
Hreyfingar fólks sem hefur gert upp hug sinn í Evrópumálum fá peninga frá ríkinu til að sannfæra hina. Fjölmiðlar hafa ríku hlutverki að gegna í sumar. Þjóðin þarf fleira en andstæða póla.

Skáld hafa öldum saman nýtt andstæður til að skapa merkingu og vídd. Hluti af íslenskunámi, jafnvel grunnskóla, er að læra bókmenntahugtök á borð við andstæður og fá þjálfun í því að koma auga á þær í texta. Í átökunum milli góðs og ills, stríðs og friðar, ljóss og skugga, heiða og láglendis birtist sagan. Andstæðurnar hafa tilgang, þær ramma söguna inn og hjálpa lesanda að skilja átök og dramatík frásagnarinnar.
Nú fer í hönd sérstakt sumar í lífi þjóðar. Okkar bíður þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Hvaða skólakrakki sem er á auðvelt með að koma auga á andstæðurnar í málinu. Já eða nei, inni eða úti, með eða á móti.
En eins og í bókmenntum þá eru andstæðurnar ekki sagan öll. Það dugar okkur ekki að vita að einhver vill kjósa já og annar nei. Við þurfum meira til að geta greint málið sjálf og mótað okkar afstöðu.
Alþingi samþykkti í fyrra að veita 25 milljónum króna í undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Niðurstaða utanríkisráðuneytisins var að fénu yrði best varið með því að færa Evrópuhreyfingunni 10 milljónir, Heimssýn 10 milljónir og Vísindavefnum 5 milljónir króna.
Þetta var gert í því skyni að „efla umræðu um kosti og galla aðildar að Evrópusambandinu (ESB) og tryggja greiðan aðgang almennings að upplýsingum í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB. Fyrirhugað er að hreyfingarnar verji fjármagninu til verkefna á borð við fræðslu, greinarskrif og efnisgerð til birtingar á fjölmiðlum og samfélagsmiðlum og skipulagningu funda og ráðstefna um kosti og galla aðildar að ESB,“ eins og það var orðað í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Í nýlegri umsögn sem Gímaldið sendi allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis um breytingar á fjölmiðlalögum er bent á mikilvægi fjölmiðla, ekki síst þegar mikið liggur við. Þjóðin vill nefnilega geta leitað til fjölmiðla og sótt þangað traustar upplýsingar. Í heimsfaraldri COVID-19 sóttu 94,5% Íslendinga upplýsingar til innlendra fjölmiðla og yfir 80% treystu þeim, hlutföll sem mældust mun hærri en í samanburðarlöndum, samkvæmt skýrslu vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19. Í skýrslunni kemur skýrt fram að fjölmiðlar gegndu lykilhlutverki í að fræða og upplýsa almenning á viðkvæmum tímum. Fjölmiðlafólk var talið með framlínustarfsfólki.
Síðan eru liðin nokkur ár og frá því heimsfaraldri lauk hafa komið út þónokkrar skýrslur og stefnur um þjóðaröryggi og áfallaþol samfélagsins þar sem lýst er þungum áhyggjum af upplýsingaóreiðu og falsfréttum. Í undirbúningi fyrir umsögnina fundum við sex skýrslur frá stofnunum ríkisins þar sem þessum áhyggjum er lýst. Eitt eiga þær allar sameiginlegt: Hvergi er minnst á fjölmiðla eða hlutverk þeirra, þrátt fyrir að gögn sýni gildi fjölmiðla þegar áföll dynja yfir.
Þessar 25 milljónir sem eiga að fara í að „efla umræðu“ og auk þess í „fræðslu, greinarskrif og efnisgerð til birtingar á fjölmiðlum“ eru ekki ætlaðar til að efla fjölmiðla eða blaðamenn í að takast á við þetta verkefni. Aðeins til að gera fólki sem þegar hefur gert upp hug sinn kleift að boða eigið fagnaðarerindi.
Andstæðurnar eru látnar duga. Já og nei, svart og hvítt, heitt og kalt, með eða á móti.
Fjölmiðla bíður veglegt hlutverk í sumar og þeir geta sýnt sitt rétta andlit með því að standa undir því.
Hlutverk fjölmiðla er að kafa dýpra og reikna má með að margir treysti á fjölmiðla til að fá upplýsingar sem hjálpa þeim að taka ákvörðun áður en haldið er í kjörklefann í haust. Það mun Gímaldið gera án þess að hafa nokkru sinni fengið krónu af opinberu fé. Við, ásamt öðrum íslenskum fjölmiðlum, leggjum okkar á vogarskálarnar til að veita almenningi þá þjónustu sem hann á skilið þetta sérstaka sumar í lífi þjóðar.
Þjóðin á það skilið að fá söguna alla. Ekki bara andstæðurnar.
Greinin birtist fyrst á fréttavefnum Vísir.is þann 29. maí 2026.
We often send out our newsletter with news and great offers. We will never disclose your data to third parties and you can unsubscribe from the newsletter at any time.
Unfortunately, we’re unable to offer free samples. As a retailer, we buy all magazines from their publishers at the regular trade price. However, you could contact the magazine’s publisher directly to ask if they can send you a free copy.
You can create a new account at the end of the order process or on the following page. You can view all of your orders and subscriptions in your customer account. You can also change your addresses and your password.
No, you don’t have to create an account. But there are a few advantages if you create an account.
You never have to enter your billing and shipping address again
Find all of your orders, subscriptions and addresses in your account
Download invoices of your orders
No, we don’t have a physical store location at the moment. We accept only orders through our online shop and we’re shipping all orders with the Swiss Post Service. Please visit our shipping section for more details.
From time to time you will find us at design fairs and popup markets in Switzerland. Subscribe to our newsletter and you’ll receive the latest news.