeir kynntu gagnagrunninn sagði Waltz að þeir hefðu í raun klónað Gmail „nema notandinn væri skráður inn sem Epstein og gæti lesið tölvupóstana hans“. Þá sagði Igel að það „galnasta“ við þetta væri að það er hægt að lesa einkapósta Epsteins þar sem hann vinnur að því að hreinsa orðspor sitt. 

Þarna er hægt að sjá innhólfið, yfirlit yfir senda pósta, skoða viðhengi með tölvupóstum og fara yfir póstana eftir viðtakendum. Þannig er til dæmis hægt að skoða sérstaklega pósta milli Epsteins og Seckel.

Tengingar inn í virðulega hópa

Ekki liggur fyrir hvernig þeir kynntust en heimildir sýna samstarf þeirra í kring um vísindaráðstefnur og ýmsa hugmyndafundi í Bandríkjunum í kring um 2009. Seckel sá þar um að kynna Epstein inn í akademískt samfélag en Epstein lagði fram fjármagn, og veitti Seckel til dæmis aðstöðu á alræmdu eyjunni Little Saint James, Epstein-eyjunin svonefndu, til að halda ráðstefnuna Mindshift þar sem vísindamenn og tæknifrumkvöðlar komu saman. 

Seckel er nú fyrst og fremst þekktur fyrir blekkingar og fjársvik en hann var áður gríðarlega vel tengdur inn í vísindasamfélagið og menningarelítuna, og hélt fyrirlestra í virtum háskólum. 

Seckel giftist Isabel Maxwell, systur Gislane Maxwell, árið 2007 og var giftur henni þar til hann lést árið 2015. Talið er að hann hafi svipt sig lífi en hann lést skömmu eftir viðamikla fjölmiðlaumfjöllun um svikaferil hans og vaxandi skuldasöfnun. Ráðstefnan sem Seckel skipulagði er gjarnan nefnd með fleiri dæmum um hvernig Epstein nýtti fjármagn sitt til að tengjast hópum virðulegra einstaklinga innan vísinda og menningar. Þá hefur þessi tengslamyndum Epsteins verið sett í samhengi við það sem kallað er orðsporsþvottur hans, þar sem hann nýtti samskipti sín við þekkt og virt fólk til að fegra eigin ímynd, ekki síður en hvernig hann hafði áhrif á leitarniðurstöður á netinu til að þvo ímynd sína.

Kæri lesandi Gímaldsins

Þessi grein er aðeins opin fyrir áskrifendur.

Við viljum byggja upp öflugan hóp áskrifenda og gott stuðningsmannalið svo við getum haldið áfram að skrifa um það sem skiptir máli.

Vilt þú vera með?

Viltu fréttabréf beint í innhólfið hjá þér?

Síðast uppfært: 13. febrúar, 2026, 13:43

Erla Hlynsdóttir

Deila grein:

Meira frá Gímaldinu

Innskráning

[magic_login_form]

We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.

Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.

You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.

No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.

  • You never have to enter your billing and shipping address again

  • Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account

  • Download invoices of your orders

No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.

From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.

Tab Content

This is a basic text element.
Secret Link